Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VELTA Pharmaco dróst saman um
6,5% og nam 3,7 milljörðum króna á
fyrsta fjórðungi þessa árs borið sam-
an við sama tímabil í fyrra. Sala hér á
landi jókst um 24,4% og nam tæp-
lega einum milljarði króna en sala
erlendis nam 27,5 milljónum dollara,
eða sem samsvarar um 2,7 milljörð-
um króna, og dróst saman um 14%
milli ára.
Í frétt frá fyrirtækinu segir að
ástæða minni sölu í ár stafi af upp-
töku virðisaukaskatts um síðustu
áramót bæði í Búlgaríu og Rúss-
landi. Í Búlgaríu hafi 20% virðis-
aukaskattur verið lagður á innlenda
framleiðslu í upphafi ársins, en inn-
flutningur hafði borið virðisauka-
skatt fyrir. Vegna óvissu um fram-
kvæmd laganna hafi afgreiðslur frá
Balkanpharma ekki hafist fyrr en 28.
janúar. Í Rússlandi hafi 10% virð-
isaukaskattur verið lagður á öll lyf
um síðustu áramót. Vegna misræmis
í löggjöf í Rússlandi, þar sem sem
aðrar vörur beri 20% virðisauka-
skatt, hafi orðið dráttur til 20. janúar
á því að hægt yrði að afgreiða vörur
til Rússlands.
Í fréttinni segir einnig að Búlgaría
og Rússland séu langstærstu mark-
aðir Balkanpharma með um 55% af
veltu félagsins og þess vegna hafi
innleiðing virðisaukaskatts haft
veruleg áhrif á sölu fyrsta ársfjórð-
ungs. Í Búlgaríu hafi hráefniskostn-
aður Balkanpharma borið virðis-
aukaskatt en þar sem ekki hafi verið
um útskatt að ræða vegna sölu á af-
urðum félagsins hafi það ekki átt
þess kost að nýta sér innskatt á móti
útskatti. Þetta hafi hins vegar verið
hægt frá áramótum og framlegð fé-
lagsins muni því batna í kjölfar
þessa.
„Það er mat fyrirtækisins að sam-
dráttur á fyrsta ársfjórðungi sé
tímabundinn vegna upptöku virðis-
aukaskatts og hafi fyrst og fremst
gengið út yfir lagerstöðu heildsala
og apóteka. Því er ekki ástæða til að
breyta rekstraráætlunum Pharmaco
hf. fyrir árið í heild,“ segir í frétt fé-
lagsins.
Áætlanir Pharmaco fyrir þetta ár
gera ráð fyrir tæplega 18 milljarða
króna veltu og að hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði (EBITDA)
verði 4,4 milljarðar króna. Í þessum
áætlunum er gert ráð fyrir stöðugu
gengi á árinu.
Velta Pharmaco minnk-
ar á fyrsta ársfjórðungi
Ástæðan sögð tíma-
bundin vegna upptöku
virðisaukaskatts í
Búlgaríu og Rússlandi
TVÆR breytingar urðu á stjórn
Samherja hf. á aðalfundi félagsins
sem haldinn var í Nýja bíói á Akur-
eyri í gær. Arngrímur Jóhannsson,
stjórnarformaður Atlanta, og Jón
Sigurðsson, forstjóri Össurar, voru
kjörnir í stjórn félagsins, en áfram
starfa í stjórninni þeir Finnbogi Jóns-
son, starfandi stjórnarformaður, Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson, ritari og
Óskar Magnússon, meðstjórnandi.
Úr stjórninni gengu Hjörleifur Jak-
obsson og Þorsteinn M. Jónsson.
Á fundinum var samþykkt að
greiða hluthöfum 30% arð vegna
rekstrarársins 2001 og er það hæsta
hlutfall sem félag á Verðbréfaþingi
Íslands greiðir vegna þess árs. Fram
kom í máli Þorsteins Más Baldvins-
sonar, forstjóra Samherja, að hann
teldi nauðsynlegt fyrir félag eins og
Samherja að greiða góðan arð, m.a.
til að félagið yrði áhugaverður fjár-
festingarkostur. Sagði hann það sína
skoðun að fyrirtæki á hlutabréfa-
markaði horfi ekki nægilega mikið til
þess að greiða hluthöfum sínum við-
unandi arð. „Góður arður hluthafa af
fjárfestingum eflir trú almennings í
landinu og styrkir það þegar til lengri
tíma er litið,“ sagði hann.
Á fundinum var samþykkt tillaga
um að heimila stjórn félagsins að
kaupa eigin bréf að nafnvirði allt að
166 milljónir króna og gildir hún
næstu 18 mánuði.
Þorsteinn Már kynnti á fundinum
áætlanir félagsins fyrir næsta ár.
Hagnaður af reksti þess fyrstu þrjá
mánuði ársins er um 850 milljónir
króna. Tekjur alls eru áætlaðar rúm-
lega 13,8 milljarðar króna, rekstrar-
gjöld um 10,3 milljarðar og hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsliði tæp-
lega 3.500 milljónir króna. Hagnaður
þessa árs er þannig áætlaður um 1,6
milljarðar króna. Síðasta ár, 2001, var
eitt hið besta í sögu Samherja, en
hagnaður eftir skatta nam um 1,1
milljón króna.
Þorsteinn sagði það mikil von-
brigði að sjávarútvegsráðherra
skyldi ekki við bráðabirgðaúthlutun
kolmunnakvótans ekki nýta heimild
um frumherjarétt. Slíkt hefði þótt
sjálfsagt við úthlutun úthafskarfa- og
rækjukvóta á Flæmingjagrunni.
