Morgunblaðið - 20.04.2002, Síða 29
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 29
ÚR VESTURHEIMI
STRENGJAKVARTETT eftir
Jón Leifs var fluttur í Calgary
um helgina og er þetta senni-
lega í fyrsta sinn sem strengja-
kvartett eftir hann er fluttur í
Kanada.
Á tónleikum strengjakvar-
tettsins „The Beau Quartet“,
sem haldnir voru í Norræna
húsinu í Calgary, The Scand-
inavian Centre, sunnudaginn 14.
apríl, var fluttur strengjakvar-
tett númer 2 eftir Jón Leifs,
Vita et Mors. Að sögn Hall-
gríms Benediktssonar, ræðis-
manns Íslands í Calgary, voru
tónleikarnir vel sóttir og tónlist
Jóns Leifs, sem var fáum við-
stöddum kunnug, var mjög vel
tekið. „Þetta er sennilega í
fyrsta sinn, sem strengjakvart-
ett eftir Jón Leifs er fluttur í
Kanada,“ segir Hallgrímur
Benediktsson. „Beau-kvart-
ettinn tók verkið nokkuð mýkri
tökum en Yggdrasill-kvartettinn
frá Svíþjóð gerir á sinni upp-
töku, en kom þó vel til skila
angist og sorg þeirri, sem í
verkinu liggja.“
Beau kvartettinn er skipaður
hljóðfæraleikurum úr Fílharm-
oníusveit Calgary, Calgary Phil-
harmonic Orchestra, og hefur
hann getið sér gott orð fyrir
tónleika og upptökur, m.a. á
kvartettum eftir Carl Nielsen
og Jan Sibelius, að sögn Hall-
gríms. Á efnisskrá þessara tón-
leika voru einnig strengjakvart-
ett Jan Sibeliusar, Voces
Intimae, og þáttur úr strengja-
kvartett Edvards Griegs op. 27,
ásamt útsetningum fyrir
strengjakvartett á Dans Anítru
og Brúðarmarsinum að Troll-
haugen eftir Grieg.
Tónleikarnir voru haldnir að
frumkvæði norrænu klúbbanna í
Calgary.
Nýmæli í menningarlífi Kanada
Strengjakvartett
eftir Jón Leifs
fluttur í Calgary
ÚTGÁFUSTYRKUR íslensku rík-
isstjórnarinnar til vestur-íslenska
vikublaðsins Lögbergs Heims-
kringlu í Winnipeg í Kanada hef-
ur verið hækkaður úr 8 þúsund
kanadískum dollurum í 15 þúsund
kanadíska dollara í ár og er því
að jafnvirði um 950 þúsund krón-
ur.
Ríkisstjórnin hefur lagt áherslu
á að efla og treysta samskiptin
við Vestur-Íslendinga á fjölmörg-
um sviðum og hefur auknu fjár-
magni verið varið til ýmissa verk-
efna. Í því sambandi má nefna
ríflegt framlag til íslenska bóka-
safnsins við Manitoba háskóla í
Winnipeg, mikinn stuðning við ís-
lenskudeild skólans og menning-
armiðstöðina í Gimli, The Water-
front Centre, þar sem meðal
annars er safn íslenskrar menn-
ingararfleifðar í Vesturheimi.
Um árabil hefur vestur-íslenska
vikublaðinu Lögbergi Heims-
kringlu verið veittur nokkur út-
gáfustyrkur, en á þessu ári var
styrkurinn hækkaður um nærri
helming, eða úr 8 þúsund kan-
adískum dollurum í 15 þúsund
kanadíska dollara.
Eiður Guðnason, sendiherra,
sem gegnir starfi aðalræðismanns
Íslands í Winnipeg, afhenti styrk-
inn í liðinni viku. Julianna Bjorn-
son, kennari og formaður útgáfu-
stjórnar LH, veitti styrknum
viðtöku í móttöku á heimili að-
alræðismannshjónanna. Við-
staddir voru Lillian Vilborg, sem
er ritstjóri blaðsins, aðrir starfs-
menn og útgáfustjórnin.
Juliana Bjornson, formaður útgáfustjórnar Lögbergs Heimskringlu,
veitti styrknum viðtöku, en Eiður Guðnason, aðalræðismaður Íslands í
Winnipeg, afhenti henni ávísunina fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands.
Útgáfustyrkurinn
til LH hækkaður
HERDÍS Storgaard, framkvæmda-
stjóri Árvekni, hvetur börn og for-
eldra til að huga vel að öryggisbúnaði
nú þegar hjólatíminn er hafinn.
„Notkun á hjálmum hefur því miður
dregist saman undanfarin tvö ár, en
hún var mjög útbreidd um tíma, eink-
um meðal yngri barna,“ segir hún.
