Morgunblaðið - 20.04.2002, Page 30
LISTIR
30 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VESTURHEIMI
MILLIRÍKJA-verkefnisnefnd
Þjóðræknisfélags Íslendinga í
Vesturheimi, The International
Visits Program, hefur valið þrjá
listamenn í Vesturheimi til að
heimsækja Ísland í ár og á næsta
ári, og einn til að heimsækja staði í
Norður-Ameríku, en fjölmargar
umsóknir bárust um styrkina.
Rokkasmiðurinn Doug Rogn-
valdson frá Edmonton í Kanada er
væntanlegur til Íslands í október
n.k. til að sýna hvernig hann fer að
við smíðina. Faðir hans hannaði
rokk snemma á nýliðinni öld,
blandaði saman íslenskri og kan-
adískri tækni, og síðan hafa synir
hans fimm framleitt yfir 2.000
rokka.
Ruth Christie frá Selkirk í Mani-
toba er kunn sagnakona frum-
byggja og er gert ráð fyrir að hún
komi til landsins vorið 2003. Hún
segir ekki aðeins sögur heldur
kynnir hvernig ýmsir kunnir frum-
byggjahlutir eru gerðir.
Martha Brooks frá Winnipeg er
þekktur unglingabókahöfundur og
ekki síður kunn sem jasssöngvari,
en innan skamms er von á bókinni
True Confessions of a Heartless
Girl eftir hana. Djassdiskur henn-
ar, Change of Heart, hefur notið
mikilla vinsælda í Kanada, en von-
ast er til að hún komi með þriggja
manna sveit sína til Íslands í sept-
ember 2003.
Verkefnisnefndin hefur jafn-
framt ákveðið að stuðla að kynn-
ingu listafólks í Norður-Ameríku
og er það sérstakt verkefni. Fyrsti
þátttakandinn í því verður Ross
Snashall, listmálari frá Calgary og
kennari í hlutastarfi. Hann er að-
eins 26 ára en hefur sýnt víða í
Kanada og er áætlað að hann fari
um Norður-Ameríku með verk sín
sumarið 2003.
Þjóðræknisfélagið á Íslandi
vinnur með Þjóðræknisfélagi Ís-
lendinga að Vesturheimi að þess-
um menningarsamskiptum með
dyggum stuðningi Flugleiða og
sérstaks menningarsjóðs í Kanada,
The Cultural Exchange Fund of
the Canada Iceland Foundation
inc. Sjóðurinn byggist á frjálsum
framlögum og veitir Gail Einarson-
McCleery, formaður verkefnis-
nefndarinnar, allar nánari upplýs-
ingar, en netfang hennar er ice-
gem@compuserve.com.
Milliríkja-verkefnisnefnd
Þjóðræknisfélagsins vestra
Styrkþegar
valdir fyrir árin
2002 og 2003
UM liðna helgi gekkst félagsdeild
Þjóðræknisfélagsins í Lundar í
Manitoba í fyrsta skipti fyrir
bóndadegi og var góð þátttaka.
Lundar er um 100 km norður af
Winnipeg, skammt frá strönd Mani-
tobavatns. Íbúar Lundar eru um
700 og margir þeirra af íslensku
bergi brotnir. Þó nokkrir tala ís-
lensku og í vetur hefur verið boðið
upp á íslenskukennslu á staðnum á
laugardögum.
Starf félagsdeildar Þjóðrækn-
isfélagsins í Lundar var endurvakið
nýverið og var bóndadagurinn liður
í því. Evelyn Thorvaldson, sem ætt-
uð er frá Lundar en býr nú í Winni-
peg, setti samkomuna í Bún-
aðarfélagshúsinu á staðnum. Eiður
Guðnason, aðalræðismaður Íslands
í Winnipeg, flutti erindi og greindi
frá bóndadeginum á Íslandi. Hann
færði einnig bókasafninu í Lundar
myndbandsspólu og geisladisk með
nýju efni um Ísland og annað kynn-
ingarefni af ýmsu tagi um Ísland.
Lillian Vilborg, ritstjóri Lögbergs
Heimskringlu, dreifðu nýjasta ein-
taki blaðsins auk þess sem oddviti
sveitarfélagsins og fulltrúi kan-
adíska landbúnaðarmála í Lundar
fluttu ávörp.
Wanda Erickson Brandson er
forseti Lundardeildar Þjóðrækn-
isfélgsins og Donny Thorkelson
varaforseti, en hann hefur verið á
Íslandi sem þátttakandi í svonefndu
Snorraverkefni. Samkoman tókst
vel og var haft á orði að hún yrði
árlegur viðburður hér eftir.
Evelyn Thorvaldson setti sam-
komuna í Lundar.
