Morgunblaðið - 12.04.2002, Side 12

Morgunblaðið - 12.04.2002, Side 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ FÉLAGSMÁLASTJÓRI Kópavogsbæjar segir í grein- argerð sinni til bæjarins ekki rétt að hann hafi gefið í skyn að piltar á fyrirhuguðu til- sjónarsambýli gætu átt á hættu kynferðislega áreitni af hálfu samkynhneigðs um- sækjanda um starf tilsjón- armanns, fengi hann starfið. Hann segir að nauðsynlegt hafi verið að ræða opinskátt um kynhneigð umsækjenda í starfsviðtölum vegna þess um hversu sérstakan vinnu- stað er að ræða. Morgunblaðið greindi frá því á þriðjudag að Samtökin ’78 hafa óskað eftir skýring- um frá Kópavogsbæ vegna ummæla Aðalsteins Sigfús- sonar félagsmálastjóra í um- ræddu starfsviðtali. Taldi umsækjandinn að það að gera kynhneigð hans að um- ræðuefni við ráðningu í op- inbert starf væri handan við lög og reglur. Greinargerð Aðalsteins vegna málsins var lögð fram á fundi bæjarráðs í gær. Vitnar hann þar í bréf Sam- takanna 7́8 þar sem segir að ekki hafi verið „annað álykt- að en að hann teldi viðkom- andi pilta eiga á hættu kyn- ferðislega áreitni af hálfu umsækjandans ef af ráðn- ingu yrði“. Þessu mótmælir Aðalsteinn. Um sérstakt barnaverndarúrræði sé að ræða þar sem gert sé ráð fyrir sólarhrings sambúð þriggja drengja og tilsjón- araðila. Því hafi þeir, sem tóku viðtölin, talið óhjá- kvæmilegt að ræða opinskátt við þá umsækjendur sem til greina komu um persónulega hagi þeirra og m.a. um kyn- hneigð. Mat þekkingu og reynslu umsækjandans mikils Bendir Aðalsteinn á að í lögum sé lögð áhersla á að allra leiða sé leitað til að við- kvæm barnaverndarúrræði megi takast sem best og í handbók Barnaverndarstofu fyrir barnaverndarnefndir og starfsmenn þeirra sé lögð áhersla á að ræða opinskátt og oft með nærgöngulum hætti um hagi aðila. Því hafi þeim þremur umsækjendum, sem komu til greina eftir fyrsta viðtal, verið gerð grein fyrir því áliti að nauð- synlegt væri að í kynning- arferli tilsjónarmanns, drengjanna og foreldra þeirra kæmi allt fram sem skipt gæti máli. „Þetta er gert í ljósi þess að sveitarfélagið er að setja á stofn sólarhrings tilsjón- arsambýli fyrir drengi sem eiga erfitt og sérstakt trún- aðarsamband þarf að ríkja milli þeirra og tilsjónaraðila. Í slíku sambýli, þar sem til- sjónaraðili þarf að deila lífi sínu með þessum drengjum, er ekki talið forsvaranlegt annað en að upplýsa um öll atriði sem máli geta skipt við þessar aðstæður.“ Segir að af þessum sökum hafi þótt nauðsynlegt að kynnast einkahögum þeirra sem komu til greina í starfið og þeir því allir spurðir ít- arlega um persónuleg mál- efni, þar með talið um kyn- hneigð sína. „Þessu undi viðkomandi umsækjandi einn illa, því miður, þar sem und- irritaður mat þekkingu og reynslu hans mikils og hann kom til greina í starfið. Und- irritaður telur að starfsmenn félagsþjónustunnar hafi breytt rétt í þessu máli, en harmar jafnframt að þessi framgangsmáti hafi valdið því að viðkomandi umsækj- andi taldi á sér brotið,“ segir í greinargerðinni. Ekki áður spurt um kyn- hneigð í starfsviðtölum Þá ítrekar Aðalsteinn sér- staklega að almennt sé ekki tilefni til að spyrja um kyn- hneigð fólks í starfsmanna- viðtölum og hafi það ekki verið gert áður hjá Fé- lagsþjónustu Kópavogs, enda skipti kynhneigð þar engu máli. „Þeirri