Morgunblaðið - 26.07.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.07.2002, Blaðsíða 37
tengsl en áður. Þessi sambúðarár þriggja kynslóða urðu líka til þess að börnin eignuðust enn nánara sam- band við afa sinn og ömmu en ella hefði orðið. Einkum fékk yngsti sonur okkar, Sveinn Orri, sem var tæpra tveggja ára þegar við fluttum á Tún- götuna, ríkulega að teyga af þeim kærleik og athygli sem barnabörn jafnan njóta hjá afa og ömmu. Þegar svo við bættist að þau höfðu hann í sinni umsjá á daginn, meðan foreldr- arnir voru við vinnu, urðu böndin enn sterkari. Hann hélt síðan áfram að vera í pössun hjá þeim hluta úr degi þegar þau voru flutt í Skildinganesið og allt fram á barnaskólaaldur. Afi hafði alltaf nægan tíma til að sinna honum; sótti þann stutta oftar en ekki í leikskólann og þær voru ófáar ferð- irnar sem þeir fóru saman um Öskju- hlíðina, sá gamli á tveimur jafnfljót- um en afastrákurinn ýmist skokkandi við hliðina eða á hjólinu sínu. Pétur hafði einstakt samband við börn og þess nutu barnabörnin auð- vitað í fyrsta sæti, en þessi eiginleiki hans kom líka fram í sambandi hans við alls óskyld börn. Þau sem áttu heima í nánd við hann, einkum eftir að hann settist í helgan stein og var jafn- an heima við, drógust að honum og oft kom það fyrir að eitthvert barnið í grenndinni bankaði upp á til að spyrja hvort hann vildi koma út að leika með þeim. Það var hlýjan og einlægt bros- ið sem dró börn að honum, en líka það að hann gaf sér tíma til að tala við þau eins og fólk og jafningja og talaði aldrei niður til þeirra; fékk þeim ein- hver verkefni sem þeim fannst skipta máli og þau verða meiri af. Þannig var hann að eignast nýja unga vini fram á síðustu ár. Pétur og Ágústa bjuggu síðustu fjögur árin á Elliheimilinu Grund. Þar höfðu þau eigin íbúð til umráða uns Pétur missti heilsuna og fluttist á hjúkrunardeild. Mér er minnisstætt að Pétri leist ekki alltof vel á þessa ráðagerð konu sinnar í upphafi, en þegar til átti að taka sá hann fljótt hversu farsæl þessi ráðstöfun var og hann þreyttist ekki á að dásama það yndislega fólk sem annaðist þau hjón- in og gerði þeim lífið svo létt. Hann líkti dvölinni á Grund við fimm stjörnu lúxushótel og sagði hverjum sem heyra vildi: „Hvað við erum heppin!“ Mér finnst ég hafa verið heppin að eignast Pétur Snæland að tengdaföð- ur. Guð blessi minningu hans. Jónína Margrét Guðnadóttir. Hann elsku afi minn, Pétur V. Snæ- land, hefur nú kvatt þennan heim. Þegar ég horfi aftur til allra áranna sem ég hef fengið að njóta með þess- um yndislega manni koma svo marg- ar hugsanir og góðar minningar upp í hugann sem sefa söknuðinn. Afi hafði til dæmis þann fágæta leiðtogahæfileika að geta hvatt mann til dáða og sagt manni fyrir verkum þannig að manni fannst maður ráða ferðinni og eiga frumkvæðið sjálfur. Eitt atvik sem mér er minnisstætt er þegar ég var fárra ára gamall og var að sníkja af honum uppáhaldsnammið mitt – líklega ekki í fyrsta skipti. Hann stöðvaði bílinn fyrir utan sjoppu á Vesturgötunni og mér til mikillar skelfingar lagði hann til að ég færi inn í sjoppuna og útvegaði nammið sjálfur. Eftir nokkra stund tókst honum að sannfæra mig um að ég gæti þetta og sagði mér hvað ég þyrfti að gera. Ég gleymi því aldrei hve stoltur og fullur sjálfstrausts ég var þegar ég kom brosandi út úr sjoppunni, prílaði upp í afabíl og gæddi