Morgunblaðið - 02.07.2002, Side 47

Morgunblaðið - 02.07.2002, Side 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002 47              LÁRÉTT: 1. Krókódílar. 6. Fjárborg. 9. Tobías. 11. Pilsner. 12. Van- haga. 14. Götubardagar. 15. Satan. 16. Grálúsugar. 17. Aftastur. 18. Klausturfaðir. 20. Rengla. 23. Krumla. 25. Bísperrast. 26. Tröllatrú. 27. Ljósastika. 29. Hörundsár. 30. Klaufhamar. 31. Rökvilla. 32. Úr- helli. LÓÐRÉTT: 1. Kroppinbakur. 2. Óðfluga. 3. Ókynstur. 4. Ístrubelgur. 5. Albatros. 6. Fis. 7. Beinfiskar. 8. Gálgamatur. 10. Artargóð. 13. Vafr- ari. 16. Gluggapóstur. 19. Flórsykur. 21. Afrás. 22. Rétthermi. 23. Keldusvín. 24. Metúsalem. 25. Bólakaf. 28. Tamur.           LAUSN KROSSGÁTUNNAR 23. júní LÁRÉTT 3. Jón lagar þrot 500 með – en er samt fátækur. (10) 7. Hver einasta stræti – alltaf. (5,5) 8. Íverustaður anda Aladíns. (11) 9. Loka garði af. (7) 10. Kalin uns verður ofkæling. (8) 11. Er einföld yndis orðsending opinber tilskrif? (11) 12. Hristingur, lófatak að lokum fast – haltra. (12) 13. Þessi pauri suð heyrði fyrir 3 miljónum ára? (8) 15. Fel moldar hest. (9) 19. Meðal enni finnst á góðum manni. (8) 20. Vilt teyma einfaldan í þvælu – gunga. (10) 21. Lýsing á fótaburði Tótu. (10) 22. Maður sem á smell. (6) 23. Ókeypis frelsun. (5) 25. Sá sem finnur lausn á öllu? (10) 28. Setja borgar-part í Suður Austur Grikklandi. (6) 29. Finna alltaf sandi annað heiti – spennandi. (6) 30. Hann er glaður um sinn enda edrú. (10) 31. Sárin enn koma í hernaðaraðgerð. (7) LÓÐRÉTT 1. „Kúl“ mars með einn í stað fimmtíu er annar dans. (7) 2. Bikar böðuls er á botni flösku. (10) 3. Munadeild verður fyrir þjónaði. (9) 4. Asnar glápa í réttarsal. (10) 5. Afturgengið naut. (12) 6. Lætur hljóð vera staur. (10) 7. Af ama má draga diffurkvóta. (7) 12. Erfiður ber minnst. (9) 13. Finna stærð Epidote í fræðigrein. (11) 14. Að landi stíma – loka örugglega. (8) 16. Ert‘ kela, þú fræga kona? (7) 17. Aftur með sinni sök leiðir til lífláta? (7) 18. Lungur datt með tiktúrum. (10) 24. Ragna gerist öfug og skiptir um kyn. (5) 25. Það er regla á þessum stað. (5) 26. Hundur sá umr gefur frá sér. (5) 27. Bók sem ber heiminn. (5) 28. Dund í þekktum tölvuleik. (4) Vegna mistaka við vinnslu krossgátunnar síðasta sunnudag er hún hér birt aftur. Beðist er velvirðingar á mistökunum. UM HELGINA voru 10 ökumenn grunaðir um ölvun við akstur og 39 um of hraðan akstur. Einn þeirra ók á 112 km hraða með tjaldvagn í eftirdragi. Ástæða er til að minna á að hámarkshraði fyrir bíla með tjaldvagna og þessháttar í eft- irdragi er 80 km á klst. Á laugardag var hópur erlendra Harley Davidson-eigenda í hópreið um landið. Í tilefni þess að 60 ár eru liðin síðan lögreglan í Reykjavík keypti sitt fyrsta Harley Davidson- lögreglubifhjól fóru 2 slík hjól að Þingvöllum til móts við hópinn og ók með honum Nesjavallaleiðina að Rauðavatni. Þar bættust fleiri í hóp- inn og var ekið sem leið lá að Ingólfs- torgi þar sem Bifhjólasamtök lýðveld- isins voru með hátíð. Í hópnum voru um 70 Harley Davidson-bifhjól. Bif- hjólasamtök lýðveldisins voru með hjóladag á sunnudag. Hópakstur var um götur borgarinnar í fylgd lög- reglu, alls um 90 bifhjól. Endað var á að aka að Ingólfstorgi þar sem hátíða- dagskrá fór fram og er áætlað að yfir 200 bihjól hafi verið við Ingólfstorg. Rotaðist í vinnuhléi Aðfaranótt sunnudags voru höfð afskipti af bifreið vegna hraðaaksturs á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Hraði bifreiðarinnar mældist 135 km/ klst. Ökumaður bifreiðarinnar var ölvaður og var fluttur á lögreglustöð. Á sunnudagskvöld kom tilkynning um að ekið hefði verið á 10 ára barn á Suðurfelli. Óhappið varð með þeim hætti að stúlka var að fara inn í bifreið föður síns um leið og hann ók af stað. Ætlaði hún inn í bifreiðina vinstra megin að aftan. Stúlkan slasaðist á vinstra hné og var flutt á slysadeild með sjúkrabifreið. Á föstudag var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki í Klettagörðum. Í ljós kom að iðnaðarmenn höfðu skilið eftir opna hurð að skrifstofu. Farið var þar inn og verðmætri fartölvu stolið. Til- kynnt var um dreng í unglingavinnu sem datt á höfuðið og rotaðist. Dreng- urinn var í hléi frá vinnu og við leik þegar hann féll og rotaðist. Hann var fluttur til öryggis á slysadeild með sjúkrabifreið. Þá var tilkynnt frá verslun í