Þegar hjálmur er keyptur á að
gæta þess að stærðin passi við ummál
höfuðs sem mælt er yfir breiðasta
hluta þess frá enninu.
„Fólk á ekki bara að kaupa ein-
hvern hjálm. Hjálmar eru mismun-
andi að gerð og frá mismunandi lönd-
um og höfuðlag fólks er ólíkt, því er
mikilvægt að máta vel áður en keypt
er. Best er að starfsfólk verslana sem
selja hjálma leiðbeini viðskiptavinum
því verið er að selja öryggisbúnað og
á ábyrgð seljenda að tryggja að ör-
yggissjónarmið séu ekki fyrir borð
borin vegna vanþekkingar.“
Stillingar auðveldari en áður
Herdís segir hjálma hafa tekið
miklum stakkaskiptum hvað stilling-
ar varðar og að fyrir vikið sé miklu
auðveldara að fá þá til þess að sitja
rétt á höfðinu en áður. „Þegar hjálm-
urinn er stilltur fyrir höfuð barnsins
verður að gæta að því að hann sitji
rétt strax í upphafi og setja hann
beint ofan á höfuðið án þess að átt sé
við stillingarnar. Hjálmurinn er alveg
beinn ef hann nær niður að augabrún-
um þegar horft er framan í barnið og
einnig þarf að gæta þess að aftara
bandið, sem er við hnakkann sé á rétt-
um stað. Til beggja hliða eru bönd
sem mynda þríhyrning, eða v-form
þegar þau sitja rétt og er þá miðað við
að eyrað falli inn í miðju þríhyrnings-
ins. Spennan þar sem böndin mætast
á síðan að vera í beinni línu við kjálka-
liðinn. Þetta þarf að stilla báðum meg-
in. Að því búnu er hökubandið stillt og
þar þarf að passa að það sé þægilega
hert og spennan sé aðeins til hliðar við
hökuna ef ekki er svampur á milli.
Bandið á að vera þétt við hökuna, en
þó ekki of strekkt, og miðað er við að
hægt sé að koma 1–2 puttum á milli.
Á vart að haggast
Ef barninu finnst hjálmurinn
óþægilegur mætast böndin við eyrun
ekki á réttum stað, til að mynda undir
eyrnasneplunum, sem getur gefið
kyrkingartilfinningu. Ef svo er þarf
að byrja alveg upp á nýtt,“ segir hún.
Þegar búið er að stilla hjálminn
rétt er best að taka utan um hann
beggja vegna og sjá hvort hægt er að
hnika honum til og segir Herdís að
hann eigi vart að haggast. „Stundum
sér maður börn með hjálm sem búið
er að ýta upp á ennið. Sum eru líka
með húfu undir hjálminum og ég vil
árétta að hjálmur er alveg gagnslaus
ef hann er notaður svona,“ segir hún.
Herdís segir að framleiðendur ábyrg-
ist hjálma yfirleitt í 5 ár en ástæða sé
til þess að skipta fyrr ef barn hefur oft
dottið með hjálminn, þótt hann virðist
ekki hafa orðið fyrir verulegu hnjaski.
Hún leggur áherslu á að börn fleygi
ekki hjálmunum sínum í gólfið, sem
veiki þá, heldur hengi þá upp, og að
þau setji alls ekki límmiða á ytra
byrðið þar sem þeir geti minnkað eft-
irgjöf yfirborðsins.
„Hjálmur er mjög viðkvæmur bún-
aður og endingin er kannski ekki
nema 1–2 ár hjá yngstu börnunum.“
Hægt er að fá réttan búnað und-
ir hjálminn sem heldur hita á
höfðinu, í stað venjulegrar húfu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
▲RÉTT. Eyrað á að vera í miðju þríhyrnings-
ins og spennan við kjálkaliðinn. Einnig á að
vera hægt að setja 1–2 fingur undir bandið.
RANGT. Hjálmur sem hafður er
uppi á enni veitir ekki vörn gegn
áverkum og er því gagnslaus.
Fallhjálmar með spennu eru einungis fyrir
börn yngri en sex ára og henta vel á öruggum
svæðum. Ef barnið er á leikvelli og festir höf-
uðið, opnast spennan. Spenna á venjulegum
hjólahjálmi gerir það ekki, og skapar kyrk-
ingarhættu. Hjálm með grænni spennu má
hins vegar ekki nota þegar hjólað er í umferð.
