Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 24
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 24 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÚTHAFSKARFAVERTÍÐIN á Reykjaneshrygg er nú um það bil að hefjast. Fjórir íslenskir tog- arar hafa þegar hafið karfaveiðar í úthafinu, Ven- us HF, Ýmir HF, Höfrungur III AK og Víðir EA, en fastlega má gera ráð fyrir að togurunum fjölgi þar ört á næstu vikum. Íslenskum skipum er heimilt að veiða samtals 45 þúsund tonn af úthafskarfa á þessu ári. Íslend- ingar veiddu samtals um 42.473 tonn af karfa í út- hafinu á síðasta ári. Nokkrir erlendir togarar; rússneskir, þýskir og spænskir, hafa verið á veið- um á Reykjaneshrygg síðustu daga og vikur, alveg við íslensku fiskveiðilögsöguna, en enn fer þó litlum sögum af aflabrögðum. Árið 2000 var í fyrsta sinn gerð tilraun til að skipta veiðum úr úthafskarfastofninum á Reykja- neshrygg milli þess sem kallað var efri og neðri stofn, en íslenskir fiskifræðingar telja að þar sé um tvo ólíka stofna að ræða. Erfiðlega gekk hins- vegar að stjórna veiðunum með þessum hætti og hafa eftirlit með þeim. Því voru veiðarnar svæð- isbundnar á síðasta ári til að aðskilja veiðar úr stofnunum. Veiðunum er þannig skipt milli tveggja svæða. Annað tekur einkum mið af fisk- veiðilögsögunni en karfi sem veiðist á því svæði telst til þess stofns sem áður var kallaður neðri stofninn og veiðist að jafnaði neðan 500 metra dýpis. Íslenskum skipum er samkvæmt reglugerð heimilt að veiða 35 þúsund tonn úr þeim stofni á þessu ári en þar var kvótinn 32 þúsund tonn á síð- asta ári. Íslendingar veiddu alls um 27.745 tonn á þessu svæði í fyrra. Markaðir í jafnvægi Á því svæði sem er fjær landi, utan ákveðinnar línu, er talið að aðallega veiðist karfi úr efri stofn- inum eða sem veiðist að jafnaði grynnra en 500 metrar, en íslenskum skipum verður heimilt að veiða 10 þúsund tonn af honum á þessu ári en kvótinn var 13 þúsund tonn í fyrra. Heildarafli ís- lensku skipanna var hinsvegar samtals um 14.728 tonn á þessu svæði í fyrra, eða 1.728 tonn umfram leyfilegar heimildir. Fiskistofa úthlutar hverju skipi aflamarki í úthafskarfa innan svæðanna tveggja, á grundvelli aflahlutdeildar. Markaðir fyrir úthafskarfa eru í góðu jafnvægi að mati Jóhannesar Más Jóhannessonar, fram- kvæmdastjóra innkaupa- og sölusviðs SÍF. Aðal- markaðurinn fyrir úthafskarfa er í Japan og segir Jóhannes að þar séu ekki miklar birgðir og eft- irspurn virðist ætla að verða eðlileg. Ekki megi reikna með mikilli eftirspurn í Kína vegna inn- flutningsbanns Evrópusambandsins á sjávaraf- urðum frá Kína en á móti ætti að vera gott útlit á flakamörkuðum í Evrópu. „Markaðir í Suður-Evrópu hafa verið að vaxa og Rússland heldur áfram að styrkjast. Verð á karf- anum er svipað og á síðasta ári, í erlendri mynt. Ég held að menn séu almennt nokkuð bjartsýnir fyrir vertíðina en línurnar skýrast þegar fyrstu skipin landa afla,“ segir Jóhannes. Byrja á karfa í úthafinu Fjórir togarar þegar komnir á Reykjaneshrygg Morgunblaðið/Árni Sæberg STUTTFRÉTTIR ● VERÐ á hlutabréfum í Arcadia Group lækkaði um 1,3% í kaup- höllinni í London í gær eftir að hafa hækkað um tæp 11% í fyrra- dag eftir birtingu milliuppgjörs fé- lagsins. Hæst fór verðið í 403,25 pens í gær en lokaverð var 390 pens, sem þýðir að markaðsvirði 20,1% eignarhlutar