mér á namminu sem ég hafði ákveðið að kaupa aleinn og óstuddur. Líklega vorum við báðir jafn stoltir af afreki dagsins. Það var alltaf skemmtilegt að vera með afa, ekki síst þegar farið var upp í Langá. Maður var ekki margra ára gamall þegar maður hafði margoft ekið jeppa yfir ána, rennt fyrir lax, keyrt jarðýtu og gert ýmislegt annað sem barn „þurfti“ að gera. Auk þess að vera ógleymanleg skemmtun fyrir lítinn dreng hafa allir þessi smásigrar sem hann lagði upp fyrir mann reynst ómetanlegt veganesti síðar í lífinu. Hann Pétur afi minn var góðhjart- aður, einlægur, örlátur og skemmti- legur maður sem sá og trúði á hið góða í hverjum manni. Áræði hans, úrræðasemi og athafnasemi voru aðdáunarverð. Hann hefur alla tíð verið og mun alla tíð vera mér inn- blástur og fyrirmynd. Guð blessi besta afa í heimi. Pétur S. Snæland. Kær frændi, Pétur V. Snæland, er látinn. Honum, yngsta barni afa og ömmu, tengjast margar minningar, flestar gleði og fjöri en líka athafna- semi og dugnaði. Fjörinu fylgdi að hann átti það til að tala mjög hratt. Eitt sinn kom hann snemma morguns heim til að hitta pabba. Pétur sagði eitthvað í flýti og enginn skildi. Þá skrifaði hann þetta en þá með slíkri fljótaskrift að pabbi lét lyfjafræðing lesa það og þá stóð: Baldur ertu með á skyttirí? Svona var hraðinn og gam- anið sem fylgdi alla tíð þessum föð- urbróður mínum. Áhugi á bílum var okkur sameiginlegur og hjá Pétri, sem varð búfræðingur og síðar plötu- og ketilsmiður, urðu bílar að miklu starfi. Pétur rak um tíma bílaverk- stæði, fyrst í grennd við Trípolí bíó á Melunum og síðar inni við Háloga- land. Helsti viðskiptavinurinn var lög- reglan í Reykjavík. Eftir stríð keyptu Íslendingar fjölda jeppa af varnarlið- inu. Í efni til varahluta í þá voru m.a. fluttir inn nokkrir sjójeppar. Ein- hverjir þeirra munu hafa verið nýttir til siglinga en þann glæsilegasta þeirra gerði Pétur upp og byggði á hann tvískipta yfirbyggingu. Þegar m/s Gullfoss kom nýr til landsins árið 1950 olli það miklu uppnámi við höfn- ina þegar Pétur kom akandi niður eina verbúðarbryggjuna og steypti jeppanum í sjóinn. Óttuðust ýmsir sjónarvotta að þarna yrði slys, en þegar bíllinn flaut og tók vel á skrið létti fólki. Mikla athygli vakti síðan þegar Pétur hringsigldi Gullfoss á ytri höfninni og fagnaði með þessu komu skipsins. Merkast í bílasögu Péturs var sú verktakastarfsemi sem hann rak með mikilli fjölbreytni um árabil. Pétur og G.G. verktaki sem enn rekur mikla þungavinnubílastöð urðu fyrstir til þess að taka upp umfangsmikinn rekstur með margvíslega bíla. Und- irstaða þess flota sem þeir voru með voru trukkar frá hernum. Hjá Pétri voru þetta sex hjóla og þó flestir tíu hjóla trukkar. Á þessa bíla, eða grind- ur þeirra voru settar steyputunnur, kranar, loftpressur og gröfur svo eitt- hvað sé nefnt. Meðal meiriháttar verkefna var m.a. lagning háspennu- línu frá Steingrímsstöð til Reykjavík- ur. Í þessum rekstri gekk oft mikið á, bíll eða tæki bilaði og þá varð að koma því í lag með hraði til að ljúka verki. Ef erfitt var að ná hlut í sundur til við- gerðar eða saman, þá var sagt að við- kvæðið hjá Pétri væri, bara að brenna það eða bara að rafsjóða það. Hug- urinn var mikill og viljinn til að skila verkum fljótt og vel. Í upphafi verk- takastarfsins brann bílaverkstæðið á Hálogalandi og þar með sjójeppinn frægi ásamt