Illa stilltur
hjálmur er
gagnslaus
AVEDA kynnir mánuð jarðar í apríl
á hverju ári og 2002 vill fyrirtækið
vekja athygli á gróðurhúsaáhrifum í
heiminum. Nú um helgina, fram til
20. apríl, styrkir Aveda á Íslandi
verkefni Skógræktarfélags Reykja-
víkur sem nefnist „grænn trefill um
höfuðborgina“ af þessu tilefni og
óskar jafnframt eftir framlagi frá
viðskiptavinum í sama tilgangi, að
því er segir í tilkynningu frá Aveda.
VIÐSKIPTAVINUM verslana Bón-
uss hefur fjölgað um 50% á und-
anförnum 12 mánuðum og kemur
hver Íslendingur í verslunina einu
sinni í mánuði, segir Guðmundur
Marteinsson, framkvæmdastjóri
Bónuss. 320.000–330.000 manns
versla í Bónusi í mánuði hverjum, að
hans sögn. Guðmundur kveðst
ánægður með aukið verðskyn al-
mennings undanfarin misseri og það
að val á matvöruverslunum snúist
orðið meira um budduna en áður.
„Okkar markmið er að selja vöru á
besta fáanlega verði og það virðist
vera að skila sér. Við gerum verðk-
annanir í öllum stórmörkuðum sex
daga vikunnar sem gerir 50–60.000
verð á viku að jafnaði. Bónus mun
gera allt til þess að bjóða lægsta
verðið á markaðinum, viðskiptavinir
borga okkur launin og verða sér sí-
fellt betur meðvitandi um þetta
markmið okkar. Við það ætlum við
að standa,“ segir hann.
Mikil umræða hefur átt sér stað
um rauða strikið og neysluvísitöluna
á liðnum mánuðum og segir Guð-
mundur engan vafa í sínum huga á
því „að Hagstofan þurfi að taka
meira tillit til hins breytta verslun-
armynsturs“, það er í hve miklum
mæli almenningur beinir viðskiptum
sínum til Bónuss. „Það hlýtur að
hafa áhrif á vísitöluútreikninga og
þar með afkomu heimilanna, enda
sýna kannanir að minna hlutfall ráð-
stöfunartekna fari í matarinnkaup
nú en áður,“ segir hann.
Framkvæmdastjóri Bónuss
kveðst ánægður með mánaðarlega
verðkönnun Samkeppnisstofnunar á
ávöxtum og grænmeti. „Hins vegar
vil ég minna á að stofnunin verði að
kynna sér forsendur markaðarins
áður en hún sendir frá sér frétta-
tilkynningar. Bónus hefur boðist til
þess að senda Samkeppnisstofnun
allt innkaupsverð svo hægt sé að
bera saman við þróun útsöluverðs.
Samkeppnisstofnun á ekki að þurfa
að geta sér til um ástæður verðlagn-
ingar á markaðinum, eins og gert
var í síðustu verðkönnun,“ segir
hann.
Innfluttir tómatar
undir kostnaðarverði
Fram kom í umræddri grænmet-
isverðkönnun Samkeppnisstofnun-
ar, sem greint var frá í Morgun-
blaðinu síðastliðinn fimmtudag, að
meðalverð á innfluttum tómötum
hefði hækkað um 33% frá 8. febrúar
til 8. mars.
„Kílóið af tómötum kostaði 249
krónur með virðisaukaskatti í Bón-
usi 8. apríl síðastliðinn, á sama tíma
var innkaupsverð á kílóinu 304 krón-
ur án vsk. Í lok febrúar og byrjun
mars hækkaði innkaupsverð á tóm-
ötum úr rúmum 200 krónum á kíló
án virðisaukaskatts upp í 320 án vsk.
þar sem uppskerutíminn var að hefj-
ast í Hollandi. Á sama tíma sagði
landbúnaðarráðherra að allt innflutt
grænmeti ætti að lækka um helming
vegna afnáms innflutningstolla.
Hann gleymdi hins vegar að gera
ráð fyrir að nýtt uppskerutímabil
væri að hefjast á sama tíma og á að
vita að nýrri uppskeru fylgi ávallt
hærra verð.“
Guðmundur segir að síðustu að
kíló af innfluttum tómötum hafi ver-
ið selt á nær óbreyttu verði í Bónusi
frá 1. janúar á þessu ári og bendir á
að innkaupsverð hafi ekki byrjað að
lækka að ráði fyrr en á mánudaginn
var. „Nú er verð almennt að lækka á
mörkuðum úti þannig að neytendur
eiga nú rétt á að sjá grænmetisverð
lækka. Þar munum við verða í far-
arbroddi, sem fyrr,“ segir hann.
Um 330.000 manns fara í
Bónus í hverjum mánuði
Mánuður jarðar
hjá Aveda
♦ ♦ ♦