Morgunblaðið - 20.04.2002, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 69
DAGBÓK
SUMARGJÖFIN
fæst hjá okkur
Glæsilegt úrval af
skóm og töskum
Kringlunni
sími 553 2888
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Kraftur og greind gerir þig
spennandi. Kröftug afstaða
þín til lífsins og tilverunnar
og hollusta við þína nánustu
er til eftirbreytni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hugaðu að bankareikning-
unum, þú hyggur á fjár-
hagsráðstafanir á næst-
unni svo gott er að vita
hvort innistæða er fyrir
þeim.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er allt í lagi að hugsa
bara um sjálfan sig í dag,
endurnærast og safna
kröftum fyrir næstu átök.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Notaðu daginn til að
slappa af, í kyrrð og ein-
veru, bæði andlega og lík-
amlega.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ráðfærðu þig um framtíð-
arplönin við vini og þína
nánustu. Þeirra ábending-
ar gætu skýrt hvað er fært
og hvað ekki.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér verður varpað fram í
kastljósið og taktu þeirri
ábyrgð sem sett verður á
þínar herðar því þú stend-
ur undir henni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þrá þín til að brjótast út úr
daglegri rútínu er eðlileg.
Gerðu eitthvað annað til að
örva hugann.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Stattu klár á því hvað þú
vilt og hvað ekki og gerðu
öðrum það ljóst svo þér
verði ekki fengin verkefni
sem þú vilt ekki glíma við.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Náin skoðanaskipti við ein-
hvern í dag mun kenna þér
margt. Þú munt sætta þig
betur við ólíkt verðmæta-
mat þitt og annarra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að vinna skipulega
í dag, heima fyrir eða í
vinnu. Þú færð stuðning til
þess frá þínum nánustu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ástin og tilfinningalífið
verður með betra móti í
dag og næstu vikur. Hafðu
þig vel til svo tækifærin
verði sem mest.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þátttaka þín í heimilislíf-
inu fer nú vaxandi svo að
eftir er tekið. Sýndu því
ánægju, öðrum til eftir-
breytni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú fyllist ánægju yfir
þeirri ást sem umvefur þig
dags daglega. Gagn-
kvæmni í þeim efnum er af
hinu góða.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
HÖFÐINGI SMIÐJUNNAR
Hann stingur stálinu í eldinn.
Hann stendur við aflinn og blæs.
Það brakar í brennandi kolum.
Í belgnum er stormahvæs.
Í smiðjunni er ryk og reykur
og ríki hans talið snautt.
Hann stendur við steðjann og lemur
stálið glóandi rautt.
Hér er voldugur maður að verki,
með vit og skapandi mátt.
Af stálinu stjörnur hrökkva.
Í steðjanum glymur hátt.
Málmgnýinn mikla heyrir
hver maður, sem veginn fer.
Höndin, sem hamrinum lyftir,
er hörð og æðaber.
– – –
Davíð Stefánsson
SÖGNIN „redobl „ býr yfir
sérkennilegu tvíeðli – tjáir
stundum gróðafíkn í skjóli
styrks, og stundum tap-
hræðslu í ljósi veikleika. Af
þessu tvíeðli sagnarinnar
spretta ýmsar redoblsraun-
ir. Förum aftur til ársins
1987, þar sem Bretar og Sví-
ar eru að keppa í undanúr-
slitum HM:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁK854
♥ DG102
♦ D5
♣103
Vestur Austur
♠ 106 ♠ D9732
♥ 765 ♥ ÁK984
♦ ÁK73 ♦ 2
♣Á764 ♣G9
Suður
♠ G
♥ 3
♦ G109864
♣KD852
Vestur Norður Austur Suður
Forrester Lindqvist Armstrong Fallenius
– – 2 grönd Pass
3 hjörtu Pass Pass 3 grönd
Dobl Pass Pass Redobl
Pass PASS Pass
Svíanir Fallenius og
Lindqvist gleyma aldrei
þessu spili – og Forrester
sennilega ekki heldur. Opn-
un Armstrongs í austur á
tveimur gröndum sýndi tvo
liti (þó ekki lauf) og 7–10
punkta. Forrester sagði
þrjú hjörtu frekar en þrjá
tígla til að gera NS erfiðara
um vik að komast inn í sagn-
ir ef litir makkers væru
spaði og tígull. Annars vildi
hann spila þrjú hjörtu. Þeg-
ar að Fallenius kom í suður
sá hann sér leik á borði að
koma báðum litum sínum á
framfæri með óvenjulegri
þriggja granda sögn. Fall-
enius leit svo á að hann hefði
neitað punktaríkum spilum
með því að passa opnun
austurs og því hlyti sögnin
að sýna láglitina.
