Morgunblaðið - 20.04.2002, Qupperneq 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Skeifan 17 • Sími 550 4000 • www.atv.is
Á ÖÐRUM degi opinberrar heim-
sóknar forseta Íslands til Rússlands
hitti Ólafur Ragnar Grímsson m.a.
Vladimír Pútín. Fundurinn fór fram
í Kreml og segir Ólafur að hann
hafi verið óvenjuefnisríkur.
Meðal þess sem bar á góma var
áhugi Rússa á að reisa súrálsverk-
smiðju á Íslandi, en þeir hafa m.a.
skoðað aðstæður í nágrenni Ak-
ureyrar fyrir slíka verksmiðju.
Á blaðamannafundi sagði Pútín
að frá því Rússland viðurkenndi
sjálfstæði Íslands árið 1944 hafi
ekkert orðið til þess að varpa
skugga á samband ríkjanna. „Þvert
á móti var land þitt sá staður þar
sem þíðan hófst,“ sagði Pútín og vís-
aði til leiðtogafundar Reagans og
Gorbatsjofs í Reykjavík árið 1986.
Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra fundaði í gær með rúss-
neskum starfsbróður sínum, Ígor
Ívanov. Halldór segir góðan anda í
samskiptum ríkjanna og vel hafi
verið unnið úr þeim málum sem
voru á dagskránni þegar Halldór
heimsótti Rússland í haust.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti í gær fund með Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Lengst til vinstri er Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra en við hlið þeirra eru túlkar og aðstoðarmaður Pútíns.
Viðræður
forsetanna
í Kreml
Pútín áhugasamur/38
50% fjölg-
un við-
skiptavina
hjá Bónusi
VIÐSKIPTAVINUM verslana
Bónuss hefur fjölgað um 50% á
undanförnum 12 mánuðum.
Milli 320.000 og 330.000 manns
versla í Bónusi í mánuði hverj-
um. Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Bónuss,
kveðst ánægður með aukið
verðskyn almennings undan-
farin misseri og það að val á
matvöruverslunum snúist orðið
meira um budduna en áður.
„Okkar markmið er að selja
vöru á besta fáanlega verði og
það virðist vera að skila sér.
Við gerum verðkannanir í öll-
um stórmörkuðum sex daga
vikunnar sem gerir 50–60.000
verð á viku að jafnaði,“ segir
hann.
Guðmundur segir að Bónus
muni áfram „gera allt til þess
að bjóða lægsta verðið á mark-
aðnum. Viðskiptavinir borga
okkur launin og verða sér sí-
fellt betur meðvitandi um þetta
markmið okkar. Við það ætlum
við að standa,“ segir hann.
Um 330.000 manns/29
KAUPÞING banki hf. hefur keypt
60% hlutafjár fasteignafélagsins
Þyrpingar hf. Seljendur bréfanna eru
Sigurður Gísli og Jón Pálmasynir,
Lilja Pálmadóttir og móðir þeirra,
Jónína S. Gísladóttir, ekkja Pálma
heitins Jónssonar sem kenndur var
við Hagkaup. Kaupþing hefur enn-
fremur tryggt sér kaup á þeim hlut-
um í Þyrpingu sem enn eru í eigu
Lilju Pálmadóttur, eða um 10% til
viðbótar. Af þeim 30% eignarhlut
sem eftir er á Ingibjörg Pálmadóttir
hátt í 20%. Hún er sú eina úr fjöl-
skyldunni sem ekki selur hlut sinn, en
ekki náðist í hana vegna þessa. Af-
gangur hlutafjárins er í dreifðri eign.
Óskar Magnússon, stjórnarfor-
maður Þyrpingar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að ástæða sölunnar
væri sú að hagstætt verð hafi boðist
og þetta hafi verið álitið gott tæki-
færi. Þá sagði hann að einnig spilaði
inn í að komið hefði verið að því að
hver og einn eigendanna vildi geta
tekið ákvörðun um fjárfestingu óháð
öðrum.
Aðspurður sagði Óskar að salan
væri ekki vegna þess að föst áform
væru um aðrar fjárfestingar, því ekk-
ert lægi fyrir um þær.
