Morgunblaðið - 30.06.2002, Page 30
AFMÆLI
30 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÉG SKAL játa að égfylgdist lítið með þeirrideilu sem risið hafðimilli formanns Byggða-stofnunar og forstjóra
þessarar sömu stofnunar. Mein-
ingamunur um ákvarðanir og
stjórnsýslu, valdabarátta milli
tveggja ráðríkra einstaklinga.
Eitthvað sem mundi leysast af
sjálfu sér. Enda hafa ríkistofnanir
þann eiginleika að geta kyngt
svona rifrildum innan í kerfinu,
þaggað þau niður
eða haldið þeim í
skefjum, sam-
kvæmt því viðhorfi
að ríkisstofnanir
eru einkamál
þeirra, sem þar
vinna, og almenn-
ingi óviðkomandi,
eftir því sem kaup-
in hafa gerst á eyr-
inni, svo lengi sem
elstu menn muna.
Bréfin sem fóru
á milli ráðherra og
forstjórans fóru
fyrir ofan garð og
neðan hjá mér og
sjálfsagt fleirum, enda þótt þau
væru birt á breiðsíðum Moggans.
Ráðherrann var að senda forstjór-
anum áminningarbréf, forstjórinn
að svara fyrir sig. Fyrir lá að for-
maður Byggðastofnunar var ekki
par sáttur við
vinnubrögð for-
stjórans, þann-
ig að mörg spjót
stóðu á þeim
góða manni.
Svo gerist
það einn, tveir og þrír, að út er gef-
in fréttatilkynning um að bæði for-
stjórinn og formaðurinn hætti
störfum hjá Byggðastofnun og for-
stjórinn semur um starfslok. Og
það var þá sem ég hrökk við og las
tvisvar. Ráðherrann hafði skrifað
undir samkomulag við þennan
áminnta forstjóra, þess efnis, að
hann léti af störfum en fengi í stað-
inn full laun í tvö ár og jafnvel þótt
hann fengi annað starf í millitíð-
inni! Fríðindum heldur hann að
mestu, að sagt er.
Ráðherrann var spurður um
þennan óvanalega stafslokasamn-
ing og þá eru höfð eftir henni þessi
fleygu orð: „Þetta var stórmann-
leg ákvörðun“.
Hvorki meira né minna.
Bíddu nú við, hugsaði ég. Mað-
urinn sem ekki gat unnið með for-
manninum; maðurinn sem fékk
áminningarbréf frá ráðherranum;
maðurinn sem fær hálfa milljón á
mánuði fyrir að hætta að starfa hjá
stofnuninni sem greiðir honum
launin; maðurinn sem samtals fær
fimmtán milljónir í bætur fyrir að
plaga formann Byggðastofnunar
og ráðherrann og þá væntanlega
skjólstæðinga ráðherrans og
stofnunarinnar, hann er allt í einu
orðinn að stórmenni!!
Út um allan bæ er verið að segja
upp fólki, jafnt í opinbera geir-
anum sem hjá einkafyrirtækjum.
Menn kallast góðir ef þeir fá laun á
meðan á uppsagnafrestinum
stendur. Þeir sem brjóta af sér í
starfi fá ekkert. Og sárast er þó að
missa vinnuna, verða fyrir því
skipsbroti og áfalli að vera kall-
aður inn á teppi forstjóranna, til að
taka við uppsagnarbréfi. Yfirleitt
með kökk í hálsinum og kvíða í
maganum. Hvað tekur við? Hvern-
ig get ég haldið andlitinu?
Launþegar eru alla jafna fyrstu
fórnarlömbin, þegar gróðinn
minnkar, þegar framleiðslan
dregst saman, þegar hagsmunir
hluthafanna eru teknir fram yfir
starfsheiður og hollustu gagnvart
starfsfólki. Sorry, sir.
En þetta á ekki við manninn
sem hætti hjá Byggðastofnun.
Hann getur labbað hnarreistur út
af kontórnum sínum. Hann heldur
laununum, hann heldur fríðind-
unum, hann fær þann vitnisburð
hjá sjálfum ráðherranum, að það
hafi verið stórmannleg ákvörðun
að samþykkja starfslok sín.
Hvað skyldu þeir vera kallaðir
og titlaðir af ráðherranum, sem
missa sína vinnu og eru reknir út á
Guð og gaddinn? Án sárabóta, án
starfsloka, án framtíðar.