Baugs er nú um 20,8 milljarðar króna. Baugur keypti hlutinn á um 10,3 milljarða króna og væri hluturinn seldur á núverandi verði næmi vergur hagnaður um 10,5 millj- örðum, þ.e. verðið hefur ríflega tvöfaldast. Þá er reyndar ótalinn kostnaður Baugs af lántöku vegna kaupanna. Verð hlutabréfa í Arcadia hefur hækkað um ríflega 44% frá ára- mótum og nær 52% frá byrjun febrúar þegar yfirtökuviðræðum fé- lagsins við Baug var slitið. Arcadia hefur hækkað mikið ● BANDARÍSKA álfyrirtækið Alcoa hefur tilkynnt hagræðinguí tveimur álverum fyrirtækisins í Bandaríkj- unum. Alcoa er eitt af þeim fyr- irtækjum sem nefnd hafa verið sem hugsanlegur samstarfsaðili í hugs- anlegum stóriðjuframkvæmdum hér á landi.Enduropnun framleiðslulínu í öðru þessara álvera Alcoa hefur ver- ið seinkað um óákveðinn tíma en framleiðsla hefst aftur í hinu álverinu á þessu ári. Við þessar aðgerðir eykst framleiðsla Alcoa lítillega en sparnaður næst einnig fram, að því er fram kemur í frétt á vef fyrirtæk- isins. „Þessar aðgerðir bera vott um virka eignastýringu hjá Alcoa á tím- um erfiðra skilyrða í efnahagslífinu,“ segir framkvæmdastjóri hjá Alcoa. Hagræðing hjá Alcoa TAP af rekstri Nýsköpunarsjóðs at- vinnulífsins var í fyrra 772 milljónir króna. Formaður stjórnar sjóðsins, Arnar Sigurmundsson, segir að af- koman sé lakari en áætlanir hafi gert ráð fyrir, en að miðað við stöð- una á innlendum og erlendum verð- bréfamörkuðum ætti þessi niður- staða ekki að koma á óvart. Þá bendir Arnar á að framlag á af- skriftareikning hafi verið hækkað, en það nam í fyrra 677 milljónum króna og er því drjúgur hluti af bók- færðu tapi ársins. Þetta tvennt, að- stæður á mörkuðum og hátt framlag á afskriftareikning, segir Arnar að séu helstu skýringarnar á afkomu sjóðsins. „Einnig ber að hafa í huga að fjár- festingar okkar eru ekki í skráðum félögum þannig að hlutabréfaeign okkar hækkar ekki þó að sum fyr- irtækin gangi vel,“ segir Arnar og bætir við að sjóðurinn veiti einnig bæði áhættulán og styrki. Þeir hafi í fyrra numið 78 milljónum króna og séu inni í afkomunni. Nýsköpunarsjóður hefur á fjög- urra ára starfstíma sínum fjárfest í liðlega 80 fyrirtækjum, aðallega inn- anlands en einnig utanlands vegna þátttöku í útrásarverkefnum ís- lenskra fyrirtækja. Samanlagt nema þessar fjárfestingar 3.445 milljónum króna, en á síðasta ári námu þær 1.167 milljónum króna. Eigið fé Nýsköpunarsjóðs var tæpir fimm milljarðar króna um síð- ustu áramót. Hjá sjóðnum starfa tíu manns, sem er óbreytt frá fyrra ári. Nýsköpunar- sjóður tapar 772 milljónum króna ● VERSLUNARRÁÐ sendi í gær frá sér eftirfarandi ályktun: „Stjórn Verslunarráðs Íslands ítrekar afstöðu ráðsins til mik- ilvægis áframhaldandi brotthvarfs íslenska ríkisins af vettvangi at- vinnulífsins og að stjórnvöld leyfi frjálsri samkeppni að blómstra með því að halda áfram að skapa góð almenn skilyrði til rekstrar hér á landi. Stjórn Verslunarráðs Íslands ítrekar hvatningu sína til íslenskra stjórnvalda um að haldið verði áfram á farsælli braut fráhvarfs frá sértækum aðgerðum til samkeppn- ishæfra almennra rekstrarskilyrða. Stjórn Verslunarráðs Íslands hvetur ríkisstjórn Íslands og Al- þingi Íslendinga til að standa vörð um samkeppnishæfni íslensks at- vinnulífs til að: 1. Íslensk fyrirtæki í alþjóða samkeppni sjái sér hag í því að vera áfram á Íslandi. 