Bóndadagur í Lund-
ar í fyrsta sinn
Tannstönglabox
Verð kr. 2.590
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mánudag-föstudag 11-18,
laugardag 11-15
SÁ merkisviðburður
verður á tónleikum
yngri deildar Tónlistar-
skólans í Reykjavík í
Háteigskirkju á sunnu-
dagskvöld, að frumflutt
verður tónverk eftir 12
ára nemanda skólans,
Bjarna Frímann
Bjarnason, sem einnig
leikur á fiðlu með
hljómsveitinni. Verk
hans, Maritimus, verð-
ur þar í félagi við þátt
úr Brandenborgarkons-
erti nr 3 og tvo þætti úr
Konsert í d-moll fyrir
tvær fiðlur og hljóm-
sveit eftir Jóhann Seb-
astian Bach; Allegro og
Menúett úr Flugeldasvítu eftir
Händel, Svítu eftir Rameau, Adagio
eftir Barber og svítuþátt eftir Gust-
av Holst. Einleikarar í verki Bjarna
eru þær Greta Salóme Stefánsdóttir
fiðluleikari og Catherine María
Stankiewicz sellóleikari, en Greta
Salome og Magdalena Dubik leika
einleik með hljómsveitinni í konsert
Bachs fyrir tvær fiðlur. Unnur
María Ingólfsdóttir er stjórnandi
hljómsveitarinnar. „Í hljómsveit
yngri deildar eru nemendur allt upp
í sjöunda stig, en eftir að Listahá-
skólinn kom til sögunnar tökum við
nemendur allt niður í þriðja stig, og
þeir fá að vera með í hljómsveitinni.
Ég er búin að stjórna sveitinni í
fimm ár, og það hefur verið ótrú-
lega gaman að vinna með þessum
krökkum. Þetta er hörkuduglegt
fólk og stór hluti af hljómsveitinni
er mjög efnilegur fyrir sinn aldur.
Krakkarnir eru á aldrinum 12–24
ára, – þetta er breitt bil, en samt
eru allir mjög glaðir og vinna vel.“
Þær Greta Salóme og Magðalena
eru fimmtán og fjórtán ára og leika
einleik í konsert Bachs fyrir tvær
fiðlur. Þær byrjuðu báðar í hljóm-
sveitinni í fyrra og hafa ekki leikið
einleik með henni áður. „Þetta er
rosalega gaman, en smá erfitt. Við
þurfum að æfa meira af því við er-
um með einleik, og við æfum okkur
líka saman tvær okkar raddir. Það
er rosalega gaman,“ segja þær báð-
ar samtaka einum rómi þegar þær
eru spurðar að því hvernig það sé
að vera svona mikið í tónlistinni og
finnst það allt í lagi þótt þær hafi
lítinn tíma til að sinna öðru. Þær
eru ekki bara í sínum spilatímum og
í hljómsveitinni, þær spila líka sam-
an í strengjakvartett. Einleikshlut-
verkin vefjast ekkert fyrir þessum
ungu stúlkum: „Maður finnur rosa-
lega góðan anda frá krökkunum
þegar maður er að spila sóló, og
stjórnandinn okkar, Unnur María,
er rosalega góð manneskja og gam-
an að vinna með henni.“
Bjarni Frímann Bjarnason er
tónskáldið í hópnum, en leikur líka í
hljómsveitinni. Maður hlýtur að
spyrja sig úr hvers konar umhverfi
tólf ára strákur spretti sem bæði er
flinkur á fiðlu og semur hljómsveit-
artónlist. „Þetta tilfelli hér kemur
ekki úr sérlega músíkölsku um-
hverfi. Ég á þó alveg dásamlega
foreldra sem eru lítið músíkmennt-
aðir, en mamma syngur í kór. Ég
byrjaði þriggja eða fjögurra ára á
fiðlu í Suzuki-skólanum, en er löngu
hættur því. Mig langaði ekki til að
læra á neitt. Mig langaði bara til að
liggja heima í leti og gera eitthvað
alveg fáránlegt, sem væri bara gjör-
samleg tímaeyðsla. En ég sé eftir
því að hafa látið þannig, ég kann
bara vel við mig svona eins og ég
er. Ég var mjög ungur þegar ég
byrjaði að semja tónlist, ég held ég
hafi verið sex eða sjö ára. Þá samdi
ég nokkra strengjakvartetta. Mér
finnst þeir sönn glöp þegar ég lít til
baka, en þeir hafa þýðingu fyrir
mig.“
Það er náttúran sem helst blæs
tónskálinu unga anda í brjóst, –
hann sækir innblástur í dýr, fugla,
himin, haf og jörð og oft er hann
friðlaus og verður að fá sér labbitúr
niður að sjó til að horfa á sólarlagið.
