Morgunblaðið - 02.07.2002, Qupperneq 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002 35
ÁKVARÐANIR um
hagsmuni Íslands eiga
ekki að velta á geð-
þótta skriffinna í
Brussel. Það erfiði sem
var lagt á sjálfstæðis-
hetjur Íslendinga á
síðustu öld á ekki að
vera til einskis.
Ákvörðunarvald Ís-
lands í málum er varða
fullveldi landsins og
sjálfstæði á ekki að
geyma inni á kontór í
Brussel. Þetta eru
ástæður þess að Ungir
jafnaðarmenn telja að
hag Íslands sé betur
borgið innan Evrópu-
sambandsins heldur en utan þess,
en samtökin eru eina stjórnmála-
hreyfingin sem er með aðild að ESB
á stefnuskrá sinni.
Á fimmtudaginn voru stofnuð
samtökin Heimssýn sem ætla að
beita sér fyrir því að Ísland haldi
sér utan við ESB. Forsvarsmenn
samtakanna segja að það samræm-
ist ekki hagsmunum Íslands að
ganga í bandalagið; að Ísland eigi
það á hættu að einangrast frá öðr-
um heimshlutum verði af aðild. Það
er óhætt að segja að forsvarsmenn
samtakanna hafi misskilið eitthvað
– forkálfar Heimssýnar hafa gerst
sekir um þröngsýni og skammsýni.
Það er rétt að ég útskýri.
Þegar EES-samningurinn var
samþykktur á Alþingi í janúar 1993
urðu vatnaskil á Íslandi. Íslending-
ar fengu aðgang að innri markaði
Evrópusambandsins – þó ekki full-
an aðgang – og frjálst flæði á fjár-
magni, vörum og þjónustu innan að-
ildarlanda samningsins varð að
veruleika, auk margra annarra rétt-
inda sem hafa reynst Íslendingum
dýrmæt (s.s. frjáls atvinnu- og bú-
seturéttur innan aðildarlandanna).
Löggjöf Íslands breyttist til batn-
aðar og það lagaumhverfi á sviði
viðskipta, fjarskipta, samkeppni,
persónuverndar, atvinnumála, um-
hverfis og fjármagns getum við rek-
ið beint til EES-samningsins.
Megnið af þeim umbætum sem hafa
verið gerðar á sl. árum fyrir Íslend-
inga og íslensk fyrirtæki má einnig
rekja til EES-samningsins. Þar
nægir að benda á aukin viðskipti við
aðildarlöndin sem hefur haft í för
með sér aukna hagsæld fyrir alla,
en 66 prósent af öllum útflutningi
Íslendinga fara til EES-landanna
og 70 prósent alls innflutnings Ís-
lands koma frá EES-löndunum.
Á sl. árum hefur
hins vegar vægi EES-
samningsins minnkað
hjá ESB-löndunum í
kjölfarið á nánari sam-
vinnu ESB-landanna.
Árið 2004 munu 10 ný
lönd ganga inn í ESB
og áhugi sambandsins
á EES-samningnum
minnka enn frekar –
nokkuð sem íslensk og
norsk stjórnvöld hafa
margsinnis lýst yfir
áhyggjum af. Í skýrslu
sem norska ríkis-
stjórnin kynnti í apríl
kemur fram að EES-
samningurinn hefur
veikst til muna og mun halda áfram
að veikjast mikið á næstu árum.
Norska stjórnin hefur að engu að
hægt sé að auka áhrif EES-land-
anna (þ.e. þeirra sem standa utan
við ESB) í laga- og reglugerðar-
setningu ESB, en þær hugmyndir
hafa margoft verið reifaðar af ís-
lenskum andstæðingum ESB-aðild-
ar. Um 80 til 90 prósent af öllum
reglugerðum ESB eru nú samþykkt
á Alþingi Íslendinga án þess að Ís-
lendingar hafi nokkuð um það að
segja. Það segir töluvert um full-
veldi landsins þegar þeir sem semja
megnið af reglugerðum landsins
vilja lítið við íslenska ráðamenn
tala.
Með aðild Íslands að ESB fengju
Íslendingar að taka fullan þátt í
mótun stefnu, laga og reglna sam-
bandsins, íslenskir sérfræðingar
tækju sæti í nefndum og stjórnum
sambandsins, Íslendingum yrði
tryggður fullur og óheftur aðgangur
að viðskiptamarkaði ESB. Þeir
málaflokkar sem eru hvað brýnastir
fyrir Íslendinga fengju íslenska
málsvara og Íslendingar fengju at-
kvæðisrétt um þau mál sem landið
snerta. Talið er að með aðild Ís-
lands að ESB myndu erlendar fjár-
festingar aukast hér á landi, vitað
er að tæknilegar viðskiptahindranir
myndu hverfa, framleiðslukostnað-
ur myndi lækka hjá fyrirtækjum og
meiri samkeppni á markaðnum
myndi þýða töluverða búbót fyrir ís-
lensk heimili, svo fátt eitt sé nefnt.
Það er því ánægjuefni að sam-
tökin Heimssýn ætla að beita sér
fyrir aukinni umræðu um þær
mörgu hliðar sem aðild að ESB
kann að hafa í för með sér. Hversu
vel samtökunum – sem ekki taka af-
stöðu til EES-samningsins né hvort
Ísland eigi að hefja aðildarviðræður
við ESB – á eftir að takast til á eftir
að koma í ljós. Kynni maður sér
möguleg áhrif ESB-aðildar fyrir Ís-
land er það þó augljóst mál að hag
landsmanna og fullveldi er betur
borgið innan sambandsins. Það er
víðsýn heimssýn.
Þröngsýn
Heimssýn
Ómar R.
Valdimarsson
ESB
Kynni maður sér mögu-
leg áhrif ESB-aðildar
fyrir Ísland, segir Ómar
R. Valdimarsson, er það
þó augljóst mál að hag
landsmanna og fullveldi
er betur borgið innan
sambandsins.
Höfundur er ritstjóri Pólitíkur.is,
vefrits Ungra jafnaðarmanna, og
fjölmiðlafræðingur.
98.600,-stgr.
G
ra
fí
sk
a
sm
ið
ja
n
eh
f.
06
-0
2
Full búð af nýjum vörum!
Raðgreiðslur til allt að 36 mán.
Hollensk borðstofuhúsgögn
Habufa
Borð og 6 stólar:
Er vi
nnin
gur í
loki
nu?
fiú sér› strax
Frábærir
fótskemlar
Verð kr. 34.000
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mánudag-föstudag 11-18,
laugardag 11-15