Morgunblaðið - 20.04.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isHaukar, Valur, Afturelding og
KA í undanúrslit / B1–B2
Brian Marshall hættur með
landsliðið í sundi / B1
4 SÍÐUR32 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM
Halldór LaxnessKilja
n
LESBOK
LESBÓKIN í dag er tileinkuð Halldóri Kiljan
Laxness í tilefni af aldarafmæli skáldsins 23.
apríl nk. Blaðinu fylgir einnig blaðauki þar
sem endurprentuð er bókin Skeggræður
gegnum tíðina sem byggð er á samtölum
Matthíasar Johannessens og Halldórs Lax-
ness er birtust í Morgunblaðinu á sínum tíma
en hún kom út árið 1972 í tilefni af sjötugs-
afmæli Halldórs myndskreytt af danska
teiknaranum Hans Bendix.
Á forsíðu afmælisblaðsins er málverk af
Halldóri Laxness sem Bragi Ásgeirsson, list-
málari og myndlistargagnrýnandi Morg-
unblaðsins í áratugi, hefur málað sérstaklega
af þessu tilefni.
Blaðið hefst á ávarpi Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra.
Ólafur Ragnarsson, útgefandi Halldórs í
hálfan annan áratug, rifjar upp brot úr óbirt-
um samtölum sínum við Nóbelsskáldið og
segir frá leit að greinum, ljóðum og sögum
sem Halldór skrifaði í blöð undir dulnefninu
Snær svinni á unglingsárum – áður en Barn
náttúrunnar kom út. Eins og greint var frá í
Morgunblaðinu í gær hefur leitin leitt í ljós
að rithöfundarferill Halldórs Laxness hófst
með birtingu fjögurra ljóða í Morgunblaðinu
13. júní 1916 undir áðurnefndu dulnefni.
Þetta er kafli úr bók sem Ólafur vinnur nú
að um Halldór og er væntanleg í haust.
Fríða Björk Ingvarsdóttir ræðir við Auði
Laxness, ekkju Halldórs, og Einar Falur Ing-
ólfsson segir í máli og myndum frá húsi
skáldsins, Gljúfrasteini, en á morgun verður
gengið frá kaupum ríkisins á húsinu.
Jónas Ragnarsson skrifar grein þar sem
sagt er frá útgáfudögum og viðtökum skáld-
sagna Halldórs Laxness. Þar kemur meðal
annars fram að skáldsögur Halldórs komu út
á öllum tímum ársins, allt frá 6. febrúar til
18. desember og að bækurnar dreifðust á
alla daga vikunnar. „Ein kom sennilega út á
sunnudegi, þrjár á mánudegi, ein á þriðjudegi, ein á
miðvikudegi, fjórar á fimmtudegi, sjö á föstudegi og
fimm á laugardegi. Oft urðu þetta metsölubækur og
einu sinni seldist bók upp samdægurs,“ segir í grein
Jónasar.
Í blaðinu er birtur formáli Uffes Ellemann-Jensens,
fyrrum utanríkisráðherra Danmerkur, að nýrri þýð-
ingu á Sjálfstæðu fólki sem koma mun út í Danmörku
á þessu ári. Einnig rita Jon Cook, deildarforseti
enskra og amerískra fræða við East Anglia-
háskólann í Englandi, og finnski rithöfundurinn
Antti Tuuri greinar um skáldið. Þá er lýst í stuttum
útdráttum samskiptum Halldórs og Morgunblaðsins.
Auk framangreindra vill Morgunblaðið þakka eft-
irtöldum fyrir veitta aðstoð við efnisöflun og
vinnslu blaðsins: Fjölskyldunni á Gljúfrasteini, Ólafi
J. Engilbertssyni, Adam Foss, Gyldendal-útgáfunni
og Vöku-Helgafelli.
Davíð
Oddsson
Jon
Cook
Jónas
Ragnarsson
Uffe Elleman-
Jensen
Lesbókin tileinkuð aldarafmæli Nóbelskáldsins
Leyndarmál Laxness
Í Morgunblaðinu sunnudaginn 5. október 1919 auglýsti Bóka-
verslun Arinbjarnar Sveinbjarnarsonar „Börn náttúrunnar“
en næst þegar blaðið kom út, þriðjudaginn 7. október, var
nafn bókarinnar orðið rétt, „Barn náttúrunnar“. Á bókar-
kápunni er höfundur sagður „Halldór frá Laxnesi“ eins og
það er orðað í síðari auglýsingunni en ekki þeirri fyrri. Þetta
voru fyrstu auglýsingarnar um bók eftir Halldór.
