Morgunblaðið - 20.04.2002, Page 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 19
BÆJARSTJÓRAR af öllu landinu
funda um helgina á Suðurnesjum. Í
gær voru þeir í Reykjanesbæ og
fylgdi Ellert Eiríksson bæjarstjóri
þeim í heimsókn til björg-
unarsveitar varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli. Ásdís Halla Braga-
dóttir úr Garðabæ skoðaði búnað
björgunarsveitar varnarliðsins af
miklum áhuga á meðan Javier Cas-
anova flugstjóri sagði hinum bæj-
arstjórunum frá starfsemi sveit-
arinnar.
Bæjarstjórarnir hittast reglu-
lega til að bera saman bækur sínar
og skiptast á upplýsingum. Að
þessu sinni koma þeir saman á Suð-
urnesjum; í Reykjanesbæ, Sand-
gerði og Grindavík. Funduðu þeir í
Reykjanesbæ eftir heimsóknina til
varnarliðins í gær og í dag verða
þeir í Sandgerði og Grindavík.
Björgunarsveit varnarliðsins
hefur starfað í rúm 30 ár og á þeim
tíma bjargað 300 mannslífum, þar
á meðal 171 Íslendingi. Hefur
sveitin farið í björgunarleiðangra
víða um landið og langt út á haf.
Morgunblaðið/RAX
Bæjarstjórar
heimsækja þyrlu-
björgunarsveit
Keflavíkurflugvöllur
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
fær hreinan meirihluta í bæjar-
stjórn Reykjanesbæjar í komandi
sveitarstjórnarkosningum, sam-
kvæmt skoðanakönnun sem Talna-
könnun hefur gert fyrir vefsvæðið
heimur.is. Margir eru enn óá-
kveðnir eða svöruðu ekki í könn-
uninni.
Skoðanakönnunin var gerð að
kvöldi 17. apríl sl. Sögðust 60,3%
þeirra sem afstöðu tóku kjósa
framboðslista Sjálfstæðisflokksins,
24,6% lista Samfylkingarinnar og
15,1% Framsóknarflokkinn. Síðast
fékk Sjálfstæðisflokkurinn tæp
45%, Samfylkingin tæp 37% og
Framsóknarflokkur rúm 18%.
Virðist Sjálfstæðisflokkurinn því
vinna fylgi af báðum hinum list-
unum, meira þó af Samfylking-
unni, og fá sjö bæjarfulltrúa í stað
fimm á móti þremur fulltrúum
Samfylkingar og einum framsókn-
armanni.
Árni Sigfússon, fyrrverandi
borgarstjóri í Reykjavík, leiðir
lista sjálfstæðismanna og er bæj-
arstjóraefni framboðsins.
Sá fyrirvari er hafður á birtingu
könnunar Talnakönnunar að marg-
ir þeirra sem spurðir voru kváðust
óákveðnir eða vildu ekki svara, eða
alls 49%. Könnunin byggir á 248
svörum.
Sjálfstæðis-
flokkur fengi
hreinan
meirihluta
Reykjanesbær
Skoðanakönnun
um fylgi fram-
boðslistanna REYNIR Sveinsson bæjarfulltrúi
skipar efsta sætið á lista sjálfstæð-
ismanna og óháðra í Sandgerðisbæ.
Einn fulltrúi
óháðra sem nú
standa að fram-
boðinu með sjálf-
stæðismönnum,
Magnús Magnús-
son, er í öðru
sæti.
Sjálfstæðis-
menn hafa tvo
fulltrúa í bæjar-
stjórn Sandgerð-
is og eru þeir í minnihluta. Það eru
Reynir Sveinsson og Eyþór Jóns-
son. Eyþór gefur ekki kost á sér í
framboð að þessu sinni. Listinn er
nú borinn fram af sjálfstæðismönn-
um og óháðum og skipa óháðir
frambjóðendur nokkur sæti, meðal
annars Magnús Magnússon annað
sætið, Ottó Þormar það fimmta og
Sigurjón Jónsson sem er í tólfta
sæti en hann er fyrrverandi bæj-
arfulltrúi Framsóknarflokks. Hólm-
fríður Skarphéðinsdóttir, varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi, er í þriðja
sæti listans.
Listinn er þannig skipaður: 1.
Reynir Sveinsson, bæjarfulltrúi og
forstöðumaður, 2. Magnús Magn-
ússon húsasmíðameistari, 3. Hólm-
fríður Skarphéðinsdóttir, varaþing-
maður og húsmóðir, 4. Fanney
Steinunn Sigurðardóttir stuðnings-
fulltrúi, 5. Ottó Þormar fram-
kvæmdastjóri, 6. Halldóra Aðal-
steinsdóttir húsmóðir, 7. Elín Björg
Gissurardóttir nemi, 8. Ingimar
Sumarliðason útgerðarmaður, 9.
Haraldur Jóhannesson fram-
kvæmdarstjóri, 10. Berglind Rich-
ardsdóttir dagmóðir, 11. Guðjón
Ólafsson útgerðarmaður, 12. Sig-
urjón Jónsson framkvæmdarstjóri,
13. Árni Sigurpálsson hafnarvörður
og 14. sætið skipar Hildur S. Thor-
arensen lyfjafræðingur og varabæj-
arfulltrúi.
Í fréttatilkynningu frá sjálfstæð-
ismönnum og óháðum kemur fram
að kosningaskrifstofa listans verður
opnuð á laugardaginn 20. apríl kl.15
að Strandgötu 14 (í húsnæði Jóns
Erlingssonar ehf.).