túlkun sem fram kemur í bréfi Samtakanna 7́8 þar sem ályktað er „að hann teldi viðkomandi pilta eiga á hættu kynferðislega áreitni af hálfu umsækjanda ef af ráðningu yrði“ er mótmælt, enda voru slík ummæli aldrei viðhöfð í viðtali og ekkert sem gaf tilefni til slíkra um- mæla. Er harmað að sam- tökin ’78 skuli setja slíkt fram á opinberum vett- vangi,“ segir í greinargerð- inni. Loks tekur Aðalsteinn fram að kynhneigð umsækj- andans hafi aldrei komið til álita sem ákvörðunarástæða um hvaða umsækjandi yrði ráðinn í stöðuna. Greinargerð félagsmálastjóra lögð fram í bæjarráði í gær Mótmælir túlkun for- manns Samtakanna ’78 Kópavogur FJÖLSKYLDUDAGUR verð- ur í Gróttu á morgun í tilefni af útkomu kynningabækl- ings um Fræðasetur í Gróttu. Það er Skólaskrif- stofa Seltjarnarness sem gengst fyrir deginum og segir í fréttatilkynningu að gefast muni tækifæri til að njóta einstakrar náttúrufeg- urðar, rannsaka lífríkið í fjörunni, fara upp í vitann og kaupa kaffi og rjómavöfflur í setrinu. „Börnin geta tekið þátt í könnunarleiðangri í fjöruna, föndrað á seturs- loftinu og margt fleira.“ Fræðasetur í Gróttu var vígt haustið 2000. „Mark- miðið með því er að náttúra og umhverfi Gróttu nýtist á fjölbreyttan hátt fyrir bæði börn og fullorðna. Þar er að- staða fyrir inni- og úti- kennslu, rannsóknir, nám- skeið, fundi, vettvangsferðir, tónleika, veisluhöld og gistingu,“ seg- ir í tilkynningunni. Hægt er að komast fót- gangandi út í Gróttu á fjör- unni frá kl. 11–15 en auk þess verður björgunar- sveitin Ársæll á staðnum og ekur þeim sem ekki treysta sér til að ganga út í eyju. Gróttudagurinn haldinn hátíðlegur á morgun Rjómavöfflur og rannsóknar- leiðangrar Morgunblaðið/RAX Seltjarnarnes HÉRAÐSDÓMUR Reykja- ness hefur úrskurðað að Hafnafjarðarbær sé skaða- bótaskyldur gagnvart Jolla ehf., sem rekur söluturn við Helluhraun í Hafnarfirði, og hefur bærinn verið dæmdur til að greiða málskostnað þess síðarnefnda. Hafði öðrum aðila verið heimilað að setja upp sölulúgu við Flatahraun þrátt fyrir að Jolli hafi ekki fengið leyfi til þess nokkru áður. Jolli ehf. rak í nokkur ár söluskála við Flatahraun í hús- næði, sem ljóst var að bæjaryf- irvöld höfðu eingöngu heimilað að stæði á þeim stað til ársloka 1999 vegna nýs deiliskipulags sem þá var í vinnslu. Nokkru fyrir þann tíma sótti Jolli um nýja lóð undir starfsemi sína við Flatahraun eða á horni Flatahrauns og Helluhrauns. Óskaði hann eftir því að hægt yrði að koma fyrir tveimur bílalúgum á hvorri hlið fyrir- hugaðs húsnæðis auk af- greiðslurýmis innandyra. Skipulagsnefnd afgreiddi málið á þann veg að ekki væri mælt með því að söluskálinn yrði staðsettur á hornlóðinni heldur ofar hennar við Hellu- hraun. Kom fram við vitna- leiðslur að fyrrverandi bæjar- stjóri og fyrrverandi skipulagsstjóri bæjarins hefðu tjáð forsvarsmönnum Jolla að ekki yrði veitt heimild fyrir starfrækslu söluturns með að- stöðu til lúgusölu við Flata- hraun. Fól í sér að unnt yrði að starfrækja lúgusölu Forsvarsmenn Jolla ákváðu því að taka boði um lóð við Helluhraun enda töldu þeir að ekki fengist leyfi til að reka lúgusölu við Flatahraun og var lóðarleigusamningur undirrit- aður 30. júní árið 1999. Í nóv- ember sama ár var hins vegar tekin fyrir í bygginganefnd bæjarins umsókn frá G. Leifs- syni um heimild