Morgunblaðið - 13.06.2002, Side 20
LANDIÐ
20 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR GARÐEIGENDUR SEM VILJA GÓÐ VERKFÆRI
SLÁTTUORF
ÞAR SEM GÓÐU GARÐVERKFÆRIN FÁST
31 cc
Létt og lipur.
Fyrir sumarbústaðinn og heimilið.
Öflugt hörkuorf
fyrir alvöru sláttumenn. Þau mest seldu.
SLÁTTUORF SLÁTTUORF
Verð
aðeins
kr.13.900.-
VIÐ skólaslit Andakílsskóla þriðju-
daginn 4. júní sl. voru mættar þær
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir og
Sigrún Helgadóttir verkefnisstjóri
Grænfánans með Grænfána handa
Andakílsskóla, en hann er þriðji
skólinn á Íslandi sem flaggar slík-
um fána. Átta metra há flaggstöng
hafði verið reist við skólann og þar
mun þessi fáni blakta næstu tvö ár-
in, að minnsta kosti.
Andakílsskóli er einn af tólf
skólum á Íslandi ásamt Landvernd
og umhverfisráðuneytinu sem eru
stofnendur Grænfánans á Íslandi.
Til að eiga möguleika á að
hreppa Grænfánann er fram-
gangsmátinn sem hér segir:
1. Skólinn hefur samband við
Landvernd og lætur í ljós ósk um
að komast á græna grein og fá
Grænfána í fyllingu tímans.
2. Landvernd sendir skólanum
upplýsingar um Grænfánann, um-
sóknareyðublað og gát-lista.
3. Skólinn kýs umhverfisráð,
metur stöðu umhverfismála í skól-
anum með hjálp gátlistans,
ákveður þema/u, vatn, orku, rusl,
áttahaga eða samgöngur, setur sér
a.m.k. 5 markmið innan þemanna,
útfyllir umsókn og sendir Land-
vernd ásamt greiðslu.
4. Stýrihópur Landverndar um
Grænfána og verkefnisstjóri fara
yfir umsóknina og samþykkja
hana eða leiðbeina um breytingar
ef þurfa þykir.
5. Þegar umsókn skólans hefur
verið samþykkt fær skólinn viður-
kenningarskjal því til staðfest-
ingar að skólinn stefni að Græn-
fána.
6. Skólinn hefst handa. Eftir
a.m.k. hálfs árs starf á skólatíma
og þegar öllum settum mark-
miðum hefur verið náð er send
skýrsla til Landverndar/stýrihóps
með upplýsingum um verkefnið,
hvernig það vannst og hverjir
gerðu hvað.
7. Stýrihópur fer yfir og metur
skýrsluna, samþykkir hana eða
leiðbeinir um frekari vinnu.
8. Ef verkefnið er samþykkt
koma fulltrúar frá Landvernd og
fleirum í skólanum og fylgjast með
nemendum útskýra verkefnið og
árangur þess á sem fjölbreyttastan
hátt. Síðan fær skólinn viðurkenn-
ingu og Grænfánann. Fáninn er
dreginn að húni við hátíðlega at-
höfn og blaktir þar stöðugt svo
lengi sem skólinn fylgir eftir
markmiðum sínum en þó ekki
lengur en tvö ár.
9. Þegar fáninn blaktir er kom-
inn tími til að velja aftur fólk í um-
hverfisráðið, meta stöðuna og
setja skólanum ný markmið. Til að
hægt sé að fá nýjan fána þarf að
vera búið að ná nýjum markmiðum
eða sömu markmiðum með nýjum
nemendum.
Eftir að fáninn hafði verið dreg-
inn að húni voru veitingar bornar
fram, utan dyra í veðurblíðunni.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Andakílsskóli þriðji skólinn
sem hlýtur Grænfánann
Skorradalur
NÝ sveitarstjórn sameinaðs sveitar-
félags Biskupstungnahrepps, Laug-
ardalshrepps og Þingvallahrepps
samþykkti á fundi sínum á þriðjudag
að taka upp nafnið Bláskógabyggð á
sameinað sveitarfélag. Þá var Ragnar
Sær Ragnarsson jafnframt ráðinn
sveitarstjóri Bláskógabyggðar.
Áður höfðu íbúar valið nafnið í al-
mennri skoðanakönnun með 55,7%
atkvæða þeirra sem tóku afstöðu.
Bláskógar er svæðið norðan, vestan
og sunnan Þingvallavatns, þ.e. Þing-
vallaskógur og Þingvallahraun, allur
sigdalurinn, skógi og kjarri vaxinn.
Í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Nafnið er talið stafa af dökkum, blá-
grænum lit sem stundum slær á birki-
kjarrið á þessu svæði, t.d. í skúra-
veðri. Bláskógar við Þingvelli eru
nefndir í Íslendingabók þar sem þess
er getið að maður að nafni Þórir
kroppinskeggi, sem land átti í Blá-
skógum, hafi orðið sekur um morð á
þræl eða leysingja. Talið er líklegt að
Þórir hafi búið á þeirri jörð sem síðar
varð Þingvöllur. Bláskógaheiði er
nefnd í Íslendingasögum og í Sturl-
ungu og svo nefndist afrétturinn
norður og vestur af Þingvöllum öld-
um saman.
Hið nýja sveitarfélag nær að mörk-
um Reykjavíkur í vestur og snertir
mörk Skagafjarðar og Húnaþings í
norður og austur og nær því yfir mjög
víðfeðmt landsvæði.“ Innan þess eru
m.a. Þingvellir, Laugarvatn, Skálholt,
Gullfoss og Geysir.
