Morgunblaðið - 13.06.2002, Side 56
56 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í SÍÐASTA mánuði sótti ég Ísland
heim ásamt unnustu minni og
barnabarni hennar og nutum við
fegurðar landsins og gestrisni fólks-
ins heima. En er ferðalagið var á
enda kom heldur betur babb í bát-
inn.
Þannig var að við höfðum fyllt bif-
reiðina af eldsneyti áður en lagt var
af stað frá Neskaupstað, en á leið-
inni voru það umfangsmiklar vega-
framkvæmdir að eyðslan varð meiri.
Til að bæta gráu ofan á svart var
þetta á uppstigningardag og benz-
ínstöðvar lokaðar.
Slíkt hefði ekki átt að skipta máli
þar sem uppi á Héraði eru sjálfsalar
sem taka bæði fé og kort. En því
miður eru menn ekki eins menntaðir
þegar að suðausturhorninu dregur
og suður með landinu.
Engan sjálfsala sá ég fyrr en á
Kirkjubæjarklaustri og neitaði
lyklaborðið að virka. Miðað við af-
lesturinn á benzínmælinum myndi
vanta 10 km upp á að ég næði til
Víkur í Mýrdal.
Því miður hafði ég á réttu að
standa, því að við afleggjarann að
Hjörleifshöfða drapst á bílnum.
Almættið hins vegar bænheyrði
unnustu mína og stoppaði Finnur
Torfi Stefánsson fyrir okkur og ók
aftur til Víkur.
Þar var svipað uppi á teningnum
að einungis hluti af lyklaborðinu
virkaði.
Finnur sýndi okkur þann kærleik
að nota sitt kort og greiddum við
honum í reiðufé. Því miður gat hann
ekki ekið okkur til baka þar sem
hann var með hrossakerru í eftir-
dragi. Vildi svo til að skyldmenni
Finns bjó í Vík og sló hann á þráð-
inn til hans og ók hann okkur til
baka. Var ætlun hans að nota sitt
kort til að liðsinna okkur en því mið-
ur mundi hann ekki lykilnúmerið og
brá hann þá undir sig betri fætinum
og náði í vinkonu sína sem reddaði
málunum. Komumst við loks í bæinn
um kl. 02.00.
Þar sem ég hafði ekki rænu á því
að taka niður heimilisföng get ég
ekki komið á framfæri skriflegu
þakklæti. Þætti mér því vænt um ef
Morgunblaðið gæti komið þessu
bréfi á framfæri með kæru þakklæti
fyrir björgun og kærleiksríka fram-
komu.
Olíufélögunum vil ég hins vegar
benda á að koma sjálfsölum sínum
og afgreiðslukössum í lag áður en
ferðamannatíminn fer í gang þar
sem þetta var ekki góð landkynning
af þeirra hálfu (nema á Austur-
landi). Allra virðingarfyllst,
SIGURJÓN HELGI
KRISTJÁNSSON,
28 Vinery Grove, Denton,
Manchester.
Þakkir fyrir
veitta aðstoð
Frá Sigurjóni Helga Kristjánssyni:
Í MORGUNBLAÐINU 11. júní
birtist bréf eftir Reyni Smára Atla-
son, nema í Menntaskólanum á Ak-
ureyri, um eyðslusemi embætta. Þar
segir meðal annars: „Á sínum tíma
þegar Windows 98-stýrikerfið var
þýtt á íslensku sáu íslenskir embætt-
ismenn ekki annað í stöðunni en að
senda einhvern ráðherra utan, Björn
Bjarnason menntamálaráðherra.“
Fullyrðing Reynis Smára um ut-
anferð mína af þessu tilefni er úr
lausu lofti gripin. Fundi með fulltrú-
um Microsoft vegna þessa máls átti
ég hér á landi. Þá skal þess getið, að
Microsoft hefur staðið undir kostn-
aði við að íslenska stýrikerfi sitt.
Sjálfsagt er að veita stjórnvöldum
aðhald. Gagnrýni missir hins vegar
marks, ef farið er rangt með stað-
reyndir, þegar það er tíundað, sem
þykir ámælisvert.
BJÖRN BJARNASON.
Svarbréf
Frá Birni Bjarnasyni:
VEGNA ákvörðunar forseta Íslands
og íslensku ríkisstjórnarinnar, að
bjóða forseta kínverska alþýðulýð-
veldisins, Jiang Zemin, í opinbera
heimsókn til Íslands, mótmælum við
harðlega þeim afleiðingum sem sú
ákvörðun virðist ætla að hafa í för
með sér.
Íslendingar hafa til þessa talið sig
vera hátt skrifaða hvað mannréttindi
og tjáningarfrelsi varðar. Því þykir
okkur miður að þetta stolt okkar sé
dregið niður á stig fasisma, sem virð-
ir í engu þessi réttindi. Að meina
óvopnuðu og friðelskandi fólki inn-
göngu í landið af hræðslu við að það
komi skoðunum sínum á framfæri en
hleypa í stað þess inn tugum vopn-
aðra lífvarða virðist ekki rökrétt. En
fulltrúar dómsmálaráðuneytis hafa
opinberlega greint frá hræðslu sinni
yfir að þeir muni beita vopnum sín-
um.
Ef Íslendingar og erlendir gestir
eiga á hættu að verða fyrir skoti líf-
varða erlendra gesta hefur ástkæra
landið okkar tekið miklum breyting-
um í átt til hins verra.
Vonandi endurtekur þessi leikur
sig aldrei aftur.
Með vinsemd og virðingu,
VALDIMAR FJÖRNIR
HEIÐARSSON og
JÓHANNA HELGADÓTTIR,
Fornhaga 22,
107 Reykjavík.
Opið bréf til forseta
Íslands og ráðherra
Frá Valdimar Fjörni Heiðarssyni
og Jóhönnu Helgadóttur: