Morgunblaðið - 02.07.2002, Síða 36
MINNINGAR
36 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Steinþór Magn-ússon fæddist á
Hjartarstöðum í
Eiðaþinghá 5. sept-
ember 1924. Hann
andaðist á heimili
sínu, Selási 5, Egils-
stöðum, 24. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Magnús
Sigurðsson, bóndi á
Hjartarstöðum, f. 4.
maí 1882, d. 9. apríl
1926, og Ólöf Guð-
mundsdóttir, f. 3.
ágúst 1887, d. 28.
ágúst 1972. Þau
hjónin eignuðust sex börn, Sigurð,
f. 1908, Huldu, f. 1910, Ragnar
Hjört, f. 1911, og Stefaníu, f. 1916,
sem öll eru látin, og Guðmund, f.
1922, sem býr á Egilsstöðum, en
Steinþór var yngstur systkinanna.
Steinþór kvæntist 27. janúar
1952 Sólveigu Aðalbjörnsdóttur,
f. 3. janúar 1931. Foreldrar henn-
ar voru Aðalbjörn Magnússon
bóndi á Unaósi, f. 7. febrúar 1887,
Eydís Einarsdóttir, f. 13. des.
1978, dóttir þeirra Agnes Sjöfn, f.
11. mars 2002; Steinþór Örn, f. 5.
febrúar 1981, Kristín Birna, f. 5.
jan. 1985, og Ólafur Gauti, f. 5.
jan. 1985. 3) Einar Birgir skóla-
meistari, f. 22. maí 1957, kvæntur
Rannveigu Traustadóttur leik-
skólasérkennara, f. 3. nóvember
1956. Dætur þeirra: Margrét, f.
23. ágúst 1989, og Sólveig, f. 20.
júlí 1996. 4) Aðalsteinn viðskipta-
fræðingur, f. 10. júní 1961, kvænt-
ur Birnu Stefnisdóttur viðskipta-
fræðingi, f. 2. nóvember 1955. 5)
Magnús Már tölvunarfræðingur,
f. 8. mars 1966, sambýliskona Elsa
Hartmannsdóttir bókasafnsfræð-
ingur, f. 3. ágúst 1966. Dóttir
þeirra: Þorgerður Elva, f. 11. júlí
1991.
Steinþór var bóndi á Hjartar-
stöðum 1946–1972 en auk bú-
starfa sinnti hann mörgum öðrum
störfum m.a. kennslu. Hann var
bankastarfsmaður á Egilsstöðum
1972–1990 og vann hjá Skógrækt
ríkisins 1990–1996. Steinþór tók
alla tíð virkan þátt í félags- og
íþróttastarfi og gegndi mörgum
trúnaðarstörfum.
Útför Steinþórs verður gerð frá
Egilsstaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
d. 19. júlí 1933, og
kona hans, Una Þóra
Jónasdóttir, f. júní
1898, d. 21.september
1949. Börn Steinþórs
og Sólveigar: 1) Una
Þóra framhaldsskóla-
kennari, f. 25. ágúst
1950, gift Bessa Gísla-
syni lyfjafræðingi, f.
6. janúar 1949. Börn
þeirra: Gísli Þór, f. 7.
júní 1972, sambýlis-
kona Guðrún Gests-
dóttir, f. 5. júlí 1969.
Dóttir hennar Sólrún
Anna, f. 15. janúar
1990; Sólveig, f. 13. sept. 1977;
Sigrún, f. 13. sept. 1977, sambýlis-
maður Iiro Nummela, f. 2. jan.
1976; og Margrét, f. 24. jan. 1980,
unnusti hennar er Tryggvi
Björnsson, f. 3. ágúst 1979. 2)
Ólafur sendiferðabílstjóri, f. 1.
apríl 1953, kvæntur Sjöfn Sig-
björnsdóttur sjúkraliða, f. 29.
mars 1955. Börn þeirra: Reynir
Logi, f. 3. okt. 1974, sambýliskona
Tengdafaðir okkar, Steinþór
Magnússon, andaðist aðfaranótt
24. júní sl. á heimili sínu á Egils-
stöðum. Daginn fyrir andlátið
höfðu Steinþór og kona hans, Sól-
veig, átt afskaplega góðan dag
saman á fæðingarstað hans, Hjart-
arstöðum, í góðra vina hópi, þar
sem þau hjón stunduðu búskap allt
fram til ársins 1972.