Ólafur Ragnarsson og Halldór Laxness.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Matthías og Halldór á Morgunblaðinu 1980.
Annti
Tuuri
Bragi
Ásgeirsson
Ljósmynd/Magnús Hjörleifsson
FULLTRÚAR alþjóðlega álfyrir-
tækisins Alcoa hafa verið á Íslandi
undanfarna daga til að kynna sér
möguleika á byggingu álvers á Reyð-
arfirði sem nýti orku frá Kára-
hnjúkavirkjun. Valgerður Sverris-
dóttir iðnaðarráðherra sagði að
frekari viðræður um málið myndu
eiga sér stað milli Alcoa og Fjárfest-
ingarstofunnar – orkusviðs á næstu
vikum.
„Þeir fulltrúar sem voru hér á
landi þekkja þetta verkefni og telja
það ágætlega mótað. Þeir hafa
áhuga á að gera hagkvæmniúttekt á
því. Þeir munu taka sér nokkrar vik-
ur í það og þegar þeirri vinnu er lok-
ið, vonandi í júní, munu hlutirnir
væntanlega skýrast. Þá ætti að vera
orðið ljóst hvort teknar verða upp al-
vöruviðræður,“ sagði Valgerður.
Samtöl hafa átt sér stað undan-
farna daga milli nefndarinnar sem
iðnaðarráðherra fól að kanna áhuga
erlendra fjárfesta á byggingu álvers
á Austurlandi, en hún er undir for-
ystu Finns Ingólfssonar. „Frum-
kvæði að viðræðunum kom frá Alcoa
þegar fréttir bárust af því að hik
væri komið á Norsk Hydro. Allir
sem rætt hafa við þessa fulltrúa Al-
coa eru sannfærðir um að þeir séu að
skoða þetta af fullri alvöru. Mér
finnst jákvætt að þeir skuli bregðast
svona skjótt við og koma til viðræðna
við okkur svo skömmu eftir að þeir
höfðu samband. Það er hins vegar
varasamt að draga of miklar álykt-
anir af þessu á þessu stigi,“ sagði
Valgerður.
Finnur Ingólfsson segir útilokað
að segja hvað viðræðurnar muni
leiða af sér, en í þeim hafi verið góð-
ur andi. „Fulltrúar frá Fjárfestinga-
skrifstofu og Alcoa eru að skoða ein-
staka þætti málsins og munu gera
það næstu daga,“ sagði Finnur. Að-
spurður sagði hann að með „ein-
stökum þáttum“ ætti hann við „alla
þætti“ málsins. Hann benti á að hér
væri um nýtt verkefni að ræða og
væri á þessari stundu ekki neinn
hluti af Reyðarálsverkefninu.
„Þarna er bara nýr aðili kominn að
málinu. Það er mjög gott að fá þá inn
á þessari stundu og fyrr en menn
bjuggust við, en hver niðurstaðan
verður, veit enginn.“
Alcoa er stærsta fyrirtæki á Vest-
urlöndum í áliðnaði og er með starf-
semi á öllum sviðum þess iðnaðar,
þ.e. súrálsframleiðslu, álframleiðslu
og úrvinnslu. Starfsmenn þess eru
129 þúsund í 38 löndum og er velta
fyrirtækisins um 2.300 milljarðar
króna.
Alcoa í viðræðum um byggingu álvers
Alcoa átti
frumkvæði að
viðræðunum
GAMLIR kjólar, hattar, skór og
föt voru til sýnis á tískusýningu á
Hrafnistu í Hafnarfirði í gær.
Sextán manns sýndu þar gömul
föt úr fórum heimilismanna og
kom sýningarfólkið bæði úr röð-
um íbúa á Hrafnistu og starfs-
fólks.
Elsti kjóllinn var í eigu móður
næstum áttræðrar konu, það var
náttkjóll úr lérefti og hvít nátt-
húfa í stíl.
Á þessari mynd sýna Tryggvi
Blöndal, fyrrverandi skipstjóri á
Esjunni, og Guðbjörg Elíasdóttir,
starfskona á saumastofunni, göm-
ul föt. Tryggvi er í fötum sem
hann notaði þegar hann stýrði
Esjunni um höfin og heldur Guð-
björg á silfurref sem var móðins
að setja yfir herðarnar og hafa
við fína kjóla.
Lovísa Einarsdóttir, samskipta-
fulltrúi Hrafnistu í Hafnarfirði,
segir að um 70–80 áhorfendur
hafi fylgst með tískusýningunni
og allir hafi skemmt sér kon-
unglega.
Morgunblaðið/Ásdís
Sýndu tísku liðinna tíma