2. Íslendingum standi ávallt til boða úrval krefjandi starfa á Ís- landi sem séu samkeppnisfær við störf sem þeim bjóðast erlendis. 3. Erlend fyrirtæki í alþjóða- starfsemi laðist til Íslands með starfsemi sína sökum góðra rekstrarskilyrða hér á landi. Stjórn Verslunarráðs Íslands ítrekar mikilvægi þess að stjórn- völd marki stefnu um hverjir styrk- leikar íslensks atvinnusamfélags eigi að vera og hver sérstaða Ís- lands í samkeppni þjóðanna eigi helst að vera. Með því auðvelda íslensk stjórnvöld fyrirtækjum sem starfa á Íslandi að greina styrk- leika sína í alþjóðlegri samkeppni og auka þannig líkurnar á almenn- um og langvarandi stuðningi at- vinnulífs á Íslandi við áframhald- andi hagvöxt og samkeppnishæf lífsskilyrði. Með þessu vinna stjórnvöld og atvinnulíf á Íslandi saman að því að halda Íslandi ávallt meðal fremstu þjóða í heim- inum hvað lífsgæði varðar. Stjórn Verslunarráðs Íslands hafnar hugmynd ríkisstjórnar Ís- lands um að veita einstöku fyr- irtæki ríkisábyrgð á lán, með fyr- irvara um samþykki Alþingis, án undangenginnar kynningar á for- sendum þess að veiting slíkrar ábyrgðar sé nauðsynleg eða hvern- ig veiting ábyrgðarinnar fellur að stefnumörkun ríkisstjórnarinnar fyr- ir almennan stuðning hennar við atvinnulífið.“ Verslunarráð ályktar gegn ríkisábyrgð ● HEILDARKRÖFUR í þrotabú markaðsstofunnar Markhússins námu samtals um 177 milljónum króna. Skiptastjóri er enn að vinna að athugun ýmissa mála og samn- inga sem gerðir hafa verið. Markaðsstofan Markhúsið var úrskurðuð gjaldþrota í október sl. Eingöngu var tekin afstaða til for- gangskrafna og veðkrafna í þrotabúið. Forgangskröfur voru upphaflega lýstar samtals 60 millj- ónir en samþykktar forgangskröfur nema ríflega 51 milljón króna. Þar af er ábyrgð Ábyrgðarsjóðs launa. Heildarkrafa Tollstjóraembættisins í þrotabúið nam samtals 63 millj- ónum króna, m.a. vegna vörslu- skatta. Veðkröfur voru samþykktar rúm- lega 24 milljónir króna og þær al- mennu kröfur sem lýst var í þrotabúið námu samtals tæplega 102 milljónum króna. Ekki var tek- in afstaða til almennra krafna við gjaldþrotaskiptin. Eignir félagsins voru ekki miklar að sögn skiptastjóra, Ásgeirs Magnússonar hrl. Innbú og lausafé var selt fljótlega eftir upp- kvaðningu gjaldþrotaúrskurðar. Alls bárust 114 kröfur í þrotabúið og segir Ásgeir að hlutfall og upphæð forgangskrafna sé óvenju hátt. Kröfur í Mark- húsið námu 177 milljónum króna ● EVRÓPUSIGLINGAR Atlants- skipa hófust í gær. Estime, leigu- skip Atlantsskipa, hélt úr höfn í Rotterdam. Áætluð koma fyrsta skipsins til Íslands er 23. apríl nk. Með Evrópusiglingum verður Kópa- vogur alþjóðahöfn en Atlantsskip munu sigla á milli Rotterdam og Kópavogs á tíu daga fresti. Estime ber 138 gáma. . Um borð í Estime í gærmorgun var ým- is vara fyrir innflytjendur, bæði heilir gámar og stykkjavara, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Atlantsskipum. Nú um helgina mun skrifstofa og vöruhús Atlantsskipa flytjast að Vesturvör í Kópavogi í 1.000 fer- metra húsnæði við hafnarbakkann. Þar verður öll starfsemi í tengslum við Evrópusiglingarnar, m.a. tíu þúsund fermetra gámavöllur. Am- eríkuskip félagsins munu áfram koma inn í Njarðvík eins og áður. Atlantsskip sigla til Evrópu HÓPUR fjárfesta hefur keypt allan hlut Frjálsrar fjölmiðlunar (FF) í Ísafoldarprentsmiðju, 96,2%. Fram- kvæmdastjóri prentsmiðjunnar, Ólafur H. Magnússon, er í forsvari fyrir kaupendahópinn sem saman- stendur af utanaðkomandi fjárfest- um og hluta starfsmanna, en hópur- inn er ekki að fullu samansettur að sögn Ólafs. Í samtali við Morgunblaðið segir Ólafur að sóknarfæri hafi skapast og það hafi verið nýtt. Kaupverðið er ekki gefið upp. Eigendur FF eru Sveinn R. Eyjólfsson og Eyjólfur Sveinsson auk annarra. Ísafoldarprentsmiðja prentar Fréttablaðið Fréttablaðið ehf. gefur út Frétta- blaðið og hefur það m.a. verið prent- að í Ísafoldarprentsmiðju. Samning- ur FF og Ísafoldarprentsmiðju um prentun Fréttablaðsins gildir fram í nóvember nk. að sögn Ólafs en hann segir jafnframt að til greina komi að selja dagblaðaprentvél Ísafoldar- prentsmiðju þegar fram líða stundir. Um það hafi hins vegar ekki verið tekið ákvörðun, enda viðskiptin bor- ið tiltölulega brátt að og enn eigi eft- ir að setja saman fjárfestahópinn að fullu. Viðræður við hugsanlega fjárfesta standa yfir Ólafur hefur verið framkvæmda- stjóri Ísafoldarprentsmiðju í hálft ár og átti sjálfur frumkvæði að við- skiptunum, að hans sögn. Hann segir að nú standi yfir viðræður við hugs- anlega fjárfesta og næsta vika verði einnig notuð til þeirra. Hvað varðar aðkomu starfsmanna Ísafoldar- prentsmiðju segir Ólafur að hug- myndir séu uppi um að starfsmenn fái kost á að kaupa ákveðið hlutfall hlutafjár. Einnig sé nú unnið að framtíðarskipulagi prentsmiðjunn- ar. Í Ísafoldarprentsmiðju er nú prentað allt frá nafnspjöldum til dagblaða og segir Ólafur næg verk- efni fyrir hendi. Ísafoldarprent- smiðja er elsta starfandi prentsmiðja landsins, tæpra 125 ára gömul. Hún er nú til húsa við Suðurhraun í Garðabæ. Frjáls fjölmiðlun selur Ísafoldarprentsmiðju ● Sjávarútvegsráðherra hefur skipað dr. Sjöfn Sigurgísladóttur forstjóra Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins til næstu fimm ára frá 1. maí 2002 að telja. Sjöfn lauk B.Sc.- prófi í matvælafræði frá Há- skóla Íslands 1986, meistaranámi frá Technical University of Nova Scotia of Food Science and Technology og doktorsprófi frá Há- skólanum í Berg- en árið 2001. Sjöfn hefur starf- að hjá Holl- ustuvernd ríkisins sem for- stöðumaður mat- vælasviðs frá ágúst 2000. Hún hefur einnig stundað kennslu við Háskóla Ís- lands og Tækniskóla Íslands. Sjöfn er gift Stefáni Jökli Sveins- syni lyfjafræðingi og eiga þau tvö börn. Sjöfn tekur við starfinu af Kristjáni Ólafssyni, sem gegndi því í stuttan tíma, en hann tók við af Hjörleifi Einarssyni. Báðir gegndu þeir starfinu í forföllum Gríms Valdimarssonar, sem var í fimm ára leyfi hjá stofnuninn vegna starfa sinna hjá Landbúnaðar- og matvælastofnun Sameinuðu þjóð- anna, FAO. Hann hefur fyrir nokkru ákveðið að starfa áfram á þeim vettvangi og því var staðan laus. Sjöfn Sigurgísla- dóttir forstjóri Rf ● AcoTæknival hefur fengið vottun sem „Microsoft Gold Partner for Enterprise Systems“. Fyrirtæki sem hljóta þessa viðurkenningu hafa sýnt fram á að þau búa yfir þekkingu við skipulagningu, hönnun og uppsetn- ingu lausna frá Microsoft fyrir stórfyr- irtæki. Vottunin er veitt samstarfsfyr- irtækjum Microsoft sem hafa sérhæft sig í flóknum lausnum í Windows 2000, XP Professional, Windows 2000 netþjónum og/eða Exchange 2000. AcoTæknival fær vottun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.