Morgunblaðið - 12.04.2002, Síða 57

Morgunblaðið - 12.04.2002, Síða 57
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 57 Okkur langar til þess að minnast vin- og velgjörðarkonu okkar til margra ára sem látin er eftir stutta en harða baráttu við mann- inn með ljáinn. Gunna var stoð okkar og stytta á frumbýlingsár- unum á Akranesi og óspör á góð ráð handa byrjendum í búskap- arbransanum. Aldrei taldi hún eft- ir sér að leiðbeina okkur þegar við vorum að staulast okkar fyrstu skref, kornung að árum, og alltaf að gera vitleysur og mistök. Hún var ætíð boðin og búin til að að- stoða okkur með börnin og gæta þeirra ef svo bar undir. Eitt sinn vorum við ungu hjúin hálfstúrin því okkur langaði svo mikið til að fara upp í Borgarfjörð um versl- unarmannahelgi en enginn var til- tækur til að gæta litlu dóttur okk- ar, allir farnir út úr bænum. Þá hringdi Gunna og sagði á sinn snögga og sérstaka hátt: „Hvaða vitleysa er þetta, komið þið bara með stelpuangann eins og skot og farið þið svo og skemmtið ykkur.“ Ekkert óþarfa fjas um svona smá- muni, bara að drífa sig. Þegar við svo eignuðumst okkar yngsta barn, þá komin hingað til Reykja- víkur, hringdi síminn og þar var Gunna með sinn stóra faðm og hlýja hjarta að bjóðast til að gæta Gunnars, sem þá var yngstur, og ekki áttum við að tvínóna neitt við GUÐRÚN ÁRMANNSDÓTTIR ✝ Guðrún Ár-mannsdóttir fæddist á Hofteigi á Akranesi 19. ágúst 1929. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut mánu- daginn 1. apríl síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Akraneskirkju 7. apríl. Eftirfarandi minn- ingargrein um Guð- rúnu Ármannsdóttur er endurbirt vegna mistaka sem urðu við birtingu hennar í blaðinu í gær og eru hlutaðeigendur beðnir vel- virðingar á mistökunum. það bara setja gutt- ann í Akraborgina. Honum var ekki skil- að fyrr en hálfum mánuði seinna. Þarna var Gunnu rétt lýst, ekkert að telja eftir sér hlutina, þetta var bara sjálfsagt. Ekki er annað hægt en að segja frá því hvað við litum upp til hennar fyrir það hvað hún var mikil afburða húsmóðir svo vand- fundin var önnur eins. Það var sama hvað hún tók sér fyrir hendur, allt var það á sömu bókina lært, það var einfaldlega ekki hægt að gera bet- ur, allt lék í höndunum á henni. Svo tók þetta enga stund hvort sem það var að baka, sauma, þrífa og laga til eða bara að elda mat- inn. Alltaf var eins og ekkert hefði verið bardúsað því svo var um- gengnin snyrtileg. Allt lagfært og þrifið jafnóðum og heimilið alltaf glansandi fínt út úr dyrum. Já, það var leit að öðrum eins vinnuvíkingi enda kunnu margir að meta verkin hennar. Hin síðari ár hefur samgang- urinn orðið strjálli því hún var uppi á Skaga en við í Reykjavík. Þegar við fréttum af hinum alvar- legu veikindum hennar flýttum við okkur til hennar og urðum harla glöð þegar við komum í aðra heim- sóknina því hún var svo miklu hressari en fyrst og bjartsýn á að allt færi vel enda hafði hún trölla- trú á læknunum sínum, en því mið- ur, þá fór sem fór. Við kveðjum mæta manneskju og biðjum að hún fái góða heimkomu. Að síðustu biðjum við Guð um að gefa Kela styrk og vaka yfir honum því hann á erfitt sem aldrei fyrr og missir hans er mikill. Börnum hennar og fjölskyldum þeirra biðjum við alls hins besta og vottum fjölskyldunni allri inni- lega samúð okkar hjónanna og barna okkar. Hildur Guðbrandsdóttir og Ævar Sveinsson. Mig langar til þess að minnast ömmu minnar, Jóhönnu Finn- bogadóttur, í