Morgunblaðið - 13.06.2002, Side 35

Morgunblaðið - 13.06.2002, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2002 35 tjórnum. Hann er fyrst og fremst af- kkseinræðisins og er reiðubúinn að ð með oddi og egg. fyrir þetta hefur Jiang ekki verið r við að breyta ímyndinni sem margir átir kommúnistaleiðtogar hafa haft á ð 1996 lauk fundi APEC, Samráðs- gs Asíu- og Kyrrahafsríkja, í Manila á yjum með hátíðarkvöldverði. Jiang á hljóðnemann og ásamt Fidel Ramos yjaforseta söng hann af mikilli inn- hugljúfa „Love Me Tender“ sem Elv- ey gerði frægt. Jiang þykir oft vera alegur og ekki bera með ann sé mikill klækjaref- fur snúið á marga keppi- em taldir voru útsmogn- askil boðuð í haust skil verða í Kína í haust gert ráð fyrir að skipt verði um menn stöðum, Jiang muni víkja, sennilega u Jintao og Zhu Rongji forsætisráð- yggst einnig láta af störfum. Fátt er m Hu annað en að hann er tæplega sex- ð aldri, var um nokkurra ára skeið óri í Tíbet og barði þar niður af hörku íbeta gegn nýlenduveldinu. Hann var jörinn í stjórnmálaráðið fyrir tíu árum ýlega í heimsókn til Bandaríkjanna og kja til að kynna sig á alþjóðavettvangi. ðu menn þó umtalsvert fróðari eftir þá Stjórnmálaskýrendur AFP-fréttastofunn- ar segja að Jiang reyni nú að halda miklum völdum áfram og feta þannig í fótspor Maos og Dengs sem voru mestir áhrifamenn í land- inu fram í andlátið þótt þeir væru síðustu árin hættir að gegna formlegum embættum. Er jafnvel sagt að Jiang vilji áfram gegna stöðu aðalritara flokksins og yfirmanns hermála- nefndarinnar. Jiang hefur náð því athyglis- verða takmarki að öll rit hans hafa verið gefin út í viðhafnarútgáfu og viðhorfum hans þann- ig miðlað til allrar þjóðarinnar en hvort það dugar honum til að fá að halda áfram um stjórnvölinn að tjaldabaki er önnur saga. Efnahagsuppgangur og ótti við ringulreið Hræðslan við uppreisn og ringulreið er eitt af því sem mótar hugsun leiðtoganna meira en flest annað og þá vísa þeir til allra þeirra hörmunga sem hafa riðið yfir þjóðina á 19. og 20. öld vegna innanlandsátaka. En jafnframt er hræðslan röksemd fyrir því að flokkurinn skuli áfram vera einráður – og flokksbroddar og börn þeirra geti notað tækifærin í hinu nýja hagkerfi til að auðgast í krafti aðstöðu sinnar. Spilling er mikil og vaxandi og ein af aðferðum Jiangs til að treysta sig í sessi var að efna til mikillar herferðar gegn henni. Þeg- ar tækifæri gafst var hættulegum keppinaut- um um völdin ýtt burt og vísað til meintra eða raunverulegra tengsla þeirra við spillingu, oft hafa börn og barnabörn æðstu manna flækst inn í slík mál. Framfarir hafa orðið geysimiklar í efna- hagsmálum Kína síðan Deng hratt úr vör um- bótastefnu sinni undir lok áttunda áratugar- ins. Margir sérfræðingar í málefnum landsins segja þó að varast beri að ýkja uppganginn og hagfræðingar eiga stundum erfitt með að skilja hvernig kínverskar hagtölur ganga upp. Þeir segja t.d. að ef hagvöxtur hafi verið jafn- mikill og stjórnvöld fullyrða hljóti olíunotkun að hafa aukist í sama takti en sú sé ekki raun- in. Og aðrir benda á að tugmilljónir uppflosn- aðra bænda hópist nú til borganna, dulið at- vinnuleysi sé farið að verða mikið vandamál vegna þess að velferðarkerfið sé nær ekkert fyrir hendi og fólkið því margt á vergangi. Loks er bent á að flest stærstu iðnfyrirtækin eru tröllvaxið erfðagóss frá tímum miðstýr- ingar og áætlunarbúskapar, framleiðsla þeirra er oft ónothæf og hlaðist upp í birgða- geymslum. Sé beitt eðlilegum bókhalds- reglum séu fyrirtækin sjálf löngu gjaldþrota. Þarna