Varla hefur forstjórinn gert
kröfu til þess að verða titlaður
stórmenni í kveðjuskyni og ekki
við hann að sakast, enda var það
ráðherrann sem fann upp á þeirri
lýsingu. En hvað skyldi nú ráð-
herrann hafa haft í huga, þegar
hún lofar og prísar embættis-
manninn fyrir þann höfðingskap
að þiggja starfslokasamning, til að
ráðherrann gæti losað sig við
óþekktarorminn? Um hvað er
þessi hæstvirti ráðherra yfirleitt
að hugsa? Þetta er sami ráð-
herrann og hljóp í skarðið sem
ræðumaður á sjómannadaginn,
þegar útgerðin og lénsherrarnir
höfðu lýst frati á auman þing-
manninn frá vinstri grænum; þeg-
ar skoðanakúgun var beitt í krafti
peningavaldsins og ráðherrann
gekk í ræðustól með þeim ummæl-
um, að nú væri nóg komið af deil-
um um fiskveiðistjórn. Hún beygði
sig sem sagt í duftið til að þóknast
skoðanakúguninni og gerðist auð-
mjúkur málaliði fyrir þá sem telja
sig eiga landið og miðin.
Annaðhvort er þessi stór-
mennska öll til komin, vegna þess
að ráðherrann er veruleikafirrtur
eða vegna þess að stórmenni nú-
tímans eru annarrar gerðar, en
þau stórmenni sögunnar, sem
standa undir nafni.
Það er kannske gott dæmi um
nýjustu útgáfuna af stórmennum
veraldarinnar, að kínverski forset-
inn samþykkir að heimsækja Ís-
land, með því skilyrði að mannrétt-
indi séu fótum troðin, meðan hann
dvelur hér. Og stórmennskan reið
ekki við einteyming í þeim farsa.
Íslensk stjórnvöld ákváðu að
leggja niður skottið og lúta hinum
kínversku afarkostum, sjálfsagt
vegna þess að það er meir upp úr
því hafandi að leggjast flatur fyrir
mikilmennin, heldur en að lifa í
sátt við réttlætið og réttindin.
Kínverski forsetann er áreið-
anlega mikið stórmenni. Það eru
þeir einnig útgerðarkapparnir,
sem lýstu frati á þingmannsræfil-
inn, sem fékk ekki að flytja ræð-
una. Og ráðherrann sem hljóp í
skarðið.
Allt er þetta ennþá skringilegra
fyrir þá sök að hlutaðeigandi ráð-
herra hefur hingað til verið dag-
farsprúður og jarðbundinn stjórn-
málamaður.
En mesta stórmennið er þó
embættismaðurinn áminnti, sem
féllst á að láta af störfum, eftir að
ráðherrann hafði lofað honum
fimmtán milljónum fyrir að gera
ekki neitt. Það er ekki til einskis að
vera til vandræða í vinnunni.
Stórmennin
allt um kring
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Ellert B.
Schram
Þegar Guðmundur
Ingvi Sigurðsson lög-
maður fæddist 16.
júní 1922 varð systir
hans Þórunn óhugg-
andi. Báðir foreldrar
hennar höfðu sagt
henni að nú myndi
hún ef til vill eignast
systur, en þegar í ljós
kom að hún hefði
eignast bróður grét
hún viðstöðulaust.
Hún vildi ekki einu
sinni líta á þetta
barn. Móðir hennar
gat ekki sofið vegna
þess að hún hrein svo mikið. Pabbi
hennar tók þá það ráð að hringja í
Huldu Stefánsdóttur, vinkonu
þeirra, og biðja hana að hafa Þór-
unni í einn eða tvo daga meðan
hún væri að jafna sig. Þórunn var
ákaflega hrifin af Huldu og hélt
mikið upp á hana. Hulda kom og
sótti stelpuna og hjá henni var
Þórunn í tvo daga. Svo þegar hún
kom heim aftur og var látin horfa
á þennan bróður sinn bráðnaði hún
alveg. Henni fannst hann svo fal-
legur og vissi strax að hann væri
bestur af öllum. Henni var nú al-
veg sama þó aðþetta væri ekki
stelpa. Alla tíð hefur hún elskað
þennan bróður sinn sem margir
hafa leitað til í gegnum árin. Hann
hefur sjálfur kosið að kalla hlut-
verk sitt í starfi sem græðara,
þess sem hjálpaði mönnum í ógæfu
að finna ljós í myrkri vonleysis,
þegar ekkert virtist framundan
nema óhamingja.