Óháðir á lista með
sjálfstæðismönnum
Sandgerði
Reynir
Sveinsson
EFTIRLITSNEFND með fjármál-
um sveitarfélaga telur ekki ástæðu
til að hafa fjármál Reykjanesbæjar
lengur til sérstakrar skoðunar. Hef-
ur nefndin tilkynnt bæjarstjórn
þetta.
Eftir skoðun á reikningum fyrir
árið 2000 taldi eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga að fjárhags-
staða Reykjanesbæjar, og ýmissa
annarra sveitarfélaga, væri fremur
alvarleg. Vakti nefndin sérstaka at-
hygli á miklum skuldum bæjarsjóðs
og neikvæðri peningalegri stöðu. Þá
var vakin athygli á því að fjárfesting-
arútgjöld hafi numið nær þrefaldri
framlegð ársins.
Að fengnum skýringum bæjar-
stjóra þar sem meðal annars var
greint frá þróun mála á árinu 2001,
fjárhagsáætlun 2002 og þriggja ára
áætlun sveitarfélagsins komst
nefndin að þeirri niðurstöðu, miðað
við fyrirliggjandi áform og áætlanir
sveitarstjórnar, að ekki væri ástæða
til að hafa fjármál Reykjanesbæjar
lengur til sérstakrar skoðunar. Hef-
ur bæjarstjórn verið tilkynnt það.
Nefndin vekur þó athygli á því í
bréfi sínu að framlegð sveitarfé-
lagsins 2001 hafi lækkað frá árinu á
undan, ef frá eru tekin áhrif af tilfall-
andi greiðslum frá Hitaveitu Suður-
nesja. Í fjárhagsáætlun fyrir árið
2002 og þriggja ára áætlun hafi
sveitarstjórn hins vegar sett sér
markmið um aukna framlegð og nið-
urgreiðslu skulda. Telur eftirlits-
nefndin nauðsynlegt að þau mark-
mið náist.
Fjármálin ekki
lengur til skoðunar
Reykjanesbær
LAXNESSHÁTÍÐ verður haldin í
Kirkjulundi í Keflavík næstkom-
andi mánudagskvöld klukkan 20 í
tilefni af því að Nóbelskáldið, Hall-
dór Laxness, hefði orðið 100 ára
23. þessa mánaðar og einnig í til-
efni af „Degi bókarinnar“ sem
haldin er árlega á afmælisdegi
skáldsins.
Gunnar Kristjánsson prófastur
flytur erindi um persónur í verkum
Laxness, Gunnar Eyjólfsson leikari
segir frá kynnum sínum af skáldinu
og les úr verkum hans, Bylgja Dís
Gunnarsdóttir syngur nokkur ljóð
Laxness og Sandra D. Friðriks-
dóttir, verðlaunahafi úr Stóru upp-
lestrarkeppninni, les kafla úr verki
skáldsins. Einnig verður sýning á
listarverkum Erlings Jónssonar
sem tengjast verkum Laxness.
Boðið verður upp á kaffi og
hnallþórur. Allir eru velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.
Menningardagskráin er sam-
starfsverkefni Keflavíkurkirkju,
Bókasafns Reykjanesbæjar, Menn-
ingarfulltrúa Reykjanesbæjar og
Miðstöðvar símenntunar á Suð-
urnesjum.
Laxnesshátíð haldin
í Kirkjulundi
Keflavík
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfélags
Gerðahrepps samþykkti ályktun þar
sem lýst var yfir stuðningi við bygg-
ingu íbúða aldraðra í Garði og stað-
setningu þeirra í nágrenni hjúkrun-
arheimilisins Garðvangs.
Hreppsnefnd Gerðahrepps hefur
ákveðið að láta byggja íbúðir fyrir
aldraða í Garði og meirihluti hrepps-
nefndar vill láta byggja þær á lóð
hjúkrunarheimilisins Garðvangs,
samkvæmt tillögum að deiliskipulagi
sem fyrir liggja. Fulltrúar H-lista
sjálfstæðismanna og annarra frjáls-
lyndra í hreppsnefnd hafa lýst því yf-
ir að þeir geti ekki samþykkt deili-
skipulagstillögurnar vegna andstöðu
Sandgerðisbæjar og Vatnsleysu-
strandarhrepps við að skerða eign-
arlóð Garðvangs.
Margir fulltrúar F-listans, sem
hefur meirihluta í hreppsnefnd, og
H-listans, sem er í minnihluta, eru
saman í Sjálfstæðisfélagi Gerða-
hrepps. Á aðalfundi félagsins sem
haldinn var í fyrrakvöld var sam-
hljóða lýst yfir stuðningi við fyrir-
hugaða staðsetningu íbúðanna og
skorað á alla fulltrúa í hreppsnefnd
að vinna að því að afla stuðnings hjá
öðrum eignaraðilum Garðvangs til
að hægt verði að byggja samkvæmt
samþykktri staðsetningu af hrepps-
nefnd Gerðahrepps.
Sjálfstæðisfélag styð-
ur staðsetningu íbúða
Garður
ATLI Már Gylfason hefur verið
kjörinn næsti formaður Nem-
endafélags Fjölbrautaskóla
Suðurnesja.
Enginn frambjóðandi hlaut
tilskilinn fjölda atkvæða í kjöri
varaformanns og enginn bauð
sig fram til embættis gjaldkera.
Sif Aradóttir var kjörin ritari
stjórnar Nemendafélagsins,
Jón Marinó Sigurðsson for-
maður skemmtinefndar og
Skúli Steinn Vilbergsson
íþróttastjóri.
Kosinn for-
maður nem-
endafélags
Keflavík