Morgunblaðið - 26.07.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.07.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Keflvíkingar héldu markinu hreinu í fyrsta sinn í tvö ár / C3 Padraig Harrington í stað Ian Woos- nams á Canon- móti Nýherja / C2 8 SÍÐUR Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR  Vertu þú sjálfur/2  Raddir í höfðinu/3  Skjálftarnir í huganum/4  Herleg brúðkaupsveislan var/6  Götulistamenn í einn dag/7 Sérblöð í dag HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær rúmlega fertugan karlmann, Einar Óla Einars- son, í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa reynt að flytja inn um 30 kíló af hassi til landsins frá Spáni árið 1999. Hassið var falið í útihurð sem flytja átti til landsins ásamt níu öðrum frá Spáni en lög- reglan í Barcelona stöðvaði sendinguna. Tveir aðrir karlmenn voru dæmdir í níu mánaða fang- elsi hvor. Mennirnir neituðu allir sök. Fram kemur í dómnum að umrædd sending átti að vera „prufa“ vegna mun umfangsmeiri fíkniefnaviðskipta. Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir því að flutt yrði á fjórða hundrað kílóa af hassi frá Spáni til landsins. Hjördís Hákonardótt- ir héraðsdómari segir í dómnum að taka megi undir að þessi áætlun hljómi nokkuð ólíkindalega en gögn og framburður sakborninga staðfesti að áætlunin komst á framkvæmdastig. Talið er að skúta með um 350 kílóum af hassi hafi lagt af stað frá Ibiza haustið 1998 en verið snúið við vegna veikinda skipstjórans. Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík bárust vísbendingar sumarið 1998 um að í bígerð væri mjög mikill innflutningur á hassi. Komu fyrir hlerunartækjum Í kjölfarið voru símar hleraðir og hlerunartækj- um komið fyrir í híbýlum og í bifreið og fylgst var með hinum grunuðu. Einar Óli og annar sakborn- ingur skipulögðu innflutninginn í samvinnu við franskan og spænskan mann. Áfram var unnið að því að flytja hassið með skútu til landsins og var rætt um lendingarstaði við Djúpavog eða í Loð- mundarfirði. Jafnframt var rætt um hugsanlegan markað fyrir hassið í Grænlandi og í Færeyjum. Veturinn 1998 hóf einn sakborninga afplánun 18 mánaða dóms og í ársbyrjun 1999 á Einar Óli fund með honum í hegningarhúsinu við Skóla- vörðustíg. Samtal þeirra var hlerað og þar kom skýrt fram að þeir ráðgerðu að flytja inn 21 kíló af hassi og tala um að það sé góð upphitun fyrir hina sendinguna. Þriðji sakborningur kom seinna að málinu en hann sá m.a. um að semja við íslenskt verktakafyrirtæki um að flytja inn útihurðirnar en forráðamaður þess hafði enga vitneskju um fyrirhugaðan fíkniefnainnflutning. Samstarfs- menn mannanna á Spáni sáu um að koma hassinu fyrir í einni af útihurðinni og afhentu þær flutn- ingsfyrirtæki í október 1999. Hjá flutningsfyr- irtækinu sáu menn hins vegar að reikningur sem fylgdi hurðinni var falsaður og í kjölfarið var mál- ið kært til lögreglunnar í Barcelona. Lögregluna grunaði að fíkniefni væru falin í hurðunum en leit með fíkniefnahundi bar ekki árangur. Tveimur dögum síðar sendi íslenska lögreglan upplýsingar til starfsbræðra sinna á Spáni um að hún hefði upplýsingar um að von væri á stórri hasssendingu frá Spáni. Var aftur leitað í hurðunum og fannst þá hassið. Í kjölfarið voru tveir Spánverjar hand- teknir en mál þeirra hafa ekki verið tekin fyrir. Einarður ásetningur Einar Óli neitaði að hafa gert tilraun til að flytja inn hassið og hafa ætlað að selja það í ágóðaskyni hérlendis. Vörn hans byggðist m.a. á því að hann hefði ekki stjórnað innkaupum á fíkniefnunum og ekki vitað um magn þeirra né tegund. Dómurinn taldi framburð hans ekki trú- verðugan og segir að ásetningur hans hafi verið einarður. Ekki þótti tilefni til að skilorðsbinda refsinguna. Annar samverkamaður Einars Óla hlaut níu mánaða fangelsi, skilorðsbundið í fimm ár, en í dómnum segir að hann hafi undanfarin þrjú ár unnið