Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 61
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 61 Funahöfða 1 www.notadirbilar.is Ertu að kaupa, viltu skipta, þarftu að selja Chervolet tahoe lt árg. 1999, ekinn 62 þ., v-rauður, leður, lúga, álfe. o.fl. Verð 3.900.000. Ath. skipti. Audi a6 Quattro stw 4wd, nýsk. 1/1999, ekinn 22 þ., v- rauður, ssk. m. öllu. Verð 3.900.000. Ath. skipti. Nissan Patrol se + árg. 98, ekinn 96 þ., hvitur, leður, lúga, 5 g., 33" dekk. Verð 2.950. Ath. skipti. AMC Cherokee Laredo, nýsk. 10/2000, ekinn 10 þ., v- rauður, ssk., innfluttur nýr. Verð 3.890.000. Ath. skipti. Nissan Patrol slx gr disel, árg. 96, ekinn 148 þ., grænn, 5 g., 33" dekk, álfe. o.fl., gullmoli. Verð 1.890.000. Ath. skipti á dýrari Patrol. M. Benz slk 2300 kompressor, nýsk. 3/1997, ekinn aðeins 9 þ., innfluttur nýr, v/rauður, 5 g., álfe., rafmagnstoppur. Verð 3.590.000. Ath. skipti. MMC Pajero v6, langur, bensín árg. 97, ekinn 96 þ., grænn, ssk., sóll., 33" dekk, álfe. Verð 2.190.000. Lán 1.200 þ. Honda CRV RVSI, nýsk. 3/1999, ekinn 52 þ., gullsans., ssk., samlitur o.fl. Verð 1.750.000. Nissan Terrano ll luxery disel, nýsk. 5/2001, ekinn 14 þ., svartur, ssk., leður, lúga o.fl. Verð 3.650.000. Áhv. lán 1.500. Ath. skipti. Range Rover 4,6HSE, nýsk. 5/2000, ekinn 22 þ., gulls., m. öllu. Verð 5.400.000. Ath. tilboðsverð 4.750.000 stgr. Laugavegi 29 • Sími 552 4320 Höldur Eitt mesta úrval landsins af skápa- og skúffu- höldum BYGGÐASAFN Hafnarfjarðar fékk hvatningarverðlaun ferðaþjón- ustunnar fyrir góða frammistöðu þegar þau voru afhent í sjöunda sinn nýverið. Byggðasafn Hafnarfjarðar hefur undanfarin ár sýnt með lifandi hætti fjölþætta sögu Hafnarfjarðar. Safn- ið er með sýningaraðstöðu á þremur stöðum í bænum, í Sívertsens-húsi, Siggubæ og Smiðjunni. Í tveim þeim fyrrnefndu eru fastar sýningar, en í Smiðjunni er auk fastrar sýningar sett árlega upp ný sýning. Á síðasta ári var sett upp víkingasýning. Átta ferðaþjónustuaðilar voru til- nefndir til hvatningarverðlauna ferðaþjónustunnar í Hafnarfirði ár- ið 2002 og það voru, auk Byggða- safnsins: Skemmti- og hvalaskoðun- arbáturinn Elding, Fjarðarkaup, Fjörukráin, Hafnarborg, Herra Hafnarfjörður, Ostahúsið og Tilver- an. Ferðamálanefnd tilnefnir til hvatningarverðlaunanna og það eru síðan ferðaþjónustuaðilar í Hafnar- firði sem greiða atkvæði. Tilgangur með verðlaununum er að hvetja ferðaþjónustufyrirtæki til dáða og vekja athygli á ferðaþjónustu í Hafnarfirði. Verðlaunin getur fyrir- tæki, stofnun, félagasamtök, eða einstaklingur hlotið, sem sýnt hefur athyglisverða nýbreytni, góða þjón- ustu, aðstöðu, markaðsátak eða ann- að sem viðkemur ferðaþjónustu, segir í fréttatilkynningu. Björn Pétursson safnstjóri tekur við árnaðaróskum Helgu Stefánsdótt- ur, formanns ferðamálanefndar. Byggðasafnið í Hafnarfirði fær hvatningarverðlaun ATVINNUTENGDIR lungnasjúk- dómar eru þema lungnadagsins, sem haldinn verður í dag, föstu- daginn 12. apríl, kl. 17.15 í hátíð- arsal Háskóla Íslands. Meðal þess sem fjallað verður um eru þeir áhættuþættir sem tengjast loftmengun á vinnustöð- um. Nútímamaðurinn eyðir u.