Morgunblaðið - 26.07.2002, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2002 9
www.oo.is
Opið alla laugard. frá kl. 11-16 Kerrur yfir 20 gerðir Teutonia 62.990 - 59.840 stgr.BRIO - ORA - BASSON Bílstólar yfir 20 gerðir
T
il
b
oð
á
b
ar
n
ar
ú
m
u
m
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
15%
aukaafsláttur
ennþá glæsilegt úrval
Bankastræti 14, sími 552 1555
Hver býður allt að
90% afslátt á útsölu
og er að taka upp nýjar vörur?
Verðhrun á útsölu
Buxur - áður 6.900, nú 2.900
Gallajakkar - áður 10.800, nú 3.900
Kjólar - áður 8.900, nú 2.900
LISTAHÁTÍÐ ungs fólks á Aust-
urlandi, LungA, var haldin í
þriðja sinn á Seyðisfirði dagana
17.–21. júlí síðastliðinn. Undirbún-
ingur hafði staðið í langan tíma
og var Aðalheiður L. Borgþórs-
dóttir framkvæmdastjóri hátíð-
arinnar.
Hátíðin var byggð upp á þann
veg að boðið var upp á fjölda
námskeiða, til dæmis í leiklist,
didgeridoo-smíði og -spili, frjáls-
um dönsum, grafískri hönnun og
stuttmyndagerð. Styrkur frá
menningarráði Austurlands gerði
aðstandendum kleift að halda
kostnaði í lágmarki og var ein-
valalið leiðbeinenda og lista-
manna á námskeiðunum. Einnig
voru haldnar samkeppnir, bæði að
sviði lagasmíða og fatahönnunar.
Í lagasamkeppninni var keppt
um besta frumsamda lagið og
einnig bestu útsetninguna á tit-
illagi þáttaraðarinnar Vina. Í
fatahönnunarkeppninni var keppt
í þremur flokkum, hönnun brúð-
arkjóls, bols og um frumlegustu
samsetninguna. Steinrún Ótta
Stefánsdóttir frá Egilsstöðum
sigraði í fatahönnuninni og hljóm-
sveitin Króm frá Eskifirði bar sig-
ur úr býtum í lagasamkeppninni.
Sigurvegarar í báðum keppnum
hlutu flugferð til Reykjavíkur í
vinning, og þátttökurétt í Unglist
í haust.
„Þátttakan var mjög góð, alls
voru um 120 krakkar víða af
Austurlandi sem tóku þátt í nám-
skeiðum og keppnum á hátíðinni,“
sagði Aðalheiður L. Borgþórs-
dóttir framkvæmdastjóri. „Við
héldum uppskeruhátíð á sunnu-
deginum þar sem afrakstur nám-
skeiðanna var sýndur. Árang-
urinn var töfrum líkastur og var
ótrúlega góð stemning á hátíð-
inni.“
Í blíðviðrinu á Austurlandi var ekki annað hægt en að færa lagasam-
keppnina undir bert loft. Hér sjást ánægðir áhorfendur sleikja sólina.
Líf og
fjör á
LungA
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Á listahátíðinni var ungu fólki kennt að smíða og skreyta eigið didg-
eridoo, sem er ævafornt blásturshljóðfæri frumbyggja í Ástralíu. Hér
má sjá nokkra þátttakendur í námskeiðinu með afraksturinn.
ÍSLENSKT fyrirtæki, Altech JHM
hf., hefur samið við stærsta álver
Ástralíu, Tomago, um kaup á nýj-
ustu vél fyrirtækisins en verðmæti
sölusamningsins er um 20 milljónir
króna, segir í tilkynningu frá Al-
tech. Fram kemur að vélin er svo-
kallaður tindajafnari og byggist á
nýrri tækni sem Altech hefur þróað
á undanförnum árum til þess að
halda öllum tindum skautgaffla
jafnlöngum, en tindajafnarinn sé sá
eini í heiminum og hér sé um að
ræða nýja tækni til að bæta rekstur
álvera.
Tomago er tuttugasta álverið
sem kaupir tæki frá Altech, en fyr-
irtækið, sem framleiðir 450.000
tonn á ári, gengst nú undir end-
urnýjun þar sem verið er að auka
framleiðni þess og bæta umhverf-
ismál.
Sölustjóri Altech, Barry Wood-
row, sem nú er á söluferð í Ástralíu
segir mikinn áhuga á tækjum frá
Altech til að bæta rekstur álvera og
innra umhverfi og öryggi starfs-
manna þeirra. Salan á tindajafn-
aranum til Tomago sé mikilvæg
fyrir Altech, þar sem mörg álver
hafi sýnt áhuga á tækinu en bíði
eftir að fá að sjá það í notkun hjá
öðru álveri.
Jón Hjaltalín Magnússon, fram-
kvæmdastjóri hjá Altech JHM, seg-
ir að 12 fastráðnir starfsmenn,
verk- og tæknifræðimenntaðir,
vinni hjá Altech en fyrirtækið sé 15
ára gamalt. Þessir starfsmenn vinni
aðallega að hönnun á vélum, raf-
búnaði og stýribúnaði en eiginleg
framleiðsla á vélum og tækjum Al-
tech fari fram hjá undirverktökum
á sviði rafmagns-, véla-, vökva- og
lofttækni hér heima og erlendis.
Ástralskt álver kaupir
íslenskan tæknibúnað
Barnafatnaður
í úrvali, skoðaðu verðið
Þumalína, Skólavörðustíg 41