Morgunblaðið - 22.06.2002, Qupperneq 39
uðborgarsvæðinu og fólk myndi
dreifast um landsbyggðina til að
veiða sér til matar ætti þá að „af-
skrifa“ það út úr þjóðskránni vegna
þess að það hefði ekki tilkynnt Hag-
stofunni að það hefði farið í matar-
leit?
Fram hefur komið síðustu mánuði
að horaður þorskur sé við Vestfirði
og á Húnaflóa. Sérfræðingar Haf-
rannsóknastofnunar svara þá „að
holdafar þorsks sé að meðaltali
ágætt“. Þeir vita þetta allt best, inni-
lokaðir inní gagnagrunninum á
Skúlagötu 4 og ... allir trúa því!
Kynþroska
undirmálsþorskur
Síðustu ár hefur veiðst meira af
40-60 cm kynþroska smáþorski en
áður. Þessi kynþroska smáþorskur
virðist hrygna einu sinni og drepast!
Staðreyndin er, að töluvert magn
smáþorsks hverfur (týnist) út úr
gögnum Hafrannsóknastofnunar
milli ára. Á Skúlagötu 4 eru þessi frá-
vik milli mælinga (týndur þorskur)
metin með eftirfarandi faglegum
hætti:
Fíni gagnagrunnurinn er látinn
endurreikna fyrri mælingar áranna á
undan. Smáþorskur sem hrygnir á
undan áætlun og drepst, er reiknað-
ur uppá nýtt í gagnagrunninum – að
sá smáþorskur sem vantar hafi aldrei
verið til !!! – þótt hann hafi mælst til
fyrir 2-3 og 4 árum og þannig verður
til „ofmat“ ... Síðasta mæling er sú
eina rétta en hinar vitlausar og ... all-
ir trúa því!
Hækkaður
dánarstuðull?
Stranglega er gætt að því að ekki
sé ræddur sá möguleiki að dánar-
stuðull hafi hækkað úr áætluðum
20% í allt að 40% vegna offriðunar
(fæðuskorts) og það sé hin rökrétta
skýring á „týndum“ þorski í dag.
Það er þó búið að viðurkenna (að
einhverju leyti) að slíkt hafi gerst við
Labrador við 20% veiðiálag þar sem
þorskstofninn hrundi úr hor við til-
raunina ... en bannað er að trúa öðr-
um en „viðurkenndum vísindamönn-
um“ og ... allir trúa því!
Niðurstaða
Niðurstaðan er að allir trúa „við-
urkenndum vísindamönnum“, sem
hafa farið á hlýðninámskeið í vitlaust
forrituðum gagnagrunni. Alþjóða-
hafrannsóknaráðið í Kaupmanna-
höfn hefur fengið yfirþjóðlegt vald
yfir öllum útreikningsaðferðum á
Skúlagötu 4 (án samþykkis Alþingis)
og ritskoðar árlega útreikninga
gagnagrunnsins áður en það má
birta „álit Hafrannsóknastofnunar“
um stærð þorskstofnsins hérlendis!
Að þessu leyti hefur vald um
aflahámark í þorski verið framselt til
Kaupmannahafnar, þrátt fyrir sí-
gilda umræðu um fullt og óskorað
vald Íslendinga yfir fiskimiðunum.
Reynslan af því að framselja ráðgjöf
og útreikninga til Alþjóðahvalveiði-
ráðsins er líka svo yndisleg fyrir-
mynd og ... allir trúa því!
Lítil fórn!
Áframhaldandi staurblind notkun
gagnagrunnsins, sem er ritskoðaður
í Kaupmannahöfn, getur vart annað
en eyðilagt flest smærri sjávarþorp á
Íslandi.
Er forsvaranlegt að fórna þessum
samfélögum og tilheyrandi verðmæt-
um og menningu á altari þessa „vís-
indalega“ gagnagrunns? Kannski
bara vegna þess að það er líka búið
að reikna það út í fiskihagfræði í Há-
skóla Íslands, byggt á gagnagrunn-
inum, að fórn á þessum blessuðum
sjávarþorpum sé bara skítur á priki,
miðað við alla „hagræðinguna“ sem
fæst og ... allir trúa því!
Fiskveiðistjórnun
Áframhaldandi staur-
blind notkun gagna-
grunnsins, sem er rit-
skoðaður í Kaup-
mannahöfn, segir
Kristinn Pétursson,
getur vart annað en
eyðilagt flest smærri
sjávarþorp á Íslandi.
Höfundur rekur fiskverkun í litlu
sjávarþorpi – kristinn@gunnolfur.is.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 39
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
2
00
2
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opið: mán. - fös. frá kl. 10-18
Lokað á laugardögum í sumar
HVAÐ ER LANGT SÍÐAN ÞÚ.... Í ....
.....SVAFST SVONA VEL ?.....
Júnítilboð á stillanlegum rúmum
með Tempur heilsudýnunni
Stillanlegur
hnakkapúði
Teppasett
á miklum afslætti
í júní
Lúxus
hægindastólar
10-20% afsláttur
G r a v i t y Z e r o
Horft á HM
SofiðUnnið Morgun-
matinn
Slappað af Lesið
Uppskrift
að góðri helgi
1 stk. agúrka
1 dós hreint jógúrt
1 stk. hvítlauksgeiri
sjávarsalt
nokkrar strengjabaunir til skreytingar (má sleppa)
Sneiðið agúrkuna niður og fjarlægið kjarnann.
Stráið saltinu yfir, látið standa í 5 mín. og skolið
síðan gúrkuna. Saxið hvítlaukinn fínt og blandið
saman við jógúrtið. Raðið gúrkusneiðunum á
disk, hellið jógúrtsósunni yfir (skreytið með
strengjabaunum ef vill) og látið standa í hálfa til
eina klst. í kæli.
Með því að strá grófu salti yfir gúrkuna og láta
standa í stutta stund verður gúrkan stökk. Gott er
að nota agúrkur sem nasl fyrir börnin á milli mála.
Gúrkuturnar „tzatziki“
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
G
RA
1
80
33
06
/2
00
2
- alltaf 1/3
Hafðu hollustuna með
Íslenskt grænmeti