Morgunblaðið - 12.04.2002, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Nýjar
umbúðir
auðveldari í meðförum
– jafnari gæði
Sígildur ostur
í nýjum búningi
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um
að hafna kröfu lögreglustjórans í
Reykjavík um gæsluvarðhald yfir
manni sem handtekinn var í janúar sl.
vegna innflutnings, vörslu og sölu á
alls fimm kílóum af amfetamíni. Hér-
aðsdómari hafði hafnað varðhalds-
kröfu einkum á þeirri forsendu að
varsla amfetamíns hefði verið leyfileg
í átta mánuði í fyrra og á þessu ári
samkvæmt reglugerð um ávana- og
fíkniefni. Vegna mistaka var ekki
merkt við amfetamín sem fíkniefni á
bannlista en þetta var svo leiðrétt
með nýrri reglugerð í mars sl.
Hæstiréttur gefur sér þó aðrar for-
sendur en héraðsdómur, sem einkum
miðaði við 2. grein laga um ávana- og
fíkniefni, og telur að samkvæmt 3.
grein sömu laga hafi innflutningur,
varsla og sala amfetamíns verið refsi-
verð á þessu tímabili og aðeins heimil
lyfsölum og þeim sem höfðu sérstakt
leyfi heilbrigðisráðherra, en öðrum
bannað. Hæstiréttur telur að þótt
brotið hafi verið gegn þessu banni
hafi ekki verið skilyrði til að beita af
því tilefni gæsluvarðhaldi á grundvelli
laga um meðferð opinberra mála.
Hæstiréttur vísar í dómi sínum í 2.
grein laga um ávana- og fíkniefni þar
sem kemur fram að varsla og meðferð
slíkra efna, sem talin eru upp í 6.
grein laganna, sé óheimil á íslensku
yfirráðasvæði. Amfetamín er ekki
meðal þeirra ávana- og fíkniefna. Í 2.
grein laganna er heilbrigðisráðherra
veitt heimild til að mæla svo fyrir í
reglugerð að varsla og meðferð ann-
arra ávana- og fíkniefna, sem sérstak-
lega mikil hætta sé talin stafa af sam-
kvæmt alþjóðasamningum, sé á sama
hátt óheimil á íslensku yfirráðasvæði.
Hæstiréttur segir að þegar sak-
borningurinn hafi tekið við amfeta-
míninu hafi verið í gildi fyrrnefnd
reglugerð, sem hafi svo verið breytt
með annarri reglugerð. Eftir hljóðan
þeirrar fyrrnefndu hafi amfetamín
ekki verið flokkað sem efni, sem
bannað sé á íslensku yfirráðasvæði
samkvæmt 2. grein laga um ávana- og
fíkniefni, heldur sem efni sem getið er
á fylgiskjali II með alþjóðasamningi
um ávana- og fíkniefni frá 1971 með
síðari breytingum.
Hefur mikla þýðingu
fyrir sambærileg mál
Segir Hæstiréttir að samkvæmt
þessu hafi amfetamín fallið á gildis-
tíma reglugerðarinnar undir ákvæði
3. greinar laga um ávana- og fíkniefni
og vísar til hliðsjónar í dóm Hæsta-
réttar frá 1987.
Fimm hæstaréttardómarar kom-
ust að sömu niðurstöðu í þessu máli,
þau Markús Sigurbjörnsson, Árni
Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Har-
aldur Henrysson og Ingibjörg Bene-
diktsdóttir. Verjandi mannsins var
Karl Georg Sigurbjörnsson hdl. en
Egill Stephensen saksóknari sótti
málið fyrir hönd lögreglustjórans í
Reykjavík.
Egill sagði við Morgunblaðið að
dómur Hæstaréttar hefði mikla þýð-
ingu fyrir sambærileg mál, sem taka
til vörslu amfetamíns frá umræddu
tímabili.
Dómurinn tæki af allan vafa um að
meðferð amfetamíns hefði verið refsi-
verð á þessum tíma. Hann sagði þó
engar líkur á því að refsing sam-
kvæmt 3. grein laga um ávana- og
fíkniefni yrði eitthvað vægari en sam-
kvæmt 2. grein.
Hæstiréttur kemst að annarri niðurstöðu en héraðsdómur í amfetamínmáli
Varsla amfetamíns var
aðeins leyfileg lyfsölum
ARNGRÍMUR Jóhannsson, stjórn-
arformaður Atlanta, og Jón Sig-
urðsson, forstjóri Össurar, voru
kjörnir í stjórn Samherja á aðal-
fundi félagsins sem haldinn var á
Akureyri í gær.
Fram kom á fundinum að hagn-
aður Samherja fyrstu þrjá mánuði
þessa árs nemur 850 milljónum
króna, en áætlanir gera ráð fyrir að
hagnaður nemi 1,6 milljörðum
króna í ár.