sé risavaxið verkefni eftir óunnið og óhjákvæmilegt að það eigi eftir að valda mikl- um þjóðfélagsátökum. En aðrir segja að nóg sé að heimsækja landið til að sannfærast, í borgum strandhér- aðanna sé allt á fleygiferð þótt hagtölur geti verið vafasamar og efast megi um að mikið hafi enn breyst í afskekktum landbúnaðarhér- uðum. Aðeins hluti hinna 1.300 milljóna íbúa fjölmennasta ríkis jarðar hafi enn sem komið er fengið að njóta ávaxtanna af umbótastefnu Dengs og arftaka hans. Mannréttindi og harka í utanríkismálum Samfélagið í Kína er orðið opnara, gerðar hafa verið umbætur á sumum sviðum mann- réttinda en oft eru þau fótum troðin, er nóg að minna á þrælkunarbúðirnar með hundruð þúsunda fanga og ofsóknir gegn trúar- og hugleiðslusamtökunum Falun Gong, einnig dauðadómana sem eru fleiri en annars staðar á byggðu bóli. Kommúnistaflokkurinn þolir enga keppinauta, hann vill hafa undirtökin og frjáls félagasamtök í vestrænum skilningi eru ekki til. Hræðslan við hugmyndafræðilega samkeppni hefur aukist eftir að sósíalisman- um var kastað fyrir róða í reynd. Tjáning- arfrelsið er sem fyrr heft. Og dómskerfið hef- ur það ekki fyrir meginreglu að fólk sé saklaust þar til sekt sé sönnuð. Því er öðru nær, ef fólk er ákært er dómari líklegur til að telja að sektin sé sönnuð. Í viðskiptum gilda fremur kunningja- og ættartengsl en lög og hafa erlendir kaupsýslumenn oft komist í hann krappann af þessum sökum. En nú eru Kínverjar gengnir í Heimsviðskiptastofn- unina, WTO, og lofa bót og betrun. Erfitt hefur reynst að fá Kínverja til að semja um deilumál við grann- þjóðir, t.d. um eignarhald á um- deildum eyjum við strendur landsins. Kínverjar vísa þá oft til eigin korta og segja þau sanna að umdeild svæði hafi ávallt verið hluti Kínaveldis. Þar sem landið er kjarnorku- veldi er víða ótti meðal grannþjóðanna við að Kínverjar muni ekki hika við að láta kné fylgja kviði í framtíðinni ef þeir verða einhvern tíma mesta stórveldi heims eins og margir spá. Og framferði þeirra gagnvart Taívan, sem þeir kalla uppreisnarhérað og hóta hernaðar- innrás, Tíbet, þar sem þeir traðka á innlendri menningu og banna landsmönnum að iðka trú sína, einnig gagnvart múslímum í vesturhér- uðunum og kristnum söfnuðum um landið allt vekur ekki traust. Það bendir ekki til þess að þeir álíti smáþjóðir eiga rétt sem geti skákað hnefaréttinum. Reuters andaríkjaforseta í Shanghai í fyrra s Asíu- og Kyrrahafsríkja. einn yndist era ottur“ alritari kommúnista- r sérfræðingar að í grein Kristjáns reynst slungnari í pinautarnir. Kvað niður mót- mæli í Shanghai 1989 án þess að beita hernum gegn stúdentum. RONALD Lee Fleming erforstöðumaður og einnstofnenda The TownscapeInstitute, félagasamtaka sem vinna að því að fegra og bæta borgarumhverfi með áherslu á að gefa viðkomandi stað þýðingu, t.d. með því að skírskota til sögu staðar- ins og sérstöðu hans. Fleming segir mikilvægt að arkitektar, sagnfræð- ingar, lista- og handverksmenn sam- eini krafta sína við hönnun svæða í þéttbýli. Hann var tilnefndur til Pulit- zer-verðlauna árið 1982 fyrir bóka- flokkinn The Power of Place þar sem hann fjallar um hvernig borgarskipu- lag og hönnun geti látið fólki líða eins og það sé hluti af heildinni og láti um- hverfið sig varða. „Starf mitt þróaðist frá því að hanna útlit bygginga og skipuleggja þéttbýl svæði í það að finna þýðingu staðanna sjálfra,“ segir Fleming. Hann kom hingað til lands í boði bandaríska sendiráðsins, til að ræða við aðila innan borgarkerfisins, skipu- lagsfræðinga og aðra sem áhuga hafa á hönnun og skipulagsmálum. „Ekki svo að Bandaríkjamenn séu svo gott fordæmi í skipulagsmálum, við höfum margar dauðar götur og úthverfi, en þið getið lært af mistökum okkar og af þeim sigrum sem við höf- um unnið við að skapa líf og borgarbrag á stöðum þar sem áður var ekkert líf.