Verkið hans heitir Maritimus. „Það
þýðir Við hafið og er latína. Ástæð-
an fyrir því að ég tek nafnið úr lat-
ínu er sú að latínan er ágætis mál.
Hún er hljómfögur og kröftug. Mér
finnst íslenskan ágæt, en hún er
viðkvæm. Hún er fallegasta tungu-
málið, engin spurning, – en mjög
vandmeðfarin.“ Það kemur í ljós að
allir sjö þættir verksins bera lat-
neska titla, og til hægðarauka fyrir
hina sem ekki skilja latínu heita
þeir: Við sjóinn, Óveður, Sólargeisli,
Sjófuglar, Tregasöngur andarinnar
yfir látnum unga sínum, Engill í
tómi og Útfararsálmur. Á kápu
verksins er ennfremur að finna eft-
irfarandi upplýsingar tónskáldins
um tilurð verksins: Svítan Mariti-
mus var samin að morgni hins 2.
febrúar 2002, undir áhrifum frá síð-
degisgönguferð um Ægisíðu í fimm
stiga frosti og norðaustan belgingi.
Tónleikarnir í Háteigskirkju á
sunnudagskvöldið hefjast kl. 20.00.
„Ég fæ innblástur
úr náttúrunni“
Bjarni Fr. Bjarnason með nóturnar að verki
sínu og tveir einleikaranna, Greta Salóme
Stefánsdóttir og Magdalena Dubik.
LAXNESSÞING, ráðstefna um
ævi og verk Halldórs Laxness, var
sett síðdegis gær í Háskólabíói.
Magnús Magnússon rithöfundur
og sjónvarpsmaðurinn góðkunni
frá Skotlandi flutti opnunarer-
indið, en einnig fluttu erindi Ólaf-
ur Ragnarsson útgefandi og Ingi-
björg Haraldsdóttir rithöfundur
og þýðandi. Kynnir var Guðrún
Nordal bókmenntafræðingur.
Í erindi sínu sem Magnús
nefndi The Fish can sing, fjallaði
hann um þýðingar á verkum Lax-
ness yfir á enska tungu. Magnús
hefur þýtt Brekkukotsannál og
Paradísarheimt á ensku, en yf-
irskrift erindis hans var titill
Brekkukotsannáls á ensku.
Ingibjörg Haraldsdóttir lýsti
kynnum sínum af skáldinu er hún
heimsótti hann ung stúlka að
Gljúfrasteini árið 1969. Inntak er-
indis hennar var hversu mjög hún
kveið fundinum við átrúnaðargoð
sitt og svo hversu ljúfmannlega
skáldið tók henni.
Ólafur Ragnarsson greindi frá
því að í leitirnar hefði komið áður
óþekkt efni eftir Halldór Laxness
er birt var í Morgunblaðinu, Æsk-
unni og Skinfaxa á árunum 1916–
18 er Halldór birti undir dulnefn-
inu Snær svinni. Í sérrriti um
Halldór Laxness er fylgir Morg-
unblaðinu í dag er grein eftir
Ólaf þar sem hann segir frá þessu
efni. Greindi hann frá því að í
haust er væntanleg bók hans um
samskipti þeirra Halldórs, en
Ólafur var útgefandi hans fyrir
hönd Vöku-Helgafells frá 1985.
Ráðstefnan, sem stendur fram á
sunnudag, er haldin á vegum
Bókmenntafræðistofnunar, Eddu-
miðlunar og útgáfu, Stofnunar
Sigurðar Nordals og Morg-
unblaðsins og verður þar fjallað
um hinar mörgu hliðar höfund-
arverks Halldórs í hátt í þrjátíu
erindum og umræðum í mál-
stofum.
Laxnessþing hafið
Morgunblaðið/Sverrir
Magnús Magnússon flytur setningarræðu Laxnessþings.
SAMTÖK um leikminjasafn
verða með dagskrá í Ráðhúsi
Reykjavíkur í dag, laugardag,
kl. 19.30 í tengslum við málþing
um Halldór Laxness sem nú
stendur yfir í Háskólabíói. Leik-
ararnir Arnar Jónsson, Guðrún
Stephensen og Hjalti Rögn-
valdsson lesa brot úr verkum
skáldsins. Fram koma söngvar-
arnir Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson og Anna Sigríður
Helgadóttir ásamt Karlakórnum
Stefni og sönghópi undir stjórn
Jónasar Þóris Þórissonar.
Dagskráin er í samstarfi við
Hugvísindastofnun og er að-
gangur ókeypis.
Laxness í Ráðhúsinu