Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 18
AKUREYRI
18 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Enskuskóli á Suður-Englandi
Gist hjá enskum fjölskyldum,
unglingar 14-18 ára.
2-4 vikna ferðir, enska,
fótbolti - íþróttir.
Viðskiptaenska, 18 ára
og eldri, allt árið.
50 ára og eldri, 2 vikna ferðir,
gott verð, góður skóli.
Uppl. eftir kl. 17 í síma 862 6825
Jóna María.
Sælkera kaffi
og te.
sími 462 2900
Blómin
í bænum
Skráning er hafin!
6-12 ára drengir og stúlkur, 12 daga flokkar:
1. flokkur: 18.-30. júní
2. flokkur: 3.-15. júlí
3. flokkur: 19.-31. júlí
4. flokkur: 3.-15. ágúst
13-16 ára unglingar, 6 daga flokkur:
5. flokkur: 17.-23. ágúst
Dvalargjald:
12 daga barnaflokkur: 32.800 kr.
Rútuferð Akureyri-Ástjörn-Akureyri innifalin.
6 daga unglingaflokkur: 15.900 kr.
Rútuferð einnig innifalin.
Sumarbúðafargjöld með Flugfélagi Íslands
á milli Reykjavíkur og Akureyrar.
Sumarbúðirnar Ástjörn í Kelduhverfi, sími 462 3980
astjorn@nett.is - www.nett.is/astjorn
Fótbolti - Árabátar - Skotbolti - Körfubolti - Hjólabátar - Boðhlaup - Kvöldvökur -
Fallhlífarleikir - Kanóar - Sund - Borðtennis - Kajakar - Skák - Hæfileikakeppni -
Teiknimyndakeppni - Snóker - Skútur - Fótboltaspil - Stígvélaspark - Jökulsárhlaup -
Boltakast - Þrautakeppni - Frjálsar íþróttir - Hafnabolti - Hestaleiga (greitt aukalega) -
Gönguferðir - Ásbyrgi - Föndur o.m.fl.
Skráning og uppl. í síma 462 3980
(Árni og Magnús) og í síma 462 3238
(Bogi) frá kl. 9-18 virka daga.
Ástjörn eru kristilegar sumarbúðir og hafa starfað frá árinu 1946
TÍU ÁRA áætlun um uppbyggingu á
miðbæjarsvæðinu, þannig að mið-
bærinn verði miðpunktur mannlífs í
bænum, verður gerð verði Framsók-
arflokkurinn í meirihlutasamtarfi í
bæjarstjórn Akureyrar eftir kosn-
ingar. Þetta er eitt af því sem fram
kemur í stefnuskrá flokksins fyrir
svetiarstjórnarkosningar í vor og
kynnt var á fundi í vikunni.
Kjörorð flokksins er „Fyrir fólkið í
bænum,“ og sagði Jakob Björnsson
oddviti hans að stefnuskráin tæki mið
af því kjörorði. „Við hugum að hinum
mýkri málum, s.s. skóla- og öldrunar-
málum og málefnum þeirra sem
minna mega sín.“
Jakob sagði atvinnumálin brenna á
vegna þeirrar stöðu sem uppi væri á
þeim vettvangi í bænum nú. Ekki síst
væri staðan brothætt meðal ófag-
lærðs fólks, sem fengið hefði að finna
fyrir því að undanförnu. „Við lýsum
því ákveðið yfir að við munum vinna
ötullega að því að styrkja atvinnulífið
í bænum, þrátt fyrir að atvinnumál
séu ekki eitt af lögboðnum verkefn-
um sveitarfélaga,“ sagði Jakob. „Við
munum brýna öll þau tæki sem við
höfum.“
Þá sagði Jakob að staða öldrunar-
mála kallaði á skjótar úrbætur og
myndi flokkurinn leggja áherslu á
þann málaflokk. Meðal þess sem sett
er fram í stefnuskránni á þeim vett-
vangi má nefna að flokkurinn vill
fjölga hjúkrunarrýmum með við-
byggingu við Hlíð, koma á sólar-
hringsþjónustu í heimahjúkrun og
auka þjónustu við þá hópa sem þurfa
á sérþjónustu að halda.
