Morgunblaðið - 30.06.2002, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
hér sérðu
debetkort, skólaskírteini, afsláttarkort
og alþjóðlegt stúdentaskírteini.
4kort
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segir mjög sérstakt að sendiherra
Evrópusambandsins hafi ráðist „með
þjósti“, eins og hann orðar það, á for-
sætisráðherra sjálfstæðs ríkis. Sendi-
herra Evrópusambandsins á Íslandi
og í Noregi sagði í útvarpsviðtali í vik-
unni að ummæli forsætisráðherra, í
Morgunblaðinu um síðustu helgi, um
að Evrópusambandið væri ólýðræð-
islegt skriffinnskubákn, væru vart
svaraverð.
Ummælin sem vöktu viðbrögð Ger-
hards Sabathil, sendiherra fasta-
nefndar framkvæmdastjórnar ESB
fyrir Ísland og Noreg, og birtust í
Morgunblaðinu síðasta sunnudag eru
eftirfarandi: „Evrópusambandið er
eitthvert ólýðræðislegasta skrif-
finnskubákn, sem menn hafa fundið
upp, og það er mjög þýðingarmikið að
reyna að breyta því þegar bandalagið
stækkar.“
Í fréttum Ríkisútvarpsins á
fimmtudag sagði Sabathil að yfirlýs-
ing Davíðs væri mjög hörð í ljósi þess
að lýðræði innan Evrópusambandsins
hefði aukist til muna síðustu tvo ára-
tugi enda væru aðildarríkin fimmtán
án nokkurs vafa rótgróin lýðræðis-
ríki. Undarlegt væri að Ísland skrif-
aði undir samninga við svo ólýðræð-
islega stofnun.
„Mér finnst mjög sérstakt að sendi-
herra í einhverju landi ráðist með
þjósti að forsætisráðherra viðkom-
andi ríkis. Það er algjörlega óþekkt.
Það segir manni að fyrst þeir gera
það með forsætisráðherra sjálfstæðs
ríkis hvernig þeir myndu haga sér ef
landið væri komið inn í raðir þessa
sambands. Þá gætu þeir nú heldur
betur talað til þess. Að vísu hef ég séð
til þessa sendiherra áður hluti sem
eru með miklum ólíkindum. Þannig að
það kann út af fyrir sig ekki að koma
sérstaklega á óvart,“ segir Davíð. „Ef
hann þekkir ekki það sem menn kalla
almennt í Evrópu lýðræðisvanda
Evrópusambandsins er hann gjör-
samlega úti að aka.“
Mun ekki hafa áhrif á
samskipti Íslands og ESB
Davíð segir það einnig afar sér-
stakt, sem sé óþekkt með öll sendiráð,
að þetta sendiráð eða sendiherra hafi
menn í vinnu til að reka áróður fyrir
inngöngu Íslands í Evrópusambandið
„sem er viðkvæmt, pólitískt deilumál
sem erlend sendiráð eigi ekki að
skipta sér af. En þetta sendiráð hikar
ekki við það að vera með afskipti af
slíkum hlutum og eru afskaplega
óviðfelldnir, svo ekki sé meira sagt,“
segir Davíð.
Forsætisráðherra segist ekki telja
að ummælin og viðbrögð sendiherr-
ans muni hafa áhrif á samskipti Ís-
lands og Evrópusambandsins í fram-
tíðinni. „Nei, þetta er vandamál þessa
manns. Ég trúi því ekki að það sé al-
menn stefna Evrópusambandsins að
sendiherrar hagi sér með þessum
hætti,“ segir hann.
Á fimmtudag voru stofnuð þver-
pólitísk samtök sem eru andvíg hugs-
anlegri aðild Íslands að ESB. „Þetta
eru samtök sem bersýnilega eru
stofnuð til mótvægis við önnur sam-
tök sem eru til í landinu, samtök Evr-
ópusambandssinna. Það er alltaf já-
kvætt að hafa mótvægi. Það skapar
heilbrigðar umræður og hvort sem
sendiráði eins og sendiráði Evrópu-
sambandsins líkar lýðræðislegar um-
ræður eða ekki þá líkar okkur það vel
hér,“ segir Davíð.
Davíð Oddsson um ummæli Gerhards Sabathil
Óeðlileg árás af
hálfu sendiherra
MJÓIFJÖRÐUR iðar bókstaflega af
lífi þessa dagana, þar hefur fyr-
irtækið Sæsilfur komið fyrir alls 18
kvíum fyrir laxeldi og er fiskur
kominn í sjö þeirra. Í fimm kvíum
sem sleppt var í síðasta sumar eru
nú um 200 þúsund laxar. Í tólf nýjar
kvíar í firðinum verður sleppt 1,2
milljónum laxa í sumar, að sögn
Ingólfs Sigfússonar eldisstjóra, og
hefur fiski þegar verið sleppt í tvær
þeirra.
