Morgunblaðið - 13.06.2002, Qupperneq 18
SUÐURNES
18 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Kíktu inn á bílaland.is
Netsalan ehf.
Garðatorgi 3, 210 Garðabæ,
símar 565 6241 og 893 7333 Fax 544 4211, netfang: netsalan@itn.is
Opið virka daga frá kl. 10-18.
Laugardaga frá kl. 10-16. Sunnudaginn 16. júní kl. 13-16.
• Lettman kajakar
• Mikið úrval
• Plast- og trefjakajakar
Combi-Camp
mest seldi tjaldvagninn
30%
afsláttur af aukahlutum
fram yfir helgi
Viking fellihýsi vönduð og vel útbúin
• Tæki sem brenna gasi eru CE merkt
• Lagnir fyrir CE merkta ísskápa
• Bremsur • Betra endursöluverð
Komið og skoðið!
INGIMUNDUR Þ. Guðnason var
kosinn oddviti á fyrsta fundi nýkjör-
innar hreppsnefndar Gerðahrepps.
Þá var ákveðið að endurráða Sigurð
Jónsson sem sveitarstjóra.
Í kosningunum hélt F-listi fram-
farasinnaðra kjósenda hreinum
meirihluta sínum, nú undir forystu
Ingimundar Guðnasonar. Sigurður
var sveitarstjóraefni listans. Fulltrúi
I-lista Félags óháðra borgara lagði
til að Gísli Heiðarsson, fjórði maður
á F-listanum, yrði kjörinn oddviti en
Ingimundur hlaut kosningu með
fjórum atkvæðum. Einar Jón Páls-
son, annar maður á F-lista, var kos-
inn varaoddviti með sex atkvæðum.
Felld var með þremur atkvæðum
gegn fjórum tillaga I-listans um að
auglýsa stöðu sveitarstjóra lausa til
umsóknar. Í greinargerð segir að F-
listinn hafi boðið Sigurð fram sem
sveitarstjóraefni og þeirri skoðun
lýst að ekki sé hægt að greina að
meirihluti hafi samþykkt hann sem
sveitarstjóra þar sem framboðið hafi
fengið 346 atkvæði af 700. Endur-
ráðning Sigurðar sem sveitarstjóra
var að því búnu samþykkt með fjór-
um atkvæðum meirihlutans, einn
greiddi atkvæði á móti og tveir sátu
hjá. Oddvita var falið að undirrita
ráðningarsamning við sveitarstjór-
ann og tekið fram í samþykkt
hreppsnefndar að launakjör verða
þau sömu og verið hafa á nýliðnu
kjörtímabili.
Tveir fulltrúar I-lista og fulltrúi
H-lista sjálfstæðismanna og annarra
frjálslyndra stóðu saman að kjöri í
fimm manna nefndir.
Á fundinum var samþykkt tillaga
F-listans um að setja á fót ferða-
málanefnd. Verður kosið í nefndina á
næsta fundi.
Ingimundur
kjörinn oddviti
Gerðahreppur
Sigurður
Jónsson
Ingimundur Þ.
Guðnason
JÓN Gunnarsson var kosinn oddviti
nýrrar hreppsnefndar Vatnsleysu-
strandarhrepps á fyrsta fundi nefnd-
arinnar. Þá var Jóhanna Reynisdótt-
ir endurráðin sveitarstjóri.
Við kosningarnar leiddi Jón Gunn-
arsson H-lista óháðra borgara eftir
nokkurra ára hlé frá störfum í sveit-
arstjórn og hélt listinn hreinum
meirihluta sínum í hreppsnefndinni,
fékk þrjá fulltrúa af fimm. T-listi og
V-listi fengu einn mann hvor.
Við kosningu oddvita var stungið
upp á Jóni og Birgi Þórarinssyni sem
skipaði annað sætið á sama lista, Jón
hlaut kosningu með þremur atkvæð-
um, tveir fulltrúar sátu hjá. Birgir
var síðan sjálfkjörinn varaoddviti.
Oddvita var falið að gera ráðning-
arsamning við Jóhönnu sem sveitar-
stjóra, með fyrirvara um samþykki
hreppsnefndar.
Nefndaskipan og kosningu í
nefndir var frestað til næsta fundar
hreppsnefndar.
Jón Gunnarsson
oddviti á ný
Vatnsleysustrandarhreppur
Jón
Gunnarsson
Jóhanna
Reynisdóttir
STÁLÞILI sem reka á niður við
Norðurgarð í Sandgerðishöfn var
skipað upp úr flutningaskipi þar í
höfninni í vikunni. Stálið vó 230
tonn.
