Morgunblaðið - 20.04.2002, Síða 65
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 65
HÓPUR nýsveina í húsasmíði fékk
sveinsbréf sín afhent við hátíðlega
athöfn laugardaginn 6. apríl síðast-
liðinn. Athöfnin fór fram að við-
stöddum fjölda gesta í sal meist-
arafélaganna við Skipholt í
Reykjavík. Alls fengu 38 nýsveinar
víðs vegar af landinu sveinsbréf sín
afhent og var ein kona í hópnum að
þessu sinni.
Meistarafélag húsasmiða og Tré-
smiðafélag Reykjavíkur standa að
afhendingunni en formaður sveins-
prófsnefndar, Konráð Ingi Torfa-
son, afhenti sveinsbréfin. Georg
Theódórsson frá Reykjavík fékk
viðurkenningu fyrir bestan árang-
ur.
Með nýsveinunum á myndinni eru Finnbjörn Hermannsson, formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur, lengst til
vinstri, og Baldur Þór Baldvinsson, formaður Meistarafélags húsasmiða, lengst til hægri.
Sveinsbréf í húsasmíði
Röð keppenda brenglaðist
Rangt var farið með röð keppenda í
tvöfaldri fegurðarsamkeppni Vestur-
lands. Kári Gunnarsson frá Grundar-
firði og Andri Haukstein Oddsson frá
Borgarnesi lentu í þriðja sæti. Davíð
Hlíðkvist Ingason frá Grundarfirði
var valinn vinsælastur af strákunum
og Ása Þóra Guðmundsdóttir frá
Akranesi var valin vinsælust af stúlk-
unum. Anna María Sigurðardóttir var
einnig valin Oroblu-stúlkan.
Ferðamálasamtök Suðurlands
Röng mynd birtist með eftirfarandi
frétt um málþing og aðalfund Ferða-
málasamtaka Suðurlands. Beðist er
velvirðingar á mistökunum og fréttin
birt hér aftur:
Ferðamálasamtök Suðurlands
funduðu fyrir stuttu á veitingastaðn-
um Kristjáni X. á Hellu þar sem
ferðaþjónustufólk úr fjórðungnum
kom saman og hlýddi á fróðleg erindi
og réð ráðum sínum um komandi ver-
tíð.
Á fyrri hluta fundarins fóru fram
hefðbundin aðalfundarstörf, þar sem
ný stjórn tók við taumunum undir for-
ystu Eyju Þóru Einarsdóttur á Mold-
núpi, en aðrir í stjórn eru Erla Ívars-
dóttir á Geirlandi, Eymundur
Gunnarsson, Hveragerði, Gústaf
Stolzenwald, Stokkalæk, og Áslaug
Rut Áslaugsdóttir í Vestmannaeyj-
um. Á fundinn komu Reynir Sveins-
son, forstöðumaður Fræðasetursins í
Sandgerði, og Sverrir S. Sigurðsson,
kynningar- og markaðsfulltrúi Ár-
borgar, en þeir fluttu fróðleg erindi
um starfsemi og markaðsmál á
heimaslóðum sínum.
Þá kynnti Þórdís Eiríksdóttir,
verkefnisstjóri hjá Leonardo da
Vinci-áætluninni, starfsemi samtak-
anna, en starfsfólk upplýsingamið-
stöðva fór einmitt nýlega til Glasgow
á vegum verkefnisins. Fjörlegar um-
ræður urðu að erindum loknum um
markaðsmál, en til stendur að kynna
Suðurland myndarlega á ferðakynn-
ingunni Ferðatorg 2002 sem haldið
verður í Smáralind 19.–21. apríl nk.
Brotaþoli ekki dóttir ákærða
Ranglega var sagt í frétt blaðsins í
gær að brotaþoli í kynferðisbrota-
máli, sem Hæstiréttur dæmdi í á
fimmtudag, væri dóttir ákærða í mál-
inu. Hið rétta er að brotaþoli var vin-
kona dóttur ákærða. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Í DAG verður opið hús í Háskólan-
um í Reykjavík þar sem kynnt verð-
ur nám sem í boði er við skólann
skólaárið 2002–2003. Á hálftíma
fresti verður sérstök kynning á
deildum skólans, nemendur, kennar-
ar og námsráðgjafar munu svara
spurningum um námið og gestum
verður boðið í skoðunarferðir um
skólann.
Þær námsleiðir sem í boði eru við
skólann skólaárið 2002–2003 eru eft-
irfarandi:
Lögfræði
Tölvunarfræði
Tölvunarfræði – fjarnám
Viðskiptafræði
Viðskiptafræði – háskólanám með
vinnu
MBA með áherslu á mannauðs-
stjórnun
Jafnframt verða kynntir náms-
styrkir sem Háskólinn í Reykjavík
veitir, en alls munu 34 nýnemar
hljóta námsstyrki í formi niðurfell-
ingar skólagjalda.
Opið hús hjá
Háskólanum
í Reykjavík
REYKJAVÍKURLISTINN mun
halda fund í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsinu, í dag, laugardaginn
20. apríl. Fundurinn stendur frá kl.