Fjórir starfsmenn eru fastráðnir
hjá fyrirtækinu auk verkefnisstjóra
og bætast tveir starfsmenn við yfir
sumartímann. 31 íbúi býr í Mjóa-
firði og segir Ingólfur að heima-
menn hafi frá upphafi verið já-
kvæðir gagnvart þessu verkefni.
Sveitarfélagið hafi ákveðið að ráð-
ast í byggingu tveggja húsa við
Brekku sem verða leigð út til
starfsmanna Sæsilfurs.
Fyrirtækið hafi nýlega fengið
fóðurpramma sem sé í raun stór
fóðurlager á floti en hann gefur
fóður sjálfvirkt um slöngur sem
liggja í kvíarnar. Hann segist nokk-
uð ánægður með vöxt þess fisks
sem sleppt var í fyrra, hann sé stór
og myndarlegur. Slátrunin hefst í
haust og er ætlunin að fiskinum
verði slátrað jafnt og þétt yfir vet-
urinn.
Ingólfur segir að fiskurinn sé
tveggja ára gamall þegar hann fari
í sjóinn, fyrirtækið hafi fengið fisk
bæði frá Silfurstjörnu við Öxarfjörð
og Silungi á Reykjanesi. Helst vilji
hann að fiskurinn sé 200–800
grömm þegar honum sé sleppt.
Ekki sé búið að ákveða hvernig
fiskurinn verði fluttur til Neskaup-
staðar. Tvennt komi til greina, ann-
ars vegar að dæla honum lifandi um
borð og flytja hann sjóleiðis eins og
gert verði í framtíðinni, eða að
blóðga hann á staðnum og flytja í
körum í sláturhúsið. Slátrunin mun
fara fram í Neskaupstað og segir
Ingólfur að nú sé unnið að því að út-
búa sláturhús við nýja frystihúsið.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Alls eru átján kvíar fyrir laxeldi á Mjóafirði og hafa verið miklar annir í kringum eldið að undanförnu. Hér má sjá tvö skip á vegum Sæsilfurs á firð-
inum, sem ber hvort í annað. Aftara skipið er fóðurpramminn. Hesturinn fylgist með milli þess sem hann bítur sitt safaríka gras.
Mjóifjörður
iðar af lífi
SAMHERJI og tengd fyrirtæki eru
nú með starfsemi á 14 stöðum á land-
inu. Þetta kemur meðal annars fram
í viðtali Morgunblaðsins við Þorstein
Má Baldvinsson, forstjóra Sam-
herja. Skip Samherja eru 11 en skip
tengdra fyrirtækja 14. Þorsteinn
Már segir frekari landvinninga ekki
á döfinni. Nú snúist málið um að
verja þær fjárfestingar, sem farið
hefur verið í.
Hálfur milljarður í laun
til sjómanna á einu skipi
Þorsteinn Már segir það nauðsyn-
legt fyrir íslenzkan sjávarútveg að
búa við stöðugleika og að hægt sé að
sjá nokkuð langt fram á veginn
hvaða leikreglur muni gilda.
Sem dæmi tekur hann útgerð fjöl-
veiðiskipsins Vilhelms Þorsteinsson-
ar, sem vinnur og frystir uppsjáv-
arfisk um borð. Á síðasta ári voru
greiddar nærri 500 milljónir króna í
laun til sjómanna á skipinu. Með því
að vinna aflann um borð eru verð-
mæti hans allt að því fjórfölduð og
hlutur áhafnar eykst um 250 millj-
ónir á ári miðað við þann afla sem
fékkst.
Samherji
kemur að
starfsemi á
14 stöðum
á landinu
Sóknarfærin/10
UNGUR maður slasaðist alvarlega
í bílslysi á Hlíðarbraut á Akureyri
um klukkan hálfþrjú aðfaranótt
laugardags. Að sögn lögreglunnar á
Akureyri var maðurinn einn í bif-
reiðinni þegar hann missti vald á
henni og lenti á gangbrautarljósum.
Maðurinn var fluttur á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
og síðan með sjúkraflugi til Reykja-
víkur snemma á laugardagsmorg-
un.
Að sögn læknis á gjörgæsludeild
LSH í Fossvogi er maðurinn mikið
slasaður en hann gekkst undir að-
gerð í gærmorgun.
Slasaðist
alvarlega í
bílslysi