Forrester doblaði og á
þessu stigi hafði Lindqvist
enga ástæðu til að melda,
enda með góða fyrirstöðu í
hálitunum og jafn stutta lág-
liti. Fallenius hefði betur
sagt fjóra tígla, en hann
taldi ekki víst að makker
væri með á nótunum og
redoblaði „til að taka af allan
vafa“!
Lindqvist var sennilega
löngu búinn að átta sig á því
að makker ætti láglitina.
Hann taldi sig hafa sýnt
jafna liti með passinu yfir
þremur gröndum og skildi
ekki hvað makker var að
fara með redoblinu. En
komst svo að þeirri niður-
stöðu að það hlyti að vera
uppástunga um að spila þrjú
grönd ef norður ætti fyrir-
stöður í hálitunum. Og sagði
pass!
Vörn Bretanna var ná-
kvæm og Fallenius fékk að-
eins fjóra slagi – tvo á spaða,
einn á hjarta og einn á lauf.
Fimm niður, eða 2.800 í AV,
sem mun vera stærsta út-
gjöf í slíku spili á heims-
meistaramóti. Á hinu borð-
inu spiluðu NS þrjá tígla í
NS, sem unnust slétt, svo
inntekt Breta var 21 IMPi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
1. Rf3 Rf6 2. c4 c5 3. Rc3 e6
4. g3 b6 5. Bg2 Bb7 6. O-O
Be7 7. b3 O-O 8. Bb2 d5 9. e3
Rc6 10. cxd5 exd5 11. d4
He8 12. Hc1 Bf8 13. He1
Hc8 14. Bh3 Hb8 15. Re2
Re4 16. Rf4 cxd4 17. Rxd4
Rxd4 18. Dxd4 Dd6 19.
Hed1 Hbd8 20. Bg2 a6 21. a3
Hd7 22. b4 Hed8 23. h4 a5
24. bxa5 bxa5 25. Da4 Rc5
26. Dc2 Da6 27. Df5 Ra4 28.
Bd4 Rb6 29. Re6
fxe6 30. Dxe6+ Kh8
31. Dxb6 Bxa3 32.
Ha1 Bb4 33. Bh3
Hd6 34. Dc7 Hg8 35.
Hdc1 Bc6
Staðan kom upp á
Amber mótinu sem
lauk fyrir skömmu í
Monakó. Vassily Iv-
ansjúk (2717) hafði
hvítt gegn Ljubomir
Ljubojevic (2548) .
Fyrr í skákinni hafði
Úkraínumaðurinn
sýnt snilldartaka og
nú lauk hann skák-
inni með glans. 36. Bxg7+!
Hxg7 37. Db8+ Hg8 38.
Dxb4 axb4 39. Hxa6 Hgg6
40. Hb6 Bd7 41. Hxd6 Hxd6
42. Bxd7 Hxd7 43. Hc8+
Kg7 44. Hb8 d4 45. Hxb4
dxe3 46. fxe3 Hd2 47. Kf1
Hc2 48. Hf4 h5 49. Hf5 Kg6
50. Hg5+ Kh6 51. e4 Ha2
52. e5 Hb2 53. e6 Hb6 54.
He5 og svartur gafst upp.
Íslandsmót framhaldsskóla-
sveita fer fram dagana 20.
og 21. apríl í Faxafeni 12.
Öllum framhaldsskólum á
landinu er heimil þátttaka.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 20.
apríl, er fimmtugur Hjörtur
Þór Björnsson, forstjóri
Skrifstofu Rannsóknastofn-
ana atvinnuveganna,
Bjarmalandi 2, Reykjavík.
Hjörtur og kona hans, Þór-
unn Halldórsdóttir, verða
erlendis á afmælisdaginn.
90ÁRA afmæli. Á morg-un, sunnudaginn 21.
apríl, verður níræð Rósa
Teitsdóttir, Austurgötu 15,
Keflavík. Eiginmaður henn-
ar var Ólafur Ingimundar-
son múrarameistari, sem er
látinn. Rósa verður með
heitt á könnunni á afmælis-
daginn frá kl. 15 og vonast
til að sjá sem flesta, en af-
þakkar blóm og gjafir.
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 20.
apríl, er sjötugur Jón Aðal-
steinsson læknir. Hann og
eiginkona hans, María
Kristjánsdóttir, eru að
heiman í dag.
FRÉTTIR
LIONSKLÚBBUR Hafnarfjarðar
færði St. Jósefsspítala ágóðann af
gaflarasölu vetrarins upp í tækja-
kaup vegna speglunartækja fyrir
meltingarsjúkdómadeild spítalans
laugardag 13. apríl sl. Með þeim
tækjum, sem nú er verið að kaupa
til spítalans, er þessi deild orðin sú
besta og fullkomnasta á landinu í
þessari grein og markar tímamót í
forvörnum og allri meðferð sjúk-
dóma í meltingarvegi.
