Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 22
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Anna S. Árnadóttir, einn af talsmönnum væntanlegra hollvarða Fjölbrautaskóla Suðurlands.
SUMARDAGINN fyrsta, 25. apríl
næstkomandi, verður haldinn stofn-
fundur Hollvarðasamtaka Fjöl-
brautaskóla Suðurlands. Hug-
myndin er að leiða saman í ein
samtök allt áhugafólk um velferð
og góða vegferð Fjölbrautaskólans
í starfi á Suðurlandi. Undirbúnings-
hópur að stofnuninni hefur sent út
bréf til fyrirtækja og stofnana á
svæði skólans og til allra sem út-
skrifast hafa frá skólanum.
„Þetta eru samtök sem eru hugs-
uð sem samtök velvildarmanna
skólans líkt og önnur hollvina-
samtök ýmissa stofnana og skóla.
Hugmyndin er að samtökin styðji
við starf skólans á ýmsan hátt. Á
stofnfundinum verður lögð fram
markmiðaskrá samtakanna. Eitt
þeirra er að halda tengslum við
nemendur og árganga eftir að þeir
ljúka námi og við viljum hvetja alla
sem áhuga hafa til að koma á þenn-
an stofnfund,“ sagði Anna S. Árna-
dóttir sem sæti á í undirbúnings-
nefndinni. Auk Önnu eiga þar sæti
Hjörtur Þórarinsson, Sigurður Sig-
ursveinsson, Ásmundur Sverrir
Pálsson, Sigurður Eyþórsson og
Gunnar Þorsteinsson.
Nemendur skólans eru á þessari
vorönn um 750 og hópur nemenda,
sem útskrifast hafa frá Fjölbrauta-
skóla Suðurlands frá 1981, er tæp-
lega 3.000 talsins. „Við viljum eiga
að holla vini og það mun verða mik-
ilvægur stuðningur við starf skól-
ans að þessi samtök verða til. Við
höfum líka fundið fyrir mikilli vel-
vild í garð skólans í gegnum tíðina
og þetta er þá farvegur fyrir hana
og ef á móti blæs í starfinu er líka
gott að eiga góða að, sagði Sig-
urður Sigursveinsson, skólameist-
ari Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Hollvarðasamtök Fjölbrautaskóla Suðurlands
Verða farvegur fyrir velvild
og stuðning við skólann
Selfoss
VORTÓNLEIKAR kóranna á Sel-
fossi eru ákveðinn vorboði og upp-
skerutími en þá má segja að kór-
arnir sýni árangur vetrarstarfsins
og æfinganna. Núna ríður Karlakór
Selfoss á vaðið eins og undanfarin
ár.
Starfsemi Karlakórsins stendur
með miklum blóma, kórfélagar eru
um 50 talsins, söngstjóri er Loftur
Erlingsson og syngur hann einnig
einsöng með kórnum. Píanóleikari
er Helena Káradóttir.
Vetrarstarfi kórsins lýkur að
venju með tónleikaröð. Fyrstu tón-
leikarnir verða á sumardaginn
fyrsta, 25. apríl, í Selfosskirkju kl.
20.30, þar verða einnig tónleikar 1.
maí kl. 20.30. Eins og undanfarin ár
verður kórinn með tónleika í Fé-
lagsheimilinu á Flúðum og hefjast
þeir kl. 21.00, að þeim loknum
stendur Kvennaklúbbur Karlakórs-
ins fyrir dansleik.
Efnisskráin er mjög fjölbreytt,
íslensk sönglög og dægurlög. Tón-
listarmenn frá Selfossi koma fram
með kórnum á öllum tónleikunum,
þeir eru Smári Kristjánsson, Ólafur
Bachmann og Sigvaldi Bjarnason.
Karlakór Selfoss
með vortónleikaröð
Selfoss
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Söngfélagar ásamt Kristínu kórstjóra við nýja píanóið.
ÚR ÞORLÁKSSTOFU, nýju hús-
næði félags eldri borgara í Hvera-
gerði, berast fagrir tónar. Á mánu-
dögum hittist hópur fólks og syngur
undir styrkri stjórn Kristínar Sig-
fúsdóttur. Þegar fréttaritara bar að
garði var henni boðið að taka þátt í
söngnum. Umræður urðu innan
hópsins hvar helst vantaði raddir og
voru karlarnir á því að helst vantaði
fleiri raddir í bassann.
Það vakti athygli að hópurinn sem
mættur var til æfinga þennan dag,
söng í fjórum röddum, alt, sópran
bassa og tenór, greinilega mikið
söngfólk á ferðinni. Meðal laga sem
æfð hafa verið eru: Þú fagra blómið
blóma, Klementínudans, Rósin,
Játning og Svíf þú blær.
Æfingar kórsins hófust í byrjun
febrúar s.l. og er áhugi félaga mikill.
Í tilefni af stofnun kórsins keypti fé-
lag eldri borgara píanó, svo að æfing-
ar gætu farið fram á staðnum. Auður
Guðbrandsdóttir formaður félags
eldri borgara sagði að með hjálp
góðra manna hefðu píanókaupin
gengið vel fyrir sig.
Aðeins örlaði á feimni söngfólksins
þegar fréttaritari fór þess á leit að fá
að mynda hópinn við nýja hljóðfærið.
Þetta er nú ekki alvöru kór, sögðu
nokkrar konur sem starfað hafa í
kirkjukórnum í áraraðir. Ein frúin í
hópnum sagði að það væri varla
hægt að mynda hópinn því að þær
hefðu ekki haft með sér varalitinn.
Kórstjórinn sagði að þetta starf
væri bæði gefandi og skemmtilegt,
því að í hópnum ríkti bæði gleði og
mikill áhugi. Söngfólkið var sammála
um að hvetja alla til að koma og vera
með, því að það væri nóg pláss fyrir
fleira söngelskt fólk. Og að lokum
sagði Auður formaður: „Hingað eru
allir velkomnir.“
Söngur í
Þorláksstofu
Hveragerði
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
22 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VEISLU- og fundarsalir Ráðhúss
Ölfuss hafa verið teknir í notkun
en það var um að ræða lokaáfanga
ráðhússins. Sesselja Jónsdóttir,
bæjarstjóri setti og stjórnaði sam-
komunni sem var mjög fjölmenn
og hátíðleg. Hjörleifur Brynjólfs-
son, oddviti og formaður bygging-
arnefndar, rakti aðdraganda og
sögu byggingarinnar.
Hjörleifur sagði meðal annars í
ræðu sinni: „Við opnun þessara
nýju samkomusala og annarrar
aðstöðu þeim tengdrar lýkur
fjórða og jafnframt síðasta áfanga
byggingar Ráðhús Ölfuss. Í nóv-
ember á síðasta ári var þessi
áfangi boðinn út, samið var við
Rafgull ehf. í Þorlákshöfn sem að-
alverktaka. Aðstaðan sem tekin er
í notkun í dag er um 750 fermetr-
ar. Salirnir taka allt að 350 manns
í sæti og miðast kaup á hús-
gögnum við það. Mögulegt er að
skipta sölunum í tvo misstóra sali
eftir þörfum. Eldhús sem fylgir
sölunum er vel tækjum búið og all-
ur borðbúnaður er til staðar.“
Skóflustunga
Það var 30. maí 1998 að Bjarni
Jónsson, þáverandi oddviti, tók
fyrstu skóflustunguna að stjórn-
sýslu- og menningarhúsi eins og
það var kallað á byggingartím-
anum. Hönnuðir byggingarinnar
eru Arkitektar Skógarhlíð 18.
Endanleg teikning gerði ráð fyrir
tveggja hæða húsi um 2.400 fer-
metrum að stærð. Verktaki 1.
áfanga var Sæmundur Gíslason,
byggingarverktaki í Þorlákshöfn.
Heildarkostnaður var í upphafi
áætlaður 270 milljónir króna.
