Morgunblaðið - 12.04.2002, Síða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FARFUGLARNIR streyma til
landsins með tíðum sunnanáttum
þessa dagana.
Margar tegundir hafa sést, t.d.
lóur, jaðrakanar, þúfutittlingar
og maríuerlur.
Með slæðast jafnan flækings-
fuglar og allra síðustu daga hafa
tveir mjög sjaldgæfir flækingar,
kjarnbítur og mjallhegri, glatt
augu áhugamanna.
Auk þess hefur sérlega fallegur
gráhegri verið á vappi við Hellu-
vatn og veitt sér silung.
Ekki er þó víst að þar sé um
flæking að ræða, því slangur af
gráhegrum hafa hér vetrardvöl.
Mjallhegrinn er austur í Lóni
og er þetta í annað skipti sem
þessi tegund sést hér á landi.
Heimkynni mjallhegra eru í Mið-
og Suður-Evrópu og telja sér-
fræðingar að umræddur mjall-
hegri sé af evrópskum uppruna.
Kjarnbítur er evrópsk finku-
tegund og er þetta tíundi fuglinn
af þessari tegund sem sést hér á
landi. Kjarnbíturinn er í Vogum á
Vatnsleysuströnd og að sögn
Daníels Bergmann, fugla-
ljósmyndara, er hann gríðarlega
styggur.
Ljósmynd/Daníel BergmannGráhegri
við Helluvatn. Kjarnbíturinn í Vogum.
Mjallhegri og
kjarnbítur
Mjallhegrinn hefur nælt
sér í silungstitt.
EMBÆTTI ríkislögreglustjóra
minnir á vefsíðu sinni ökumenn
á að frestur til að taka vetrar-
dekkin undan bifreiðum og
setja sumardekkin á rennur út
mánudaginn 15. apríl næskom-
andi. Þó er heimild til að hafa
vetrardekkin lengur, ef sérstök
veðurskilyrði kalla á það.
Lögreglan býst við því að
fara að beita sektum við brot-
um gegn þessu þegar líður að
lokum mánaðarins. Minnt er á
að sektin fyrir hvert og eitt
vetrardekk með nöglum er 5
þúsund krónur, eða 20 þúsund
fyrir umganginn.
Nagladekk-
in af hinn
fimmtánda
SÁÁ hefur að beiðni Landlæknis lát-
ið embættinu í té nöfn fimm lækna
sem eru sagðir hafa ávísað miklu
magni af morfíni til fíkla sem leitað
hafa meðferðar. Yfirlæknir SÁÁ
segir að fíklar hafi ítrekað nefnt
þessa lækna þegar rætt er um hvað-
an lyfin koma og eins hafi fundist
lyfjaumbúðir þar sem nöfn þeirra
koma fram. Hann vill að eftirlit með
ávísun morfíns verði aukið.
Hjá Landlæknisembættinu feng-
ust þær upplýsingar að rætt yrði við
læknana á listanum. Um tugur
lækna sem ávísa miklu af sterkum
verkjalyfjum er undir sérstöku eft-
irliti embættisins. Haukur Valdi-
marsson, aðstoðarlandlæknir segir
að þetta þurfi ekki að vera óeðlilegt,
t.d. þurfi krabbameinslæknar að
ávísa miklu af slíkum lyfjum til sjúk-
linga sinna.
Lögreglan í Reykjavík hefur til
rannsóknar dauðsföll tveggja
kvenna sem létust nýverið með „vo-
veifleigum“ hætti. Þetta staðfestir
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík. Þegar ekki er
hægt að útskýra dauðsföll þeirra
með vísan til sjúkrasögu, slysfara
eða annars eru dauðsföllin talin vo-
veifleg og ber lögreglu að rannsaka
þau. Niðurstaða krufningar liggur
ekki fyrir. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins leikur grunur á að
eiturlyf hafi komið við sögu.