fáum orð- um. Amma Jó, eins og við systurnar kölluðum hana jafnan, var mikið með mig þegar ég var lítil og þá einkanlega þegar mamma var að vinna í Samvinnubankanum. Hún fór oft með mig í heimsókn í bank- ann því á þessum tíma bjó hún á Leifsgötunni með afa Valla. Ein fyrsta minningin með ömmu er þeg- ar við vorum að ganga saman niður Laugarveginn. Ég var líklega um þriggja ára gömul og var nýbúin að fá nýja lakkskó sem ég fékk að vera í með því skilyrði að ég myndi ekki óhreinka þá. Á nokkurra mínútna fresti beygði ég mig niður til að þurrka af þeim því við vorum nú einu sinni á leið til mömmu í bank- ann og ekki mátti hún sjá að skórnir voru nokkuð óhreinir. Þegar við vor- um komnar niður í Bankastrætið, beygði ég mig enn og aftur niður til að skoða skóna. Þá man ég að amma sagði að líklega myndi bankinn loka á okkur með þessu áframhaldi. Þetta var bara eitt lítið dæmi um sögu sem ég geymi í minningunni af okkur ömmu Jó en mér finnst þessi alltaf skemmtilegust af því ég var svo lítil. Hjá ömmu Jó var alltaf gott að vera. Við fengum nóg að borða og man ég sérstaklega eftir hinum æð- islegu hveitikökum sem hún var þekkt fyrir – enda gat enginn bakað eins góðar hveitikökur og amma. Þegar ég gisti hjá ömmu og afa og síðar henni einni, var alltaf lesið fyr- ir mig. Ég man líklega best eftir sögunni af Dísu ljósálfi en ég held hún hafi lesið hana fyrir mig marg- oft. allavega kunni ég hana nánast utanað. Síðan tóku við Grimms æv- intýri og síðar Þjóðsögurnar sem ég las bara sjálf. Ég held að við Adda systir mín höfum fyrst farið í bíó með ömmu Jó. Þá átti hún heima í Asparfellinu og við skelltum okkur niður í Mjódd í bíó. Ég man nú reyndar ekki í dag hvaða mynd við sáum en þegar við löbbuðum inn í salinn með ömmu, drekkhlaðinni poppi og kók, sagði hún hátt og snjallt: „Dúna, þú verð- JÓHANNA FINNBOGADÓTTIR ✝ Jóna JóhannaDaðína Finn- bogadóttir fæddist á Hóli í Bakkadal í Arnarfirði 21. sept- ember 1921. Hún andaðist í Reykjavík á páskadag, 31. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Áskirkju 8. apríl. ur að halda í mig því maður er eins og blind- ur kettlingur hérna inni.“ Þetta fannst mér mjög fyndið og finnst enn enda var amma mín mikill húmoristi. Það er alltaf gaman að rifja upp gamlar og góðar minningar á stundum sem þessari. Ég gæti skrifað enda- laust áfram svona sög- ur sem lýsa ömmu minni betur en mörg orð. Þess í stað langar mig að segja: Bless amma mín. Ég veit að það verður vel tekið á móti þér af Valla afa, Dúnu ömmu og öllum þeim sem eru farnir frá okkur. Guðrún Svava Baldursdóttir (Dúna). Mig langar að minnast hér með nokkrum orðum móðursystur minn- ar Jóhönnu Finnbogadóttur, hennar Hönnu frænku. Þegar ég lít til baka koma upp góðar minningar liðinna ára og Hanna frænka var ein af föstu punktunum í lífi mínu. Hún og mamma höfðu mikið og náið sam- band og Hanna frænka er tengd glaðri og áhyggjulausri æsku minni og efst í huga mér er hvað hún var alltaf góð við okkur börnin. Ég man eftir kvöldum þegar hún sagði okkur systrunum sögur og ævintýri áður en við fórum að sofa. Hún leyfði mér að skoða á sér negl- urnar, sem mér fannst vera svo fal- legar, fínar og lakkaðar. Hún var svo skemmtileg þegar hún lék jóla- sveininn í fjölskylduboði á jólunum og við börnin höfðum ekki hugmynd um að þetta væri hún Hanna frænka. Ég man vel daginn þegar hún kom heim úr siglingu með Gull- fossi og var þá trúlofuð Valla og hringarnir höfðu verið