Guðlaugur Einarsson verktaki
átti lægsta tilboð í niðursetningu
stálþilsins og hefur hann hafið
framkvæmdir. Um er að ræða 60
metra langt stálþil við enda Norð-
urgarðs en þar hefur verið unnið
við dýpkun í vetur þannig að þar
verður um níu metra dýpi við
bryggjuna. Þá mun hafnargarð-
urinn breikka um sex metra þegar
framkvæmdum lýkur.
Vinna við að reka niður stálþilið
hefst á næstu dögum.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Stálþili skipað upp
Sandgerði
ÞORSTEINN Árnason, fyrsti
varamaður framsóknarmanna
í nýkjörinni bæjarstjórn
Reykjanesbæjar, óskaði eftir
lausn frá þeim störfum á
fyrsta fundi bæjarstjórnar og
veitti bæjarstjórn honum sam-
hljóða lausn.
Í bréfi sem Þorsteinn sendi
bæjarstjórn vísar hann til nið-
urstöðu kosninganna og mikils
fylgistaps Framsóknarflokks-
ins og telur sig samkvæmt því
ekki hafa fengið umboð til að
vinna að málefnum bæjar-
félagsins.
Þorsteinn skipaði annað
sæti á lista Framsóknarflokks-
ins, sætið sem flokkurinn tap-
aði.
Hættir á
fyrsta fundi
Reykjanesbær
MIKIL fjölgun hefur orðið í
vinnuskóla Reykjanesbæjar frá
síðasta sumri. Þar starfa í sumar
405 unglingar og er hann fjöl-
mennasti vinnustaðurinn á Suður-
nesjum.
Unglingar úr þremur efstu
bekkjum grunnskóla geta fengið
vinnu hjá vinnuskólanum og eru
um 500 börn í þessum þremur ár-
göngum að þessu sinni. 405 þeirra
sóttu um og fengu vinnu hjá vinnu-
skóla Reykjanesbæjar á móti 240 á
síðasta ári. Aukning milli ára er
því tæp 70%.
Ragnar Örn Pétursson umsjón-
armaður vinnuskólans segir að
aukningin sé mest hjá sextán ára
unglingunum en einnig aukist um-
sóknir hjá 15 ára. Telur hann að
þrengra sé um á almennum vinnu-
markaði en verið hefur en vekur
einnig athygli á því að vinnuskól-
inn greiði hærri laun en gengur og
gerist hjá vinnuskólum og ungling-
arnir séu kannski að átta sig á því
að þetta sé ekkert verri vinna en
hver önnur.
Vegna lengingar skólaársins er
erfiðara að skipta hópunum niður
á sumarið. Hann segir að vegna
þessa hafi þurft að fjölga flokks-
stjórum og séu nú um 30 að störf-
um.
Nóg er að gera fyrir nemendur
vinnuskólans, að sögn Ragnars
Arnar. Þessa dagana er mest verið
að fegra bæinn fyrir þjóðhátíðar-
daginn.
405 nemendur í
vinnuskólanum
Reykjanesbær
SKIPVERJARNIR á Lukkuláka SH
501 frá Ólafsvík lönduðu óvenju-
legum afla í Sandgerði í gær,
hnúfubak sem festist í netunum.
Hvalurinn var dauður í netunum
þegar þeir vitjuðu þeirra á Ólafs-
völlum, um 15 mílur norðvestur af
Garðskaga. Ákváðu þeir að draga
skepnuna til næstu hafnar. Gekk
það frekar hægt því hnúfubakur-
inn er ellefu metrar að lengd, lítið
eitt styttri en báturinn, og á annan
tug tonna að þyngd ef að líkum
lætur.
Hvalurinn var dreginn upp í nið-
ursetningarbraut smábáta í Sand-
gerðishöfn. Þar kom fjöldi fólks til
að skoða. Starfsfólk botndýrarann-
sóknastöðvarinnar í Sandgerði tók
sýni af hrúðurkörlum og öðrum líf-
verum sem eru utan á hvalnum og
sérfræðingar Hafrannsóknastofn-
unar komu á staðinn til að skoða
dýrið og taka sýni.
Síðdegis ætluðu skipverjarnir
heppnu á Lukkuláka að einhenda
sér í hvalskurð til að láta verðmæt-
in ekki fara til spillis.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Hnúfubakur í netin hjá Lukkuláka
Sandgerði