Ólafur var elsti bróðir Þórunnar,
f. 1915, fyrrverandi yfirlæknir á
Akureyri, en hún er næstelst fædd
30. júní 1917. Arnljótur fæddist í
desember en lést þrem mánuðum
síðar. Síðan fæddist Örlygur 1920
og var Þórunn einna líkust honum
í skapi á bernskuárunum, að henn-
ar sögn. Á fimmta ári fluttist Þór-
unn með foreldrum sínum og
bræðrum til Akureyrar, þar sem
þau bjuggu alla tíð í húsi mennta-
skólans. Guðmundur Ingvi fæddist
því á Akureyri og er honum sá
bær mjög kær og afkvæmi hans
alin upp í mikilli aðdáun á þessum
höfuðstað Norðurlands. Yngstur
var Steingrímur, fæddur 1925.
Elsti og yngsti bróðir Þórunnar
eru báðir látnir. Þórunn eignaðist
aldrei systur og varð löngum að
láta sér nægja að leika við bræður
sína. Hún varð því eins og strákur
og það var ómögulegt fyrir hana
að eiga dúkkur í friði. Örlygur
skar upp fallegustu dúkkuna henn-
ar, gerði gat á magann á henni til
að sjá hvort eitthvað væri inni í
henni og eyðilagði hana alveg.
Dúkkurúminu sem hún átti, sem
var ljómandi fallegt, hentu bræður
hennar niður af svölunum bak-
dyramegin og það mölbrotnaði í
spað. Þá hugsaði hún sem svo að
það þýddi ekkert að vera að reyna
að leika sér eins og stelpur gerðu
og fór að hamast með bræðrum
sínum.
Minnstur í sér af öllum bræðr-
unum var Grímur. Hann þorði
aldrei á klósettið einn og þurfti
Þórunn alltaf að fylgja honum og
bíða eftir honum. Það þurfti að
fara niður í kjallara og í gegnum
garðhýsi til að komast á klósettið
og Grímur var allatíð dauðhrædd-
ur og hélt að væru draugar í
hverju skoti. Þórunn var orðin
hundleið á þessu og einhverju
sinni reif hún upp hurðina, þar
sem hann var á klósettinu, skellti
honum ofan í klósettskálina, þar
sem hann sat og sturtaði niður,
þannig að hann fékk góða gusu yf-
ir neðri endann. Upp frá því slapp
hún frá þessu hlutverki og var
ekki beðin aftur að fylgja honum.
Margir þekkja eða þekktu bræð-
ur Þórunnar en ástæðan fyrir því
að hún er ekki vel þekkt á Íslandi
er að hún hefur búið síðastliðin 60
ár í Englandi, þangað sem hún
flutti með manni sínum, Anthony
Tunnard, árið 1942. Hún kynntist
honum á Akureyri, þar sem hann
hafði verið sendur þangað sem
hermaður á stríðsárunum. Hann
var lögfræðingur að mennt og ein
af rökum föður hennar gegn því
að hún giftist manninum var að
lögfræðingar væru almennt svo
leiðinlegir. Engin bönd héldu
henni þó eftir það og föður henn-
ar og fjölskyldu allri til mikillar
sorgar giftist hún honum og flutti
af landi brott. Hann reyndist
henni góður eiginmaður og eign-
uðust þau 3 mannvænleg börn.
Örlygur bróðir hennar var við
nám í Bandaríkjunum um það
leyti sem Þórunn giftist, fluttist
út og eignaðist sitt fyrsta barn.
Hann skrifaði henni 11. ágúst
1943 frá Los Angeles:
„ … Þó að gifting þín hafi ekki
fengið eins á mig og pabba og aðra
meðlimi fjölskyldunnar ættir þú
sízt að taka illa upp fyrir mér þó
að ég hafi sýnt þér slíkt sinnuleysi
við bréfaskriftir síðan þú yfirgafst
fósturjörðina og giftist erlendum
manni, en þannig hljómaði kafli úr
bréfi frá þér til mín dagsett 8.4.
