Morgunblaðið - 30.06.2002, Page 26
LISTIR
26 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Stærðfræðinámskeið
fyrir þá sem eru að byrja í háskóla
Tilgangur námskeiðsins er að undirbúa þátttakendur undir
árangursríkt háskólanám. Farið er vandlega yfir öll mikilvægustu
atriðin í námsefni framhaldsskólanna og algeng verkefni leyst.
Aðaláherslan er lögð á
algebru, lausn jafna, teikningu falla og diffrun og heildun.
Námskeiðið hefst laugard. 6. júlí og lýkur laugard. 10. ágúst.
Kennt er alla laugardaga frá kl. 9-12.30.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 551 5593.
Vertu með og tryggðu þér forskot!
Vel menntaðir og vanir kennarar.
Tölvu- og stærðfræðiþjónustan
Brautarholti 4a, Reykjavík.
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
S t u r t u k l e f a r
FYRSTU Sumartónleikarnir í Ak-
ureyrarkirkju verða haldnir eftir
viku, 7. júlí, en þetta er sextánda
sumarið sem efnt er til tónleikarað-
ar í kirkjunni.
Tónleikaröðin gekk fyrstu tólf
árin undir nafninu Sumartónleikar
á Norðurlandi og var þá efnt til tón-
leika í þremur kirkjum, Akureyr-
arkirkju, Húsavíkurkirkju og
Reykjahlíðarkirkju í Mývatnssveit.
Síðan færðu menn úr kvíarnar og
buðu einnig upp á tónleika í
kirkjum víða um Norðurland. Síð-
ustu ár hefur tónleikaröðin gengið
undir nafninu Sumartónleikar í Ak-
ureyrarkirkju. Björn Steinar Sól-
bergsson, organisti Akureyr-
arkirkju og listrænn stjórnandi
Sumartónleika í Akureyrarkirkju,
er ásamt Margréti Bóasdóttur for-
sprakki tónleikanna, en þau áttu
það sameiginlegt að vera nýkomin
úr löngu tónlistarnámi í útlöndum,
kenndu bæði við Tónlistarskólann á
Akureyri og unnu saman að tónlist-
armálum. „Við vorum bæði á þess-
um tíma að velta fyrir okkur ein-
hvers konar tónleikahaldi að
sumarlagi og niðurstaðan varð sú
að til urðu Sumartónleikar á Norð-
urlandi. Fólk varaði okkur við og
sagði að það kæmi ekki nokkur
maður á tónleika á Akureyri yfir
sumartímann, þetta væri stein-
dauður tími. Við létum slíkt tal sem
vind um eyru þjóta. Vissulega fór
þetta hægt af stað, en aðsókn hefur
aukist jafnt og þétt og verið mjög
góð síðustu ár,“ sagði Björn Stein-
ar.
Aðsókn eykst ár frá ári
Hrefna Harðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Sumartónleika í Ak-
ureyrarkirkju, sagði að á síðustu 15
árum hefðu verið haldnir yfir 200
tónleikar, þar af nálægt 100 í Ak-
ureyrarkirkju. Flytjendur sem fram
hefðu komið skiptu hundruðum og
áheyrendur þúsundum. „Aðsóknin
hefur aukist ár frá ári og síðustu
tvö ár var hún mjög góð, en sem
dæmi má nefna að í fyrrasumar
voru frá 80 og upp í 400 manns á
tónleikunum,“ sagði Hrefna.
Björn Steinar sagði að hvarvetna
sem ferðafólk kæmi sæktist það eft-
ir að skoða kirkjur og þar væri Ak-
ureyrarkirkja engin undantekning.
Fjöldi fólks leggur þangað leið sína
þegar hún er opin yfir sumarið.