þ.b. 90% af tíma sínum innanhúss. Þau áreiti, sem hann verður fyrir af umhverfi sínu á vinnustað, geta haft umtalsverð áhrif á heilsufar, m.a. af völdum sveppa og ryk- maura í andrúmsloftinu. Sænski lungnasérfræðingurinn Jonas Brisman verður gestur lungnadagsins. Erindi halda: Dóra Lúðvíksdóttir, Eyþór Björnsson og Andrés Sigvaldason. Fundarstjór- ar eru lungnalæknarnir Gunnar Guðmundsson og Ólafur Baldurs- son. „Á undanförnum árum hefur þekking á atvinnutengdum lungna- sjúkdómum aukist verulega. Framfarir hafa orðið í „greining- araðferðum og meðferð þessara sjúkdóma og skilningur okkar á eðli þeirra hefur vaxið. Hér á landi vantar þó enn betri upplýsingar um þessa sjúkdóma. Brýnt er að bæta skráningu atvinnutengdra lungnasjúkdóma hér á landi svo fækka megi áhættuþáttum og bæta vinnuumhverfi þar sem þess er þörf. Með auknum rannsóknum og fræðslu til almennings um áhættu- þætti atvinnutengdra lungnasjúk- dóma er líklegt að draga megi úr tíðni þeirra hérlendis og þannig fyrirbyggja langvinn veikindi og fjarvistir frá vinnu í tengslum við þessa sjúkdóma,“ segir Dóra Lúð- víksdóttir í erindi sínu en hún leggur m.a. áherslu á nauðsyn þess að fræðsla til almennings verði aukin um orsakir ýmissa atvinnu- tengdra lungnasjúkdóma. Lungnadagurinn ÚTHLUTAÐ hefur verið úr Endur- menntunarsjóði grunnskóla í fjórða sinn. Auglýst var í desember 2001 eftir umsóknum og var umsóknarfrestur gefinn til 30. janúar 2002. Alls bárust umsóknir um styrki til 152 endur- menntunarverkefna og var samanlög upphæð þeirra um 53 milljónir króna. Við mat á umsóknum var miðað við að verkefnin væru til þess fallin að mæta þörfum grunnskólans, að með þeim væri fylgt eftir skólastefnu og aðalnámskrá grunnskóla og að verk- efnin fullnægðu kröfum um fag- mennsku og gæði. Stærstu styrkumsækjendur voru skólaskrifstofur. Tillaga sjóðstjórnar fyrir árið 2002 er á þá leið að veittur verði styrkur til 109 verkefna sam- kvæmt umsóknum fyrir samtals kr. 22.688.500. Sjóðstjórn ákvað auk þess að leggja til að veittur yrði einnar milljónar króna styrkur til sérstaks verkefnis vegna aðgerða gegn einelti. Samtals er því úthlutað kr. 23.688.500. Styrkirnir voru á bilinu kr. 50.000 til kr. 1.200.000, segir í fréttatilkynn- ingu. Úthlutað úr Endurmennt- unarsjóði grunnskóla NETIÐ – information for tourists (Netid-info), sem rekið er af NET- INU markaðs- og rekstrarráðgjöf hefur gefið út 2002-bækling sinn. Bæklingurinn er 72 bls., prentaður í vasastærð og er hugsaður sem „heildarlausn“ fyrir erlenda ferða- menn sem dvelja í Reykjavík til lengri eða skemmri tíma. Honum er dreift án endurgjalds á öll hótel, gistiheimili og upplýsingaþjónustur á höfuðborgarsvæðinu. Ársupplag hans er 55.000 eintök. Ritstjóri er Hákon Þór Sindrason. Bæklingurinn inniheldur upplýs- ingar um veitingastaði, verslanir, ferðir og alla sundstaði í Reykjavík. Einnig eru upplýsingar um afþrey- ingu, menningarviðburði, veðurfar, fjölda erlendra ferðamanna og upp- lýsingar um verðlag, kaffihús, næt- urlíf í Reykjavík, helstu strætóleið- ir, tölfræði og margt fleira. Í bæklingnum eru tvö kort af Reykjavík, eitt miðbæjarkort og annað af Reykjavík í heild. Einnig er kort af gönguleiðum í Reykjavík og kort af Laugardalnum. Umsjón með hönnum bæklings- ins var í höndum G. Bjarka Guð- mundssonar hönnuðar. Bæklingur- inn var prentaður hjá prentsmiðj- unni Odda, segir í fréttatilkynn- ingu. Nýr Netid-info- bæklingur SAMBAND ungra sjálfstæðismanna hefur opnað nýja og bætta heimasíðu á vefslóðinni www.sus.is. Á síðunni eru ýmsar upplýsingar um sam- bandið, fréttir af starfi sambandsins, greinar, ályktanir og ýmislegt fleira. Á heimasíðunni er nú meðal ann- ars að finna ályktun um sveitar- stjórnarmál, sem samþykkt var á forystumannaráðstefnu SUS nýlega, segir í fréttatilkynningu. Ný heimasíða SUS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.