Gerður Jónsdóttir, sem skipar 2.
sæti listans, gerði á fundinum grein
fyrir áherslum flokksins í skólamál-
um. Meðal þess sem þar kom fram er
að koma Brekkuskóla í framtíðarhús-
næði árið 2005 og Tónlistarskólanum
í nýtt húsnæði. Þá vill Framsóknar-
flokkurinn byggja nýjan leikskóla á
Brekkunni og taka í notkun innan
tveggja ára. Í stefnuskránni er einnig
að finna áform flokksins um að ráða
skóladjákna til að sinna börnum í
leik- og grunnskólum, en Gerður
sagði að sálgæsla væri oft hluti af
starfi kennara.
Verður að skera skuldahalann
aftan af íþróttafélögunum
Í stefnuskránni kemur fram að
Framsóknarflokkurinn vill endur-
skoða samning Akureyrarbæjar við
íþróttafélögin með það í huga að
tryggja fjárhagslegt sjálfstæði
þeirra og gera stjórnum kleift að
starfa að uppbyggingar- og þróunar-
starfi. Jóhannes Gunnar Bjarnason,
sem er í 3. sæti listans, sagði að fyrri
samningur hefði ekki gengið nægi-
lega langt og mikil innri orka félag-
anna færi í að greiða niður skuldir.
„Það er ekki hægt að ætlast til þess
að félögin geti rekið sig nema skulda-
halinn verði skorinn aftan af þeim,“
sagði Jóhannes.
Guðný Jóhannesdóttir, sem skipar
4. sæti listans, sagði að flokkurinn
mynda draga til baka þá ákvörðun yf-
irvalda að loka í haust eina gæsluvelli
bæjarins sem enn væri opinn. Hún
sagði að flokkurinn vildi koma upp fé-
lagsmiðstöð fyrir ungmenni, 16 til 20
ára, í anda „Hins hússins“ í Reykja-
vík og að leitast yrði við að vinna með
þessum aldurshópi að þeim málum
sem honum væru hugstæðust.
Af öðrum málum má nefna að
Framsóknarflokkurinn vill auka
áherslu á íþróttir, hreyfingu og úti-
vist, ljúka framkvæmdum við Sund-
laug Akureyrar, hraða framkvæmd-
um við skógræktar- og
útivistarsvæði norðan Glerár og
leggja þar göngustíga til að gera
svæðið aðgengilegra. Auðveldara að-
gengi að Krossanesborgum, bætt
umgengni á vatnasvæði Glerár og at-
hugun á því hvort fýsilegt sé að fjölga
vistgötum í bænum er einnig á meðal
þess sem flokkurinn mun beita sér
fyrir fái hann til þess stuðning kjós-
enda.
Jakob sagði að menn gerðu sér
fulla grein fyrir þeim kostnaði sem
fylgdi auknum framkvæmdum og að
skuldir bæjarins muni aukast eitt-
hvað verði allar framkvæmdir að
veruleika sem upp eru taldar í
stefnuskránni. Hann sagði markmið
Framsóknarflokksins að tryggja þrjá
menn inn í bæjarstjórn og helst að ná
betri árangri en í síðustu kosningum.
Morgunblaðið/Kristján
Gerður Jónsdóttir, Jakob Björnsson, Jóhannes G. Bjarnason og Guðný Jóhannesdóttir kynntu stefnuskrána.
Brýnum öll tæki til að
styrkja atvinnulífið
Framsóknarmenn á Akureyri kynna stefnuskrá sína
KRISTÍN Aðalsteinsdóttir, dósent
við kennaradeild Háskólans á Akur-
eyri, kynnir doktorsverkefni sitt
næstkomandi þriðjudag, 23. apríl, kl.
16.15. Verkefnið nefnist „Fámennir
skólar og hegðun kennara“. Fyrir-
lesturinn verður í stofu 24 í Þingvalla-
stræti 23 og öllum opinn.
Lýst verður rannsókn þar sem
gengið var út frá því að í fámennum
skólum eigi kennarar auðveldara
með: a) að taka tillit til námsþarfa
nemenda; b) að skapa góð tengsl við
nemendur, samstarfsfólk og foreldra;
c) að beita kennsluaðferðum sem tald-
ar eru eiga heima í fámennum skól-
um. Gerð var rannsókn á hegðun
kennara í kennslustofunni og skiln-
ingi þeirra á eigin hegðun. Rannsókn-
in fór fram bæði í fámennum og fjöl-
mennum skólum og samanburður
gerður.
Færa má rök fyrir því að hegðun
kennara hafi áhrif á nám nemenda,
sjálfsmynd þeirra og félagslegan
þroska, ekki síst á nemendur sem
eiga í örðugleikum. Ein mikilvægasta
niðurstaða rannsóknarinnar sýndi að
svo virðist sem ákveðnir eiginleikar í
fari kennara geti gefið vísbendingu
um hæfni þeirra í starfi. Rannsóknin
leiddi einnig í ljós að margir kennarar
í fámennum skólum virðast ekki nýta
þá möguleika sem þeim eru búnir.
