Morgunblaðið - 20.07.2002, Qupperneq 23
Reuters
Janet Smith, formaður nefndar sem rannsak-
aði glæpi Harolds Shipmans, skýrir frá nið-
urstöðum hennar á blaðamannafundi.
BRESKI læknirinn Harold Ship-
man myrti að minnsta kosti tvö
hundruð manns til viðbótar við þá
fimmtán sem hann hefur þegar
verið dæmdur fyrir, að því er kem-
ur fram í nýútkominni skýrslu sem
unnin var fyrir breska þingið. Þá
segir í skýrslunni að hugsanlegt sé
að fórnarlömbin geti verið fleiri, en
45 mál þykja afar grunsamleg án
þess að hægt sé að slá því föstu að
um morð hafi verið að ræða. Er
því ljóst að Shipman er langskæð-
asti fjöldamorðingi í sögu Bret-
lands.
Shipman var dæmdur í fimmtán-
falt lífstíðarfangelsi árið 2000 fyrir
morð á fimmtán manneskjum sem
verið höfðu sjúklingar hans í út-
hverfi Manchester í Englandi og
hefur David Blunkett innanríkis-
ráðherra tilkynnt honum að hann
muni aldrei fá náðun og muni því
deyja innan fangelsismúra.
Af fórnarlömbunum 215 voru
171 kona og 44 karlmenn og var
það elsta 93 ára gömul kona og það
yngsta 41 árs gamall karlmaður.
Notaði heróín
við morðin
Saksóknarar hafa útilokað að
Shipman verði ákærður fyrir
morðin sem útlistuð eru í skýrsl-
unni. Ómögulegt sé að finna óhlut-
drægan kviðdóm til að þjóna í mál-
inu og læknirinn muni hvort eð er
aldrei um frjálst höfuð strjúka
framar. Skýrslan hefur samt sem
áður lagalegt vægi og verða morð-
in tvö hundruð færð á sakaskrá
Shipmans.
Samkvæmt skýrslunni framdi
Shipman sitt fyrsta morð einungis
einu ári eftir að hann hóf störf sem
læknir og virðist hann hafa framið
ódæðin einungis til þess að horfa á
lífið fjara úr fórnarlömbum sínum.
Læknirinn falsaði dánarvottorð
fórnarlamba sinna og voru fæst
þeirra krufin. Þá voru mörg þeirra
brennd en ekki grafin að lokinni
jarðarför og því var ekki auðvelt
fyrir eftirlitsaðila og lögreglu að
gera sér grein fyrir því að eitthvað
óeðlilegt væri á seyði.
Upp komst um Shipman árið
1998 þegar annar læknir gerði at-
hugasemd við þann mikla fjölda
sjúklinga sem létust í umsjá Ship-
mans en lögreglan sagði ekki næg
sönnunargögn fyrir hendi til að
réttlæta málsókn gegn honum.
Nokkrum mánuðum síðar var mál-
ið opnað á ný þegar dóttir 81 árs
gamallar konu uppgötvaði að móð-
ir hennar hafði breytt erfðaskrá
sinni svo að Shipman erfði allar
eigur hennar. Lík konunnar var
grafið upp og krufið og kom þá í
ljós að henni hafði verið gefinn of
stór skammtur af heróíni. Shipman
var svo dæmdur sekur fyrir að
hafa myrt fimmtán eldri konur
með sama hætti.
Gera verður
úrbætur á kerfinu
John Chisholm hjá bresku
læknasamtökunum segir það
hræðileg mistök að Shipman hafi
getað stundað iðju sína svo lengi
sem raun ber vitni.
Höfundar skýrslunnar taka und-
ir þetta og er næsta verkefni rann-
sóknarnefndarinnar að leita að
þeim göllum í kerfinu, sem gerðu
Shipman kleift að myrða svo
marga á svo löngum tíma án þess
að upp kæmist, og gera tillögur að
úrbótum.
Formaður rannsóknarnefndar-
innar, Janet Smith dómari, vottaði
í gær aðstandendum fórnarlamb-
anna samúð sína og sagði að ætt-
ingjum allra þeirra sem létust í
umsjá Shipmans hefði verið sent
eintak af skýrslunni.
Rannsókn hefur leitt í ljós að breskur læknir myrti a.m.k. 215 manns
Langskæðasti fjölda-
morðingi Bretlands
London. AP, AFP.
Breski læknirinn og
fjöldamorðinginn
Harold Shipman.
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002 23
ÞEIR höfðu um 7,7 milljónir
danskra króna, eða um 85
milljónir íslenskra króna, upp
úr krafsinu, þjófarnir sem
stálu peningaflutningabíl á
Nørrebro í Kaupmannahöfn í
fyrradag. Bílstjórinn og að-
stoðarmaður hans höfðu farið
inn í verslun til að fylla þar á
hraðbanka, og þegar þeir
komu út, tíu mínútum síðar,
var bíllinn horfinn. Frétta-
stofan NTB greindi frá þessu.
Atburðurinn varð um hálf-
áttaleytið. Peningaflutninga-
mennirnir voru á ferð milli
hraðbanka að fylla á þá. Þótt
umferð væri mikil virðist sem
enginn hafi tekið eftir því
hver eða hverjir tóku bílinn.
Þegar hann svo fannst,
nokkru síðar, um 300 metrum
neðar í götunni, voru allir
peningarnir horfnir úr hon-
um.
Peningaflutningamennirnir
höfðu skilið lyklana eftir í
kveikjulásnum, en það gera
þeir vanalega vegna þess að
aðra lykla þarf til að opna
dyrnar á bílnum. NTB hefur
eftir lögreglu að ekki hafi ver-
ið merki um það á bílnum að
dyrnar hafi verið brotnar upp.
Bíræfnir
þjófar
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll