Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 37
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 37
F
ORDÓMAR hafa skaðleg
áhrif á heilsu og líðan,
jafnt þeirra sem þeir
beinast gegn og hinna
sem bera þá. Það er því
þjóðarhagur að okkur takist að vekja
sem flesta til vitundar um eðli þeirra
og orsakir, hvernig þeir birtast og
hvaða afleiðingar þeir hafa.
Með átaki þessu viljum við hvetja
til virðingar fyrir manneskjunni, hver
sem hún er. Karl eða kona, ung eða
gömul, fötluð eða ófötluð, án tillits til
uppruna, kynhneigðar eða trúar-
bragða.
Einkunnarorð okkar eru: Að virða allt fólk því að allar manneskjur koma
okkur við. Við sýnum fólki virðingu með því að gefa hverjum og einum tæki-
færi til að kynna sig sem einstakling og taka honum eða henni með opnum
huga án þess að dæma eða skipa þeim í fyrirfram skilgreindan hóp. Enginn
er aðeins talsmaður ákveðins hóps.
Þegar við dæmum einstaklinga fyrirfram á grundvelli alhæfinga
og staðalmynda er um fordóma að ræða.
Fordómar eru hættulegir og særandi. Hættan felst í því þegar þeir fara að
hafa áhrif á hegðun okkar og leiða til mismununar. Einstaklingur, sem er
dæmdur út frá fyrirfram gefnum alhæfingum um tiltekinn hóp, er um leið
sviptur möguleikanum á að sýna hver hann eða hún er í raun og veru, sjálfs-
myndin brotnar og einangrun og einmanaleiki fylgja í kjölfarið. Fordómar
eru því ekki skaðlausar skoðanir, heldur hafa þeir bein áhrif á líf og líðan
þeirra sem fyrir þeim verða. Fordómar eru þrálátir og því getur verið erfitt
að berjast gegn þeim. En það er von, því fordómar eru hvorki meðfæddir né
eðlilegt atferli mannsins. Þeir eru lærðir, en það má líka læra að losna við þá.
Mikilvægt er að við tökum þá afstöðu að vera upplýst um fordóma, horfast í
augu við þá og ræða eðli þeirra. Með því öðlumst við víðsýni og umburð-
arlyndi og skaðleg áhrif fordóma á líf og líðan dvína.
Látum vorvindinn feykja burt fordómum og minna á mildan gróandann
sem lofar lífið með allri sinni fjölbreytni.
Vitundarvakning Landlæknisembættisins og Geðræktar um fordóma
í samstarfi við: Alþjóðahúsið, Félag eldri borgara, Félagsþjónustuna í Reykjavík, Há-
skóla Íslands, Heilsueflingu í skólum, Hitt húsið, Rauða kross Íslands, Samtökin ’78,
Öryrkjabandalagið og Miðborgarstarf KFUM og K og þjóðkirkjunnar.
Heilsan í brennidepli
Sleppum
fordómum!
Sýnum fólki virðingu
með því að gefa hverj-
um og einum tækifæri
til að kynna sig
TÁNINGAR eru komnir með hina
fullkomnu afsökun fyrir því að sofa
frameftir um helgar. Læknar við
Northwestern-háskóla í Illinois í
Bandaríkjunum hafa komist að því
að táningar þurfa að sofa lengur um
helgar til að vinna upp svefn, sem
þeir tapa í vikunni. Niðurstöður
þeirra benda einnig til þess að fái
unglingar ekki nægan svefn geti það
leitt til hegðunarvandamála og verri
frammistöðu í skóla en ella.
Niðurstöður rannsóknarinnar
voru kynntar á árlegum fundi
bandarískra taugalækna í Denver í
gær og sýndu að unglingar sofa að
meðaltali átta og hálfa klukkustund
virka daga og níu og hálfa um helg-
ar. Rannsóknin náði til svefnvenja
729 unglinga á aldrinum 12 til 17
ára, sem höfðu verið vistaðir á hæli
fyrir ungt fólk. Rannsóknin leiddi í
ljós að táningar höfðu frekar til-
hneigingu til þess en fullorðnir að
fara seint að sofa og vakna seint, en
þeir sváfu einnig lengur en aðrar
rannsóknir hafa bent til. Helming-
urinn kvartaði jafnframt undan því
að vera þreyttur að deginum og
þykir það styðja fyrri niðurstöður
um að unglingar geti þjáðst af því
að vera vansvefta.
Á ráðstefnunni komu fram þær
raddir að vissulega væri ástæða til
að staldra við þessar niðurstöður, en
frekari rannsókna væri þörf.
Táningar þurfa
mikinn svefn