“ Skírskotað til sögunnar Á fyrirlestri sem hann hélt á morgunverðar- fundi Reykjavíkurborgar í samvinnu við Borgar- fræðasetur nýlega sýndi Fleming ljósmyndir sem teknar voru víða um ver- öld þar sem tekist hefur að tengja byggingar og önnur mann- virki staðnum þar sem þau er að finna, gefa þeim þýðingu. Hann sýndi ljósmyndir frá flugvelli í Bandaríkj- unum þar sem í mósaíkflísum í gólf- inu mátti sjá myndir úr dýraríkinu við strendurnar í nágrenni flugvallarins. Frá þýsku borginni Dresden sýndi hann hvar mjólkurbrúsar voru hálf- grafnir í gangstéttina á stað þar sem mjólkin var afhent í gamla daga. Þannig var skírskotað til sögu stað- arins, verkið gaf götunni þýðingu og tilgang. Hann segir að skipulag borga verði að hjálpa fólki að glöggva sig á umhverfinu og ná áttum. Hann segir að upp á þetta vanti hér á Íslandi. Fleming tekur fram að hann hafi ein- ungis dvalið hér í stuttan tíma, en glöggt er gests augað. „Þið verðið að byrja á flugvellinum í Keflavík, þar hefja flestir ferð sína til borgarinnar. Fystu hughrifin verða á flugvellinum en þar er ekkert að finna sem gefur til kynna hvar í heiminum þú ert. Flugstöðin er stór og kröftug bygging sem hefur ýmsa kosti, en ég leitaði eftir atriðum í hönnun hússins sem gæfu til kynna hvað ég ætti í vændum í heimsókn minni til Íslands, en sá ekkert slíkt.“ Hljómskálagarðurinn vannýttur Fleming segir að hér virðist vanta heildarsýn í skipulagsmálum. Á leið til miðborgarinnar ók hann eftir Miklubraut. Hann segir að heildar- mynd vanti á götuna og segist myndu vilja sjá röð trjáa við Miklubraut, eins og er t.d. algengt í frönskum borgum. Trén gætu minnt á rómverska her- deild að marsera inn til borgarinnar, einnig væri mikilvægt að planta blómum við götuna. „Ég hef séð stór tré hér þannig að ég veit að þetta er mögulegt, kannski er fólk bara ekki vant þessari hugmynd,“ segir Flem- ing í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að mörg atriði þurfi að spila saman til að gera borgina ríkari, fjölbreyttari og áhugaverðari. Aðal- vandamálið sé þó hversu dreifð byggðin er og segir mikilvægt að þétta byggðina til að skapa líf í mið- borginni. Þó þurfi að hafa ofan af fyrir fólki í miðbænum þannig að það vilji dvelja þar. Hann tekur Hljómskálagarðinn sem dæmi, segir að hann mætti nota mun betur. „Ef þar væri aðstaða til að halda útitónleika, þar væri kaffihús og t.d. bakarí væri þar komin ákveðin heild þar sem hver hlutur styddi hinn. Hluta ársins er mikil birta allan sólar- hringinn, en þið þyrftuð að hafa eins- konar vetrargarð sem gæti verið gall- erí úr gleri þar sem hægt væri að hlusta á tónlist á kvöldin, innan um blóm, þar sem fólki liði vel.“ Sérkenni Reykjavíkur verði nýtt í hönnun Fleming er mjög hrifin af smáum hlutum í heildarmyndinni sem stuðla að því að gefa hverjum stað þýðingu. Hann segist hafa gaman af einföldum og hversdagslegum hlutum, saman- ber mjólkurbrúsana í Dresden. Mik- ilvægir og nafntogaðir atburðir eða menn þurfi ekki endilega að vera upp- spretta slíkra hluta. Hann telur að í Reykjavík mætti t.d. nota fiska meira í hönnun, þar sem samfélagið byggist á sjávarútvegi. T.d. mætti prýða hol- ræsalok eða gangstéttarhellur með myndum af fiskum. Einnig segir hann að betur mætti nota íslenskt grjót