12.15 til 14.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flyt-
ur erindi um þá uppbyggingu sem
hefur átt sér stað í Reykjavík síðustu
átta árin og í kjölfarið verður opnað
fyrir spurningar úr sal til pallborðs.
Í pallborði verða Ingibjörg Sólrún,
Alfreð Þorsteinsson og Árni Þór Sig-
urðsson.
Þetta verður fyrsti fundurinn í
fundaröð Reykjavíkurlistans á laug-
ardögum fram að kosningum undir
yfirskriftinni: „Spjalltorgið“. Allir
eru velkomnir.
R-listinn með
spjallfund
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhappi við
gatnamót Lönguhlíðar og Miklu-
brautar skömmu fyrir kl 13 á
fimmtudag.Þar laust saman 13 ára
dreng á reiðhjóli á leið yfir Miklu-
braut, og jeppabifreið, með þeim af-
leiðingum að drengurinn féll í göt-
una og meiddist á fæti og olnboga.
Kona sem ók jeppanum tók niður
nafn drengsins en gerði hvorki grein
fyrir sjálfri sér né tilkynnti atvikið til
lögreglunnar. Hún er því beðin um
að hafa samband við lögregluna í
Reykjavík sem og vitni sem geta
varpað ljósi á atburðinn.
Lýst eftir
vitnum
LEIKSKÓLI KFUM og
KFUK við Holtaveg verður
vígður við hátíðlega athöfn
sunnudaginn 21. apríl kl. 15:30.
Við það tækifæri mun formaður
byggingarnefndar, Arnmundur
Kr. Jónasson, rekja gang fram-
kvæmda, sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson prófastur leiða hús-
blessun og borgarstjórinn í
Reykjavík, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, flytja ávarp og
opna skólann formlega. Leik-
skólabörn munu einnig syngja.
Að athöfninni lokinni verður
boðið upp á léttar veitingar og
fólki gefst kostur á að skoða
húsakynni skólans. Kl. 17:00
verður svo samkoma þar sem
formaður KFUM og KFUK, sr.
Ólafur Jóhannsson, verður
ræðumaður.
Vígsla leik-
skóla KFUM
og KFUK
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá dómstóli
ÍSÍ í lyfjamálum, sem undirritaðir
hafa óskað birtingar á:
Þeir Birgir Guðjónsson og Júlíus
Hafstein hafa gert að umtalsefni í
Morgunblaðinu að undanförnu nið-
urstöðu dómstóls ÍSÍ í fjórum lyfja-
málum sem hann fjallaði um fyrir
ári.
Við undirrituð skipuðum dómstól-
inn. Af greinum þessum verður helst
ráðið að við höfum átt þátt í ein-
hverju samsæri forystumanna
íþróttahreyfingarinnar til þess að
halda hlífiskildi yfir íþróttamönnum
sem gerast sekir um lyfjamisnotkun.
Þrátt fyrir að okkur sé þvert um geð
að taka þátt í svo lágkúrlegri um-
ræðu sem þessari teljum við okkurt
skylt að láta nokkur orð falla til
varnar mannorði okkar og starfs-
heiðri.
Við fullyrðum að hvorki Ellert B.
Schram né einhver annar úr forystu
ÍSÍ hafði eða reyndi á nokkurn hátt
að hafa áhrif á störf eða niðurstöðu
dómsins, heldur aðeins Birgir sjálfur
og þeir talsmenn ákærðu sem fluttu
mál þeirra, eins og vera ber.
Voru þær leikreglur, sem dóm-
stólnum eru settar, því í einu og öllu í
heiðri hafðar.
Í ákæruskjali Birgis gegn tveimur
körfuknattleiksmönnum gerði hann
sjálfur þær kröfur ,,að með tilliti til
ákvæða um mildandi ástæður í 12.
gr.“ [reglugerðar um lyfjaeftirlit]
um viðurlög telji ,,Heilbrigðisráð að
Lyfjadómstóll ÍSÍ meti hversu víð-
tækt bannið verði“.
Með vísan til þessarar kröfugerð-
ar, sem skýrð var ákærðu í hag til
samræmis við almennt viðurkennd
sjónarmið í refsimálum, þótti refsing
þeirra hæfilega ákveðin útilokun frá
þátttöku í íþróttaæfingum og
íþróttakeppni, sem fram fer á vegum
ÍSÍ, sambandsaðila þess eða félaga
eða deilda innan þeirra í einn mánuð
frá 17. apríl 2001 en þann dag tók
gildi bráðabirgðabann ákærðu til
þátttöku í keppni á vegum ÍSÍ, sam-
bandsaðila þess eða deilda innan
þeirra samkvæmt heimild í 8. gr.
reglugerðar um lyfjaeftirlit.
Sjálfur hafði Birgir haft forgöngu
um að bjóða körfuknattleikskonu að
fella niður refsingu hennar ef hún
játaði brot sitt. Engin heimild er fyr-
ir slíkum samningum í lögum eða
reglugerðum ÍSÍ. Í reglugerð þeirri,
sem körfuknattleikskonan var talin
hafi brotið, voru engin refsiákvæði
og því ekki um annað að ræða en að
sýkna.