smíðaðir á skipinu. Síðan voru Hanna og Valli alltaf nefnd í sömu andránni. Það var notalegt að koma til hennar í kaffi og kæfan og kökurnar hennar voru svo góðar. Ég man eftir skemmtilegri ferð á Kirkjubæjarklaustur þegar nokkrar fjölskyldur fóru saman í útilegu. Við krakkarnir vildum helst vera í tjald- inu hjá Hönnu og Valla í kvöld- kyrrðinni og hún gaf okkur ávexti úr dós eins og við gátum í okkur látið. Ég minnist hennar þegar hún af- greiddi í mjólkurbúðinni og þegar hún vann í miðasölunni í Nýja bíói og seinna í Þjóðleikhúsinu og mér fannst alltaf svo spennandi það sem hún var að gera. Hanna frænka varð ekki rík af veraldlegum auði, þrátt fyrir langt ævistarf, en alltaf átti hún til nóg fyrir aðra og var tilbúin að hjálpa. Þau voru mörg skiptin sem hún rétti fjölskyldunni hjálparhönd þegar mikið var að gera og systkinabörnin að fæðast. Síðastliðið sumar fór ég vestur í yndislegu veðri og gisti eina nótt í tjaldi í Bakkadal, á túninu fyrir neð- an Hól. Ég reyndi að sjá fyrir mér mannlífið þar þegar mamma, Hanna og systkinin voru börn að leik, afar mínir og ömmur höfðu í mörgu að snúast og mannlífið blómstraði. Nú er komið að leiðarlokum hjá Hönnu frænku minni. Það var gott að eiga hana að samferðamanni og þakka ég henni fyrir hvað hún var mér alltaf góð og notaleg. Hvíl þú í friði, elsku frænka. Elín G. Stefánsdóttir. Mig langar að minnast móður- systur minnar og nöfnu Jóhönnu Finnbogadóttur sem lést á páska- dag þann 31. mars sl. Það eru marg- ar góðar minningar sem koma upp í huga mér. Jóhanna frænka, eins og við flest öll kölluðum hana, tengdist mér og minni fjölskyldu mjög sterk- um böndum. Alveg frá því að ég fæddist hefur hún fylgt mínu lífi, en Jóhanna var fengin til að annast heimilið þegar mamma átti mig og Hrein bróður, en þá voru systkinin á Litlu-Eyri þegar orðin átta talsins. Hún kom oft í heimsókn vestur á sumrin og alltaf færði hún okkur eitthvert góðgæti, auk þess sendi hún mér alltaf afmælis- og jólagjaf- ir. Þegar ég flutti til Reykjavíkur kom ég oft til Jóhönnu og alltaf tók hún jafn vel á móti mér. Ég fann fljótt hvað það var notalegt og gott að eiga hana að. Jóhanna var alveg einstök, betri frænku er ekki hægt að hugsa sér, þess fékk ég að njóta og öll mín börn. Hún var einstaklega barngóð og hafði gott lag á börnum, átti alltaf til leikföng og sælgæti til að rétta að þeim þegar þau komu í heimsókn. Samskipti mín við hana einkennd- ust af umhyggju, gjafmildi og tryggð, sem héldust alveg fram á síðasta dag. Á erfiðum stundum í lífi mínu reyndist hún mér einna best. Elsku frænka, bestu þakkir fyrir allar samverustundirnar gegnum árin. Guð blessi minninguna um þig. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Jóhanna Bjarnadóttir. &  )    *   )    *   8& && *& /"# # ,# .#+ $ 6+  (   '   *  '   (  9   : # % &  05! ,#  -  '0 -05! A % $  905! 3 -   $05  !,  .!# ""5!05.+$ 7 (  %  )   *  )    *&   9& &  .# 0>.# -   .0   # --H7$ 6+  (      *    6   '(-! 34 .>   "(-! 3 #I-# # (-  3.>8!! ((-  ;# #! '%(-  % !     ""5!5--"5$ 4   (        )     )           *&          # = & AF *& ' "1: )#,%.$ !  # > ,%.  ' -! '#3% 0  !3 !! -'! +A4  > ,%.'# '! ; .!=#+'!$ 4  (     )     *  )    *&     8& G *& ;%# (##66 $     #$ MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðu- grein af hæfilegri lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Frágangur af- mælis- og minn- ingargreina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.