Morgunblaðið - 12.04.2002, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 67
DAGBÓK
Mörkinni 6, sími 588 5518
Opið laugardag
frá kl. 10-15
Nýjar vörur
Jakkar
Stuttkápur
Hörkápur
Vínilkápur
Regnkápur frá 5.900
Þakka innilega öllum þeim sem glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum og blómum á 80 ára
afmæli mínu 23. mars og gerðu mér daginn
ógleymanlegan.
Kærar kveðjur.
Petrea Kristjánsdóttir,
Melabraut 24.
Dragtir
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
með pilsi eða buxum
á kr. 5.900
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert gæddur góðum gáf-
um en veist ekki alltaf
hvernig þú átt að nota þær
þér til framdráttar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Reyndu að sinna málum sem
snúa að heimilinu. Það er
kominn tími til að taka mark
á þeim sem yngri eru og leyfa
þeim að taka þátt í um-
ræðunni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það væri upplagt að fara út
að borða í hádeginu ásamt fé-
lögunum og ræða málin. Að
mörgu er að hyggja varðandi
helgina og ekki er ráð nema í
tíma sé tekið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Gættu þess að eyða ekki um
efni fram og mundu að með
fyrirhyggju geturðu fengið
mikið fyrir lítið. Það er þess
virði að hafa fyrir því.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú færð þitt fram ef þú ert
bara nógu ákveðinn. Aðalat-
riðið er að tala við rétta aðila
og setja mál þitt þannig fram
að það hitti í mark.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér hættir til að taka sjálfan
þig of hátíðlega. Ekki taka
góðlátlegt grín nærri þér því
þú veist vel að það býr ekkert
illt að baki.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú vilt gera þér dagamun og
þá er alltaf skemmtilegt að
hafa fleiri með í för. Ævintýr-
in eru á hverju strái ef maður
er bara opinn fyrir þeim.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hlustaðu á aðfinnslur starfs-
félaga þinna og taktu þær al-
varlega. Gerðu svo það sem
þér þykir réttast en gættu
þess að vera sjálfum þér sam-
kvæmur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú veist öðrum betur hvað
þér er fyrir bestu svo vertu
óhræddur við að fara þínar
eigin leiðir. Gleymdu þó ekki
að líta inn á við og biðja um
handleiðslu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Láttu engan hafa svo mikil
áhrif á þig að þú gerir eitt-
hvað sem stangast á við rétt-
lætiskennd þína. Stattu fast á
þínu og láttu aðra um sitt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ljúktu við allt sem fyrir ligg-
ur áður en þú byrjar á nýjum
verkefnum. Einhver gæti
komið með áhugaverða uppá-
stungu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er að mörgu að hyggja
bæði innan heimilis og utan.
Gerðu áætlanir sem þú getur
fylgt og ert sáttur við því þú
þarft líka að huga að eigin
velferð
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt vinnan skipti miklu máli
má hún ekki ganga svo nærri
þér að þú getir ekki litið upp.
Láttu eftir þér að lyfta þér
upp með góðu fólki.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
BANDARÍSKI kerfisspek-
ingurinn Al Roth heldur því
fram að best sé að fara ró-
lega af stað með mikil skipt-
ingarspil, jafnvel passa í
upphafi með opnunarstyrk
til að sjá á hvaða leið mót-
herjarnir eru. Ragnar Her-
mannsson er hrifinn af Roth
og hann fylgdi ráði hans í
þessu spili, sem kom upp í
OK Bridge á Netinu fyrir
skömmu:
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ D103
♥ ÁD9876
♦ 1032
♣D
Vestur Austur
♠ ÁG9764 ♠ K852
♥ 3 ♥ 542
♦ -- ♦ 9
♣KG9743 ♣Á10865
Suður
♠ --
♥ KG10
♦ ÁKDG87654
♣2
Ragnar og Jón Steinar
Gunnlaugsson voru sam-
herjar gegn tveimur Ind-
verjum. Ragnar var í suður
með þéttan nílit í tígli „hóf
sagnir“ með hæversku
passi:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- PASS !