Steinþór átti í nokkur ár við van-
heilsu að stríða sem hann bar af
miklu æðruleysi og naut þar ómet-
anlegrar umhyggju og aðstoðar
tengdamóður okkar sem stóð eins
og klettur við hlið hans alla tíð.
Margs er að minnast af löngum
kynnum en við vorum í raun bara
unglingar þegar við kynntumst
Steinþóri og reyndist hann okkur
sem annar faðir. Ferðirnar austur
á land voru árviss atburður og var
einstaklega gott að njóta leiðsagn-
ar hans um fallegar náttúruperlur
Austurlandsins sem hann unni svo
heitt. Þegar barnabörnin bættust í
hópinn voru ófáar ferðirnar, sem
farnar voru með þau, bæði styttri
og lengri, ferðir upp á kletta, í
berjamó, út í Hjartarstaði og víðar.
Steinþór naut þess að ferðast
meðan heilsan leyfði og eru eft-
irminnilegar ferðir með þeim hjón-
um til Danmerkur og annarra
Norðurlanda. Betri ferðafélaga er
vart hægt að hugsa sér.
Steinþór var hjartahlýr, umburð-
arlyndur og afskaplega góður
kennari. Kom það vel fram við
spilaborðið í stofunni á Selásnum
þar sem allir fengu að vera með
óháð spilagetu. Það var alveg sama
hversu léleg frammistaðan var,
okkur var bara leiðbeint með já-
kvæðri tilsögn og engar frekari at-
hugasemdir gerðar.
Hann var góður hagyrðingur og
liggja eftir hann margar vísur í
gestabókum sumarbústaðarins í
Biskupstungum, en þar hélt hann
m.a. upp á 70 ára afmæli sitt með
fjölskyldu sinni sem lengi verður í
minnum haft.
Steinþór var vinsæll og virtur af
öllum sem kynntust honum og við
vorum stolt af því að eiga hann fyr-
ir tengdaföður. Við kveðjum hann
með söknuði og sendum Sólveigu
og öðrum aðstandendum samúðar-
kveðjur.
Bessi Gíslason og
Rannveig Traustadóttir.
Hann talaði vonlausum traust og kjark
á tungu, sem hjartað skildi.
Þar reist́ hann sér andans aðalsmark,
sem aldrei máist af skildi.
Hann gnæfði sem hæðin með hjarnsins
fald,
svo harðger, – en brosti af mildi.
Hans meistaraorð á þann eld og það
vald,
sem eilíft varir í gildi.
(Einar Ben.)
Með þessum orðum minnumst
við Steinþórs Magnússonar,
tengdaföður okkar. Í erfiðum veik-
indum sýndi hann þrautseigju og
æðruleysi og var okkur fyrirmynd.
Steinþór naut umhyggju og kær-
leika Sólveigar Aðalbjörnsdóttur,
konu sinnar, sem var kletturinn í
lífi hans. Hann var hamingjumaður
og fjölskyldan naut umhyggju hans
og leiðsagnar. Við erum þakklátar
fyrir að hafa þekkt Steinþór og að
eiga minninguna um hann.
Við vottum Sólveigu, afkomend-
um, Guðmundi bróður hans og öðr-
um aðstandendum okkar dýpstu
samúð.
Sjöfn, Birna og Elsa.
Afi á Egilsstöðum, eins og við
systkinin kölluðum hann jafnan,
hafði hjarta úr gulli. Að vera í ná-
vist hans var gott og frá honum
streymdu hlýir straumar sem um-
luktu mann allan. Afi fylgdist
grannt með sínum nánustu og vissi
alltaf hvað var að gerast hjá hverj-
um og einum hvort sem það var í
skóla, íþróttum eða öðru.
Það eru ófáar heimsókninar sem
við systkinin höfum farið til Egils-
staða til að heimsækja ömmu og
afa á Selásnum. Ég held að það
hafi varla liðið sumar án þess að
heimsins mál væru rædd yfir jóla-
köku og kleinum í eldhúsinu hjá
ömmu og afa. Afi var alltaf til í að
leika við okkur krakkana. Milli
þess sem hann spjallaði við okkur
um heima og geima, sagði sögur af
mikilli snilld og las fyrir okkur á
kvöldin, sat hann til borðs fyrir
austan hús og borðaði rabbabara-
graut og drulluköku með bestu
lyst. Einnig var oft háð mikil
keppni í badminton og fótbolta og
ekki stóð á afa að taka þátt. Þó
jafnaðist ekkert á við að fara með
afa í bíltúr og ekki var verra ef ég
fékk að hafa hann útaf fyrir mig.