Yfirlæknir spítalans, Ásgeir
Theódórs, kynnti tækin og notkun
þeirra og sýndi Lionsmönnum
deildina og útskýrði starfsemina og
hversu mikil breyting fengist með
þessu. Þá útskýrði hann einnig
hversu mun sjúklingavænni öll
meðferð yrði með þessum breyt-
ingum, sem nú væru rétt um það bil
í höfn.
Þá sæmdi klúbburinn yfirlækni
spítalans, Ásgeir Theódórs, hjúkr-
unarforstjórann Gunnhildi Sigurð-
ardóttur og framkvæmdastjórann,
Árna Sverrisson, gaflaramerki árs-
ins af tilefninu.
Fór athöfnin fram í kapellunni,
sem áður var sóknarkirkja kaþ-
ólska safnaðarins í Hafnarfirði og
Garðabæ. Hefir söfnuðurinn nú
byggt sér nýja kirkju uppi á Jófríð-
arstaðatúni. Auk stjórnar sjúkra-
hússins voru þarna meðlimir í
Lionsklúbbi Hafnarfjarðar, sitjandi
formaður og viðtakandi formaður,
formaður verkefnanefndar, einn af
bæjarfulltrúum Hafnarfjarðar, sem
er Lionsmaður, og fleiri. Viðtak-
andi formaður bauð yfirlækni að
koma í klúbbinn í haust og rifja upp
að nýju hvernig er að vera starf-
andi í Lions, hvað hann þáði.
Ljósmynd/SHÞ
Frá afhendingu gjafar Lionsklúbbs Hafnarfjarðar. Ásgeir Theódórs, yf-
irlæknir St. Jósefsspítala, Valur Svavarsson, formaður verkefnanefnd-
ar Lkl. Hafnarfjarðar, Sigurður H. Þorsteinsson, viðtakandi formaður
klúbbsins, Ólafur Árni Halldórsson, starfandi formaður klúbbsins, og
Gunnhildur Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri St. Jósefsspítala.
St. Jósefsspítala
í Hafnarfirði færð gjöf
Í TILEFNI 75 ára afmælis Ferða-
félags Íslands 2002 verður efnt til rað-
gangna um fornar þjóðleiðir. Fyrsta
raðgangan verður farin sunnudaginn
21. apríl um Prestastíg á Reykjanesi.
Þar var fyrrum fjölfarin leið milli
Grindavíkur og Hafna og lengi vel
nafnlaus eða þar til Staðarpresti var
falið að sinna Kirkjuvogssókn í Höfn-
um 1907 og gekk því þessa leið til emb-
ættisverka. Þessi leið er því afar
áhugaverð frá sögulegu sjónarhorni en
ekki síður jarðfræðilegu því leiðin ligg-
ur þvert á flekaskil milli Evrópu- og
Norðurameríkuflekanna, sem svo eru
nefndir. Því má segja, að þegar Presta-
stígur er genginn, þá fari ferðalangar
frá Ameríku til Evrópu. Reykjanes er
að vissu leyti einstakt í sinni röð þar
sem þar er eini staðurinn á jarðríki þar
sem sést greinilega hvernig úthafs-
hryggur gengur á þurrt land.
Þátttakendur í hverri raðgöngu fá
afhent upplýsingablað um leiðina og í
þessu tilviki bæði um sögu, staðhætti
og jarðfræði. Fararstjórar verða Sig-
rún Huld Þorgrímsdóttir og Haukur
Jóhannesson jarðfræðingur. Þátttak-
endur eru hvattir til að fá stimpil í
prentaða áætlun F.Í. bls. 11 og safna
síðan stimplum í raðgöngum. Blaðið er
í raun happdrættismiði og að öllum
göngum loknum verður dregið úr inn-
sendum miðum og veglegir vinningar í
boði. Brottför í þessa fyrstu raðgöngu
er frá BSÍ kl. 10.30 á sunnudaginn með
viðkomu í Mörkinni 6 og austan við
kirkjugarðinn í Hafnarfirði.
Afmælisganga
um prestastíg
FORELDRAÞING Heimilis og
skóla verður haldið í dag, laugardag-
inn 20. apríl, , í samstarfi við Sam-
band íslenskra sveitarfélaga.
Í fréttatilkynningu segir að þingið
sé vettvangur fyrir foreldra allra
barna í leikskólum, grunnskólum og
framhaldsskólum til að skiptast á
skoðunum, sýna samstöðu og koma á
framfæri þeim málefnum sem
brenna á þeim. Þingið er haldið á
Hótel Sögu, frá klukkan 10 til 18.
Ráðstefnugjald er 2.900 krónur og í
fréttatilkynningu er foreldrum sem
sækja þingið bent á að leita styrkja
til að greiða þátttökugjald og farar-
eyri þar sem það á við.
Heimili og skóli
boða til for-
eldraþings 2002