1 spaði 2 hjörtu 2 spaðar 3 spaðar
4 spaðar Pass Pass 6 tíglar
Pass 6 hjörtu Pass Pass
Dobl Pass Pass 7 tíglar !
Pass Pass Dobl Allir pass
Spil Ragnars voru góð í
upphafi en bötnuðu samt
verulega þegar Jón Steinar
sýndi hjartalitinn. Ragnar
studdi hjartað með þremur
spöðum og stökk svo í sex
tígla yfir fjórum spöðum
mótherjanna. Jón Steinar
breytti skiljanlega í sex
hjörtu og þá gat vestur dobl-
að. Ragnar túlkaði doblið
réttilega sem útspilsdobl og
skaut á sjö tígla! Með laufi
út fara sjö tíglar auðvitað
einn niður, en vestur var
ekki alsjáandi og lagði niður
spaðaásinn. Þar með var al-
slemman í húsi.
En hvernig hefðu sex
hjörtu farið? Austur getur
varla byrjað á einspilinu í
tígli með því hugarfari að
gefa makker stungu, en
hann leggur niður laufás og
sér hvernig í pottinn er búið
þegar blindur kemur upp.
Og spilar tígli.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
Ölvísur
Krúsar lögur
kveikir bögur
og kvæðin smá,
dæmisögur
og glettur grá;
skúmin fögur
fótaskjögur
færa margan á.
Inter pocula.
Öls til veiða
allir skeiða
og erindi fá;
sumir breiða
borðin á,
mat til reiða,
milsku greiða,
magnast kætin þá.
Inter pocula.
Ólafur Einarsson
90 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 12. apríl,
er níræður Skafti Péturs-
son, Fiskhóli 9, Hornafirði.
Í tilefni þess ætla Skafti og
fjölskylda hans að taka á
móti vinum og ættingjum á
afmælisdaginn á Hótel Höfn
kl. 15.30-19.
80 ÁRA afmæli. Átt-ræður er í dag, föstu-
daginn 12. apríl, Páll G.
Hannesson, Ægissíðu 86,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Laufey Jens-Jónsdóttir
frá Hafnarfirði. Afmælis-
barnið mun fagna í faðmi
sinna nánustu laugardaginn
13. apríl á heimili dóttur og
tengdasonar í Hafnarfirði.
50 ÁRA afmæli. Í dagföstudaginn 12. apríl
er Sigr. Svava Gunnars-
dóttir veitingamaður,
Efstalandi, Ölfusi, fimmtug.
Eiginmaður hennar er
Björn Kristjánsson, veit-
ingamaður. Þau verða að
heiman á afmælisdaginn.
1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. Rf3 g6
4. Bb5 Bg7 5. O-O e5 6. Bc4
Rge7 7. Rg5 O-O 8. Df3 d5 9.
exd5 Rd4 10. Dd1 h6 11.
Rge4 b6 12. d3 Bb7 13. f4
exf4 14. d6 Ref5 15. Bxf4 b5
16. Rxb5 Rxb5 17. Bxb5
Bxb2 18. Hb1 Bd4+ 19. Kh1
Bxe4 20. dxe4 Rxd6 21. Bc6
Hc8 22. Bd5 Kh7 23. Dg4 h5
24. Dg3 Rf5 25. Dd3 Rh6 26.
Bb7 c4 27. Da3 Hc5 28.
Hbd1 Ha5 29. Db4 Bc5 30.
Dxc4 De7 31.
Bc6 Rg4 32.
Bd2
Staðan kom
upp í fyrsta at-
skákmóti bikar-
keppni FIDE
sem haldin var í
Dubai. Margir
af sterkustu
skákmönnum
heims tóku þátt
og vakti verð-
skuldaða at-
hygli að heims-
meistari FIDE,
Ruslan Ponom-
arjov laut í
lægra haldi fyr-
ir heimsmeistara kvenna,
Zhu Chen. Peter Leko
(2713) hafði svart gegn Al-
Modiahki (2500). 32...Rxh2!