fleiru. Ekki varð þetta til að stöðva Pétur sem í þetta sinn kom sér fyrir á horni Vesturgötu og Ána- nausta þar sem hann byggði fjögurra hæða verksmiðjuhús. Í því var hann með verkstæði vinnuvélanna og fljót- lega einnig gúmmísvampverksmiðju, málningarverksmiðju, framleiðslu á gólfefnum og saumastofu. Síðar einn- ig plastsvamp. Pétur var þannig brautryðjandi á ýmsum sviðum verk- legra framkvæmda og iðnaðar og í öllu þessu stóð eiginkonan, Ágústa Halldórsdóttir Snæland, með honum af ljúfmennsku og lítillæti. Ég naut þess að umgangast reksturinn í verk- smiðjnni talsverðan tíma þar sem ég vann í nágrenninu auk þess að faðir minn starfaði hjá Pétri bróður sínum nokkur ár. Einnig naut ég frændsem- innar þegar ég hóf eigin rekstur og þurfti á aðstöðu að halda við upphaf hennar. Þá var verkstæði Péturs mér velkomið til athafna. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti til Péturs fyrir hans fjör og gleði og þá hlýju vinsemd sem hann ávallt sýndi mér. Ágústu, sonum þeirra og tengdadætrum og öðrum vandamönnum votta ég samúð okkar hjónanna. Kristinn Snæland.  Fleiri minningargreinar um Pét- ur Snæland bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2002 37 ✝ Þórunn Matt-híasdóttir fædd- ist á Patreksfirði hinn 6. janúar 1929. Hún lést 21. júlí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru þau Kristín Ragnheiður Kristjánsdóttir og Matthías Guðmunds- son lögregluþjónn. Hinn 25. desem- ber 1952 giftist Þór- unn Pétri Valdi- marssyni, f. 3. ágúst 1926. Foreldrar hans voru Valdimar Stefánsson stýrimaður og Hólm- fríður Helgadóttir húsfrú. Börn Þórunnar og Péturs eru: 1) Valdimar Viðar, f. 22.6. 1950, d. 18. 9. 1966; 2) Ragnheiður Krist- ín, f. 6.2. 1952, maki Tómas Sveinbjörns- son, f. 18.6. 1948. Börn þeirra eru: a) Viðar, maki Anna Karen Kristjáns- dóttir og eiga þau tvö börn, Tómas Hróa þriggja ára og Ösp tveggja ára. Áður átti Viðar son, Steinar, níu ára. b) Sigurður Svein- björn. Þórunn starfaði lengst af sem sjúkraliði á Landa- koti og síðast á elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund. Útför Þórunnar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Í dag er kvödd hinstu kveðju mág- kona mín Þórunn Matthíasdóttir, eft- ir rúmlega mánaðar legu á gjörgæslu á Landspítalanum í Fossvogi. Heilsa Lólóar, en það var hún gjarnan nefnd meðal skyldmenna og vina, hafði ekki verið góð hin síðari ár og mótstaða við frekara álagi sjúk- dóma því lítil. Lóló fæddist 6. janúar 1929 á Pat- reksfirði en flutti til Reykjavíkur árs- gömul með foreldrum sínum, Matt- híasi E. Guðmundssyni kennara og síðar lögregluþjóni og Ragnheiði Kristínu Kristjánsdóttur frá Eyrar- húsum við Tálknafjörð. Góðar ættir stóðu að henni sem voru Víkingslækj- ar- og Hvammsætt í föðurætt og öfl- ugur ættbogi í móðurætt, en móður- amma hennar var systir Ólafs Jóhannessonar konsúls og útgerðar- manns á Patreksfirði. Lóló fluttist með fjölskyldu sinni til Akureyrar haustið 1939 og var þar búsett öll unglingsárin en fluttist til Reykjavíkur 1949 og giftist 2. jóladag það ár Pétri Valdimarssyni hafnar- verði, og eignuðust þau tvö börn, Valdimar Viðar og Ragnheiði Krist- ínu, en Valdimar Viðar misstu þau ungan, eða í ágúst 1966, í vinnuvélas- lysi og var hann öllum mikill harm- dauði. Lóló gerðist sjúkraliði en starfaði mest í lyfjaverslun bæði á Akureyri og í Reykjavík, lengst af