Ráðinn sveitarstjóri Blá-
skógabyggðar
Ragnar Sær Ragnarsson hefur
verið ráðinn sveitarstjóri Bláskóga-
byggðar, nýs sameinaðs sveitarfélags
Þingvallasveitar, Laugardals og
Biskupstungna. Ragnar Sær er fædd-
ur árið 1961. Hann lauk námi frá
Fósturskóla Íslands árið 1986, í hót-
elstjórnun frá Viðskiptaskólanum
1990, námi í rekstrar- og viðskipta-
fræðum frá endurmenntunardeild
Háskóla Íslands árið 1997 og námi í
opinberri stjórnun og stjórnsýslu árið
2000 frá sömu stofnun.
Ragnar Sær starfaði sem sveitar-
stjóri Biskupstungnahrepps á árun-
um 1998–2002, en var áður fram-
kvæmdastjóri við eigið fyrirtæki á
sviði skólaþjónustu í miðbæ Reykja-
víkur. Hann hefur unnið nokkur þró-
unar- og stefnumarkandi verkefni um
gildi arðsemi í skólastarfi. Þá hefur
hann gegnt fjölmörgum trúnaðar-
störfum og unnið að verkefnum inn-
anlands og utan, m.a. á vegum Nor-
rænu ráðherranefndarinnar, athugun
á stöðu unglinga á Norðurlöndum,
auk dvalar í Bandaríkjunum á vegum
Rotary International. Ragnar Sær
situr í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Nafnið Bláskóga-
byggð samþykkt
í sveitarstjórn
FRÁ sveitarstjórnarkosningunum
25. maí sl. hafa staðið yfir formlegar
og óformlegar viðræður milli þeirra
fjögurra framboðslista, sem buðu
fram til sveitarstjórnar í Húnaþingi
vestra í vor. Hinn 5. júní var sam-
þykkt samkomulag milli B-lista
framsóknarmanna og T-lista óháðra
í Húnaþingi vestra, um myndun
meirihluta í sveitarstjórn. Efsti mað-
ur á T-lista, Heimir Ágústsson á
Sauðadalsá verður oddviti til tveggja
ára og Elín R. Líndal á Lækjamóti
formaður byggðaráðs til tveggja ára.
Meirihluta skipa því tveir frá hvor-
um lista, en minni hluta skipa tveir af
D-lista sjálfstæðisfélaga og einn af
S-lista Samfylkingarinnar og
óháðra. Að sögn Heimis Ágústsson-
ar er ákveðið að auglýsa starf sveit-
arstjóra laust til umsóknar, en
Brynjólfur Gíslason gegnir nú þeirri
stöðu. Aðaláherslan verður lögð á at-
vinnumálin og að standa vörð um það
þjónustustig, sem nú er í sveitarfé-
laginu. Ekki eru fyrirhugaðar breyt-
ingar í rekstri grunnskólans, en
yngri börnum er kennt á Hvamms-
tanga og þeim eldri á Laugarbakka.
Morgunblaðið/Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Mynd frá framboðsfundi á Hvammstanga í maí 2002. Efstu menn allra
lista. Í fremstu röð: Elín Líndal 2 f.v. og Heimir Ágústsson 2. f.h.
Meirihluti í Húnaþingi vestra
Hvammstangi
„Í DAG er eintóm hamingja eins og
einn ykkar í hópnum er vanur að
hafa á orði“ sagði Halldór Páll Hall-
dórsson, nýskipaður skólameistari
ML, er brautskráning fór fram frá
Menntaskólanum að Laugarvatni í
fertugasta og níunda sinn föstudag-
inn 31. maí sl. Fimmtán nýstúdentar
voru brautskráðir frá skólanum, sex
af náttúrufræðibraut og níu af mála-
braut. Alls luku 111 nemendur próf-
um við skólann í vor.
Hæstu einkunn nýstúdenta hlaut
Þorkell Snæbjörnsson frá Austurey
II í Laugardal af náttúrufræðibraut,
9,02. Hæstu einkunn af málabraut,
8,95, hlaut Anna Kristín Sigurðar-
dóttir frá Laugarvatni. Dux Scholae
varð Sigrún Guðjónsdóttir frá Mel-
um, Hrunamannahr., með 9,67.
Nýr skólameistari, Halldór Páll
Halldórsson, hefur nú tekið við
stjórn Menntaskólans að Laugar-
vatni úr hendi Kristins Kristmunds-
sonar, sem gegnt hefur því starfi í
þrjátíu og tvö ár samfellt. Halldór
Páll, sem gegndi starfinu í forföllum
Kristins í vetur, hefur nú verið ráð-
inn til næstu fimm ára. Á þeim 32 ár-
um sem Kristinn Kristmundsson var
skólameistari við ML brautskráði
hann yfir 1200 nýstúdenta. Kristni
og konu hans Rannveigu Pálsdóttur
voru færðar gjafir og þakkir frá skól-
anum, nemendum og starfsfólki auk
starfsfólks Íþróttafræðaseturs KHÍ
að Laugarvatni.
ML braut-
skráir 15
stúdenta
Nýstúdentar ásamt nýskipuðum skólameistara Halldóri Páli Halldórs-
syni, og fráfarandi skólameistara Kristni Kristmundssyni.
Laugarvatn