Morgunblaðið - 30.06.2002, Síða 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Á SJÖUNDA áratugnum hrifust
bresk ungmenni af tónlist banda-
rískra blökkumanna og fjölmargir
tóku til við að
herma eftir
henni. Það bar
misjafnan ár-
angur eins og
gengur en úr
varð blúsaður
rokkbræðingur
sem gerði Bret-
land að höf-
uðvígi rokksins
og er svo að
mörgu leyti enn.
Meðal þeirra
sem vildu syngja
blús var Robert
Plant sem var í
hljómsveit með John Bonham
félaga sínum. Þeir urðu síðar
heimsfrægir þegar þeir Jimmy
Page og John Paul Jones báðu þá
að stofna með sér hljómsveit sem
fékk nafnið Led Zeppelin.
Led Zeppelin varð helsta rokk-
sveit síns tíma og að sumra mati
allra tíma. Alls
starfaði sveitin í
tólf ár, frá 1968
og þar til John
Bonham drakk
sig í hel 1980.
Síðan hafa þeir
félagar fengist
við sitthvað tón-
listartengt en
enginn verið
eins duglegur
við að gefa út
plötur og Ro-
bert Plant sem
sendir frá sér
sjöundu sóló-
skífuna á næstu dögum, Dream-
land.
Byrjað á blús
Þeir Bonham og Plant spiluðu
aðallega blús, en þeir voru líka á
kafi í bandarískri þjóðlagatónlist,
sem var á þeim tíma nátengd
blúsnum og sum býsna sýruskotin.
Allt rifjast þetta upp þegar hlustað
er á sólóskífuna nýju, því á henni
tekur Plant gamla blúsa eins og
„Fixin’ To Die“ eftir Bukka White,
„Morning Dew“, sem menn þekkja
ýmist í búningi Jeff Beck eða
Grateful Dead, Dylan-lagið „One
More Cup Of Coffee“, „Song For
The Siren“ eftir Tim Buckley, sem
þekkast er í búningi This Mortal
Coil, hrynblúsinn „Win My Train
Fare Home“ eftir Arthur „Big
Boy“ Crudup, „Darkness, Dark-
ness“ eftir Jesse Colin Young,
„Hey Joe“, sem til er í flutningi
Love, The Byrds og Jimi Hendrix,
en segja má að sá síðarnefndi hafi
gert lagið að sínu, og loks „Skip’s
Song“ eftir Skip Spence, liðsmann
Moby Grape, en sveitin tók lagið í
öðrum búningi og kallaði það
„Seeing“.
Flytjendur með Plant er ný
hljómsveit hans sem hann kallar
Strange Sensation og setti saman
seint á síðasta ári. Liðsmenn auk
Plants eru gítarleikarinn Porl
Thompson, fyrrum Cure-liði sem
leikið hefur með Plant áður líkt og
bassaleikarinn, Charlie Jones,
Clive Deamer á trommur, John
Baggott á hljómborð og einn gít-
arleikari til, Justin Adams. Þrjú ný
lög eru á disknum, sem skrifuð eru
á Plant og félaga hans í Strange
Sensation. Hann segir að fimm til
sex lög hafi orðið til þegar þeir
voru að undirbúa plötuna.
Langur aðdragandi
Plant segir plötuna nýju meðal
annars afleiðingu samstarfs hans
og Page fyrir átta árum eða svo
þegar þeir tóku upp þráðinn þar
sem frá var horfið með Led
Zeppelin og leyfðu sér allskyns til-
raunamennsku með útsetningar og
hljóðfæraskipan. Í þeirri sam-
starfslotu, sem skilaði
meðal annars breið-
skífunni No Quarter,
tóku þeir gamla
Zeppelin-slagara og
breyttu umtalsvert og
álíka fara Plant og
Strange Sensation
með gömlu lögin á
disknum nýja, auk
þess sem nýju lögin
eru venju fremur fjöl-
breytt að útsetningu.
Hann byrjaði þó á
plötunni, ef svo má
segja, með annarri
sveit, Priory of Brion,
sem hann stofnaði
með Kevyn Gammond,
en sá lék með honum
og Bonham í hljóm-
sveitinni Band Of Joy
áður en þeim var boð-
ið í Yardbirds / Led
Zeppelin. Priory of
Brion lék á nokkrum
tónleikum og tók þá
fyrir lög eftir ýmsa höfunda, en
lognaðist útaf á endanum þó hug-
myndin hafi haldið velli.
Flest laganna sem enduðu á
plötunni, og reyndar líka flest sem
ekki hlutu náð fyrir eyrum Plants,
eru í eldri kantinum enda segir
Plant að flest þeirra hafi hljómað í
höfði sér í á fjórða áratug, aðallega
blúsinn sem hafi laðað hann að
tónlist á sínum tíma. „Led Zeppel-
in var blússveit með miklu af gít-
arspuna í blússkölum, en að þessu
sinni langaði mig að nálgast lögin
úr annarri átt, að flytja þau sem
þau væru nýsamin nútímaleg lög.
Það má svo ekki gleyma því að á
árum áður voru menn ekki feimnir
við að taka fyrir lög úr ólíkum átt-
um og af ólíkri gerð svo ég er að
fara troðna slóð að því leyti. Lögin
sjálf eru mörg svo vel samin og
laglínur svo fallegar að ég fæ svig-
rúm til að syngja sem aldrei fyrr,
að hafa röddina mun framar en
forðum.“
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Robert Plant
syngur blús
Breska söngvarann Robert Plant þekkja flestir aðeins
sem fyrrverandi liðsmann Led Zeppelin. Plant hefur þó
verið býsna iðinn við kolann eftir að Zeppelin lagði
upp laupana fyrir tveimur áratugum og á dögunum
kom út sjöunda sólóskífa hans, Dreamland. Robert Plant og félagar hans í Strange Sensation.
Robert Plant