í Ingólfs- apóteki. Ég minnist með þakklæti þeirra daga þegar ég kom fyrst ein til Ak- ureyrar að heimsækja fjölskyldu mannsins míns tilvonandi, hve vel mér var tekið og ekki síst af Lóló minni sem var jafnaldra mín og þreyttist hún ekki á að sýna mér bæ- inn sinn af miklu stolti, og allt það markverðasta sem þar var að sjá. Henni þótti líka gaman að sýna mér glæsilegu fötin sem móðir hennar hafði saumað. Það var undravert hvað móðir hennar gat galdrað mikið úr litlu efni með skærum og saumavél og aðeins haft til hliðsjónar mynd úr tískublaði eða riss á pappír. Listræns saumaskapar tengdamóður minnar urðu ungir sem eldri innan fjölskyld- unnar aðnjótandi meðan henni entist heilsa. Á sjúkrahúsinu naut Lóló einstakr- ar umhyggju og hlýju. Það þökkum við af heilum hug. Ég og fjölskylda mín sendum fjölskyldu hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ég geymi minningar um kæra mágkonu. Ásta S. Hannesdóttir. Kær mágkona er látin og minning- arnar sækja á, því margs er að minn- ast eftir svo langa samleið. Það eru rösklega 50 ár síðan ég hitti Lóló fyrst. Pétur kom heim með hávaxna, glæsilega unga konu, sem hann hafði kynnst á Akureyri. Í þá daga fylgdi alvara málum þegar pilt- ur bauð stúlku hátíðlega inn á heimili foreldra sinna og bað mömmuna að tjalda því besta. Þau gengu svo í hjónaband á annan dag jóla 1949 og byrjuðu að búa í lítilli íbúð á efstu hæðinni hjá okkur. Því varð samgangurinn mikill. Svo komu börnin, fyrst Viðar og síðan Ragn- heiður, og þau urðu augasteinar okk- ar allra. Sambandið var alltaf náið, því þau fluttu aldrei langt í burtu og bjuggu mestan sinn búskap vestan lækjar, enda var bæði gleði og sorg deilt eftir bestu getu. Gleðistundanna er ljúfast að minn- ast og eins dillandi hlátursins hennar Lólóar á góðum stundum. Þær minn- ingar vil ég hafa efstar í sjóðnum mínum. Sorgin kom til þeirra óboðin og snerti okkur hin líka óþyrmilega, þegar Viðar lést af slysförum aðeins 16 ára. Tíminn er sagður lækna öll sár, en misvel. Sólargeislarnir birtust þegar Ragnheiður og Tómas eignuðust tvo drengi, Viðar og Sigga Björn, og ekki varð gleðin og birtan minni þegar svo þrjú langömmu- og afabörn bættust við. Það var mikil gleði og stolt í öllu sem varðaði hópinn hennar. Það er komið að leiðarlokum um sinn og því viljum við systkinin og fjölskyldur okkar þakka samfylgdina. Elsku Pétur, Ragnheiður, Tommi, og fjölskyldan öll, við biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í sorginni og blessa ykkur í framtíðinni. Friður Guðs fylgi þér, Lóló mín. Fríða. Mig langar til að skrifa nokkrar línur til minningar um hana Lóló, eins og hún var oftast kölluð. Lífs- hlaup hennar verður rakið af öðrum, mér fróðari, en fyrir mér var hún bara mamma hennar Ragnheiðar æskuvinkonu minnar, en við kynnt- umst á 13. árinu. Við Ragnheiður hóf- um vinskap okkar í miðri unglinga- byltingu, þar sem Bítlar, Rollingar, Kinks o.fl. voru goðin okkar. Allt var að breytast. Það urðu til unglingar með sína eigin unglingamenningu. Það kallaði á þátttöku allra sem vildu teljast normal. Foreldrar okkar beggja voru hálftvístígandi yfir breytingunum sem urðu á okkur. Við gengum með toppinn ofan í augu, máluðum okkur með kolsvörtum augnháralit og kórónuðum sköpunar- verkið með hvítum sanseruðum vara- lit. Við urðum meistarar í að mála okkur í strætó án spegils. Þetta voru