Morgunblaðið - 26.07.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 26.07.2002, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                         !"""   !!!    #$%  """"""& '""" (& "      " (   BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. NÚ ÞEGAR fjölmargir eru á ferð um landið með tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi er við hæfi að rifja upp það sem þarf að vera í lagi á bílnum og í eftirvögnunum. Lögreglan mun á næstunni herða eftirlit með þess- um hlutum. Það er óþarfi að bæta sektum ofan á ferðakostnaðinn. Dráttarkúlur þarf að skrá Tengibúnaður bílsins þarf að vera samþykktur af bifreiðaskoðun til að teljast löglegur. Þá er hann skráður í skráningarvottorð og líka tilgreint hvað þú mátt draga þungan eftir- vagn með eða án hemla. Ef þú hefur keypt bíl með dráttarkúlu getur þú séð hvort hann er samþykktur eða ekki í skráningarvottorðinu. Sé hann það ekki verður þú að fara á skoð- unarstöð og láta skoða hann. Það kostar 1500 kr. Sé búnaðurinn ekki skráður getur tryggingafélagið átt endurkröfurétt á þig ef eitthvað kemur fyrir. Eftirvagnar léttari en 750 kg Meginreglan er sú að bíll þarf að vera helmingi þyngri en eftirvagninn sem hann dregur því ekki er krafist hemla á svo léttum eftirvögnum. Þetta á við um bíla allt að 3500 kg. Léttari eftirvagnar en 750 kg. eru ekki skráningarskyldir en þurfa að vera með lögboðinn ljósabúnað, stöðuljós, hemlaljós, stefnuljós og númersljós ef við á. Bretti á að vera yfir dekkjum. Bílnúmerið á að vera aftan á eftirvagninum ef hlassið skyggir á skráningarnúmer bílsins. Eftirvagnar þyngri en 750 kg Eftirvagnar ( tjaldvagnar, felli- hýsi og hjólhýsi) sem eru þyngri en 750 kg. eiga að vera skráðir og hafa skráningarnúmer. Þeir þurfa að hafa hemla. Ekki er þörf á neyðarhemli ef eftirvagninn er undir 1500 kg. Skil- yrðislaust ber þó að hafa öryggis- keðju. Aukaspeglar nauðsynlegir Skylt er að hafa framlengingu á speglum ef fellihýsið eða hjólhýsið byrgir útsýn aftur fyrir. Svo mun vera raunin á fólksbílum og sumum minni jeppum. Sektir fyrir að hafa ekki spegla ef þú sérð ekki í bak- sýnisspeglum eru skv. 73 gr. umferð- arlaga 4000 kr. Speglasett kosta til dæmis rúmar 4.000 kr. í Bílanaust svo dæmi sé tekið. Lögreglan mun á næstunni herða eftirlit með þessum atriðum. Sektir og afskipti lögreglu eru ekki skemmtileg, sérstaklega ekki í upphafi sumarferðar með fjöl- skyldunni. Verum lögleg! Tökum ekki áhættu! Ekkert liggur á! Munið að það er 80 km hámarks- hraði á þjóðvegum með fellihýsi, hjólhýsi og tjaldvagna. JÓN GRÖNDAL, umferðarfulltrúi Suðurnesja og Vesturlands. Þekkið skyldur ykkar í umferðinni Frá Jóni Gröndal: Morgunblaðið/Sverrir Greinarhöfundur hvetur eigendur tjaldvagna og annarra tengivagna til að athuga hvort búnaður þeirra sé í lagi. PIPAR OG SALT Klapparstíg 44  Sími 562 3614 NESTISKÖRFUR 2ja og 4ra manna körfur frá kr. 8.500 án fylgihluta frá kr. 22.900 með öllu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.