Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 66
66 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. SUMIR andlegir gúrúar hafa þá kenningu að áður en við fæðumst ákveðum við hvar við ætlum að fæð- ast næst, aðrar andlegar kenningar tala um að það muni vera örlaga- tengt hvar við fæðumst í næsta lífi og átt er þá við hvernig við hegðuðum okkur í lífinu þar á undan. Það skal ósagt látið og Guð einn veit hvernig þessu er háttað, hvaða sviðsmynd við fáum og hvaða hlutverk veljast í kringum blessuðu englana sem lenda hérna niðri á jörðinni. Það sem knýr mig áfram að skrifa þessa grein er það svöðusár í hjartanu sem grær ekki, sem sum börn verða fyrir þeg- ar æskan er tekin frá þeim. Þá á ég þar við þegar þeirra forsjármenn sem í flestum tilvikum eru foreldrar þeirra, hafa tekið þá ákvörðun að ala af sér barn í þennan heim eru ekki að standa sig á einn eða annan hátt sem foreldri. Ástæðan er oftast vímu- efnaneysla. Það fólk er engan veginn að átta sig á ábyrgðinni sem fylgir því að vera foreldri, dæmið snýst því við og börnin reyna að verða foreldr- ar foreldra sinna. Að neita að taka ábyrgð er í raun að neita því að verða fullorðinn, það er dæmi sem gengur ekki upp. Lífið er þróun og þróunin verður að koma, annars verður stöðnun og stöðnun í lífinu er ætíð til hins verra. Lífið er breytilegt í allri sinni mynd. Nú líður að kosningum fyrir næstu 4 árin í borginni. Mig langar að sjá þann flokk sem ætlar að leggja áherslu á að huga að for- vörnum, ekki bara fyrir getnaðar- varnir heldur forvarnir er varðar ábyrgðina á að ala upp einstakling. Hvaða flokkur ætlar að huga að for- vörnum er varða fíkniefni, áfengis- neyslu og afskiptaleysi gagnvart smáfólkinu. Börn þurfa ást, öryggi og athygli. Ef ekki hefur tekist hjá ömmunum og öfunum að ala upp for- eldra sem standa sig gagnvart barnabörnum þá verða yfirvöld að grípa inn í með forvörnum. Það er best að gera með kynningarstarfi sem miðar markvist að því að búa til betri foreldra í samfélaginu sem við búum í. Ég myndi vilja sjá foreldra í borginni eiga áhugamál sem passa fyrir börnin, foreldra sem opna augu barnsins fyrir því heilbrigða sem til er í lífinu. Foreldra sem ákveða að hætta að drekka eða dópa til að geta átt heilbrigða stund með barninu sínu, farið út að ganga með barninu, farið niður á tjörn með barninu, farið út í náttúruna með barninu, spilað á spil með barninu. Það þarf ekki að kosta mikla peninga að sinna barninu sínu, barnið borgar það margfalt til baka þegar því líður vel, þá er eins og það sendi kærleik í hjarta foreldra sinna sem eru ekki metnir til fjár. Kærleikurinn græðir allt, enda er hann í eðli sínu tær, fal- legur, sannur og hreinn. HALLDÓRA MARÍA STEINGRÍMSDÓTTIR, snyrtifræðingur. Villibörn Frá Halldóru Steingrímsdóttur: „ÁGÆTI Jón. Umsókn yðar um leikskólapláss fyrir Óskírðan Jóns- son hefur verið tekin fyrir og met- in sem forgangs- umsókn. Ætla má að pláss verði laust eftir 7 ár. Leikskól- inn.“ Myndum við sætta okkur við svona svar og þessa þjónustu ef hún væri með þessum hætti? Nei. Svona svar fékk 78 ára gömul móðir mín frá borgaryfirvöldum við umsókn um að fá leigða þjón- ustuíbúð. Hún er metin af sömu yf- irvöldum í flokki þeirra sem þurfa á hvað brýnustu úrlausn að halda. Hún þarf að bíða allt að 2 ár. Á meðan er hún fangi heima hjá sér þar sem hún kemst ekki lengur upp og niður stigana af sjálfsdáð- um vegna lungnasjúkdóms. Þar að auki er íbúðin við eina af fjölförn- ustu götum borgarinnar þannig að ekki er hægt að opna glugga vegna hávaða og umferðarmengunnar. Nú nýlega fékk hún blóðtappa í lungun að auki vegna kyrrsetu. Ég held að hvert ár sem við lif- um umfram ákveðinn meðalaldur sé eins og lottóvinningur. Þess vegna geta 2 ár fyrir 78 ára gaml- an einstakling verið álíka óskyn- samleg og tilgangslítil bið eins og að úthluta Óskírðum Jónssyni leik- skólaplássi eftir 7 ár en þá ætti hann að öllu jöfnu að vera kominn í grunnskóla. Vanmáttur borgaryfirvalda í þessum málaflokki er öllum til skammar. Einstaklingar sem unnið hafa hörðum höndum allt sitt líf til að tryggja þeim sem á eftir koma betri lífsgæði eiga betra skilið. Kjör þessa fólks og afdrif virðast vera háð duttlungum stjórnmála- manna hverju sinni. Ætla má að núverandi valdhöfum borgarinnar hefði verið í lófa lagið að marg- falda framboð af þjónustu borg- arinnar til gamla fólksins með því að sleppa Línu.net ævintýrinu og eldri valdhöfum með því að sleppa byggingu Perlunnar. Þetta er fyrst og fremst spurn- ing um forgangsröð og foreldrar okkar eiga skilið að hún sé þeim meira í hag en núna er, svo að þeir geti lifað við sæmilega reisn. Eigum við skilið að fá betri með- ferð en foreldrar okkar þegar kemur að okkur ? BIRGIR GUNNLAUGSSON, Leiðhömrum 17, Reykjavík. Er við einhvern að sakast? Frá Birgi Gunnlaugssyni: Birgir Gunnlaugsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.