Það er því ljóst að kröfugerð Birg-
is í þremur þessara mála var ekki í
neinu samræmi við þann furðulega
málflutning sem hann hefur haft
frammi í fjölmiðlum eftir uppkvaðn-
ingu dómanna.
Í fjórða málinu var um að ræða er-
lendan leikmann sem sem fallið hafði
á lyfjaprófi erlendis og hafði mál
hans verið afgreitt þar. Varð því ekki
hjá því komist að vísa þessu máli frá
dómi.
Við undrumst mjög skrif þessara
tveggja manna og frábiðjum okkur
með öllu þær aðdróttanir að við höf-
um brugðist skyldum okkar sem
dómarar í umræddum málum. Grein
Júlíusar er vonandi rituð af vanþekk-
ingu um efnið en ekki verður annað
séð en að grein Birgis sé skrifuð
gegn betri vitund hans. Væru þeir
báðir menn að meiru bæðust þeir af-
sökunar á þessum skrifum sínum.
Þeir, sem vilja kynna sér málið,
eru hvattir til þess að lesa dómana og
þær reglugerðir sem niðurstöður
þeirra byggjast á en hvort tveggja
má finna á heimasíðu ÍSÍ.
Örn Höskuldsson
Helgi I. Jónsson
Jóhannes Albert Sævarsson
Brynjólfur Jónsson
Ragnheiður Karlsdóttir
Tilhæfulausar aðdróttanir
BORIST hefur eftirfarandi yfirlýs-
ing frá Gísla Má Gíslasyni prófess-
or:
„Líkt og fram kom í fréttum Rík-
isútvarpsins 17. og 18. apríl hefur
einn höfunda að matsskýrslu um
umhverfisáhrif Norðlingaölduveitu
gert alvarlegar athugasemdir við
það að mikilvægum upplýsingum í
skýrslunni hafi verið sleppt úr
drögum sem send voru Skipulags-
stofnun og þeim hefði jafnvel verið
haldið leyndum. Vegna þess hafi
skýrslan ekki lýst afleiðingum
framkvæmdarinnar, eins og ætlast
er til með lögum um mat á um-
hverfisáhrifum. Um er að ræða yf-
irsjón af hálfu VSÓ-ráðgjafar, sem
hefur umsjón með skýrslugerðinni,
en hvort það er gert með vitund og
vilja Landsvirkjunar skal ósagt lát-
ið.
Líkt og fram kom var það ég
sem kom þessum athugasemdum
höfundarins og undirverktaka
VSÓ-ráðgjarar á framfæri við
Skipulagsstofnun. Stofnunin hefur
af því tilefni farið fram á að VSÓ-
ráðgjöf, sendi inn ný drög að mats-
skýrslu til stofnunarinnar.
Þessum ávirðingum, sem fram
komu í fréttum RÚV, hefur hvorki
Landsvirkjun né VSÓ-ráðgjöf
svarað eða reynt að skýra út. Hins
vegar hafa Landsvirkjun og VSÓ-
rágjöf sent frá sér sameiginlega yf-
irlýsingu þar sem látið er að því
liggja að ástæða gerða minna sé sú
að ekki hafi verið „notaðar að fullu
upplýsingar úr skýrslum eftir mig
og telja upphlaup [mitt] spegla
andstöðu [mína] við Norðlingaöldu-
veitu“. Staðreyndin er sú að við
lestur matskýrsludraga VSÓ-ráð-
gjafar var notað orðalag sem benti
til annarra áhrifa framkvæmdar-
innar en raunverulega verða, hvort
sem upplýsingar voru teknar úr
mínum skýrslum eða úr um 40 öðr-
um skýrslum vísindamanna og
sniðgengnar voru upplýsingar sem
lýstu neikvæðum áhrifum fram-
kvæmdarinnar. Auk þess hef ég
ekki lýst yfir að ég sé andsnúinn
Norðlingaölduveitu eða öðrum
virkjunum og virkjanaáformum
Landsvirkjunar, en vil engu að síð-
ur að tekin sé upplýst ákvörðun um
þessa framkvæmd eins og aðrar.
Ég hef aftur á móti bent á að
Þjórsárver eru ein dýrmætasta
náttúruperla landsins og ég hef
spurt hvort réttlætanlegt sé að
gera þar 32 km² lón til að framleiða
1,6% af óvirkjarðri raforku úr
vatnsföllum á Íslandi.“
Yfirlýsing
frá Gísla
Má Gísla-
syni
F-LISTI frjálslyndra og óháðra í
Reykjavík opnar kosningaskrifstofu
í dag, laugardaginn 20. apríl, í Að-
alstræti 9 kl. 15–18. Allir velunnarar
F-listans eru boðnir velkomnir til að
gleðjast yfir þessum áfanga í kosn-
ingabaráttunni, segir í fréttatilkynn-
ingunni.
Ólafur F. Magnússon og Margrét
Sverrisdóttir flytja stutt ávörp.
Gísli Helgason og Herdís Hall-
varðsdóttir leika nokkur lög. Kaffi
verður á könnunni.
F-listinn
opnar kosninga-
skrifstofu