Morgunblaðið - 26.07.2002, Qupperneq 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MEMPHIS Corporation verður nýtt
nafn á sameinuðu fyrirtæki Mem-
phis Ltd. og Skynet Telematics Inc.
Í fréttatilkynningu frá Memphis
Ltd. kemur fram að fyrirtækið er að
sameinast Skynet Inc. og hyggst
skrá nýtt fyrirtæki, Memphis Cor-
poration, á hlutabréfamarkað í
Bandaríkjunum innan skamms.
Memphis er hugbúnaðarfyrirtæki
og var stofnað á Íslandi 1994. Memp-
his Limited var stofnað sem eignar-
haldsfélag í Bretlandi árið 1998 og
hefur um 380 hluthafa. Með samein-
ingunni við Skynet Inc. verða hlut-
hafar nýs fyrirtækis um 2.300 tals-
ins, þar af er tæpur þriðjungur
íslenskir hluthafar. Memphis Inc.
mun áfram hafa höfuðstöðvar í Bret-
landi.
Að sögn Sigfúsar Halldórs, stjórn-
arformanns Memphis Ltd., er yfir-
takan á Skynet Inc. gerð til að stytta
Memphis leið á markað í Bandaríkj-
unum. Hann segir Skynet ekki vera
með neina starfsemi lengur. Kostur
þess sé hins vegar sá að það er nú
þegar skráð á markað og hefur mik-
inn fjölda hluthafa. Auk þess er gert
ráð fyrir að Skynet hafi aflað um 200
milljóna króna í hlutafé þegar af
sameiningu verður. Sigfús segir yf-
irtökuna þannig geta sparað um 12–
18 mánuði sem annars færu í að afla
hlutafjár og skrá fyrirtækið á mark-
að.
Helsta vara Memphis er hugbún-
aðurinn Survey Explorer sem not-
aður er fyrir ýmis talnagögn, s.s.
spurningalista og símakannanir, og
hefur verið seldur í Evrópu, Banda-
ríkjunum, Asíu og Afríku. Ný útgáfa
hugbúnaðarins, Survey Explorer
5.0, er væntanleg á markað í ágúst.
Memphis yfir-
tekur Skynet
Hyggjast skrá nýtt fyrirtæki,
Memphis Corporation, á hlutabréfa-
markað í Bandaríkjunum
NORRÆNI fjárfestingarbankinn,
NIB, valdi Búnaðarbankann sem
umsjónaraðila þriggja milljarða
skuldabréfaútboðs sem nú stendur
yfir. Bankinn sér einnig um að þjón-
usta NIB við greiðslur og uppgjör á
skuldabréfunum ásamt því að sinna
viðskiptavakt með bréfin í Kauphöll
Íslands. Skuldabréfin eru 15 ára af-
borgunarbréf, verðtryggð og bera
4,75% nafnvexti. Þau eru rafrænt
skráð hjá Verðbréfaskráningu Ís-
lands og þingskráð í Kauphöll Ís-
lands. Búnaðarbankinn greindi frá
þessu í fréttatilkynningu í fyrradag.
Í tilkynningunni segir að skulda-
bréfin séu gefin út til þess að fjár-
magna lánastarfsemi NIB hér á
landi. Þetta sé fyrsta útboð NIB á Ís-
landi og í fyrsta sinn sem erlendur
banki gefi út skuldabréf í íslenskum
krónum og skrái þau í íslenskri
kauphöll. Þá segir að skuldabréfin
standi öllum fagfjárfestum til boða
og séu mjög áhugaverð viðbót við ís-
lenskan skuldabréfamarkað þar sem
um sé að ræða traustasta aðila sem
gefið hefur út skuldabréf í íslenskum
krónum til þessa.
Lánshæfismat NIB í íslenskum
krónum er Aaa (Moody’s), sem er
sama lánshæfiseinkunn og íslenska
ríkið hefur fyrir skuldbindingar í ís-
lenskum krónum. Segir í tilkynning-
unni að hátt lánshæfismat NIB sé
vegna skuldbindingar allra Norður-
landanna um að ábyrgjast lántökur
bankans.
NIB er alþjóðlegt fjármálafyrir-
tæki norrænu ríkjanna. Útistand-
andi lán bankans til viðskiptavina
námu 10.067 milljónum evra í árslok
2001 og nema útistandandi skulda-
bréf bankans 12.298 milljónum evra.
Bankinn tók þátt í um 60 stórum
fjárfestingarverkefnum á Norður-
löndum á síðasta ári ásamt því að
lána fjármálastofnunum til endur-
lána til smárra og meðalstórra fyr-
irtækja. Lán til iðnfyrirtækja eru
áberandi í lánastarfsemi bankans.