markvisst að því að snúa lífi sínu til betri vegar. Hinn samverkamaðurinn hlaut einnig níu mánaða fangelsi og voru sex mánuðir skilorðs- bundnir til þriggja ára. Málið hefur tekið all- langan tíma á rannsóknar- og dómsstigi en í dómnum segir að gagnaöflun frá Spáni hafi eink- um tafið rannsókn og dómsmeðferð. Var tekið til- lit til tafarinnar við ákvörðun refsingar. Guðrún Sesselja Arnardóttir sótti málið f.h. ríkissaksóknara, Brynjar Níelsson hrl. var skip- aður verjandi Einars Óla og Karl Georg Sig- urbjörnsson hdl. og Hilmar Ingimundarson hrl. voru skipaðir verjendur hinna sakborninganna. Hugðust flytja á fjórða hundrað kíló af hassi frá Spáni til landsins með skútu Rúmlega 30 kíló af hassi voru sögð vera „prufa“ RÁN HF 42 kom til hafnar í Nes- kaupstað í gær og þykir kannski ekki í frásögur færandi. Ekki var vitað hversu lengi liggja ætti við bryggju að þessu sinni en það er í lagi að taka stutt stopp þegar veðrið fer batnandi eins og spáð er á Austurlandi í dag og næstu daga. Til hafnar í Neskaupstað Morgunblaðið/Kristinn NORÐURLJÓSUM barst í gær til- kynning frá lögmannsstofu þeirri sem var með í innheimtu fyrir Landsbankann skuldabréfin 19, sem bankinn gjaldfelldi vegna van- goldinna vaxtagreiðslna um miðjan júlí, um að ávísun frá félaginu hefði verið innleyst og bréfin væru því á ný í skilum. Í bréfi sem Norðurljós fengu frá Lex lögmannsstofu í gær segir orð- rétt: „Skrifstofa okkar hefur mót- tekið frá umbjóðanda okkar, Landsbanka Íslands, ávísun sem út er gefin af Íslenska útvarpsfélaginu að fjárhæð 3.818.000. Ávísun þessi er greiðsla inn á gjaldfallna skuld Norðurljósa samskiptafélags sam- kvæmt 19 skuldabréfum sem skrif- stofa okkar hefur til innheimtu fyr- ir hönd Landsbanka Íslands á hendur félaginu. Meðfylgjandi er kvittun fyrir ráð- stöfun greiðslunnar. Jafnframt til- kynnist félaginu hér með, að um- bjóðandi okkar, Landsbanki Íslands, hefur samþykkt að ofan- greindum skuldabréfum verði kom- ið í skil, enda verði eftirstöðvar kröfunnar, samanber meðfylgjandi kvittun, greiddar að fullu.“ Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri Norðurljósa, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að í kvittun- inni hefðu eftirstöðvarnar verið sagðar 247 þúsund krónur, sem hann hefði þegar í stað greitt, síð- degis í gær. Samkvæmt því bréfi sem Sig- urður ritaði Brynjólfi Helgasyni, aðstoðarbankastjóra Landsbank- ans, hinn 15. júlí og birtir voru kafl- ar úr hér í Morgunblaðinu í fyrra- dag átti lögfræðilegur innheimtu- kostnaður vegna bréfanna að vera 277 þúsund krónur, en síðar var það leiðrétt við Norðurljós og það upplýst að samtals ætti innheimtu- kostnaðurinn að vera liðlega 2,4 milljónir króna. Sigurður kvaðst vel geta unað við það að greiða innheimtukostnað sem væri innan við 10% af upphaflegum innheimtu- kröfum. Landsbanki segir bréfin komin í skil Skuldabréf Norðurljósa BANASLYS á fiskiskipum voru sjö í fyrra eða fleiri en samtals fjögur ár á undan. Þetta kemur fram í nýrri árs- skýrslu Siglingastofnunar. Árið 2000 varð aðeins eitt dauðaslys, 1999 tvö, ’98 eitt og ’97 tvö. Árið 1996 voru þau hins vegar níu talsins. Öll dauðaslys áranna 1997–2000 urðu um borð í skipum sem voru minna en 12 metrar á lengd en dauða- slysin sjö í fyrra urðu öll á skip- um sem voru lengri en 12 metr- ar. Þrjú dauðaslysanna urðu um borð í 12–24 metra skipum en fjögur í skipum sem voru lengri en 24 metrar. Mun færri fiskiskip, þrjú, fórust hins vegar á síðasta ári en árið áður, þegar tíu skip fór- ust. Eitt skip var í stærðar- flokknum 12–24 m en hin tvö voru stærri. Árið 2000 voru á hinn bóginn átta af tíu fiski- skipum sem fórust undir 12 metrum á lengd. Tilkynntum slysum til Tryggingastofnunar fækkaði enn, fimmta árið í röð. Árið 2001 voru þau 348 en 460 árið 1996. Banaslys- um á fiski- skipum fjölgar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.