Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 9
Sumartilboð
15% afsláttur
af öllum peysum og buxum
Frábært úrval
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Nýjar dragtir
Jakki kr. 9.900, buxur kr. 6.900,
kjóll kr. 7.900 - Stærðir 36-56
15% vorafsláttur
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag laugardag 10-14
í fjóra daga
Snyrtistofan Guerlain,
Óðinsgötu 1, sími 5623220.
Ráðhúsblóm,
Bankastræti 4, sími 551 6690
Tilboð
1) Blómvöndur og förðun
2) Blómvöndur og
handsnyrting.
Dekraðu
elskuna þína:
Sími 892 8778,
annaf@simnet.is
Litgreining,
fatastíll,
fatasamsetning
og förðun
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra opnaði í gær Ferðatorg
2002 í Vetrargarðinum í Smáralind
í Kópavogi en um er að ræða fyrsta
markaðstorg ferðaþjónustunnar
þar sem fólki gefst kostur á að
kynna sér fjölbreytilega ferða-
möguleika innanlands. Ferðatorgið
verður opið nú um helgina og geta
gestir kynnt sér afþreyingar- og
skoðunarmöguleika landsbyggð-
arinnar, s.s. vélsleðaferðir, ísklifur,
hvalaskoðun, raftasiglingar,
gönguferðir, sjóstangaveiði, hesta-
ferðir, kajakferðir, óvissuferðir og
margt fleira. Þá fjölgar lands-
hlutasöfnum ár frá ári m.a. hvala-
safn, draugasafn, Vesturfarasetur,
Njálusafn, Geysissafn, fiskasöfn og
byggða- og sjóminjasöfn.
Ferðatorgið stendur í samhengi
við átakið „Ísland sækjum það
heim“ sem er samvinnuverkefni
samgönguráðuneytis og skrifstofu
Ferðamálaráðs. Hefur 30 millj-
ónum króna af alls 150 milljónum,
sem samgönguráðuneytinu var út-
hlutað til að bregðast við samdrætti
í ferðaþjónustunni í kjölfar hryðju-
verkanna 11. september, verið var-
ið til auglýsingaherferðar undir
slagorðinu „Ísland sækjum það
heim“. Hefur aldrei verið varið
jafnmiklum fjármunum til ferða-
þjónustunnar á einu ári og sagði
Sturla Böðvarsson að þessi ráð-
stöfun hefði, auk framlaga frá að-
ilum ferðaþjónustunnar, skilað sjá-
anlegum árangri sem væri
ánægjulegt þar um væri að ræða
skattfé almennings. Alls verður 45
milljónum króna varið til sérstakra
kynningarverkefna innanlands.
Sturla Böðvarsson sagðist binda
vonir við að átakið hvetti Íslend-
inga til að ferðast meira innan-
lands, ekki eingöngu yfir sum-
armánuði, heldur allt árið.
Magnús Oddsson ferðamálastjóri
sagði að ef íslenskar fjölskyldur
lengdu ferðalög sín innanlands um
einn dag myndi það auka umsvif í
greininni um hálfan milljarð króna.
Morgunblaðið/Ásdís
Vonast er til að Íslendingar ferðist meira innanlands og bindi ekki
ferðalög sín endilega við sumarið. Magnús Oddsson ferðamálastjóri,
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Einar K. Guðfinnsson, for-
maður Ferðamálaráðs, við opnun Ferðatorgs 2002 í Smáralind í gær.
Ferðamöguleikar
innanlands kynntir
á ferðatorgi
„Í ÞEIM samningi sem hér fylgir
heitum við frambjóðendur D-listans
því að standa við þau loforð sem þar
eru gefin. Við óskum eftir umboði
þínu í kosningunum 25. maí svo þessi
samningur á milli okkar og Reykvík-
inga nái fram að ganga og Reykjavík
verði á ný í fyrsta sæti,“ segir í inn-
gangi sérstakrar kosningayfirlýsing-
ar sem frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar í Reykjavík kynntu í gær
undir heitinu „Samningur við Reyk-
víkinga“. Þar eru í tíu liðum kynnt
þau málefni úr kosningastefnuskrá
D-listans sem frambjóðendur hans
ætla að setja í forgang og leggja
megináherslu á við stjórn borgarinn-
ar á næstu fjórum árum fái þeir til
þess nægilegan stuðning í kosning-
unum í vor.
