Morgunblaðið - 12.04.2002, Qupperneq 65
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 65
RAÐGREIÐSLUR
Sölusýning -
Sölusýning
10% staðgreiðsluafsláttur
Sími 861 4883
á nýjum og gömlum handhnýttum, austurlenskum
gæðateppum á Grand Hóteli við Sigtún, Reykjavík,
Á morgun, laugardag 13. apríl kl. 12-19
og sunnudag 14. apríl kl. 13-19
Glæsileg teppi
á mjög góðu verði
UMTALSVERÐUR árangur hefur
náðst í þeirri viðleitni íslenskra
stjórnvalda að bregðast við sam-
drætti í ferðaþjónustu í kjölfar
hryðjuverkaárásanna í Bandaríkj-
unum.
Sturla Böðvarsson, sam-
gönguráðherra segir að strax eft-
ir 11. september hafi íslensk
stjórnvöld ákveðið að taka hönd-
um saman við ferðaþjónustuna til
að verjast áhrifum atburðanna.
Ákveðið var að úthluta sam-
gönguráðuneytinu 150 milljónum
króna til viðbótar við það framlag
sem stjórnvöld leggja fram árlega
til ferðamála, sem er um 220
milljónir. Samgönguráðherra
sagði að óhætt væri að fullyrða
að góður árangur hafi náðst í
þessari varnarbaráttu ferðaþjón-
ustunnar.
Magnús Oddsson, ferða-
málastjóri, segir Ísland hafa verið
eitt af fyrstu löndunum til að
hefja aðgerðir til að verja leiða-
kerfið og samgöngur við landið.
Þá sagði Magnús að samkvæmt
áliti þeirra sem ynnu á markaðs-
svæðunum hefði viðbótarféð skipt
sköpum í þessu sambandi.
Hann tók þó fram að engir
sigrar hafi unnist enn, þótt góður
árangur hafi náðst í varnarbar-
áttunni á þann hátt að tekist hefði
að halda um 80-90% af því um-
fangi sem áður var í ferðaþjón-
ustunni. Viðbótarfénu var m.a.
skipt milli helstu markaðssvæða
íslenskrar ferðaþjónustu erlendis.
Í framhaldi af átakinu erlendis
hefur verið ákveðið að verja 45
milljónum króna til verkefna inn-
anlands, með það að markmiði að
hvetja landsmenn til þess að nýta
sér þá möguleika sem íslenska
ferðaþjónustan hefur upp á að
bjóða.
Ísland hefur m.a. verið kynnt með auglýsingaspjöldum á lestarstöðvum.
Umtalsverður ár-
angur hefur náðst
Átak stjórnvalda gegn samdrætti í ferðaþjónustu
ÍSLANDSMÓT framhaldsskóla-
sveita í skák 2002 hefst í félagsheim-
ili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni
12, föstudaginn 19. apríl kl. 19.30.
Tefldar verða sjö umferðir eftir
Monrad-kerfi, ef næg þátttaka fæst.
Að öðrum kosti munu sveitirnar tefla
einfalda umferð, allar við allar. Um-
hugsunartími er hálf klukkustund á
skák fyrir hvern keppanda.
– 3. umferð verður föstudaginn 19.
apríl kl. 19.30–22.30 og 4.–7. umferð
laugardaginn 20. apríl kl. 13–17.
Fjöldi sveita frá hverjum skóla er
ekki takmarkaður. Raðað verður á
borð eftir styrkleika. Ekkert þátt-
tökugjald. Nemendur sem hafa verið
hluta úr vetri í skóla, eiga rétt til
þátttöku, enda hafi þeir ekki gengið í
annan framhaldsskóla. Þeir sem
skipta um framhaldsskóla eiga að-
eins rétt á að keppa fyrir nýja skól-
ann. Stúdentar um áramót eiga rétt
til þátttöku í síðasta sinn.
Sigurvegari á mótinu hlýtur rétt
til þátttöku í Norðurlandamóti fram-
haldsskóla, sem fer fram í Svíþjóð á
þessu ári. Þátttaka tilkynnist til
Ólafs H. Ólafssonar æskulýðsfull-
trúa, Rauðarárstíg 38, Reykjavík.
Íslandsmót framhalds-
skólasveita í skák
WALDORFSKÓLINN Sólstafir í
Reykjavík verður með opinn dag í
húsnæði skólans í Hraunbergi 12,
laugardaginn 13. apríl kl. 13–16. Allir
velkomnir.
Námskrá Waldorfskólans miðar
að því að vera í samræmi við þroska
barnsins á hverju aldursstigi og
framsetning námsgreina. Leitast er
við að viðhalda áhuga nemenda, ýta
undir skapandi hugsun og auka lík-
amlega færni þeirra, segir í frétta-
tilkynningu.
Opinn dagur í
Waldorf-
skólanum
FYRIRLESTUR verður í Norræna
húsinu um réttindi Norðurlandabúa
laugardaginn 13. apríl kl. 14.
Fyrirlesari verður Ole Norrback,
sendiherra Finnlands í Ósló. Hann
hefur unnið skýrslu um réttindi
Norðurlandabúa fyrir Norrænu ráð-
herranefndina þar sem hann kemur
með tillögur að því hvernig hægt er
að tryggja að opinberir aðilar fylgi
eftir ákvæðum norrænna samninga
sem í gildi eru hverju sinni.
Fyrirlesturinn er haldinn í sam-
starfi við Halló Norðurlönd í Reykja-
vík.
Réttindi Norð-
urlandabúa
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til
gönguskíðaferðar á Holtavörðuheiði
laugardaginn 13. apríl.
Brottför er frá BSÍ kl. 8 á laug-
ardagsmorgni, ferðin kostar kr.
3.300 til félagsmanna en annars kr.
3.600.
Gönguskíða-
ferð á Holta-
vörðuheiði
NEFND um aukinn hlut kvenna í
stjórnmálum heldur námskeið
föstudaginn 19. apríl kl. 13–19 í
samstarfi við Endurmenntun Há-
skóla Íslands fyrir konur sem hafa
gefið kost á sér til setu á fram-
boðslistum stjórnmálaflokka.
Markmiðið er að efla konur, nýj-
ar sem reyndari, til starfa í sveit-
arstjórnum og nefndum og ráðum
sveitarfélaga.
Kennarar verða Anna Guðrún
Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunar-
sviðs Sambands íslenskra sveitar-
félaga, Sigrún Jóhannesdóttir, MS
í kennslutækni, og Helga Jóns-
dóttir, lögfræðingur og borgarrit-
ari.
Verð er kr. 13.500. Skráning fer
fram hjá Endurmenntun Háskóla
Íslands. Einnig er bent á heima-
síðu nefndarinnar: www.fleirikon-
uristjornmal.is til frekari upplýs-
ingar, segir í fréttatilkynningu.
Öflugar konur í
sveitarstjórnum
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.