’42 . „Blessaður húktu heldur einn
á þínum bedda – kæri mig ekki um
amerískt mágkvendi“. Get ég nú
glatt þig á að ekki hefi ég gifst
amerískri ennþá og geri naumast
ráð fyrir slíku þó að nógir séu
„chansarnir“.
Persónulega hefi ég ekkert á
móti bónda þínum heldur þvert á
móti lýzt hann hraustlegur og lík-
legur til að reynast þér góður og
trúr eiginmaður og vona ég að
hjónabandið fari sem bezt og þið
eignist mannvænleg börn, sem
kunna að tala íslenzku.
Hins vegar hefi ég ástæðu til að
harma, að þú þurftir að yfirgefa
ættjörðina og tunguna, ekki þín
vegna heldur okkar vegna, foreldr-
anna og okkar bræðranna, sem
unnum þér svo mjög – þú varst
alltaf sólargeislinn í fjölskyldunni
góð, fyndin og skemmtileg. Hörm-
um við því bræðurnir og pabbi og
mamma hversu við eigum eftir að
sjá lítið af þér á lífsleiðinni. En
vonandi kemur þú sem oftast heim
til Íslands og einnig vona ég að við
getum einhvern tímann heimsótt
þig, að minnsta kosti við bræð-
urnir.
Þó að þú hafir gifst erlendum
manni finnst mér, að við bræð-
urnir ættum ekki að fara að dæmi
afa sáluga og skrifa þér ekki þó að
okkur væri hollt að taka hann okk-
ur til fyrirmyndar í flestu tilliti en
hann skrifaði aldrei Ragnhildi
systur sinni línu eftir að hún gift-
ist til Ameríku að því að er hún
sagði mér, en þeim kom samt allt-
af bezt saman af systkinunum.
Finnst mér að hyggilegra og skyn-
samlegra sé að fara að dæmi Egg-
erts á Meðalfelli, sem skrifar syst-
ur sinni ennþá þó að hann sé
lagstur í kör.“
Í þessu bréfi ásamt fleirum
kemur fram hversu kært var alla
tíð með þeim systkinum. Örlygur
gerði sér lítið fyrir eitt sinn í jan-
úar 1951 er hann skrifaði systur
sinni og teiknaði, með penna, heilu
fjölskyldumyndirnar sem birst
höfðu í bókinni „Föðurtún“ eftir
Pál Kolka lækni og fjallaði um
Húnvetninga. Meðal annarra voru
þar myndir af afa þeirra og ömmu,
sem Guðmundur Ingvi er skírður í
höfuðið á. Segir sagan að svo kalt
hafi verið milli þeirra feðga Sig-
urðar föður þeirra og Guðmundar
Erlendssonar að hann hafi verið
staðráðinn í því að skíra ekki syni
sína í höfuðið á föður sínum vegna
ósættis þeirra. En þegar Guð-
mundur dó 2. mars 1922, 72 ára,
lagðist kona hans Ingibjörg Guð-
rún Sigurðardóttir í rúmið og
kvaddi þennan heim 4 dögum eftir
andlát hans 6. mars 1922, 73 ára.
Þau fóru saman í eina gröf. Þetta
leiddi til þess að Guðmundur Ingvi
var skírður í höfuðið á þeim báð-
um. Átti hann eftir að afsanna síð-
ar meir þá alhæfingu föður síns að
lögfræðingar væru almennt svo
leiðinlegir menn.
Í tilefni stórafmæla þeirra
beggja, Þórunnar 85 ára 30. júní
og Guðmundar Ingva 80 ára 16.
júní heldur Guðmundur Ingvi þeim
stórveislu á Íslandi. Húrra fyrir
afmælisbörnunum og megum við
vonandi sem flest njóta samvista
við þau áfram um mörg ókomin ár.
Guðrún Jónsdóttir,
Chatou, Frakklandi.
ÞÓRUNN SIGURÐAR-
DÓTTIR TUNNARD
OG GUÐMUNDUR
INGVI SIGURÐSSON
Vandaðar heimilis-
og gjafavörur
Kringlunni 4-12 - sími 533 1322
Oval Steel
hnífapör og steikarsett
Begga fína
Meðgöngubuxur
margar gerðir og litir
Póstsendum, Þumalína
Tannstönglabox
Verð kr. 2.590
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mánudag-föstudag 11-18,
laugardag 11-15