austurborginni að 2–3 strák- ar hafa komið inn og tekið kassa með mörgum vindlingapakkalengjum og hlaupið út. Piltarnir fundust ekki. Eftirlýstir tjaldbúar Aðfaranótt laugardags var fremur fátt fólk í miðborginni. Ölvun var rétt í meðallagi og þokkalegt ástand. Fjöldi leigubifreiða var viðunandi og gekk heimflutningur fólks allvel. Upplýsingar bárust um að fólk væri í tjaldi í Laugardal, hugsanlega með þýfi. Nokkuð var af munum í tjaldinu s.s. borvélar, myndavél, útvarp, verk- færi og fleira. Maður og kona sem voru á vettvangi voru handtekin og reyndust þau bæði vera eftirlýst hjá lögreglu. Snemma á sunnudagsmorg- un var maður handtekinn eftir að hafa gengið yfir leigubifreiðar í Tryggva- götu og skemmt þær. Kona hringdi til lögreglu en hún leyfði ungum dreng að hringja hjá sér og þakkaði hann fyrir sig með því að stela veskinu hennar með kreditkortum, skilríkjum og peningum. Góð lýsing fékkst á pilt- inum og er vonast til að hann finnist. Rólegt var í miðborginni framan af aðfaranótt sunnudags en fólki fjölgaði þegar leið á nóttina og biðraðir urðu við skemmtistaði. Unglingar voru færðir á lögreglustöð og foreldrum gert að sækja þá. Þrennt var flutt á slysadeild vegna ölvunar og meiðsla. Áttök brutust út í Bankastræti og lá einn óvígur eftir, hann var fluttur á slysadeild. Tveir menn voru hand- teknir á staðnum grunaðir um verkn- aðinn. Margt fólk var í miðborginni fram eftir morgni. Létt bifhjól fannst í gangi fyrir framan hús við Langholtsveg. Snerist afturhjólið enn þar sem það lá í göt- unni. Hjólið var númerslaust en með kveikjuláslykli sem fastur var við hús- lykil og lyklakippu. Klukkan að verða tvö var kvartað undan hávaða utan- dyra veitingahúss við Smiðjustíg. Menn voru með trommur fyrir utan og hljóðfæri. Þeim var gert að hætta. Með illa fengið tjald í eftirdragi Þá hringdi kona í Seljahverfi og til- kynnti að hún hefði fyrir um 5 mín- útum heyrt einhvern vera að rjátla við svalahurð. Þegar hún hefði aðgætt betur hefði hún séð framan í mann sem var að eiga við hurðina og hljóp hann á brott í átt að Vatnsenda þegar hann varð hennar var. Í Austurstræti veittu menn athygli nokkrum ungum drengjum með kanadískan fána undir höndum. Þeir sögðust hafa fundið fánann á leið sinni í bæinn. Haldlögðu lögreglumenn fánann og færðu á stöð. Þá var tilkynnt um menn með tjald í eftirdragi á Hringbraut gegnt BSÍ og það talið illa fengið. Höfðu þeir funduð umrætt tjald í Fjólugötu og töldu sig ekki hafa stolið neinu. Pilt- unum var gert að skila tjaldinu á sinn stað sem þeir og gerðu. Úr dagbók lögreglu, 28. júní – 1. júlí 70 Harley Davidson- mótorhjól á Ingólfstorgi SNIGLARNIR og fylgdarlið voru vígalegir er þeir fóru í árlega hóp- keyrslu sína á mótorhjólum um bæ- inn á laugaradg. Lagt var upp frá félagsheimili þeirra í Skerjafirði, ekið um bæinn í fylgd lögreglu og endað á Ingólfstorgi þar sem sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur messaði yfir mannskapnum. Bökuð hafði verið rjómaterta, 40 tommur að lengd, með sniglamerkinu og var gestum og gangandi boðin sneið á Ingólfstorgi í tilefni dags- ins. Morgunblaðið/Þorkell Sniglar á fleygiferð SKÓGRÆKTARRITIÐ, félags- og fræðslurit Skógræktarfélags Ís- lands, fyrra hefti 2002, er komið út. „Þetta er fagrit allra þeirra sem stunda skógrækt í minni eða stærri stíl og nýtist einnig mjög vel þeim garðeigendum sem prýða vilja garð- inn með trjám og runnum. Sigurður Blöndal ritar fyrsta hluta greina- flokks um „Íslensku skógartrén“ og skrifar um birki og reynivið. Eiríkur Benjamínsson segir frá „Skógrækt í Ölversholti“ og Sigurður Arnarson ritar greinina „Ásýnd lands og sauð- fjárrækt“. Einar Ó. Þorleifsson og Jóhann Hilmarsson skrifa tímabæra grein sem nefnist: „Íslenskir skógar- fuglar“. Þá er umfjöllun Arndísar S. Árnadóttur um „Trjárækt að Vífils- stöðum í 90 ár“ og Bjarni Diðrik Sig- urðsson ritar hugleiðingu: „Hvað er skógur?“. Ritið er stórglæsilegt að vanda, prýtt fjölda fallegra litmynda og á kápu er mynd frá 1923, Úr Laugardal, eftir Þórarin B. Þorláks- son. Skógræktarritið fæst í helstu bókaverslunum og á skrifstofu S.Í. að Ránargötu 18., netfang skogis.- askur@simnet.is,“ segir m.a. í fréttatilkynningu. Skógræktarritið komið út Bómullar-satín og silki-damask rúmföt Skólavörðustíg 21, sími 551 4050

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.