Morgunblaðið - 12.04.2002, Side 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 23
AL-Qaeda, hryðjuverkasamtök Sádí-
Arabans Osama bin Ladens, hafa lýst
sig ábyrg fyrir tilræðinu við Mo-
hammad Qassim
Fahim, varnar-
málaráðherra
Afganistans, fyrr
í vikunni. Dag-
blaðið al-Hayat,
sem gefið er út á
arabísku í Bret-
landi, greindi frá
þessu í gær.
Fulltrúar al-
Hayat, sem er í
eigu Sádí-Araba,
sögðu talsmann al-Qaeda hafa hringt
á skrifstofur blaðsins í Islamabad í
Pakistan til að lýsa tilræðinu á hend-
ur sér. Mun talsmaðurinn hafa heitið
frekari aðgerðum gegn erlendum
hermönnum, sem eru í Afganistan,
og þeim Afgönum sem ljá þeim lið-
sinni.
Fjórir menn biðu bana og fimmtíu
særðust í tilræðinu á mánudag en það
átti sér stað nærri borginni Jalalabad
í Austur-Afganistan. Afganska lög-
reglan hefur handtekið nokkurn hóp
manna en enginn hefur verið ákærð-
ur fyrir verknaðinn.
Á þriðjudag hafði al-Hayat sagt frá
því að blaðinu hefði borist yfirlýsing
frá al-Qaeda þar sem fullyrt var að
bin Laden væri á lífi og í fullu fjöri og
að hann legði nú á ráðin um frekari
hryðjuverk.
Nokkur undiralda virðist nú vera í
Afganistan en auk tilræðisins við
varnarmálaráðherrann var Afgani,
sem vinnur hjá Matvæla- og landbún-
aðarstofnun Sameinuðu þjóðanna,
FAO, myrtur í borginni Mazar-e-
Sharif í vikunni. Hafa árásir á starfs-
menn alþjóðastofnana færst nokkuð í
aukana að undanförnu og lýsti Lak-
hdar Brahimi, sendifulltrúi Samein-
uðu þjóðanna í Afganistan, áhyggjum
sínum vegna þessarar þróunar í gær.
Þá fundu afgönsk yfirvöld mikið
magn kínverskra eldflauga í Kabúl í
gær en skammt er síðan einni slíkri
flaug var skotið að bækistöð alþjóð-
lega friðargæsluliðsins í Kabúl.
Tilræðið við varnarmálaráðherra Afganistans
Al-Qaeda lýsir
yfir ábyrgð
Dubai, Kabúl. AFP.
Mohammad
Fahim
BANDARÍSKA endurskoðunarfyr-
irtækið Andersen, sem m.a. sinnti
endurskoðun og ráðgjöf fyrir orku-
fyrirtækið Enron, er um það bil að
komast að samkomulagi við sak-
sóknara um að ekki verði hafin op-
inber rannsókn á meintu glæpsam-
legu atferli fyrirtækisins við störf
þess fyrir Enron. Bandarískir fjöl-
miðlar greindu frá þessu í gær.
Að sögn fjölmiðlanna felur vænt-
anlegt samkomulag í sér að Ander-
sen viðurkennir að hafa með ólögleg-
um hætti eyðilagt skjöl er tengdust
Enron. Saksóknarar munu í staðinn
fresta um nokkur ár að höfða mál á
hendur fyrirtækinu og falla algjör-
lega frá málshöfðun fremji fyrirtæk-
ið ekki fleiri lögbrot.
Andersen hefur orðið af fjölda við-
skiptavina vegna gjaldþrots Enron
og sagði nýlega upp sjö þúsund
starfsmönnum.
Í kjölfar gjaldþrotsins og upp-
ljóstrana um meinta vafasama við-
skiptahætti forráðamanna fyrirtæk-
isins ber meirihluti bandarísks
almennings nú minni virðingu fyrir
viðskiptaforkólfum og framkvæmda-
stjórum, samkvæmt nýrri skoðana-
könnun. 57% sögðu að á undanförn-
um tuttugu árum hefði slaknað á
þeim kröfum sem fyrirtæki gerðu og
gildismati þeirra hefði hrakað.
Andersen semur
við saksóknara
New York. AFP.