Morgunblaðið - 12.04.2002, Síða 60
FRÉTTIR
60 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KLUKKUR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Stimpil
Vefsíða: www.oba.is
LEIKRITITIÐ „ef þori ég, vil ég,
get ég“ var frumsýnt í leikskól-
anum Arnarsmára í Kópavogi ný-
lega.
Leikritið er liður í jafnrétt-
isverkefni sem unnið var í nokkr-
um leikskólum Kópavogs síðast
liðinn vetur.
Sýningin, sem sýnd verður í
fleiri leikskólum bæjarins, er
styrkt af jafnréttisnefnd Kópa-
vogs. Leikritið er spunaverk sem
fjallar um stelpur og stráka sem
leika sér saman og læra að vera
vinir, segir í fréttatilkynningu.
Leiksýning í
Arnarsmára
Krakkarnir í leikskólanum Arnarsmára við frumsýningu á leikritinu. DILBERT
mbl.is
SUNNUDAGINN 14. apríl koma til
landsins einhverjir virtustu sérfræð-
ingar heimsins á sviði flugslysarann-
sókna, þeir Frank Taylor, fyrrum
forstöðumaður Cranfield Aviation
Safety Centre, College of Aeronaut-
ics, Cranfield University, og Bernie
Forward, fyrrum meðlimur bresku
flugslysanefndarinnar AAIB og
kennari við Cranfield University, en
þeir starfa nú sem sjálfstæðir ráð-
gjafar á sviði flugslysarannsókna og
flugöryggis.
Koma Taylors og Forward til Ís-
lands er liður í óháðri sérfræðilegri
úttekt þeirra á rannsókn flugslyssins
í Skerjafirði 7. ágúst 2000. Til þess
verks voru þeir ráðnir af Friðrik Þór
Guðmundssyni og Jóni Ólafi Skarp-
héðinssyni, feðrum tveggja fórnar-
lamba flugslyssins, með sérstökum
samningi þar að lútandi, sem undir-
ritaður var í Cranfield 15. júní 2001.
Samningurinn felur í sér að bretarnir
leggi mat á rannsókn og skýrslur
Rannsóknarnefndar flugslysa (RNF)
og önnur fyrirliggjandi gögn málsins,
rannsaki eftir því sem við verður
komið það sem þeir telja að hefði
þurft frekari rannsókna við og leggi
eftir atvikum fram tillögur til úrbóta.
Á undanförnum mánuðum hefur
miklu af gögnum og upplýsingum
verið komið til bretanna og umfangs-
mikil þýðingarvinna átt sér stað. Þeir
hafa verið í samskiptum við flug-
málayfirvöld hér á landi og ljóst að
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra hefur með formlegum hætti
lagt að málsaðilum að auðsýna bret-
unum fulla samvinnu. Bretarnir
munu á tímabilinu 15.-17. apríl funda
með fulltrúum RNF, Flugmála-
stjórnar Íslands, samgönguráðu-
neytisins, Landshelgisgæslunnar,
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins,
Lögreglustjóraembættisins í
Reykjavík og eftir atvikum með öðr-
um aðilum.
Vefsíðan flugslys.is opnuð
Friðrik Þór Guðmundsson og Jón
Ólafur Skarphéðinsson hafa nú opn-
að vefsíðuna flugslys.is, en á vefsíð-
unni er ætlunin að koma á framfæri
upplýsingum varðandi ýmsa þætti er
tengjast Skerjafjarðarslysinu og
flugöryggi almennt. Nokkuð af efni
er þegar komið inn á síðuna, en
áfram verður unnið að því að koma
með þessu móti á framfæri við al-
menning öllu því sem máli skiptir
varðandi rannsókn flugslyssins og
flugöryggi almennt. Eru fjölmiðlar
og almenningur hvattir til að kynna
sér efni vefsíðunnar og eru skoðanir
og ábendingar vel þegnar með tölvu-
pósti til rannsókn@flugslys.is.
Vefsíðan flugslys.is opnuð
Friðrik Þór Guðmundsson og Jón
Ólafur Skarphéðinsson hafa nú opn-
að vefsíðuna flugslys.is, en á vefsíð-
unni er ætlunin að koma á framfæri
upplýsingum varðandi ýmsa þætti er
tengjast Skerjafjarðarslysinu og
flugöryggi almennt. Nokkuð af efni
er þegar komið inn á síðuna, en
áfram verður unnið að því að koma
með þessu móti á framfæri við al-
menning öllu því sem máli skiptir
varðandi rannsókn flugslyssins og
flugöryggi almennt. Eru fjölmiðlar
og almenningur hvattir til að kynna
sér efni vefsíðunnar og eru skoðanir
og ábendingar vel þegnar með tölvu-
pósti til rannsókn@flugslys.is, segir í
fréttatilkynningu.
Bretarnir
koma –
vefsíðan
flugslys.is
opnuð
Til að auglýsa á þessari síðu hafðu
samband við okkur í
síma 569 1111 eða sendu okkur
tölvupóst á augl@mbl.is