Morgunblaðið - 12.04.2002, Qupperneq 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 27
ÞESSI gamansama spennumynd,
sem skartar þeim Robert Carlyle og
Samuel L. Jackson í aðalhlutverkum
er ósköp vesæl tilraun til þess að búa
til töff, fyndna og söluvænlega kvik-
mynd í anda Tarantino og hins
breska leikstjóra Guy Ritchie. Þann-
ig er hér um breskt/bandarískt
spennusamstarfsverkefni að ræða
og standa þeir Jackson og Carlyle
leikararnir fyrir sinn hvorn endann í
því samstarfi.
Það var góð hugmynd að stefna
saman þessum tveimur fyndnu og
sjarmerandi leikurum í spennumynd
sem berst frá Bandaríkjunum til
Bretlands, en stór mistök að ráða
þann handritshöfund sem valist hef-
ur til verksins (sem og leikstjórann
af útkomunni að dæma). Alveg frá
byrjun er lagt upp með fléttu sem er
talsvert of heimskuleg til þess að
geta virkað eins og hinar skemmti-
lega harðsoðnu og súrrealísku flétt-
ur meistarastykkja á borð við Snatch
eftir Guy Ritchie. Og áfram er reynt
að prjóna einhverja fléttu, sem verð-
ur í raun æ misheppnaðri eftir því
sem nær dregur endanum. Ekki
bætir úr skák að fylgjast með lág-
kúrulegum tilraunum leikstjórans til
að gefa myndinni töff, MTV-legan
stíl í von um að vekja einhvers konar
aðdáun í brjósti áhorfandans. Mynd-
in er þó engan veginn leiðinleg, áð-
urnefndir leikarar og nokkur fyndin
atriði halda manni við efnið, en á
heildina litið getur maður ekki varist
hugsuninni um hvers vegna í ósköp-
unum hæfileikalausir menn eru að
reyna að búa til svona myndir. Þessi
kvikmynd er í raun óþarfa fyrirhöfn.
Óþarfa fyrirhöfn
KVIKMYNDIR
Sambíóin Kringlunni, Laug-
arásbíó
Leikstjóri: Ronny Yu. Handrit: Stel
Pavlou. Aðalhlutverk: Samuel L. Jack-
son, Robert Carlyle og Emily Mortimer.
Sýningartími: 92 mín. Bandaríkin/
Bretland/Kanada. Alliance Atlantis,
2001.
THE 51st STATE (ÁSTAND 51) Heiða Jóhannsdóttir
ENN ein afbökun af bökunni vin-
sælu, American Pie, og jafnframt sú
versta til þessa. Illa gerð, skrifuð
leikin, í rauninni ekkert um þessa
hrútleiðinlegu og ósmekklegu dellu
að segja annað en að fólk ætti að var-
ast hana öðruvísi en það sé í sjálfs-
pyntingarhugleiðingum.
Söguhetjurnar eru þrír mennt-
skælingar sem hafa til þessa svindl-
að sig í gegnum skólakerfið. Þá kem-
ur til sögunnar ofurhallærislegt
fyrirbrigði (Jason Schwartzman)
sem kemst á snoðir um leyndarmál
þremenninganna og kúgar þá til að
útvega sér stelpu, annars kjafti hann
frá og fái þá rekna. Í ofanálag vill
hann ná ástum kærustu eins þeirra.
Prump-, sjálfsfróunar- og aðrir
ámóta geðslegir brandarar einkenna
þessa vonandi verstu mynd ársins.
Sem dæmi um háþróað skopskynið
má nefna að hallærislúðinn er látinn
kyssa brjóstin á gamalmenni. Þessi
samsetningur gengur ekki fram af
neinum einsog til er ætlast heldur
fyllir mann alvarlegum lífsleiða með-
an á sýningunni stendur.
Smárabíó
Leikstjóri: Dewey Nicks. Handrit: David
H. Steinberg. Aðalleikendur: Devon
Sawa, Jason Schwartzman, James King,
Michael C. Maronna. Sýningartími 90
mín. Kanada. Atlantis 2002.
SLACKERS (SLÆPINGJAR) 0
Sæbjörn Valdimarsson
SÝNINGUNNI Huglæg tjáning –
máttur litarins – íslenskur express-
jónismi lýkur í Listasafni Íslands á
sunnudag. Þar gefur að líta verk
eftir Kjarval, Finn Jónsson, Jón
Engilberts og Jóhann Briem. Leið-
sögn er um sýninguna á morgun,
laugardag, kl. 14.
Nýlega kom út kynningarbækl-
ingur listasasafnsins með upplýs-
ingum um sýningar á árinu. Meðal
stórviðburða eru sýningar frá
Tretjakov í Moskvu og Moderna
safninu í Stokkhólmi.
Næsta sýning verður opnuð laug-
ardaginn 27. apríl og nefnist hún
Hin nýja sýn – rússnesk list frá
raunsæi til framúrstefnu. Listaverk
frá um 1880–1930. Frá Tretjakov-
safninu í Moskvu. 25. júní verður
sumarsýningin opnuð og er það úr-
val verka í eigu safnsins. Yfirlits-
sýning á sögu ljósmyndarinnar
verður opnuð 14. september og
kemur hún frá Moderna safninu í
Stokkhólmi. 16. nóvember verður
opnuð sýning á íslenskri myndlist
frá 1980–2000 sem eru í eigu safns-
ins.
Listasafn Íslands er opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 11–17.
Sýningu lýkur í
Þorlákshafnarkirkju
Sýningu Þorgerðar Sigurðardótt-
ur á myndröðinni „brauð og bænir“
í anddyri Þorlákshafnarkirkju lýkur
á sunnudag.
Listamaðurinn sjálfur verður á
sýningunni þann dag milli kl. 14–16.
Myndirnar á sýningunni eru allar
til sölu.
Úr íslenskri
list yfir
í rússneska
Listasafn Íslands
Allt í grænu!
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
17
27
4
04
.
20
02
IKEA er opið:
Virka daga kl. 10-18.30
Laugardaga kl. 10-17
Sunnudaga kl. 12-17
KLIPPAN sófi
34.900 kr.
gulgrænt áklæði