Morgunblaðið - 12.04.2002, Qupperneq 1
84. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 12. APRÍL 2002
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði Ísraelum í gær,
að herför þeirra gegn Palestínumönn-
um á Vesturbakkanum, sem staðið
hefur í hálfan mánuð, myndi ekki upp-
ræta hryðjuverkaógnina. Sagði Powell
að áfram myndi ólga reiði meðal Pal-
estínumanna, og við því yrði einungis
brugðist með samningaviðræðum.
Powell kom til Ísraels í gærkvöldi í
því augnamiði að binda enda á þau
blóðugu átök er staðið hafa milli Ísr-
aela og Palestínumanna í hálft annað
ár. Í dag á hann fund með Ariel Shar-
on, forsætisráðherra Ísraels. Þeir
ræddu saman í síma í gær þegar Pow-
ell var á Spáni, þaðan sem hann hélt
til Ísraels með viðkomu í Jórdaníu.
Hittir Arafat í Ramallah
Powell andmælti þeim hugmynd-
um Sharons, að afgerandi hernaðar-
aðgerðir á Vesturbakkanum tryggi
Ísraela betur gegn hryðjuverkum.
Tók Powell í sama streng og araba-
leiðtogar og sagði að Palestínumenn
væru reiðir og örvæntingarfullir, og
hversu lengi sem Ísraelar héldu at-
lögum sínum í bæjum og borgum Pal-
estínumanna áfram, „hvort sem þeir
draga sig hvarvetna til baka strax í
dag … eða taka sér lengri tíma til
þess, verður vandamálið enn fyrir
hendi. Það verður enn til fólk sem er
reiðubúið að grípa til ofbeldis, fólk
sem er tilbúið til að beita sjálfsmorðs-
sprengjum og öðrum sprengjum“,
sagði Powell.
Fyrirhugað er að Powell fundi með
Yasser Arafat Palestínuleiðtoga í
Ramallah á morgun. Þær tillögur sem
Powell mun leggja fyrir Sharon og
Arafat hljóða upp á að Palestínumenn
stofni ríki á svæðum sem Ísraelar
sitja nú á, og umfangsmikil aðstoð
verði veitt til enduruppbyggingar á
Vesturbakkanum vegna þeirra
skemmda sem Ísraelar hafa unnið í
herför sinni gegn hryðjuverkamönn-
um í röðum Palestínumanna.
Sharon tjáði Powell í símtali þeirra
í gærmorgun að ísraelskar hersveitir
væru á leið út úr 22 palestínskum
bæjum og þorpum, en Sharon sagði
við fréttamenn í Jerúsalem að herinn
yrði áfram í Ramallah, Betlehem,
Jenin og Nablus uns palestínskir
hryðjuverkamenn hefðu verið brotnir
á bak aftur. Powell var spurður hvort
ekki væri einsýnt að för hans yrði
árangurslaus, en hann svaraði að
bragði: „Ég hef engan áhuga á svarta-
gallsrausi. Það er nauðsynlegt að ég
fari.“
Um leið og ísraelski herinn hvarf
frá mörgum bæjum Palestínumanna í
gær hélt hann inn í aðra og handtók
fleiri Palestínumenn. Segir herinn að
alls hafi nú tæplega 4.200 Palestínu-
menn verið handteknir, þar af um
helmingur undanfarna tvo daga í Jen-
in og Nablus þar sem palestínskir
bardagamenn gáfust upp í stórum
hópum eftir að hafa orðið uppi-
skroppa með skotfæri.
Bardagarnir voru harðastir í Jenin,
þar sem eru stórar flóttamannabúðir
Palestínumanna. Fréttamenn fóru í
gær inn í borgina í fyrsta sinn í rúma
viku, og sögðu eyðilegginguna þar gíf-
urlega. Þeir sáu aftur á móti engin lík
á götum úti. Hussam Sherkawi, yf-
irmaður neyðarþjónustunnar á Vest-
urbakkanum, sagði að alls hefðu að
minnsta kosti 140 Palestínumenn fall-
ið í aðgerðum Ísraela, en þó væri
ógerningur að staðfesta tölu fallinna
þar sem björgunarsveitum hefði ekki
verið leyft að fara inn í Jenin.
Talsmaður ísraelska hersins vísaði
í gær til föðurhúsanna fullyrðingum
um að herinn hefði varpað líkum Pal-
estínumanna í fjöldagrafir. Sagði
hann Ísraela ekki hafa hróflað við lík-
um fallinna, en gat ekki sagt til um
hvar líkin væru nú. Tuttugu og átta
ísraelskir hermenn hafa fallið í að-
gerðum Ísraela á Vesturbakkanum
undanfarið, allir nema fimm í bardög-
unum í Jenin.
Reuters
Ættingjar Palestínumanns sem var meðal þeirra er fallið hafa undanfarna daga syrgðu hann í Ramallah í gær.
Powell segir hernað Ísr-
aela ekki leysa vandann
Madríd, Jerúsalem, Tel Aviv. AP, AFP.
