Morgunblaðið - 26.07.2002, Síða 40
40 FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!"""
!!!
#$% """"""&
'"""
(& "
"
(
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NÚ ÞEGAR fjölmargir eru á ferð
um landið með tjaldvagna, fellihýsi
og hjólhýsi er við hæfi að rifja upp
það sem þarf að vera í lagi á bílnum
og í eftirvögnunum. Lögreglan mun
á næstunni herða eftirlit með þess-
um hlutum. Það er óþarfi að bæta
sektum ofan á ferðakostnaðinn.
Dráttarkúlur þarf að skrá
Tengibúnaður bílsins þarf að vera
samþykktur af bifreiðaskoðun til að
teljast löglegur. Þá er hann skráður í
skráningarvottorð og líka tilgreint
hvað þú mátt draga þungan eftir-
vagn með eða án hemla. Ef þú hefur
keypt bíl með dráttarkúlu getur þú
séð hvort hann er samþykktur eða
ekki í skráningarvottorðinu. Sé hann
það ekki verður þú að fara á skoð-
unarstöð og láta skoða hann. Það
kostar 1500 kr. Sé búnaðurinn ekki
skráður getur tryggingafélagið átt
endurkröfurétt á þig ef eitthvað
kemur fyrir.
Eftirvagnar léttari en 750 kg
Meginreglan er sú að bíll þarf að
vera helmingi þyngri en eftirvagninn
sem hann dregur því ekki er krafist
hemla á svo léttum eftirvögnum.
Þetta á við um bíla allt að 3500 kg.
Léttari eftirvagnar en 750 kg. eru
ekki skráningarskyldir en þurfa að
vera með lögboðinn ljósabúnað,
stöðuljós, hemlaljós, stefnuljós og
númersljós ef við á. Bretti á að vera
yfir dekkjum. Bílnúmerið á að vera
aftan á eftirvagninum ef hlassið
skyggir á skráningarnúmer bílsins.
Eftirvagnar þyngri en 750 kg
Eftirvagnar ( tjaldvagnar, felli-
hýsi og hjólhýsi) sem eru þyngri en
750 kg. eiga að vera skráðir og hafa
skráningarnúmer. Þeir þurfa að hafa
hemla. Ekki er þörf á neyðarhemli ef
eftirvagninn er undir 1500 kg. Skil-
yrðislaust ber þó að hafa öryggis-
keðju.
Aukaspeglar nauðsynlegir
Skylt er að hafa framlengingu á
speglum ef fellihýsið eða hjólhýsið
byrgir útsýn aftur fyrir. Svo mun
vera raunin á fólksbílum og sumum
minni jeppum. Sektir fyrir að hafa
ekki spegla ef þú sérð ekki í bak-
sýnisspeglum eru skv. 73 gr. umferð-
arlaga 4000 kr. Speglasett kosta til
dæmis rúmar 4.000 kr. í Bílanaust
svo dæmi sé tekið. Lögreglan mun á
næstunni herða eftirlit með þessum
atriðum. Sektir og afskipti lögreglu
eru ekki skemmtileg, sérstaklega
ekki í upphafi sumarferðar með fjöl-
skyldunni.
Verum lögleg! Tökum ekki
áhættu! Ekkert liggur á!
Munið að það er 80 km hámarks-
hraði á þjóðvegum með fellihýsi,
hjólhýsi og tjaldvagna.
JÓN GRÖNDAL,
umferðarfulltrúi Suðurnesja og
Vesturlands.
Þekkið skyldur
ykkar í
umferðinni
Frá Jóni Gröndal:
Morgunblaðið/Sverrir
Greinarhöfundur hvetur eigendur tjaldvagna og annarra tengivagna til
að athuga hvort búnaður þeirra sé í lagi.
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
NESTISKÖRFUR
2ja og 4ra manna körfur
frá kr. 8.500 án fylgihluta
frá kr. 22.900 með öllu