Morgunblaðið - 12.04.2002, Qupperneq 22
ERLENT
22 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
97
7
/
TA
K
T
ÍK
afsláttur
af öllum buxum og
gallafatnaði á börn
og fullorðna um helgina
S M Á R A L I N D
Sími: 528 8200
INNAN Bandaríkjastjórnar hefur
tekið að draga úr stuðningi við Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
enda hefur hann undanfarna daga
ítrekað hunsað tilmæli George W.
Bush Bandaríkjaforseta um að kalla
ísraelska herinn tafarlaust frá heima-
stjórnarsvæðum Palestínumanna.
Segja háttsettir heimildarmenn inn-
an Hvíta hússins að þar á bæ séu
menn farnir að efast um að Sharon
geti reynst sá bandamaður sem
Bandaríkin þarfnast til að ná mark-
miðum sínum í Miðausturlöndum.
Aðstoðarmenn Bandaríkjaforseta
óttast nú mjög að tregða Sharons til
að verða við tilmælum Bush sé farin
að grafa undan Bush erlendis, enda
gefi hún umheiminum tilefni til að
álykta sem svo að orð forsetans vegi
ekki þungt. Vilja sumir embættis-
menn nú að reynt verði að skilja á
milli stuðnings við Ísrael annars veg-
ar og Sharon hins vegar þegar stefna
í málefnum Miðausturlanda er mót-
uð.
„Sharon er að gera það sem hann
telur að þurfi að gera,“ segir háttsett-
ur embættismaður. „En hvað gerist
eftir að verkinu er lokið? Margir ótt-
ast að hann kunni ekkert annað ráð
en vera harður í horn að taka.“
Bandaríkjastjórn hafði allt fram í
síðustu viku stutt stefnu Ísraela og að
mestu kennt Yasser Arafat, leiðtoga
Palestínumanna, um ofbeldið í Mið-
austurlöndum. Bush ákvað hins veg-
ar fyrir síðustu helgi að við svo búið
mætti ekki standa og ákvað að senda
Colin Powell utanríkisráðherra út af
örkinni.
Hafa samskipti Ísraelsstjórnar og
stjórnvalda í Bandaríkjunum verið
erfið þessa viku, að því er fullyrt er,
og stafar það af því að bæði Bush og
Powell hafa verið duglegir við að
gagnrýna Ísraela fyrir að halda hern-
aðaraðgerðum áfram á svæðum Pal-
estínumanna.
Andstaða í þinginu
Beittari stefna stjórnvalda í garð
Ísraela hefur þegar mætt andstöðu
innan Bandaríkjaþings, en þar saka
sumir þingmenn stjórnvöld um að
skaða baráttu Bandaríkjamanna
gegn hryðjuverkum með afstöðu
sinni. Telja menn það skjóta skökku
við að Bush ætli að banna Sharon að
gera það sem hann sjálfur gerði í Afg-
anistan, þ.e. ráða niðurlögum hryðju-
verkamanna.
Hefur stuðningur aukist í þinginu
við lagasetningu sem fæli í sér að
Frelsissamtök Palestínu, PLO, yrðu
skilgreind sem hryðjuverkasamtök,
skrifstofum PLO í Washington yrði
lokað og háttsettum fulltrúum PLO
yrði meinað um landvistarleyfi í
Bandaríkjunum.
Ýmsir þrýstihópar gyðinga í
Bandaríkjunum hafa einnig reynt að
beita áhrifum sínum á Bandaríkja-
þingi en þeir eru ósáttir við þann póli-
tíska þrýsting sem Bush hefur und-
anfarna daga reynt að beita Sharon.
Minni stuðningur innan
Hvíta hússins við Sharon
Washington. The Washington Post.
ÍSRAELAR kvörtuðu yfir því í gær
að Evrópuríki, einkum Þýskaland,
hefðu vanefnt vopnasölusamninga
við Ísraelsher með því að seinka því
að afhenda honum vopn og ýmsan
búnað sem nauðsynlegur er til að
framleiða vígvélar.
„Komið hafa í ljós erfiðleikar, og
jafnvel meira en það, við efndir á
ýmsum vopnasamningum við ýmis
Evrópuríki, einkum Þýskaland,“
sagði Amos Yaron, ráðuneytisstjóri
ísraelska varnarmálaráðuneytisins.