Við keyrðum oft tímunum saman
og virtum fyrir okkur það sem fyrir
augum bar. Sama spólan var alltaf í
tækinu og beðið var með óþreyju
eftir Kötukvæði og þá var hækkað í
græjunum og sungið hástöfum
með. Þessar stundir með afa eru
mér mjög kærar og sérstaklega
síðasti bíltúrinn sem við fórum
saman.
Ég er svo heppin að hafa fengið
að eyða síðustu dögunum með afa.
Öllu því besta var tjaldað til svo
mér og Tryggva gæti liðið sem best
og amma var búin að fylla frysti-
kistuna af ýmsu góðgæti eins og
henni einni er lagið. Afi bar sig vel
að vanda og sótti okkur út á flug-
völl á nýbónuðum bílnum sem var
búið að fylla af bensíni svo við gæt-
um nú skoðað okkur um að vild.
Sólin skein og tíminn var vel nýttur
í sundferðir og bíltúra um héraðið.
Á sunnudaginn, fyrir rúmri viku,
fórum við svo út í Hjartarstaði í
blíðskaparveðri. Boðið var til grill-
veislu og voru menn glaðir í bragði.
Afi sat frammí hjá mér á leiðinni
og fyllti hann okkur af fróðleik um
sveitina sína, fuglana og fjöllin. Afi
var sannkallaður viskubrunnur.
Hann lék á als oddi í sveitinni og
þegar ég virti hann fyrir mér þar
sem hann sat í sófanum og brosti
sá ég hvað hann var sáttur við allt
og alla. Afi var tilbúinn að fara.
Hann kvaddi þennan heim ná-
kvæmlega eins og hann hafði óskað
eftir, í sínu eigin rúmi við hliðina á
ömmu sem var búin að fylgja hon-
um öll þessi ár.
Afi var merkilegur maður og átti
engan sinn líka. Hann mun alltaf
eiga sérstakan stað í hjarta mér og
eflaust í hjörtum allra sem þekktu
hann. Við systkinin munum sakna
hans sárt en minningarnar lifa með
okkur áfram. Kæri afi, við þökkum
þér fyrir góðar samverustundir.
Við trúum því að þér líði vel þar
sem þú ert núna, megir þú hvíla í
friði.
Margrét.
Ég sakna þín, ég syrgi farinn vin,
í sálu þinni fann ég dýpsta hljóminn,
er hóf sig yfir heimsins dægur-glys.
Á horfna tímans horfi ég endurskin,
ég heyri ennþá glaða, þýða róminn,
frá hreinni sál með hárra vona ris.
(Steinn Steinarr.)
Elsku afi, nú hugsum við til þín
og það er erfitt að vita til þess að
við fáum ekki að sjá þig aftur en þú
átt eftir að lifa með þeim sem
þekktu þig og í hjörtum afkomenda
þinna.
Allar okkar stundir með þér
voru svo jákvæðar og skemmtileg-
ar þar sem þú varst okkur alltaf
svo góður, þú varst alltaf til staðar
og kenndir okkur ýmislegt sem er
ómetanlegt, þú varst okkur alltaf
góður vinur og það lifir alltaf í
minningunni.
Við minnumst þess þegar við
spiluðum golf, fótbolta og badmint-
on í garðinum, þegar þú kenndir
okkur að veiða, þegar við eyddum
tímanum saman í að spila og tefla
og þegar við lékum kúluspil á gólf-
inu heima, alltaf varstu til staðar
og tilbúinn til að eyða yndislegum
tíma með okkur.
Við hugsum til þín með söknuði,
elsku afi, og allar þessar góðu
minningar um þig munu lifa með
okkur um alla framtíð.
Þú siglir á öðru hafi.
Sjóndeildarhringir opnast
fránum augum þínum.
Þau lönd, sem þig dreymdi um
rísa æskubjört úr hafi.
Að baki er klettótt strönd máfa og
manna
og þar stöndum við
með þá von, sem þú gafst okkur.
(Jóhann Hjálmarsson.)