33. Hf4 33.Bxa5 gekk ekki
upp vegna 33...Rxf1 34. Hxf1
Dh4#. Framhaldið varð:
33...Bd6 34. Bxa5 Bxf4 35.
Bb4 Dh4 36. Be1 Bg3 37.
Bxg3 Dxg3 38. Dd3 Dxd3
39. cxd3 Rg4 40. Kg1 Hc8
41. Bd5 Re3 42. Hb1 Rxd5
43. exd5 Hc3 44. Hb7 Kg7
45. Hxa7 Hxd3 46. Ha5 Kf6
47. Kf2 Hd2+ 48. Kf3 g5 49.
a4 g4+ 50. Kg3 Kg5 51. d6+
f5 52. d7 h4+ 53. Kh2 Hxd7
54. Ha8 g3+ 55. Kh3 Hd1 og
hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Sparisjóðurinn vann
Halldórsmótið hjá BA
Halldórsmótinu í sveitakeppni er
lokið hjá Bridsfélagi Akureyrar með
sigri sveitar Sparisjóðs Norðlend-
inga. Úrslit réðust ekki fyrr en í síð-
ustu spilum en sparisjóðurinn hafði
leitt allt mótið með mismiklum mun.
Í sveitinni spiluðu Jónas Róbertsson,
Sveinn Pálsson, Frímann Stefáns-
son, Jón Björnsson og Björn Þor-
láksson. Lokastaða efstu sveita:
Sparisjóður Norðlendinga 160
Páll Pálsson 150
Gylfi Pálsson 150
Stefán Vilhjálmsson 132
Sveit Páls vann innbyrðisviður-
eign við Gylfa og hlýtur því 2. sætið
þótt stigatala sveitanna hafi verið
jöfn.
Næsta þriðjudagskvöld er ein-
menningskeppni hjá félaginu sem
kennd er við firmu sem stutt hafa
bridsfélagið.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag
Borgarfjarðar
Mánudaginn 8. apríl lauk ein-
menningskeppni félagsins, sem jafn-
framt var firmakeppni. Fyrir síðasta
kvöldið áttu einungis fjórir spilarar
raunhæfa möguleika á sigri enda fór
það svo að þrír þeirra röðuðu sér í
efstu sætin. Úrslit gærkveldsins
urðu eftirfarandi:
Ásgeir Ásgeirsson 45
Jón H. Einarsson 38
Jóhannes Jóhannesson 33
Lárus Pétursson 30
Lokaniðurstaðan varð eftirfarandi
og er hún gefin upp í hundraðshlut-
um:
Lárus Pétursson 59,17%
Magnús Magnússon 58,92%
Jón H. Einarsson 58,60%
Brynjólfur Guðmunds 54,13%
Síðasta keppni vetrarins verður
þriggja kvölda vortvímenningur með
Barometer-formi.
Bridsfélag
Hrunamanna
Nýlega lauk hjá félaginu tvennd-
arkeppni um Önnubikarinn en þessi
keppni er til heiðurs Önnu Magnús-
dóttur sem enn spilar þótt hún nálg-
ist níræðisaldurinn. lokastaða efstu
para varð annars þessi:
Þórdís Bjarnad. - Ari Einarsson 325
Elín Kristmundsd. - Guðm. Böðvarss. 320
Guðrún Hermannsd. - Magnús Gunnlss. 315
Sigurl. Angantýsd. - Pétur Skarphéðinss 315
Spilað er í hinum fræga Huppusal
á Flúðum á mánudagskvöldum.
Spilakvöld Bridsskólans og BSÍ
Mánudaginn 8. apríl var spilaður
barómeter.
Úrslit urðu þessi:
1. Margrét Þórisd.-Þórhildur Stefánsd. 7
2. Eiríkur Eiðsson-Þórir Jóhannsson 6
3. Anna Dýrfjörð-Hjálmtýr Baldurs. 0
4. Bergsteinn Sigurðsson-Anna Björnsd. 2
Síðasta spilakvöld vetrarins verð-
ur mánudaginn 15. apríl. Spila-
mennska hefst kl. 20.00 og allir eru
velkomnir.
FÓLK Í FRÉTTUM