Samherji væri eitt þeirra sjávarút-
vegsfyrirtækja hér á landi sem fyrst
hóf kolmunnaveiðar og lagði í umtals-
verðan kostnað við þróun veiðanna
sem aðrir hafi notið góðs af. Sagðist
Þorsteinn ekki trúa öðru en að ráð-
herra muni nýta sér heimild um
frumherjarétt við endanlega úthlut-
un kolmunnakvótans þannig að Sam-
herji fengi notið frumkvöðlastarf við
þróun kolmunnaveiða.
Auknar skattaálögur munu
koma niður á fjárfestingum
Þorsteinn Már gerði fiskveiði-
stjórnunarkerfið að umtalsefni í ræðu
sinni á aðalfundinum og sagði mik-
ilvægt að það væri stöðugt en tæki
ekki sífelldum breytingum. Útvegs-
menn hefði stutt það að tekið yrði upp
takmarkað veiðileyfagjald til að ná
sátt og einingu meðal þjóðarinnar um
sjávarútveginn. „Því miður hefur það
ekki gengið eftir. Það hefur valdið
mér vonbrigðum að ýmsir lands-
byggðarþingmenn hafa ítrekað kall-
að eftir hærri álögum á sjávarútveg-
inn en frumvarp sjávarútvegs-
ráðherra um endurskoðun á
fiskveiðistjórnunni gerir ráð fyrir.
Það er alveg ljóst að ef ætlunin er að
skattleggja sjávarútveginn enn frek-
ar en nú er gert fyrir, mun það koma
harkalega niður á fjárfestingum í
sjávarútvegi, sem þó eru víða nauð-
synlegar til að mæta auknum kröfum
í okkar helstu markaðslöndum,“
sagði Þorsteinn.
Hann sagði það valda áhyggjum að
frá því svonefndum Valdimarsdómur
féll hafi skipum fjölgað verulega hér á
landi. „Það hlýtur að vera stjórnvöld-
um umhugsunarefni að í okkar
heimshluta er Ísland eina landið þar
sem ekki er hamlað gegn óheftri
stækkun fiskiskipaflotans,“ sagði
Þorsteinn og bætti við að með fjölgun
fiskiskipa væri kastað fyrir róða þeim
ótvíræða ávinningi sem hafði náðst
með fækkun skipa. Þróunin hefði leitt
til þess að sum skipanna væru gerð út
án veiðiheimilda og hefðu sömu aðilar
ítrekað komið við sögu vegna brota á
fiskveiðilöggjöfinni. „Fjölgun skipa
veldur pólitískum þrýstingi á aukn-
ingu aflaheimilda án þess að baki
liggi vísindaleg rök. Þetta er að mín-
um dómi í meira lagi varasöm þróun
og ávísun á óhagkvæmari sjávarút-
veg,“ sagði Þorsteinn Már.
Finnbogi Jónsson, stjórnarformað-
ur Samherja, ræddi m.a. um áform
félagsins varðandi fiskeldi, en á liðnu
ári keypti Samherji 45% hlut í Silfur-
stjörnunni og jók eignarhlut sinn í Ís-
landslaxi í 65% og Sæsilfri í 53%.
Nefndi Finnbogi að unnið hefði
verið að tilraunum með eldi á sand-
hverfu hjá Silfurstjörnunni og hefði
svara frá stjórnvöldum varðandi inn-
flutning á sandhverfuhrognum og
seiðum verið beðið frá því í septem-
ber. Nýjustu fregnir hermdu að svars
væri að vænta og vísbendingar væru
um að leyft yrði að flytja inn hrogn en
ekki seiði.
Fiskeldi getur orðið
stjóriðja Austfirðinga
Finnbogi benti á að í leiðara Morg-
unblaðsins nýlega hefði verið fjallað
um að fiskeldi á Austfjörðum gæti
orðið sú stóriðja sem heimamenn
hefðu beðið eftir. Styddu stjórnvöld í
verki slík markmið taldi Finnbogi að
um raunhæfa framtíðarsýn væri að
ræða. Hann sagði að ef tilskilin leyfi
fengjust um eldi í Reyðarfirði í sumar
væri hægt að setja út um 800 þúsund
seiði þar á næsta ári, unnt væri að
tvöfalda þá tölu árið eftir auk þess
sem um 2 milljónir seiða yrðu settar
út í Mjóafirði. Framleiðslan gæti
þannig numið um 6 þúsund tonnum
eftir tvö ár og um 14 þúsund tonnum
árið 2006. Heildartekjur gætu numið
um 4 milljörðum króna. Starfs-
mannafjöldi sem beint tengist eldinu
yrði kominn yfir 100 árið 2006.
„Það er því augljóslega rétt hjá
Morgunblaðinu að hér getur í raun
verið um stóriðju að ræða á Austur-
landi ef vel tekst til í fiskeldinu. Þegar
höfð er í huga sú þekking sem til stað-
ar er á laxeldi í dag og þeir mögu-
leikar sem Síldarvinnslan og Sam-
herji hafa sameiginlega, er ekki
annað hægt en að horfa tiltölulega
björtum augum á að hægt sé að ná ár-
angri í þessari mikilvægu atvinnu-
grein,“ sagði Finnbogi.
Aðalfundur Samherja hf. á Akureyri samþykkir að greiða hluthöfum 30% arð
Gerir félagið
að áhugaverð-
um fjárfest-
ingarkosti
Frá aðalfundi Samherja á Akureyri í gær.
Morgunblaðið/Kristján
Finnbogi Jónsson, starfandi stjórnarformaður Samherja, og Þorsteinn Már
Baldvinsson forstjóri á aðalfundi félagsins í gær.