Lokakostnaður á verðlagi hvers
árs reyndist vera sá sami og lagt
var upp með en á verðlagi dagsins
í dag lætur nærri að það séu 377
milljónir króna og er þá meðtalin
frágangur lóðar og allur búnaður.
Annar áfangi var boðinn út í febr-
úar 1999 og var samið við Sæ-
mund eins og í 1. áfanga enda var
hann með lægsta tilboðið.
Áfanganum lauk í apríl 2000.
Bæjarskrifstofurnar og Lands-
bankinn fluttu svo starfsemi sína í
nýja húsnæðið í byrjun maí, en það
var gengið frá leigusamningi við
Landsbankann í Þorlákshöfn til 5
ára. Þriðji áfangi var boðinn út í
ágúst 2000 og voru verklok í mars
2001, verktaki var Rafgull ehf. í
Þorlákshöfn. Í þessum áfanga
fékk félagsmiðstöð aðstöðu svo og
dómsmálaráðuneyti fyrir lögreglu
og tollvörð, einnig er aðstaða fyrir
Egilsbúð sem er bóka- og minja-
safn. Sú aðstaða verður opnuð
formlega 5. maí næstkomandi.
Versalir urðu fyrir valinu
Bæjarstjórn auglýsti eftir hug-
myndum að nöfnum á salina.
Fjöldi hugmynda barst og minntu
þau flest á örnefni í Þorlákshöfn
og nágrenni. Sesselja Jónsdóttir
bæjarstjóri sagði þegar hún sagði
frá hvaða nafn varð fyrir valinu að
margar tillögur hefðu verið góðar.
Tillaga Svans Kristjánssonar,
fyrrverandi sveitarstjóra, „Versal-
ir“ þótti bæði frumleg og fara vel í
munni, og varð hún fyrir valinu.
Það er auðvelt að láta hugann
reika hvort heldur er til Versala í
París eða til gamalla verstöðva,
nafnið kemur ímyndunaraflinu af
stað.
Sigþrúður Harðardóttir, for-
maður söngfélagsins, færði húsinu
peningagjöf til hljóðfærakaupa.
Peningarnir eru innkoma af
geisladiski sem Lúðrasveit Þor-
lákshafnar, Söngfélag Þorláks-
hafnar, Lúðrasveit og Kór Grunn-
skólans í Þorlákshöfn, gáfu út.
Sigþrúður sagði við þetta tæki-
færi að til að heimili teldist menn-
ingarheimili þyrfti þar að fara
fram gáfuleg umræða, vera til
bækur og hljóðfæri, og að því
vildu þeir aðilar, sem að þessari
gjöf stæðu, stuðla. Hjörleifur tók
við og þakkaði gjöfina og sagði að
búið væri að panta hljóðfærið og
til stæði að safna fyrir því hjá ein-
staklingum og fyrirtækjum.
Veislu- og fundarsalirnir „Versalir“ teknir í notkun
Ráðhús
Ölfuss
fullgert
Morgunblaðið/Jón H. Sigmundsson
Nýir veislu- og ráðstefnusalir teknir í notkun í Ráðhúsi Ölfuss.
Þorlákshöfn
FÉLAG eldri borgara á Selfossi
hefur boðið öllum frambjóðendum
við komandi sveitarstjórnarkosn-
ingar í Árborg til fundar klukkan
16,30 á mánudag í fundarsal fé-
lagsins í Grænumörk á Selfossi.
Að sögn forsvarsmanna félags-
ins er boðað til fundarins til að
vekja athygli á málefnum eldri
borgara í Árborg, hvað snertir af-
þreyingu og frístundastarf sem
og aðrar aðstæður. Félagið held-
ur úti fjölbreyttu félagsstarfi en
miðstöð þess starfs er í Græn-
umörk þar sem eru íbúðir fyrir
aldraða og aðstaða til fé-
lagsstarfs. Það eru allir velkomnir
til fundarins.
Aldraðir funda með fram-
bjóðendum í Árborg
Selfoss