og það sem landið stendur fyrir. „Ég get ímyndað mér röð gosbrunna þar sem jarðhiti eða vatnsaflið væri notað til að knýja áfram einhvern mekanisma,“ segir Fleming. Hvað varðar þessi litlu og skemmtilegu atriði, eins og lok hol- ræsa og gangstéttarhellur, segir Fleming lista- og handverksmenn skipta höfuðmáli. Hann vill að lista- menn og sagnfræðingar verði hafðir með í skipulagningu borgarhluta, þeir taki þátt í að leysa vandamál sem upp koma og spyrji sig spurninga eins og hvernig megi koma þeim skilaboðum til skila að í nágrenninu sé sundlaug eða eitthvað í þeim dúr. Hrúgu af þvotti á Laugaveg „Einnig vantar upplýsingar um sögu miðbæjarins, það mætti setja upp gamlar myndir frá Laugavegin- um og miðbænum, þannig að fólk geti séð hvernig gatan var áður og hver þróunin hefur verið.“ Þegar Fleming er fræddur um að gatan dragi nafn sitt af því að áður fyrr gengu konur þennan veg með þvottinn á leið í laug- arnar segir Fleming að t.d. mætti hafa hrúgu af þvotti á bekk á Lauga- vegi eða vinna listaverk út frá und- irfötum, sokkum og öðrum þvotti frá þessum tíma. „Sagna- hefðin er arfleifð ís- lensku þjóðarinnar og það ætti að vera auð- veldara að taka mýtur og sögur úr umhverf- inu inn í hönnun í eins- leitu samfélagi eins og Íslandi. Þetta er erf- iðara í Bandaríkjun- um þar sem sagan er mjög flókin og þjóðin samsett af mörgum mismunandi hópum.“ Spurður um flug- völlinn í Vatnsmýrinni segir Fleming upp- byggingu þar ekki eiga eftir að bjarga miðborginni. „Þið gætuð skipulagt nýtt úthverfi sem er styttra frá mið- bænum en önnur, en ætti ég að ráða myndi ég frekar setja fjármagnið í uppbyggingu í miðborginni sjálfri. Þið munið á endanum byggja á flug- vallarsvæðinu en verðið að skoða hvernig þið viljið þétta byggðina. Ég tel að það verði að skoða mjög vand- lega þær hugmyndir sem eru uppi um uppbyggingu í Skuggahverfi, ég er handviss um að þar sé ekki búið að finna réttu lausnina. Þar vantar opin svæði þar sem allir, einnig íbúarnir í nágrenninu, geta sest niður og haft það huggulegt. Litir húsanna verða einnig að pasa við borgarmyndina og ég tel að það verði að gæta þess að þessar háreistu byggingar muni ekki skyggja á sólina fyrir aðrar bygging- ar.“ Hvað þéttingu byggðar í miðbæn- um varðar segir Fleming að ekki sé nóg að fjölga íbúum, fjölbreytt af- þreying verði að vera í boði. Hann tekur dæmi um útileiki, einnig verði að huga að því hvort sölumönnum verði gert kleift að bjóða varning til sölu á götunni, hvort vilji sé fyrir því að setja upp markað um helgar. Fleming segir að það sé alls ekki orðið of seint að koma miðbænum til bjargar, sérstaklega ef tekið er tillit til fjölgunar íbúa á höfuðborgarsvæð- inu. „En ef þið haldið áfram að gera þau mistök að dreifa fólkinu út um all- ar sveitir í leiðinleg úthverfi, mun borgin aldrei fá skemmtilegan borg- arblæ.Með því að skipuleggja skemmtilega staði og fjölbreytta af- þreyingu fyrir fólk getur miðbærinn verið fullur af lífi frá morgni til kvölds.“ Ronald Lee Fleming, skipulagsfræðingur og forstöðumaður The Townscape Institute Mikilvægt að skírskotað sé til sögunnar Bandaríski skipulags- fræðingurinn Ronald Lee Fleming telur að lista- og handverks- menn þurfi að koma í ríkari mæli að skipu- lagningu borga. Til að hver staður fái ákveðinn tilgang og þýðingu segir hann nauðsynlegt að skírskotað sé til sög- unnar. Í samtali við Nínu Björk Jónsdóttur nefnir hann t.d. fisk, þvott og jarðhita sem atriði sem hægt er að líta til í Reykjavík. nina@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.