Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 73
Kátir piltar komu víða við á sínum tíma og gerðu m.a. stuttmyndina „Hinir ómótstæðilegu“. Hér er Hjörtur Howser í hlutverki alþjóðlega glæpamannsins Ástvalds og Steinn Ármann í hlutverki Sáms Tymanns. „ÉG er ofsóttur … af feitum kon- um,“ sungu Kátu piltarnir úr Hafn- arfirði fyrir einum fjórtán árum. Talsmaður sveitarinnar sver og sárt við leggur að lagið, sem varð mikill útvarpssmellur, sé framlag þeirrar eðlu sveitar til kvennabaráttunnar. Lagið er tekið af plötunni Einstæðar mæður, sem út kom á vínylformi árið 1988. Þessi grínaktugi grall- aragripur kemur nú út í fyrsta skipti á geisladiski og kemur sveitin saman aftur í Leikhúskjallaranum af því til- efni. Jakob Bjarnar Grétarsson er gít- arleikari Kátra pilta og upplýsir hann blaðamann um að sveitin hafi orðið til, nánast óvart, upp úr vina- og félagahópi í Flensborgarskóla. Legið í loftinu „Endurútgáfan er nú búin að liggja lengi í loftinu,“ segir Jakob. „Á þeim tíma sem platan kom út voru vínylplöturnar byrjaðar að hverfa af markaðnum, þannig að það hefur verið draumur okkar lengi að koma þessu á geislatækt form. Þar að auki vorum við aldrei neitt sérlega ánægðir með skurðinn á plötunni, platan hljómaði kannski ekki eins vel og efni stóðu til. Þannig að hljóm- gæðin eru nú orðin talsvert meiri og við erum ákaflega lukkulegir með það.“ Jakob segir tildrög plötunnar skondin: „Við vorum nú bara að grín- ast með þessa hljómsveit – spiluðum í mesta lagi á einhverjum uppá- komum í skólanum. En svo var það einhvern tíma þannig að við ætluðum í bíó strákarnir. Nenntum því ekki og fórum í bílskúr heima hjá okkur Atla bró og tókum upp, við afar frumstæðar aðstæður, nokkur lög okkur til skemmtunar. En „foring- inn“ svokallaður, hann Hallur Helga- son, lætur sér nú fátt fyrir brjósti brenna og stormaði á fund Jóns Ólafssonar í Skífunni og sannfærði hann um að þetta væri nú eitthvað sem ætti aldeilis heima á hljómplötu. Ég veit nú ekki hvort Jón var svo of- boðslega hrifinn af þeirri tónlist sem honum var þarna boðin til hlustunar, ég held öllu frekar að hann hafi orðið hrifinn af þessum frakka unga manni sem óð þarna inn og talaði við hann á jafningjanótum!“ Jakob segir að á þessum tíma hafi ýmis bönd verið að æfa og vonast eftir samningum. „Sumir voru að æfa sig nánast rænulausa í loftlausum bílskúrum, leggjandi mikla vinnu í „demóin“ sín og nagandi þröskuldinn hjá Jóni. Þannig að við urðum varir við nokk- urn kala í okkar garð, fólki fannst eins og við hefðum ruðst fram fyrir röðina og ættum þetta ekki skilið!“ Feitir karlar Kátir piltar hafa jafnan verið stimplaðir sem gleðipoppband, að sögn Jakobs, nokkuð sem þeir fé- lagar hafa ekki verið alls kostar sátt- ir við. „Við vorum alltaf að reyna að vera rokkarar, eins langt og það náði. En við, sem þóttumst eiga rætur í rokki og jafnvel pönki, vorum alltaf nefnd- ir í sömu andrá og Jójó, Greifarnir og Stuðkompaníið, með fullri virð- ingu fyrir þeim sveitum, sem stefndu mjög markvisst á ballmarkað. Við litum svona meira á okkur sem hreyfingu kvikmyndagerðar- og hljómlistarmanna. En það telst nú væntanlega yfirmáta hallærislegt að láta einhverjar flokkanir poppfræð- inga fara í taugarnar á sér auk þess sem stimpilinn