Misnotkun færist í vöxt og
dauðsföllum fjölgar
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
SÁÁ segir misnotkun á morfíni hafa
færst mikið í vöxt á undanförnum ár-
um. Um leið hafi dauðsföllum af
völdum of stórs fíkniefnaskammts
aukist. Vandinn sé nýtilkominn enda
hafi morfíni áður eingöngu verið
ávísað inni á spítölum. Nú sé morfíni
ávísað utan spítala í miklu meira
mæli. „Auðvitað fæst eitthvað með
því og það er nauðsynlegt en það
skapast líka ákveðnar hættur,“ segir
hann. Fíklarnir verða sér úti um
morfínlyfið contalgín sem er í töflu-
formi. Þeir leysa töflurnar upp og
sprauta efninu í æð.
Á síðasta ári komu 77 fíklar sem
sprautuðu morfíni í æð til meðferðar
hjá SÁÁ. Þórarinn segir hundruðir
sprautufíkla vera á Íslandi og ef þeir
fari að sprauta sig með morfíni skap-
ist mikil hætta en lítill munur sé á
þeim skammti sem kemur þeim í
vímu og skammtinum sem veldur
dauða. Þá sé þol fíklanna fyrir efninu
mismunandi sem geri notkun þeirra
enn varasamari. Dauðsföll vegna of
stórra fíkniefnaskammta hafa ekki
verið algeng hér á landi en Þórarinn
segir að svo virðist sem þeim hafi
fjölgað með aukinni notkun morfíns.
Auk morfíns hafa fíklar misnotað ró-
andi og örvandi lyf sem læknar hafa
ávísað. Þórarinn segir að næsta auð-
velt sé að ná sér í þessi lyf eins og
málum sé fyrirkomið í dag. Hefðu Ís-
lendingar betri heilsugæslu stæðu
menn e.t.v. ekki frammi fyrir þess-
um vanda.
Einn skjólstæðinga Einars Axels-
sonar, læknis hjá SÁÁ segist hafa
fengið morfín ávísað frá lækni á 15
daga fresti mörg undanfarin ár.
Maðurinn sé morfínfíkill en hann
hafi engin þau einkenni sem réttlæti
notkun verkjalyfja. Hann hafi ekki
einvörðungu fengið morfín heldur
einnig verið ávísað fjölda róandi og
örvandi lyfja, þ.m.t. ópíum. Einar
telur að andvirði lyfjanna á svörtum
markaði gæti numið um 800.000
króna á mánuði.
Ábendingar til Landlæknis
Landlæknisembættið er að skoða
leiðir til að herða reglur um ávísun á
sterk verkjastillandi lyf, þ.m.t. morf-
ín og skyld lyf og ritalín vegna gruns
um misnotkun.
Haukur Valdimarsson, aðstoðar-
landlæknir, segir að grunsemdir séu
um að fíkniefnaneytendur misnoti
þessi lyf, en einnig hafi landlæknis-
embættinu borist ábendingar um að
einstaklingar, sem fengið hafi þessi
lyf, seldu þau. Jafnframt sé verið að
skoða hvort einstakir læknar ávísi
með óeðlilegum hætti á þessi lyf.
Haukur sagði að landlæknisemb-
ættið fengi upplýsingar um lyfjaávís-
anir, bæði um magn og hverjir væru
að ávísa lyfjum. Þetta gerist þó ekki
fyrr en nokkrum vikum eftir að lyf-
inu hefur verið ávísað. Hann sagði að
þó að haft væri eftirlit með lyfjaávís-
unum teldu menn að það hefði ekki
að öllu leyti virkað eins vel og menn
vonuðust eftir. Hjá landlæknisemb-
ættinu hefðu menn áhyggjur af því
hvað upplýsingarnar bærust seint og
áhugi væri á að finna leiðir til að upp-
lýsingarnar bærust fyrr þannig að
hægt væri að taka fyrr í taumana ef
ástæða þætti til.
„Það má hins vegar ekki gleyma
því að þessi lyf, sem við erum að tala
um, eru mjög góð lyf og bráðnauð-
synleg mörgum sjúklingum. Það er
hins vegar hægt að misnota þau og
það viljum við koma í veg fyrir. Eft-
irlitskerfið, sem við verðum að setja
á fót, verður að vera þannig að það
bitni sem minnst á sjúklingunum
sem þurfa á þessum lyfjum að
halda,“ sagði Haukur.