tímar Panntyggjós og þrásetna á Hressó, þar til Teddi dyraskelfir vís- aði okkur á dyr. Það voru takmörk fyrir því hversu eitt djúsglas gaf langan seturétt. Ég held af reynslu minni sem móðir að foreldrar okkar hafi ekki vitað hvaðan á sig stóð veðr- ið. Lóló skildi samt meir en margur. Það var stelpa í Lóló, enda leit hún út fyrir að vera ekki deginum eldri en tuttugu. Pabbarnir voru dálítið strangari á þessum tíma, mömmurn- ar redduðu okkur oft fyrir horn. Nema þegar þeim ofbauð að sjálf- sögðu. Ég held að við Ragnheiður höfum verið taldar til vandræðagemsa vegna stöðugra uppátækja sem í dag þættu ekki tiltökumál. Við stukkum einu sinni upp í Akraborgina, bara í bríaríi, og misstum af henni til baka og komumst ekki heim fyrr en daginn eftir. Foreldrar okkar beggja biðu á kajanum þungir á brún þegar Akra- borgin kom að landi. Það átti að að- skilja okkur. Við þóttum ómögulegar hvor í annarrar félagsskap. Kvenleg- ar útgáfur af Knold og Tot. Það var yndislegt að koma heim til Lólóar þegar hún var að baka og sýsla í eldhúsinu. Hún hlustaði á Óskalög sjúklinga eða sjómanna og flautaði eins og atvinnuflautari með lögunum. Lóló var alltaf lekker, hún hafði stíl. Hún var falleg kona, reisu- leg í framgöngu og ósjálfrátt bar maður virðingu fyrir henni. Stundum tók hún okkur á beinið og reyndi að leiðbeina okkur. Einkum man ég eftir þegar við vinkonurnar höfðum hlaðið framan í okkur kökumeiki af dekkstu tegund og ég þakka mínum sæla fyrir að eiga ekki mynd af þeirri hörmung- arsýn. Minningar mínar um Lóló eru í sinemaskóp. Ég man meira að segja lyktina þegar hún bakaði. Þvílíkur ilmur, algjört namminamm. Ragnheiður kom sér upp ferða- grammófóni og við sátum með hann og fullt af litlum plötum sem mömmu hennar höfðu áskotnast í næðingnum í Nauthólsvík. Á þeim tíma var alltaf kalt í Nauthólsvík. En sólin skein samt og okkur fannst við geta allt, við myndum lifa að eilífu. Það er orðið nokkuð langt síðan að við Lóló hittumst en þegar leiðir okk- ar lágu saman síðast drukkum við kaffi og áttum maraþonsamræður um fortíðina og hlógum eins og smá- stelpur. Lóló var stór þáttur í lífi mínu á unglingsárunum. Þá þekkti ég hana best. Ég er þakklát fyrir þau kynni. Viðar, eina systkini Ragnheiðar, dó í hörmulegu slysi þegar við vorum á unglingsárunum og ég gat ekki betur séð en að þessi litla fjölskylda tæki á þeim harmleik með reisn og æðru- leysi. Ragnheiður var ein eftir, for- eldrum sínum dýrmætari en nokkru sinni, og ég veit að hún hefur verið í nánu og góðu sambandi við þau bæði og lengi vel hafa þau búið í sama húsi. Það er huggun fyrir Pétur föður hennar að hafa Tomma og Ragnheiði svo nálægt sér, nú þegar hann sér á bak lífsförunaut sínum, þar sem hjónaband þeirra spannar rúma hálfa öld. Elsku Ragnheiður, missir þinn er mikill. Ég veit að þú áttir ekki betri og nánari vinkonu en mömmu þína. Ég samhryggist ykkur innilega, þér, Tomma, pabba þínum, börnum og barnabörnum. Ég og fjölskylda mín sendum ykk- ur innilegar samúðarkveðjur á þess- um sorgardegi. Megi almættið vaka yfir ykkur. Jenny Anna Baldursdóttir. ÞÓRUNN MATTHÍASDÓTTIR '       ;                               ! =B - "511 3 -0# 0   8              = (     B #$,,#"$  - ,** - ,* '!#%# 1#* ',* 1#*  '!#%# )!##* #"$  !#!#*  #  #%# $ , #* )7 !#*   . # %# 6 #67 #%6 #6 #67 #'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.