Fámennir
skólar og
hegðun
kennara
NÝTT tónverk eftir Atla Heimi
Sveinsson verður frumflutt á
kammertónleikum í Dalvíkurkirkju
í dag, laugardaginn 20. apríl, en
þeir hefjast kl. 17.
Flytjendur eru þau Pawel Pan-
asiuk, selló, Guido Baumer, alt,
tenór og barítónsaxófónar og Vig-
dís Klara Aradóttir, sópran, barí-
tónsaxófónar og bassaklarinett.
Verk Atla Heimis nefnist Grand
duo concertante no. 5....til vökunn-
ar helkalda voðadraums og er fyrir
sópran, barítónsaxófóna og raf-
hljóð.
Á efnisskránni eru einnig verk
eftir Sofia Gubaidulina, Edison
Denisov og Olgu Neuwirth.
Vigdís Klara og Guido Baumer
búa og starfa á Dalvík, en Pawel
Panasiuk býr á Akureyri. Þau efna
einnig til tónleika í Laugaborg í
Eyjafjarðarsveit á sunnudag, 21.
apríl og hefjast þeir einnig kl. 17.
Frumflytja
verk eftir
Atla Heimi
PÉTUR Þór Gunnarsson opnar mál-
verkasýningu í dag, laugardaginn 20.
apríl kl. 16.00, í samvinnu við List-
húsið Þing. Sýningin verður haldin í
Glerárgötu 36, Akureyri og er aðeins
opin þessa helgi.
Á laugardag er opið frá kl. 16.00 til
kl. 20.00 og sunnudag er opið frá kl.
14.00 til 17.00. Pétur Þór er fæddur
1958. Hann stundaði nám við
Fjónsku listaakademíuna í Óðins-
véum 1982 – 1987. Pétur sýnir nú um
40 málverk, bæði nýleg og eldri verk.
Málverkasýn-
ing Péturs Þórs
PÁLL Óskar Hjálmtýsson og Mon-
ika Abendroth halda tónleika í Ket-
ilhúsinu við Kaupvangsstræti annað
kvöld, sunnudagskvöldið 21. apríl, og
hefjast þeir kl. 21. Hyggjast þau
halda vöku fyrir Norðlendingum, því
yfirskrift tónleikanna er „Ef ég
sofna ekki í nótt“.
Páll Óskar og Monika hafa hvar-
vetna hlotið góða dóma fyrir tónleika
sína með þessari yfirskrift, sem er
jafnframt heitið á samnefndum geisla-
diski sem kom út fyrir síðustu jól.
Á tónleikunum í Ketilhúsinu flytja
Páll Óskar og Monika ásamt
strengjasveit lög af geisladiskinum,
einnig eldri lög sem eru þekkt í flutn-
ingi Páls Óskars sem og glæný sem
aldrei hafa heyrst áður.
Pál Óskar er sjálfmenntaður
söngvari sem hefur sungið sig inn í
hjörtu landsmanna frá barnsaldri og
verið áberandi sem ein skærasta
poppstjarna Íslands undanfarinn
áratug.
Monika Abendroth hörpuleikari
hefur verið fastráðin hjá Sinfóníu-
hljómsveit Íslands síðan 1976.
Hægt er að panta miða á skrif-
stofu Gilfélagsins en þeir verða einn-
ig seldir við innganginn.
Páll Óskar og Monika
í Ketilhúsinu
Ef ég sofna
ekki í nótt
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
BÚDDA-nunnan Gen Nyingpo
kennir þrjú kvöld á Akureyri í næstu
viku, þ.e. dagana 23., 25, og 26. apríl
næstkomanid. Kennt er á ensku og
hefst kennsla kl. 20 í Glerárgötu 32,
4. hæð, gengið inn að austan.
Kennd verður hugleiðslan „Ástúð-
leg góðvild́ sem er áhrifarík leið til að
bæta sambönd við aðra segir í frétt
um námskeiðið. Hvert skipti er sjálf-
stæð eining og allir eru velkomnir.
Hvert skipti kostar 1.000 kr., en
2.400 fyrir þau öll. Nemar, atvinnu-
lausir og öryrkjar greiða 500 kr. og
1200 fyrir öll þrjú skiptin.
„Ástrík
hugleiðsla“
♦ ♦ ♦