Ýmsum aðferðum beitt
Haukur sagði að þeir sem væru að
misnota þessi lyf notuðu ýmsar að-
ferðir til að verða sér úti um þau. Það
væri gott aðgengi að læknum á Ís-
landi og sumir færu á milli þeirra og
hreinlega plötuðu þá til að gefa út
lyfseðla. Þá hafi fíklar farið á milli
lækna, t.d. fengið ávísað frá heim-
ilislækni, á sjúkrahúsi og á lækna-
vakt. Sumt af þessu fólki notaði sjálft
lyfin, en einnig hefðu komið fram
grunsemdir um að einstaklingar
væru að fá þessi lyf í þeim tilgangi að
selja þau fólki sem tæki þau til að
komast í vímu.
Landlæknisembættið fær upplýs-
ingar um lyfjaávísanir lækna og
Haukur sagði að ef einstakir læknar
væru að ávísa miklu af sterkum
verkjalyfjum eða ritalíni væri óskað
eftir skýringum þeirra. Stundum
kæmu fram eðlilegar skýringar.
Grunsemdir um að læknar væru
meðvitað að ávísa sterkum verkja-
lyfjum til fíkniefnaneytenda væru
því kannaðar.
Fá ávísað miklu
magni af morfíni
Hertar reglur
um lyfjaávísanir
til skoðunar
MISTÖK voru gerð við útgáfu á
myntbréfi sem Íslandspóstur gaf
út í tilefni aldarafmælis Halldórs
Laxness, en þar er farið rangt
með þekktan texta úr Heimsljósi.
Mistökin uppgötvuðust ekki fyrr
en rúmum hálfum mánuði eftir að
bréfið kom út. Þá var búið að
senda það út til viðskiptavina,
m.a. erlendis, og að mati Íslands-
pósts var óframkvæmanlegt að
innkalla það.
Myntbréfið er gefið út í tilefni
aldarafmælis Halldórs Laxness.
Hluti af upplaginu er prentaður
með upphleyptri verðlaunaorðu
sænsku akademíunnar í 22 karata
gulli.
Á myntbréfinu segir: „Þar sem
jökulinn ber við loft hættir loftið
að vera jarðneskt, en jörðin fær
hlutdeild í himninum, þar búa
ekki framar neinar sorgir og
þessvegna er gleðin ekki nauð-
synleg, þar ríkir fegurðin ein, of-
ar hverri kröfu.“
Réttur texti skáldsins er hins
vegar: „Þar sem jökulinn ber við
loft hættir landið að vera jarð-
neskt, ...“
Textinn tekinn af Netinu
Gylfi Gunnarsson, útgáfustjóri
hjá Íslandspósti, sagði að þarna
hefðu orðið mistök sem ekki
hefðu uppgötvast fyrr en um
hálfum mánuði eftir að mynt-
bréfið kom út. Þá hefði verið bú-
ið að senda það til viðskiptavina,
sem sumir hverjir væru erlendis.
Óframkvæmanlegt væri að inn-
kalla upplagið.
Hann sagðist harma þessi mis-
tök, en erfitt væri að bregðast
við þeim.
Tryggvi Tryggvason hannaði
myntbréfið og frímerkið sem því
fylgir, en hann hefur oft áður
hannað fyrir Íslandspóst.
Hann sagði þessi mistök afar
leiðinleg. Þau hefðu átt sér stað
með þeim hætti að hann hefði
tekið textann upp af Laxnessvef
Morgunblaðsins (mbl.is). Textinn
þar væri hins vegar ekki réttur.
Tryggvi sagði að því miður
hefði ekki verið farið í frumtext-
ann til að leita staðfestingar á því
að rétt væri farið með texta
skáldsins.
Margir hefðu lesið textann yfir
áður en myntbréfið fór í prentun
en enginn hefði tekið eftir mis-
tökunum.
Hann sagði að aðstandendum
skáldsins hefði verið gerð grein
fyrir mistökunum og beðist hefði
verið afsökunar á þeim.
Mistök gerð við prentun á myntbréfi
í tilefni afmælis Halldórs Laxness
Rangt farið með
texta skáldsins