Kanna sameiningu við Stoðir
og skráningu á markað
Í samtali við Ármann Þorvaldsson,
framkvæmdastjóra hjá Kaupþingi,
kom fram að þetta hafi verið til um-
ræðu síðasta hálfa árið eða svo, en
samningaviðræður hafi staðið í um
tvo mánuði.
Kaupþing á fasteignafélagið Stoðir
í félagi við Sparisjóð Reykjavíkur og
nágrennis og Baug. Eiga Stoðir með-
al annars húsnæði höfuðstöðva þess-
ara þriggja fyrirtækja, Höfðaborg í
Borgartúni, auk fleiri eigna, alls að
verðmæti um fimm milljarðar króna.
Ármann sagði aðspurður að nú
yrði kannaður möguleiki á samein-
ingu Stoða og Þyrpingar, en Þyrping
ætti nálægt fimmtán milljörðum
króna í fasteignum. Við sameiningu
félaganna yrði því til félag með um
tuttugu milljarða króna í eignum og
áhugavert gæti verið að skoða þann
möguleika að setja það á markað. Ár-
mann sagði að áætlað væri að sam-
einað félag yrði með um 1,5 til 1,6
milljarða króna hagnað fyrir afskrift-
ir.
Í fréttatilkynningu segir að Þyrp-
ing hf. sérhæfi sig í þróun og rekstri
fasteigna. Helstu eignir félagsins séu
verslunarmiðstöðin Kringlan, Hótel
Esja og Loftleiðir, Holtagarðar
(IKEA-húsið) og húsnæði margra
verslana Baugs. Alls eigi Þyrping um
30 fasteignir sem séu alls tæpir 120
þúsund fermetrar.
Þá hafi félagið einnig unnið að þró-
unarverkefnum og dæmi um slík
verkefni séu stækkun Hótels Esju,
bygging íbúða í Skuggahverfinu,
bygging hótels á horni Aðalstrætis og
Túngötu og íbúðabyggð við Norður-
bakka í Hafnarfirði.
Í fréttatilkynningu kemur einnig
fram að kaupin séu háð áreiðanleika-
könnun og stefnt sé að því að henni
ljúki innan þriggja vikna. Þá kemur
fram að kaupverðið sé trúnaðarmál.
Kaupþing kaupir 60%
hlutafjár í Þyrpingu
GENGI íslensku krónunnar styrkt-
ist um 0,7% í gær og hefur ekki verið
sterkara frá því í apríl í fyrra. Gengið
hefur styrkst um rúmlega 6% frá
áramótum og um rúmlega 13% frá
því það náði lágmarki í nóvember í
fyrra. Vísitala krónunnar sést á með-
fylgjandi mynd, en hún mælir verð
erlends gjaldeyris og lækkar þess
vegna þegar krónan styrkist.
Hefur jákvæð
áhrif á verðlag
Í Hálffimm fréttum Búnaðarbank-
ans í gær segir að ýmsar ástæður
séu fyrir þessari þróun, þar með
taldar jákvæðar horfur í verðlags-
málum og afgangur á vöruviðskipt-
um. „Haldist þessi styrking krón-
unnar má gera ráð fyrir jákvæðum
verðlagsáhrifum en opinberar verð-
bólguspár Seðlabanka og Þjóðhags-
stofnunar gerðu ráð fyrir umtalsvert
lægra gengi. Fréttir um verðlækk-
anir síðustu daga renna stoðum und-
ir þessa skoðun,“ segir í Hálffimm
fréttum.
8 . "+
391"!" "391".
:/;90
1
2
!
3
1
#
121
Krónan
styrktist
um 0,7%
BÆJARSTJÓRAR landsins koma
saman á Suðurnesjum um helgina
til að bera saman bækur sínar og
skiptast á upplýsingum.
Í gær fóru þeir meðal annars upp
á Keflavíkurflugvöll í heimsókn til
björgunarsveitar varnarliðsins.
Á meðan félagar þeirra skoðuðu
Sikorsky „Pave Hawk“ björg-
unarþyrlurnar bauð Gísli Gíslason
á Akranesi Guðjóni Hjörleifssyni úr
Vestmannaeyjum í nefið.
Korn í nefið
Morgunblaðið/RAX Bæjarstjórar/19