Björn Bjarnason, oddviti D-
listans, undirritar samninginn fyrir
hönd frambjóðenda D-listans og seg-
ir að Reykvíkingum gefist tækifæri
til að samþykkja hann með því að
greiða D-listanum atkvæði í kosn-
ingunum í vor.
„Við skuldbindum okkur til þess,
fáum við til þess stuðning kjósenda,
að framkvæma samninginn,“ sagði
Björn Bjarnason á fréttamannafundi
í gær. „Reykvíkingar geta staðfest
samninginn með atkvæði sínu 25.
maí,“ sagði hann.
Nýjung í íslenskri
kosningabaráttu
„Það hefur aldrei verið gert hér á
landi áður að leggja kosningamál
fram með þessum hætti og kynna
þau á þessum forsendum,“ sagði
Björn. „Þetta er nýjung í íslenskri
kosningabaráttu. Aðferðin er ný og
stefnumiðin skýr,“ sagði hann enn-
fremur á fundinum.
Efst á listanum er yfirlýsing um
að frambjóðendur D-lista skuldbindi
sig til að lækka fasteignagjöld um
allt að 20% bæði á fólk og fyrirtæki
með því að afnema holræsaskattinn.
„Við ætlum að stórlækka og leggja af
fasteignaskatta og holræsagjöld á
eigið húsnæði langflestra borgarbúa
67 ára og eldri. Við ætlum að gera
það sama fyrir örorkulífeyrisþega.
Við ætlum að eyða biðlistum eftir
hjúkrunarrýmum fyrir eldri borg-
ara. Við ætlum að efna til sérstaks
átaks í þessum málaflokki á kjör-
tímabilinu og verja milljarði til að
mæta brýnni þörf þessa hóps,“ segir
þar.
Þar er einnig m.a. að finna yfirlýs-
ingu um að innra starf grunnskól-
anna verði eflt og foreldrum verði
gefið tækifæri til að velja grunnskóla
fyrir börn sín. Eyða á biðlistum á
leikskólum og veita öllum börnum 18
mánaða og eldri rétt á leikskóla-
plássi. Lýst er yfir að skuldasöfnun
borgarinnar verði stöðvuð, verkefni
verði flutt til einkaaðila og félaga-
samtaka þar sem við á og hlutur
Reykjavíkurborgar í Línu.net verði
seldur ef flokkurinn fær til þess
stuðning kjósenda, svo nokkur atriði
séu nefnd af þeim tíu áhersluatriðum
sem er að finna í yfirlýsingunni.
Inga Jóna Þórðardóttir, frambjóð-
andi D-listans, sagði að með þessu
væru frambjóðendur að nálgast
kjósendur með öðrum hætti en verið
hefur, „og undirstrika að kjósendur
eru með vald. Þeir hafa yfir atkvæði
sínu og því valdi sem því fylgir að
ráða. Þess vegna eru þeir í raun og
veru samningsaðilar við þá stjórn-
málamenn sem bjóða sig fram. Þeir
verða að geta treyst því að sá sem
þeir kjósa upplifi ábyrgð sínameð
skuldbindandi hætti“, sagði hún.
Frambjóðendur D-listans lögðu
áherslu á það í gær að ljóst væri að
grundvallarágreiningur væri á milli
D-listans og R-listans í öllum þýð-
ingarmestu málaflokkum, s.s. skipu-
lagsmálum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, benti m.a. á að grund-
vallarmunur væri á stefnu og
áherslum framboðanna varðandi
skipulag í Geldinganesi, varðandi
lóðaframboð og húsnæðismál. Sagð-
ist Vilhjálmur aldrei hafa upplifað
jafnmikinn húsnæðisvanda í Reykja-
vík og ríkti í dag, mitt í góðærinu.
„Biðlistar hafa aldrei verið lengri,
þeir eru allir í sögulegu hámarki.“
Sjálfstæðismenn í Reykjavík birta yfirlýsingu um forgangsmál í kosningunum í vor
Samningur um tíu
kosningaloforð
Morgunblaðið/Kristinn
Fimm frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins kynntu ,,Samning við Reyk-
víkinga“ á fréttamannafundi í gær en í honum felast 10 kosningaloforð.
F.v. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, Björn
Bjarnason, Inga Jóna Þórðardóttir og Hanna Birna Kristjánsdóttir.
MOGGABÚÐIN
mbl.is