Morgunblaðið - 02.07.2002, Page 54
FÓLK Í FRÉTTUM
54 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Þú getur keypt boli, sundpoka,
töskur, golfvörur, geisladiskahulstur,
klukkur, reiknivél o.fl. á einstöku
verði beint af Netinu með öruggum
hætti. Þú skoðar vörurnar og pantar
á mbl.is og færð þær sendar heim
til þín eða á vinnustað.
Þú getur líka komið við hjá okkur í
Morgunblaðshúsinu, Kringlunni 1,
og skoðað vörurnar þar.
Líttu inn hjá okkur
fyrir ferðalagið!
mbl.is
Nýjar vörur
UNNENDUR Adams Sandlers eru
greinilega búnir að fyrirgefa honum
vonbrigðin sem síðasta mynd hans,
Little Nicky, olli þeim því þeir tóku
nýjustu mynd hans, Mr. Deeds, opn-
um örmum um helgina.
Myndin var frumsýnd á föstudag
og fór beint í toppsæti listans yfir
tekjuhæstu myndir helgarinnar.
Toppmyndin frá því í síðustu viku,
Minority Report, féll hins vegar niður
í 3. sæti, niður fyrir Disney-teikni-
myndina Lilo og Stitch, sem tókst í
annarri tilraun að sjá við Spielberg og
Cruise og hélt 2. sætinu.
Mr. Deeds er eins og aðrar myndir
Sandlers gamanmynd. Hún er lausleg
endurgerð á sígildri mynd Franks
Capra, Mr. Deeds Goes To Town, frá
1936. Sandler leikur líkt og oft áður
einfeldning sem býr í smábæ. Einn
góðan veðurdag erfir hann upp úr
þurru milljarða á milljarða ofan. Auð-
vitað ásælast óprúttnir bisnessmenn
auðinn en með aðstoð stóru ástinnar,
sem leikin er af meintum búðarhnupl-
ara, Winonu Ryder, og þjónsins síns,
sem John Turturro leikur, þá sér
hann við þeim – eða hvað?
Framleiðslukostnaður myndarinn-
ar ku hafa verið 4.7 milljarðar króna
sem þykir orðið býsna vel sloppið fyr-
ir Hollywood-mynd sem skartar stór-
stjörnum í helstu hlutverkum. Því er
ljóst að myndin á eftir að skila vænum
hagnaði og styrkja stöðu Sandlers í
bíóborginni enn frekar, sem einhvers
öruggasta hestsins sem hægt er að
veðja á í dag.
En þótt fólk hafi flykkst á myndina
um helgina náðu gagnrýnendur ekki
upp í nefið á sér af hneykslan yfir því
hve vond hún væri og átti það við um
nær alla sem fá borgað fyrir að segja
skoðun sína á nýjustu kvikmyndun-
um. Og sárastir voru menn yfir
meintri vanvirðingu sem þeim þykir
gömlu Capra-myndinni sýnd: „Hvað
kemur eiginlega næst? Rob Schneid-
er, Dana Carvey og Sarah Michelle
Gellar í The Philadelpia Story? David
Spade sem Citizen Kane?“ spyr Ro-
bert Wilonsky öskuillur í New Times
Los Angeles og Paul Clinton, gagn-
rýnandi CNN-sjónvarpsstöðvarinn-
ar, segir: „Ef þú ert eldri en 25 ára,
með greindarvísitölu yfir 90 og náðir
bílprófinu, þá ættirðu að geta fundið
betri skemmtun.
En einstaka gagnrýnandi lýsti þó
skoðunum fjölmargra almennra bíó-
gesta – ef myndin skartar Adam
Sandler, þá getur hún ekki verið
vond.
Ein önnur mynd var frumsýnd um
gervöll Bandaríkin á föstudag, teikni-
myndin Hey Arnold! The Movie en
hún á rætur sínar að rekja til teikni-
myndastöðvarinnar Nickelodeon.
Aðrar myndir sem frumsýndar voru
einungis í stærri borgum voru gam-
anmyndin First $20 Million, konu-
dramað Lovely and Amazing og
Pumpkin með Christinu Ricci, en hún
vakti talsverða athygli á Sundance-
hátíðinni fyrr á árinu.
!"#
$!
%& ' !
(! ) *
&+,-
* + .-/.-
0 -1
-0-2 -1+
Adam Sandler og Winona Ryder í Mr. Deeds. Sandler á stór-
an og traustan aðdáendahóp vestanhafs sem lætur ekki
gagnrýnendur segja sér hvað eigi að sjá og hvað ekki.
Sandler í
góðum málum
skarpi@mbl.is
Mr. Deeds veltir Minority Report
úr toppsæti bandaríska bíólistans