Reynir, Steinþór,
Gauti og Kristín.
Það var sláandi fregn sem barst
mér að morgni 24. júní sl. að Stein-
þór, föðurbróðir minn, væri látinn.
Hann sem hafði verið hér deginum
áður ásamt nokkrum skyldmennum
þar sem við gerðum okkurt glaðan
dag saman. Hann virtist njóta lífs-
ins eins og við hin, þó líkamlegt at-
gervi væri ekki mikið þá var and-
inn ungur og fullur af þeirri athygli
og áhuga sem alltaf einkenndi
Steina og var gaman að hverfa með
honum nærri 70 ár aftur í tímann
við upprifjun æskuáranna.
Á mínum uppvaxtarárum bjuggu
foreldrar mínir ásamt þeim Stein-
þóri og Sólveigu, konu hans, eða
Steina og Sollu eins og þau voru
venjulega kölluð, í tvíbýli á Hjart-
arstöðum. Það var mikill dugnaður
í þeim hjónum, þau bjuggu ekki að-
eins myndarbúi með miklar afurð-
ir, heldur stundaði Steini oft aðra
vinnu með búskapnum, allt frá
vörubílaakstri til fræðslustarfa.
Eins og gefur að skilja var sam-
gangur og samvinna mikil og t.a.m.
lékum við krakkarnir okkur saman
meira og minna heilu dagana,
þannig að fyrir mig sem er yngstur
í systkinahópnum voru það mikil
kaflaskil í lífinu er þau fluttu burtu
árið 1972 og íbúum í túninu heima
fækkaði úr átta í þrjá.
Steini missti föður sinn árið
1926, aðeins tveggja ára gamall, og
ólst upp með móður og fimm eldri
systkinum. Ég man að faðir minn
sem var elstur af þeim systkinum
minntist oft á að ,,Steini bróðir
minn“ gerði hitt eða þetta þegar
hann var strákur og gengu þessar
frásagnir sem jafnan voru mæltar
með samblandi af ábyrgð og stolti
út á það að ,,litli bróðir“ vildi
standa sig á við þá sem eldri voru.
Þannig hefur snemma komið fram
það sem alltaf einkenndi Steina,
dugnaður og vilji til að standa sig.
Það er mér minnisstætt hversu
skipulagður hann var, þau verk
sem vinna þurfti voru vel af hendi
leyst, byrjað var á réttum tíma og
þeim lokið á réttum tíma. Þessi ná-
kvæmni og áreiðanleiki skilað líka
Steina því að aðrir báru traust til
hans og til að mynda átti hann far-
sælt starf sem barnakennari við
barnaskólann á Eiðum og prófdóm-
ari við Alþýðuskólann í mörg ár.
Steini var alla jafnan fremur fá-
máll og ekki með mikið óþarfa mál-
skrúð, hins vegar tókst honum
ávallt að setja skoðanir sínar og
skilaboð fram á mjög skýran hátt
og þannig fundum a.m.k. við krakk-
arnir nákvæmlega hvernig honum
líkaði það sem við gerðum eða
sögðum.
Eftir að ég hóf búskap reyndi
Steini jafnan að leiðbeina mér, ekki
síst þegar honum fannst ég vera að
fara fram úr sjálfum mér í fjármál-
unum, þó aldrei í fyrirmælaformi,
heldur með því að benda á aðrar
leiðir sem hægt væri að fara.
Með Steina er genginn afar
traustur og heiðarlegur maður,
maður sem sannarlega var sam-
kvæmur sjálfum sér og verð ég
alltaf þakklátur fyrir hvað hann
hafði fyrir mér í þeim efnum.
Megi guð vera með Sollu og
krökkunum.
Halldór Sigurðsson,
Hjartarstöðum.
STEINÞÓR
MAGNÚSSON
Fleiri minningargreinar
um Steinþór Magnússon bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
!
"
#
$
! "
#$
! % $
& &' "& & &' (
%
&
) *)+,-
.
/0 /
" 1 $2
'
(
)
*
+,-
$'
'
. '
/
!
*
01
)1 0
$
(
.
34
. '
.
'
2
3
## % $
3%
"1
5 0 1 3%$
5 " "
% 3% "&' " # $
"
#1 3%
"1 1 3% 6 " 7! % $
"1
3% * $
" $
3%$
"
"1
)1 1"1 3% 8 "/ 3%$
" &' (