má líka rekja til nafnsins Kátir piltar. Jú og svo helv … hans Davíð Þórs sem samdi þetta lag, „Feitar konur“, sem varð svo okkar kennimark – okkur til nokkurrar armæðu. Án nokkurs vafa mun einhver gríngosinn tala um okk- ur sem „Feita karla“ í Þjóðleik- húskjallaranum í kvöld,“ segir Jakob að lokum og hlær við. Kjallarinn verður opnaður í kvöld kl. 21.00 og verður ýmislegt til upp- hitunar. Til dæmis mun gríneykið Radíusbræður rekja sögu þessarar sérstæðu hljómsveitar. Piltum til að- stoðar í kvöld verða þeir Magnús Einarsson gítarleikari og Eysteinn Eysteinsson slagverksleikari. Kátir piltar halda endurútgáfutónleika arnart@mbl.is Hinir ómótstæði- legu snúa aftur MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 73 Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal. Vit 338 „Splunkunýtt framhald af ævintýri Péturs Pan!“ Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16. Vit 366. Sýnd kl. 2 og 6. Vit 349. Frábær grín/spennumynd með þeim Eddie Murphy, Robert De Niro og Rene Russo í aðalhlutverki. Hérna mætast myndirnar „Lethal Weapon“ og „Rush Hour“ á ógleymanlegan hátt. Ekki missa af þessari! DV ANNAR PIRRAÐUR. HINN ATHYGLISSJÚKUR. SAMAN EIGA ÞEIR AÐ BJARGA ÍMYND LÖGREGLUNNAR  kvikmyndir.is Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal. Vit nr. 358. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 357. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 367. Flottir bílar, stórar byssur og harður nagli í skotapilsi. HL. MBL Sýnd kl. 10. Vit . 351 ÓSKARSVERÐLAUNAMYNDIN FRUMSÝNING Jim Broadbent hlaut að auki Golden Globe verðlaunin fyrir besta aukahlutverk karla. Óskarsverðlaunahafinn Judi Dench ("Shakespeare in Love") og Kate Winslet ("Sense & Sensibility", "Titanic") voru báðar tilfnefndar til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sín í "Iris enda sýna þær stjörnuleik í myndinni. Hér er á ferðinni sannkölluð kvikmyndaperla sem enginn má missa af. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit nr. 360. Sýnd kl. 6 og 8. Vit 357. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12. Vit nr. 356 Eitt magnaðasta ævintýri samtímans eftir sögu H G Wells HK. DV 1/2Kvikmyndir.com 1/2HJ. MBL RadioX Ó.H.T. Rás2 Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Hverfisgötu  551 9000 Síðast barðist hann við mestu óvini sína. Nú munu þeir snúa bökum saman til að berjast við nýja ógn! Ótrúlegar tæknibrellur og brjálaður hasar!!! Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára Sýnd kl. 5.45 og 8. HEIMILDAR & STUTTMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 17 - 21.04 2002. SJÁ SÉR AUGLÝSINGU UM SÝNINGARTÍMA Í MORGUNBLAÐINU. www.regnboginn.is 2 Óskarsverðlaun Yfir 30.000 áhorfendur Missið ekki af fyndnustu mynd ársins  kvikmyndir.com  MBL DV Sýnd kl. 10.15. B.i 16. Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i 16.  SV. MBL Harmonikudagur í Ráðhúsinu Tvennir tónleikar. Almenni Músíkskólinn – Nemendatónleikar kl. 14 Harmonikumiðstöðin – Tónleikar kl. 16 Margar okkar skærustu stjörnur í dag svo sem: Mattías, Ása, Ingunn, Margret og Hekla. Gestahópar FHU, Suðurnesjum. Karl Adólfsson og félagar, Eldborgarkvartettinn, Stormurinn. Aðgangur ókeypis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.