„Við litum frá upphafi svo á að það
væri þjónusta við ferðafólk að bjóða
upp á tónleika í kirkjunni. Stór hluti
tónleikagesta eru ferðamenn, inn-
lendir sem erlendir, og greinilegt
að þeir kunna vel að meta að geta
hlýtt á fallega tónlist um leið og
kirkjan er skoðuð,“ sagði Björn
Steinar.
Hrefna sagði margt ferðafólk,
einkum áhugafólk um tónlist,
gaumgæfa dagskrá Sumartón-
leikanna og miða ferðalög til Ak-
ureyrar við ákveðna tónleika.
Kynningarstarf væri nú á tímum
Netsins auðveldara og dagskráin
lægi nokkuð snemma fyrir.
Aukin áhersla lögð á orgelið
eftir endurbyggingu þess
Markmið Sumartónleikanna er
að bjóða gestum upp á fjölbreytta
og vandaða tónlistardagskrá í
kirkjunni að sögn Björns Steinars.
Hann sagði flytjendur áhugasama
um að koma fram á þessum tón-
leikum og oft kæmust færri að en
vildu. Flytjendur eru bæði íslenskir
og útlendir og iðulega hefur í
tengslum við tónleikahaldið orðið
til samvinna milli organistans í Ak-
ureyrarkirkju og hinna gestanna.
Þannig hefur Björn Steinar oft end-
urgoldið heimsóknir og haldið tón-
leika á heimaslóðum útlendu flytj-
endanna. „Sumartónleikarnir eru
eins konar krossgötur, við sýnum
hvað verið er að gera hér á landi og
fáum sýnishorn af því sem erlendir
tónlistarmenn eru að fást við,“
sagði Björn Steinar.
Hann sagði að eftir að orgel Ak-
ureyrarkirkju var endurbyggt árið
1995 hafi aukin áhersla verið lögð á
að bjóða upp á orgeltónleika og
verða tvennir slíkir í boði nú í sum-
ar.
Um 80 flytjendur koma
fram í sumar
Alls munu um 80 flytjendur koma
fram á tónleikunum í sumar.
Fyrstu tónleikarnir verða sunnu-
daginn 7. júlí og hefjast þeir kl. 17.
Þá syngur Tritonus-kórinn frá Dan-
mörku undir stjórn Johns Höybys
en hann stofnaði kórinn árið 1971.
Kórinn hefur til margra ára verið
fremstur í flokki danskra kóra og
flytur hann verk frá sígildum tíma
til nútímaverka. Kórinn hefur unnið
til fjölda verðlauna og hið sama má
segja um kórstjórann.
Björn Steinar leikur á öðrum tón-
leikum sumarsins, sem verða 14.
júlí, og næsta sunnudag þar á eftir
komu þýskir flytjendur í heimsókn.
Þetta eru þau Judith Backer, flauta,
og Wolfgang Portugall, orgel. Dan-
ir verða aftur á ferðinni á fjórðu
tónleikunum, en það eru þau Nina
Jeppesen, horn, og Marie Ziener,
orgel. Susan Landale, orgelleikari
frá Frakklandi, leikur svo á loka-
tónleikum Sumartónleika, en þeir
verða 4. ágúst.
Hæft tónlistarfólk
hvert á sínu sviði
„Dagskráin verður fjölbreytt í
sumar, boðið verður upp á org-
eltónleika og þá verður leikið á
flautu og horn auk þess sem öflugur
kórsöngur verður í boði,“ sagði
Björn Steinar. Hrefna sagði að tón-
listarfólkið ætti það sameiginlegt
að vera mjög hæft hvert á sínu sviði.
„Þetta er allt mjög hæft tónlist-
arfólk og tónlistin spannar nánast
alla tónlistarsöguna,“ sagði Hrefna,
en m.a. mun danski kórinn Tritonus
frumflytja nýtt íslenskt tónverk eft-
ir Tryggva Baldursson og þá má
nefna að Björn Steinar mun á sínum
tónleikum eingöngu flytja verk eft-
ir M. Durufle og minnast þar með
100 ára afmælis hans. „Ég tel að
áheyrendur muni eiga góðar stund-
ir í vændum í kirkjunni og vona að
þeir njóti þess sem við bjóðum
uppá,“ sagði Björn Steinar.