Samþykkt var á fundinum að
greiða hluthöfum 30% arð og er um
að ræða hæsta hlutfall sem félag á
Verðbréfaþingi Íslands greiðir
vegna ársins 2001. Þorsteinn Már
Baldvinsson forstjóri sagði nauð-
synlegt fyrir félag eins og Samherja
að greiða góðan arð til að gera fé-
lagið að áhugaverðum fjárfestinga-
kosti og nefndi hann í ræðu sinni að
fyrirtæki á hlutabréfamarkaði hefðu
ekki nægilega horft til þess að
greiða eigendum sínum viðunandi
arð. „Góður arður hluthafa af fjár-
festingum eflir trú almennings á at-
vinnulífið í landinu og styrkir það
þegar til lengri tíma er litið,“ sagði
Þorsteinn Már.
Finnbogi Jónsson, starfandi
stjórnarformaður, gerði grein fyrir
áformum félagsins varðandi fiskeldi
og sagði það vel geta orðið þá stór-
iðju á Austfjörðum sem heimamenn
hefðu beðið eftir. Gangi áætlanir
eftir og tilskilin leyfi fáist fyrir eldi í
Reyðarfirði og Mjóafirði sagði
Finnbogi að árið 2006 gæti fram-
leiðslan verið komin í 14 þúsund
tonn og heildartekjur eldisins yrðu
rúmir 4 milljarðar króna. Starfs-
mannafjöldinn sem beint tengist
eldinu yrði þá kominn yfir 100 alls.
Finnbogi kvað því ekki annað hægt
en horfa tiltölulega björtum augum
til þess að árangur í þessari mik-
ilvægu atvinnugrein næðist.
Góð afkoma Samherja á liðnu ári
Hagnaður
1,6 milljarðar
og 30% í arð
Gerir félagið/18
Stefnt er að einkaframkvæmd-
arútboði, sem bæði innlendir og er-
lendir einkaaðilar geta tekið þátt í,
í lok ársins og að framkvæmdir geti
hafist í ársbyrjun 2004.
Vladimir Ashkenazy var gerður
að heiðursstjórnanda Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í gær við
undirritun samkomulags ríkisins
og Reykjavíkurborgar um bygg-
ingu tónlistarhúss. Myndin var tek-
in í Háskólabíói í gærkvöldi eftir
tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar
og Kórs Íslensku óperunnar á
Draumi Gerontíusar eftir Edward
Elgar sem Ashkenazy stjórnaði.
RÍKIÐ og Reykjarvíkurborg hafa
undirritað samning um byggingu
tónlistarhúss. Verkið í heild felur
auk þess í sér byggingu ráðstefnu-
miðstöðvar, fyrsta flokks hótels
ásamt bílastæðum. Áætlaður heild-
arkostnaður er tæpir sex milljarðar
króna og greiðir ríkið 54% og borg-
in 46%.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónlistar- og ráðstefnuhús
„Loksins/38–39
ARFUR ýmissa þjóðarbrota og hópa einkennir fata-
tísku sumarsins, allt frá sígaunum til senjóríta, kú-
rekum til sjóræningja. Pífupils, blúndur, kögur og
reimar setja svip á flíkur og fylgihluti, gallafatnaður
er grunnurinn að götutískunni og í hárinu er skraut
af ýmsum toga, auk klúta og hatta. Til mótvægis við
gallabuxur má velja úr litríkum kjólum, pilsum og
blússum með púffi og smárósóttu mynstri og toppar
með rykkingum eru flegnir. Segja má að sum-
artískan í ár sé fjölmenningarleg sem aldrei fyrr.
…og þær ilma/B4–5 Morgunblaðið/Þorkell
Fjölmenning
í fatatísku
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
TF-LÍF sótti fimm mánaða
gamlan veikan dreng á Rif á
Snæfellsnesi í gærkvöldi.
Vakthafandi læknir á Heilsu-
gæslustöðinni í Ólafsvík bað
um að þyrlan yrði kölluð út þar
sem drengurinn var með háan
hita og átti erfitt með andar-
drátt.
Drengurinn var fluttur á
Barnaspítala Hringsins við
Hringbraut við komuna til
Reykjavíkur. Hann var í rann-
sóknum í gærkvöldi og fram yf-
ir miðnætti þegar Morgunblað-
ið fór í prentun, en vakthafandi
læknir taldi að hann yrði lagð-
ur inn á almenna barnadeild.
Beiðni um að TF-LÍF yrði
kölluð út barst til stjórnstöðvar
Landhelgisgæslunnar á Selja-
vegi í Reykjavík klukkan 20:42
í gærkvöld. Þyrlan lenti síðan
aftur í Reykjavík klukkan
22:38.
TF-LÍF
sótti veikt
5 mánaða
barn