Morgunblaðið - 22.06.2002, Page 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 19
MEISTARINN.IS
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
0
6
7
1
1
•
s
ia
.is
Nánari upplýsingar á www.lv.is og í síma 515 9000. Bakhjarl Þjóðminjasafns Íslands
„Hvað er með Ásum?“
Sýning á verkum Hallsteins Sigurðssonar, myndhöggvara.
Ferð um goðheima í Laxárstöð í Aðaldal.
Aflið í Soginu
Óvænt sjónarhorn á samband manns og náttúru á sýningu í
Ljósafossstöð við Sogið.
Í Hrauneyjafossstöð er sýning á tillögum sex listamanna að
útilistaverkum við Vatnsfellsstöð.
Kynnist starfseminni í Blöndustöð, Kröflustöð og Búrfellsstöð.
Opið alla virka daga frá klukkan 13 til 17 en 13 til 18 um helgar
(12.30 til 15.30 í Kröflu). Aðgangur ókeypis.
Verið velkomin!
... er heimsókn til Landsvirkjunar!
Hápunktur ferðarinnar ...
HELDUR færri voru á atvinnuleys-
isskrá á Akureyri í lok síðasta mán-
aðar en á sama tíma í mánuðinum á
undan, samkvæmt yfirliti Vinnu-
málastofnunar. Þó versnaði staða
kvenna nokkuð, því konum fjölgaði
um 15 á skrá en körlum fækkaði um
23. Alls voru 222 á atvinnuleysis-
skránni í lok síðasta mánaðar, 105
karlar og 117 konur. Þetta eru jafn-
framt 63 fleiri en voru á skránni á
sama tíma í fyrra.
Gott ástand í
Dalvíkurbyggð
Atvinnuástandið í Dalvíkurbyggð
er jafnan nokkuð gott en þar voru 13
á atvinnuleysisskrá í lok síðasta
mánaðar, 8 karlar og 5 konur. At-
vinnulausum fækkaði um fjóra frá
mánuðinum á undan og er sú fækkun
eingöngu hjá körlum. Þá er þetta
jafnframt fjórum færra en voru á
skrá í sveitarfélaginu á sama tíma í
fyrra.
Í Ólafsfirði fækkaði um 9 á at-
vinnuleysisskrá milli mánaða en í lok
síðasta mánaðar voru 48 á skrá, 21
karl og 27 konur. Þetta eru hins veg-
ar 25 fleiri en voru á skrá á sama
tíma í fyrra. Í Hrísey voru 7 manns á
atvinnuleysisskrá í lok síðasta mán-
aðar, einn karl og 6 konur.
Atvinnuástand
í Eyjafirði
Heldur færri
atvinnulausir
GOÐAFOSS, vöruflutningaskip
Eimskips, kom til Akureyrar um
hádegisbil í gær til að losa og lesta
vörur hjá félaginu. Goðafoss og
systurskipið Dettifoss eru stærstu
skip íslenska kaupskipaflotans í
siglingum til og frá landinu og er
Goðafoss jafnframt stærsta vöru-
flutningaskip sem komið hefur til
Akureyrar.
Skipið er 166 metra langt og tæp-
lega 15.000 brúttólestir að stærð og
er lestunargetan um 1.500 gáma-
einingar. Á myndinni sést Goðafoss
við Oddeyrarbryggju en úti á Poll-
inum siglir smábátur og eins og sjá
má er stærðarmunurinn mikill.
Mikill stærð-
armunur
Morgunblaðið/Kristján
NÝ heimasíða Akureyrarbæjar
hefur verið opnuð. Nýja síðan
er mun víðtækari og umfangs-
meiri en áður var. Markmiðið
er að þjóna bæjarbúum, ferða-
fólki og þeim sem til bæjarins
vilja flytja.
Þannig er nú mun meiri
áhersla lögð á fréttir, afþrey-
ingu og menningu. Allt sem áð-
ur var að finna á heimasíðu
bæjarins er þó enn aðgengilegt.
Það var Atómstöðin sem vann
nýju heimasíðuna ásamt starfs-
fólki bæjarins og starfsmönn-
um Athygli á Akureyri.
Akureyrarbær
Ný heimasíða
AÐALFUNDUR Samtaka um nátt-
úruvernd á Norðurlandi, SUNN,
sem haldinn var nýlega, vakti at-
hygli á því að á Akureyri er ekki
starfrækt náttúrugripasafn. Slík
söfn séu rekin af myndarskap á
Húsavík og Ólafsfirði, „og ekki er
vansalaust að áratuga uppbygging-
ar- og vísindastarf Náttúrugripa-
safnsins á Akureyri sé geymt í köss-
um svo árum skiptir og það án þess
að sjáist fyrir endann á því ástandi,“
segir í ályktun SUNN.
Skoraði fundurinn á Akureyrarbæ
og aðra þá sem láta sig málið varða
að koma náttúrugripasafni upp á
Akureyri sem allra fyrst þannig að
almenningur, nemendur á öllum
skólastigum og ferðamenn geti séð
náttúrugripi í návígi og fræðst um
íslenska náttúru.
SUNN um náttúru-
gripasafn á Akureyri
Áratuga vís-
indastarf
geymt í kössum
♦ ♦ ♦