Aðgangur að Sumartónleikum í
Akureyrarkirkju er ókeypis en
gestum gefst kostur á að styrkja
framtakið með frjálsum fram-
lögum. Menntamálaráðuneytið, Ak-
ureyrarbær og peningastofnanir í
bænum, Sparisjóður Norðlendinga,
Íslandsbanki, Landsbanki og Bún-
aðarbanki, auk Greifans og Gulu
villunnar styrkja Sumartónleikana.
Áttatíu flytjendur á Sumartónleikum í Akureyrarkirkju sem haldnir eru í 16. sinn
Markmiðið að
bjóða gestum
vandaða tónlist-
ardagskrá
Morgunblaðið/Kristján
Hjónin Hrefna Harðardóttir og Björn Steinar Sólbergsson á þaki Safnaðarheimilis Akureyrarkirkju.
Um 80 flytjendur koma fram á Sumartónleikum
í Akureyrarkirkju á fimm tónleikum í sumar.
Margrét Þóra Þórsdóttir blaðamaður forvitn-
aðist um sögu Sumartónleikanna og dagskrána í
sumar hjá Birni Steinari Sólbergssyni organista
og Hrefnu Harðardóttur framkvæmdastjóra.
ÉG VIÐURKENNI að ég hló nú
stundum. Mér fannst gervilimaslag-
urinn góður og leikarinn Harland
Williams fannst mér mjög fyndinn
með sinn aulahúmor og yfirgengi-
lega einlægni.
Myndin er þó engan veginn frum-
leg né heldur góð. Söguþráðurinn er
óskaplega skrykkjóttur, persónurn-
ar hvimleiðar, sagan ótrúverðug,
flest atriðin einnig, auk þess að vera
gömul og þreytt lumma.
Strákar sem eru algjörar rembur
lenda í því að þeim er hent út úr
bræðrafélagshúsinu þeirra fyrir
meintan stuld á peningum. Til að
sanna sakleysi sitt neyðast þeir til
þess að klæðast kvenmannsfötum og
búa í systrafélagshúsi. Þar læra þeir
af reynslunni að „ljótar stelpur“ eru
líka fólk.
Kvenfólki í þessari mynd er skipt
í tvo hópa. Annaðhvort eru þær
brúnar klappstýrur með sítt ljóst
hár, gervineglur og gervibrjóst, til-
kippilegar og góðar í rúminu, en
„auðvitað“ heimskar. Ef ekki eru
þær ljótar með skegg og brúska
undir höndunum, talgalla, ofvaxnar
og gallharðir feministar í þokkabót.
Hjálp!
Þetta er í raun alger strákamynd,
því meiri hluti húmorsins gengur út
á að gera grín að hvernig strákar sjá
stelpur í svart/hvítu, dæma þær, tala
um þær og draumórana sem þeir
hafa um þær. Þeir fá svolítið á kjaft-
inn og geta hlegið að sjálfum sér um
leið. Samt fá þeir líka sinn skerf af
blautum bolum og berum brjóstum
þannig að það eina með einhverju
smáviti í þessari annars afskaplega
vitlausu mynd fellur um sjálft sig og
myndin fellur niður á lægsta plan.
Hildur Loftsdóttir
Af vitleysingum
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjórn: Wallace Wolodarsky. Handrit:
Joe Jarvis, Greg Coolidge. Kvikm.t: Mich-
ael D. O’Shea. Aðalhlutv.: Barry Watson,
Michael Rosenbaum, Harland Williams
og Melissa Sagemiller. 93. mín. Banda-
ríkin. Touchstone Pictures 2002.
SORORITY BOYS / SYSTRAFÉLAGS-
GAURARNIR