„Þetta er ekki formlegt vopnasölu-
bann, en tafir hafa orðið á afhend-
ingu.“
Yaron rakti tafirnar til „baráttu
Ísraela gegn hryðjuverkum“. „Ísr-
aelskir vopnaframleiðendur geta
bætt þetta upp en við höfum hafið
viðræður til að leysa þetta vanda-
mál.“
Hvatt til vopnasölubanns
Ísraelska dagblaðið Yediot Ah-
aronot sagði í vikunni að þýsk
stjórnvöld hefðu bannað afhendingu
hluta, sem nauðsynlegir eru til að
framleiða ísraelska skriðdreka, til
að fyrirbyggja að Þjóðverjar verði
sakaðir um óbeinan stuðning við
hernað Ísraela á sjálfstjórnarsvæð-
um Palestínumanna. „Þetta er
ákvörðun öryggisráðs Þýskalands
og ég get því ekki fjallað um hana,“
sagði talsmaður þýsku stjórnarinn-
ar.
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands, kvaðst gera sér
grein fyrir öryggishagsmunum Ísr-
aela en óttast að „trú Ísraela á
hernaðarmátt sinn verði til þess að
þeir einangrist“. „Þetta veldur mér
áhyggjum sem sönnum vini Ísr-
aels.“
Evrópuþingið samþykkti á mið-
vikudag ályktun þar sem Evrópu-
sambandið er hvatt til að grípa til
refsiaðgerða gegn Ísraelum vegna
hernaðarins á palestínsku sjálf-
stjórnarsvæðunum, meðal annars
vopnasölubanns.
Sögð seinka afhendingu vopna
Jerúsalem. AFP.
REYK leggur frá flaki filipps-
eysku ferjunnar Mariu Carmelu
úti fyrir hafnarborginni Lucena í
gærmorgun. Að minnsta kosti 23
fórust og 48 var saknað. Að sögn
yfirvalda er hugsanlegt að nokkr-
um þeirra sem var saknað hafi
verið bjargað um borð í báta.
A.m.k. 219 manns sluppu lif-
andi úr eldsvoðanum, og greindu
sumir þeirra frá því að eldurinn
hefði komið upp í lest ferjunnar
og breiðst hratt út. Hefðu margir
farþeganna stokkið í sjóinn án
björgunarvesta. 290 manns voru í
ferjunni sem var á leið til Lucena
frá eyjunni Masbate.
Á undanförnum fimmtán árum
hafa mörg þúsund manns týnt lífi
í sjóslysum við strendur Filipps-
eyja.Reuters
Ferjuslys
við Filipps-
eyjar
RANIL Wickramasinghe, for-
sætisráðherra Sri Lanka, sagði
í gær að vonir stæðu nú til að
hægt yrði
að koma á
friði í land-
inu eftir
sögulega yf-
irlýsingu
leiðtoga
Frelsis-
hreyfingar
tamíla,
skæruliða-
samtaka
sem barist hafa við stjórnarher
Sri Lanka um árabil. Velupillai
Prabhakaran, leiðtogi Frelsis-
hreyfingar tamíla, kom fram
opinberlega í fyrsta sinn í tólf
ár í fyrradag og sagði að sam-
tökin hefðu ákveðið að hætta
öllum ofbeldisverkum.
Kardínálinn
segi af sér
MEIRIHLUTI Íra telur að
Desmond Connell kardínáli, yf-
irmaður kaþólsku kirkjunnar á
Írlandi, eigi
að segja af
sér vegna
þess hvern-
ig kirkjan
hafi brugð-
ist við
kvörtunum
þess efnis
að nokkrir
kaþólskir
prestar hafi
misnotað unga drengi kynferð-
islega. Þetta kemur fram í
nýrri könnun, sem sýnir að 56%
almennings telur að Connell
beri að segja af sér.
Framsal
heimilað
ÞING Júgóslavíu hefur sam-
þykkt ný lög sem heimila
stjórnvöldum að framselja
meinta stríðsglæpamenn til al-
þjóðastríðsglæpadómstólsins í
Haag. Með þessu vonast ráða-
menn í Júgóslavíu til að sann-
færa Bandaríkjastjórn um að
rétt sé að afhenda þá fjármuni,
sem hún hafði heitið Serbum en
fryst þegar stjórnin í Belgrað
tregðaðist við að senda ákærða
stríðsglæpamenn til Haag fyrir
tilskilinn tíma.
STUTT
Friðar-
vonir á
Sri Lanka
Desmond
Connell
Velupillai
Prabhakaran