Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 29
RÉTTINDASTOFA Eddu – miðl-
unar og útgáfu hefur gengið frá
samningum um útgáfu á Englum
alheimsins eftir Einar Má Guð-
mundsson við Editorial Canguru í
Portúgal. Þar
með hefur út-
gáfurétturinn á
verðlaunabók
Einars Más verið
seldur til nítján
landa. Englar al-
heimsins komu út
á Íslandi árið
1993 og hlaut
Einar Már Bók-
menntaverðlaun
Norðurlandaráðs
fyrir hana tveimur árum síðar. Ed-
itorial Canguru er ungt forlag í
Portúgal en forsvarsmenn þess
hafa engu að síður mikla reynslu af
bókaútgáfu. Meðal höfunda á út-
gáfulista þess er Charles Bukowski.
Sagan hefur hlotið mikið lof
heima og erlendis. Meðal annars
ritaði gagnrýnandi Süddeutsche
Zeitung að þetta væri „einstaklega
hrífandi og ljóðræn skáldsaga“. Í
Times Literary Supplement sagði
að Einar Már byggi „bæði yfir
dómgreind og djörfu hugarflugi
mikils rithöfundar“. Gagnrýnandi
Politiken í Danmörku taldi Engla
alheimsins standa „jafnfætis – ef
ekki framar – Gaukshreiðrinu“.
Kvikmynd byggð á sögunni var
frumsýnd í lok árs 1999 sem hlotið
hefur fjölda viðurkenninga víða um
heim.
Englar al-
heimsins til
nítjánda
landsins
Einar Már
Guðmundsson
SÝNING Leikfélags Kópavogs á
Grimmsævintýrum hefur verið val-
in sem fulltrúi Íslands á alþjóðlegu
leiklistarhátíðinni í Västerås í Sví-
þjóð í sumar. Dómnefnd á vegum
Bandalags íslenskra leikfélaga til-
kynnti þessa niðurstöðu sína fyrr í
vikunni. Hátíðin í Västerås er á
vegum NEATA sem eru samtök
áhugaleiklistarsambanda Norð-
urlanda og Eystrasaltsríkjanna. Í
umsögn um sýninguna segir dóm-
nefnd m.a: „Hópnum tekst að segja
okkur sögur Grimms á mjög sann-
færandi, sjónrænan og skemmti-
legan hátt, bæði í tali og með lát-
bragði.“ Grimm var frumsýnt 1.
mars sl.
Vegna húsnæðisskorts þarf LK
að hætta sýningum nú í apríl. Fram
að því eru áætlaðar sex sýningar og
þær næstu eru á morgun, laugar-
dag, kl. 13 og kl. 16.
Grimm til
Svíþjóðar
Frá uppfærslu Leikfélags Kópa-
vogs á Grimmsævintýrum.
DRAUMASMIÐJAN frumsýndi
leikritið Ég heiti Sigga, viltu koma í
afmælið mitt? á barnaheimilinu Gull-
borg á Rekagranda í gær.
Leikritið segir frá Siggu sem á af-
mæli og þeim vandræðum sem hún
lendir í þegar mamma hennar setur
henni það verkefni að bjóða krökk-
unum í hverfinu í afmælið sitt.
Vandamálið er bara það að Sigga
þekkir ekkert krakkana í hverfinu.
Sigga er nefnilega svolítið frábrugð-
in öðrum börnum því hún notar tákn
með tali. Leiksýningin verður í boði
fyrir leikskóla. Leikstjóri er Gunnar
Gunnsteinsson og Margrét Péturs-
dóttir leikur öll hlutverkin en hún
samdi einnig handritið.
Drauma-
smiðjan í
leikskólana
Morgunblaðið/Sverrir
Margrét Pétursdóttir í leikriti
Draumasmiðjunnar, Ég heiti
Sigga, á leikskólanum Gullborg.
IKEA er opið: Virka daga kl. 10-18.30
Laugardaga kl. 10-17 Sunnudaga kl. 12-17
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
17
44
2
04
.
20
02
Ís í brauði
40
kr.
alla helgina
Kjörhelgi fyrir ís
einhver betur?
Býður