Minni stuðningur/22
ALÞJÓÐLEGUR og varanlegur
glæpadómstóll varð að veruleika í
gær þegar tíu ríki staðfestu sáttmála
Sameinuðu þjóðanna um stofnun
dómstólsins en það þýddi að tilskild-
um fjölda ríkja, sem staðfest hafa
sáttmálann, er náð. Öll helstu mann-
réttindasamtök heims fögnuðu þess-
um tíðindum í gær og sögðu þetta
marka stærsta skrefið fram á við í
mannréttindamálum síðan mann-
réttindayfirlýsing SÞ var staðfest
fyrir meira en fimmtíu árum.
Alþjóðlegir stríðsglæpadómstólar
hafa fram að þessu aðeins starfað
tímabundið og verið helgaðir tiltekn-
um málum, s.s. grimmdarverkum
nasista í síðari heimsstyrjöld og
stríðsglæpum sem framdir voru í
átökunum á Balkanskaga. Alþjóðlegi
glæpadómstóllinn, ICC, er hins veg-
ar til frambúðar og mun þar m.a.
verða hægt að sækja menn til saka
fyrir stríðsglæpi, sama hvar þeir
voru framdir.
Það þykir varpa skugga á þessi
tímamót að ríki eins og Bandaríkin,
Rússland og Kína hafa ekki uppi
nein áform um að staðfesta sáttmál-
ann. Hefur málið reyndar lengi verið
pólitískt hitamál í Bandaríkjunum
því þó að dómstóllinn muni ekki geta
ákært fyrir verk, sem framin voru
áður en hann tók til starfa, óttast
margir ráðamenn í Washington að
dómstólnum verði beitt í pólitískum
tilgangi og að dælt verði út ákærum
á hendur bandarískum hermönnum.
Staðfesta varanlegan
stríðsglæpadómstól
Tímamót
í mann-
réttinda-
málum
Genf, Washington. AFP.
FIMM manns að minnsta kosti
féllu í götuóeirðum sem brutust út í
Caracas, höfuðborg Venesúela, í
gær og um fimmtíu særðust. Hóp-
um fólks er krefst afsagnar Hugos
Chavez forseta lenti saman við
stuðningsmenn hans, að því er lög-
regla greindi frá.
Aðrar heimildir hermdu að fleiri
hefðu fallið í óeirðunum, eða allt að
níu manns. Allsherjarverkfall hefur
staðið í Venesúela í þrjá daga. Með-
al þeirra sem féllu í gær var blaða-
maður sem var skotinn til bana í
bardaga milli hermanna og lög-
reglu.
Venesúela
Fimm falla
í óeirðum
Caracas. AFP.
KOMIÐ hefur í ljós við rannsóknir,
að segulskautið nyrðra færist æ
hraðar í norður eða frá Kanada og
til Síberíu. Líklegt þykir, að það sé
undanfari umpólunar, það er, að
segulskautin skipti um stöðu ein-
hvern tíma á næstu 2.000 árum.
Komi til umpólunar verður að
hugsa það upp á nýtt hvað er norður
og hvað er suður en segulskautið
nyrðra flyst nú til á áður ómældum
hraða eða um 52 km á ári. Er það
niðurstaða þriggja ára mælinga
fjögurra franskra vísindamanna og
eins dansks, Nils Olsens við dönsku
geimvísindastofnunina. Skýra þeir
frá þessu í síðasta hefti vísinda-
tímaritsins Nature, sem helgar for-
síðuna þessum rannsóknum. Greindi
Berlingske Tidende frá þessu í gær.
Þótt umpólun geti tekið meira en
1.000 ár hefur hreyfing segulskaut-
anna mikil áhrif á mannlegt líf nú á
dögum. Það er vegna þess, að átta-
vitinn beinist ekki að heimskaut-
unum eins og þau eru skilgreind,
heldur að segulskautunum. Af þeim
sökum eru sumar áttavísanir ekki
alveg þær sömu og þær voru fyrir til
dæmis 300 árum. Þegar hreyfingin
er jafn mikil og nú verður að upp-
færa sjókort á fimm ára fresti.
Gamlar kirkjur, til dæmis í Dan-
mörku frá því á 12. öld, segja sína
sögu um hreyfingu segulskautanna.
Þær voru látnar snúa í austur og
vestur en nú munar frá 5 og upp í 15
gráður frá réttum áttum.
Umpólun felst í því, að seg-
ulskautin ferðast milli póla og
skipta um stöðu. Segir Olsen, að
liggi t.d. leiðin um eða við Dan-
mörku muni það valda miklum seg-
ulstormum þar og rafmagnstrufl-
unum eins og í Kanada fyrir 15
árum er segulskautið var þar mjög
nærri. Umpólunin dregur líka úr
hæfileika segulsviðsins til að vernda
jörðina fyrir geimgeislum og getur
því aukið stökkbreytingar í dýrum
og jurtum. Vísindamenn segja, að
umpólun eigi sér að jafnaði stað á
200.000 ára fresti en nú séu liðin
710.000 ár frá þeirri síðustu.
Umpólun jarðar að hefjast?
Nyrðra segul-
skautið hefur tekið
á rás yfir til Síberíu