Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 23
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 23 EGILL bóndi í Vagnbrekku setti fram bát á dögunum til að ná netum sem hann hafði átt undir ís. Hvöss vestanátt og veruleg leysing höfðu étið og brotið ísinn yfir netalögn hans þannig að ekki varð lengur komist að þeim af ís. Ef fram fer sem horfir verður ís á Mývatni tæp- lega fimm mánuði þennan vetur, sem er óvenju stuttur tími, en vatn- ið lagði í lok nóvember. Ofurlítið hefur veiðst í net, en nær ekkert á dorg á þessum vetri enda sést varla maður á dorgi og er eftirsjá í því. Af andfuglum eru húsendur lang- mest áberandi enn sem komið er. Bátur í fjörunni Morgunblaðið/Birkir Fanndal Haraldsson Mývatnssveit SKRIFAÐ hefur verið undir samn- ing milli Landssambands hesta- manna og Rangárbakka ehf. um að Landsmót hestamanna árið 2004 verði haldið á Gaddstaðaflötum við Hellu. Þar með hefst undirbúning- ur og vinna að markaðssetningu, en undanfarin ár hafa um tíu þúsund manns, þar af 3.000–3.500 erlendir gestir, sótt landsmótin sem haldin eru annað hvert ár. Í sumar verður Landsmót hestamanna haldið á Vindheimamelum í Skagafirði 2.–7. júlí. Landssamband hestamanna (LH) hélt kynningarfund á Veit- ingastaðnum Laufafelli á Hellu sl. þriðjudag fyrir stjórnir og trúnað- arráð hestamannafélaga á Suður- landi, í Borgarnesi fyrir Vesturland á miðvikudag og fyrirhugaðir eru fundir á Akureyri og í Reykjavík. Á fundum þessum er farið yfir helstu þætti sem eru á döfinni í starfi LH en megináherslan lögð á að kynna fyrir félögunum skiptingu reið- vegafjár. Fram kom í máli for- manns LH, Jóns Alberts Sigur- björnssonar að félögin í landinu hefðu sótt um 90 milljónir til reið- vega, en 42 milljónir koma til skipt- anna, 22 millj. frá LH og 20 millj. frá Vegagerðinni. Einungis er tekið við umsóknum frá svæðum sem hafa komið reiðvegum inn á gild- andi skipulag og lagði formaðurinn áherslu á það við fundarmenn að félögin á hverjum stað yrðu sjálf að vinna ötullega að því að koma reið- vegum inn á skipulag sveitarfélag- anna. Framlag LH er notað til upp- byggingar á nýjum vegum, en framlag Vegagerðarinnar fer í að flytja núverandi reiðvegi frá aðal- þjóðvegum. „Þetta er stærsta hags- munamál hestamanna og hesta- tengdrar ferðaþjónustu og mjög mikil þörf á að koma þessum mál- um í betra horf, ekki síst með tilliti til öryggis hestamanna og annarra vegfarenda á þjóðvegum landsins,“ sagði Jón Albert. Kynning hafin fyrir 2004 Á fundinum á Hellu var sem fyrr segir skrifað undir samning milli Rangárbakka ehf. og LH um að landsmót að tveimur árum liðnum verði haldið á Hellu, sennilega í júl- íbyrjun. Verið er að hanna bækling sem kemur út á næstu vikum, þannig að kynning og markaðsstarf hefst strax og fer rækilega fram á landsmótinu í sumar þar sem hörð- ustu hestamennirnir, íslenskir og erlendir, eru samankomnir. Að sögn Haraldar Sveinssonar, for- manns stjórnar Rangárbakka ehf., er það sannkölluð vítamínsprauta að vera með samninginn í hönd- unum og verður hafist handa við undirbúning svæðisins og áfram- haldandi uppbyggingu strax í sum- ar með stefnuna á Landsmót 2004. Landsmót hesta- manna 2004 á Hellu Hella TÍSKUVÖRUVERSLUNIN Shíva var nýlega opnuð í Ólafsvík, eigandi verslunarinnar er Þuríður Ragna Jó- hannesdóttir ásamt sambýlismanni sínum, Magnúsi Birgissyni. Aðspurð sagðist Þuríður hafa mik- inn áhuga á fötum auk þess sem henni þætti miður að ekki skyldu vera seld föt í Ólafsvík, svo að hún ákvað að gera sjálf eitthvað í málinu og skapa sér atvinnu um leið. Í tískuvöruversluninni Shívu verða seld alls konar föt, en aðal- áhersla verður á tískufatnað og fylgi- hluti. Ætlunin er að selja bæði dýr og ódýr merki, en sama verð er á flíkunum og þeim sem seldar eru í Reykjavík. Ný tísku- vöruverslun á Ólafsvík Morgunblaðið/Alfons Þuríður Ragna Jóhannesdóttir, eigandi verslunarinnar Shiva. Ólafsvík. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.