til að breyta gluggum og hurðum hússins nr. 5a við Flatahraun og setja á það þakglugga. Segir í dómi héraðsdóms að umsóknin hafi falið það í sér að unnt yrði að starfrækja lúgusölu í húsinu hlyti hún samþykki. Eftir að málið hafði farið fyrir fleiri nefndir bæjarins samþykkti bygginganefnd um- sóknina, þrátt fyrir neikvæða umsögn skipulagsstjóra. Í kjölfarið samþykkti bæjar- stjórn fundargerð bygginga- nefndar í byrjun árs 2000. Taldi stefnandi að með því að samþykkja umsóknina hafi Hafnarfjarðarbær brotið gegn ákvæðum skipulags- og bygg- ingarlaga og þeim grundvall- arreglum í íslenskri stjórn- sýslu að sjónarmið að baki stjórnvaldsákvörðun verði jafnan að vera lögmæt og að jafnræðis verði að vera gætt við úrlausn mála. Dómurinn féllst á það að Hafnarfjarðarbær væri skaða- bótaskyldur gagnvart Jolla ehf. vegna tjóns sem hann kynni að hafa orðið fyrir vegna þeirrar ákvörðunar bæjarins að heimila breytingu hússins við Flatahraun 5a á þann veg að unnt yrði að starfrækja þar söluturn með sölulúgu. Er við- urkenningarkrafa Jolla ehf. þannig tekin til greina. Að auki er Hafnarfjarðarbæ gert að greiða málskostnað stefnanda, 400.000 krónur. STARFSMENN gatna- málastjóra voru í óða önn við að setja upp grindverk milli akreina Suðurgötunnar á miðvikudag þegar ljósmynd- ara Morgunblaðsins bar að. Samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild borgarverk- fræðings er þetta gert til að beina fólki að gangbrautum og koma í veg fyrir að það hlaupi yfir götuna á óæski- legum stöðum. Nýleg könn- un umferðardeildar á kross- un yfir götuna hafi leitt í ljós að gangandi vegfarendur, og þá stúdentar sem oft eigi leið yfir götuna, fari yfir nánast hvar sem er og því hafi verið brugðið á þetta ráð. Beint á réttar brautir Morgunblaðið/Ómar Vesturbær Bærinn skaðabótaskyldur gagnvart söluturnseiganda Hafnarfjarðarbær FYRRI umræðum um árs- reikninga bæjarsjóðs Hafnar- fjarðar var frestað á fundi bæj- arstjórnar síðastliðinn þriðjudag þar sem reikning- arnir og fylgiskjöl bárust fund- armönnum ekki á tilsettum tíma. Segir í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni að reikn- ingarnir hafi ekki borist fulltrúum hennar í hendur fyrr en tveimur tímum fyrir fund- inn en samkvæmt samþykkt- um bæjarins þurfi öll slík gögn að liggja fyrir a.m.k. tveimur dögum fyrir umræðu. Var boð- að til aukafundar í bæjarstjórn sem fram fór í gær. Í fréttatilkynningunni er at- hygli vakin á auknum skuldum bæjarins en samkvæmt til- kynningunni hafa skuldir þre- faldast á kjörtímabilinu, farið úr 4,9 milljörðum í 12 millj- arða. Á síðasta ári jukust skuldir bæjarsjóðs um 1,5 milljarða. „Þá eru ótaldar skuldbindingar vegna einka- framkvæmda sem eru sam- kvæmt ársreikningunum áætl- aðar út leigutímann nær 7 milljarðar miðað við bygging- arþáttinn einan og sér.“ Þá segir að miðað við 7,5% ávöxt- unarkröfu sé núvirði þessara leigugreiðslna metið upp á tæpa þrjá milljarða. Loks er sérstök athygli vak- in á skuldastöðu Hafnarsjóðs en án lífeyrisskuldbindinga eru þær tæpur 1,5 milljarður króna. Segir að ekki verði séð af rekstrar- og framkvæmda- ryfirliti ársins 2001 að Hafnar- sjóður hafi nokkra möguleika á að borga upp þessar skuldir. Umræðum um árs- reikninga frestað Hafnarfjörður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.