Búnaðarbankinn annast
skuldabréfaútboð NIB
kostnaður var hins vegar heldur
umfram spána, einkum vegna
kostnaðar við endurskipulagningu á
starfsemi í Bandaríkjunum og auk-
ins sölukostnaðar. „Stefna félagsins
hefur verið að auka við sölustarfið
og þannig hefur sölukostnaður farið
vaxandi. Hagnaður fyrir afskriftir
og fjármagnsliði (EBITDA) er því
nokkuð undir spánni en hagnaður
eftir skatta nokkuð yfir spánni. Það
er þó ekki um mikil frávik að ræða
en þau eru vel útskýrð.
Sala Össurar á fyrri helmingi
ársins var rúmlega 20% meiri en á
sama tíma í fyrra og er aukningin
vegna vaxandi starfsemi en ekki
vegna kaupa á fyrirtækjum eða
rekstrareiningum. Annar ársfjórð-
ungur var hinn tekjuhæsti hjá Öss-
uri frá upphafi sem sýnir að það er
góður gangur í starfsemi félagsins.
Við hjá greiningardeild ÍSB erum
því bjartsýn á rekstur félagsins á
næstu misserum,“ sagði Atli Guð-
mundsson hjá greiningardeild Ís-
landsbanka.
HAGNAÐUR Össurar á fyrstu sex
mánuðum ársins nam 3,62 millj-
ónum Bandaríkjadala eða um 308
milljónum króna. Hagnaður félags-
ins á öðrum fjórðungi ársins var
tæplega 2,6 milljónir dala eða tæp-
ar 240 milljónir króna, sem er að-
eins yfir lægri mörkum áætlunar.
Jókst rekstrarhagnaður á öðrum
ársfjórðungi um 53% frá sama
tímabili á síðasta ári.
Fram kemur í tilkynningu frá
Össuri að annar ársfjórðungurinn
hafi verið sá söluhæsti frá upphafi
og söluaukning milli ára jafngildi
26% innri vexti á öðrum ársfjórð-
ungi. Hagnaður á hlut jókst um
31% og var 2,7 cent á hlut.
Sala annars ársfjórðungs var 21,2
milljónir Bandaríkjadala sem er í
samræmi við rekstraráætlun.
Rekstrarhagnaður var tæplega 3
milljónir dala, sem er 460 þúsund
dölum undir lægri mörkum rekstr-
aráætlunar. Hagnaður annars árs-
fjórðungs var tæplega 2,6 milljónir
dala, sem er aðeins yfir lægri mörk-
um áætlunar.
Samstæða Össurar hf. saman-
stendur í meginatriðum af Össuri
hf. á Íslandi, samstæðu Össur
Holdings Inc. í Bandaríkjunum,
samstæðu Össur Holding AB í Sví-
þjóð og Össur Europe BV í Hol-
landi.
Afkoman í samræmi við spár
Greiningardeild Íslandsbanka
segir að afkoma Össurar á fyrri
árshelmingi sé góð og í ágætu sam-
ræmi við spá deildarinnar. Hagn-
aður tímabilsins var nokkuð yfir
spánni en meðal þess sem skýrir
betri niðurstöðu, að mati greining-
ardeildarinnar, er að styrking
evrunnar gagnvart dollar skilaði
félaginu gengishagnaði. Rekstrar-
Söluaukning hjá Össuri hf. jafngildir 26% innri vexti
Hagnað-
ur 308
milljónir
króna
!"
##$%&'
%#$&#(
(%%
%($()*
!%&)
##
!%(%
+'$(*&
#,$*&'
&$#)(
&$,-*
+%.'
+*.)/
!
!
"
#$%&
"
"
TVÖ fyrirtæki vinna nú að gerð raf-
rænnar afladagbókar fyrir skip-
stjórnarmenn. Það eru Radíómiðun
og Sjógrunnur. Bæði fyrirtækin hafa
unnið búnaðinn í samvinnu við Fiski-
stofu og segir Þórður Ásgeirsson
fiskistofustjóri þetta bæði merkilegt
og gagnlegt framtak. Það nýtist
skipstjórnarmönnum vel og skili
greiðari upplýsingum inn til Fiski-
stofu og sé meðal annars vinnuspar-
andi fyrir Hafrannsóknastofnun.
Þórður segir að ekki sé gert upp á
milli fyrirtækja í þessu sambandi.
„Okkar þáttur í þessari vinnu er
fyrst og fremst að búa til eins konar
innstungu hér hjá okkur fyrir upp-
lýsingarnar. Fyrirtækin sem vinna
að gerð afladagbókarinnar verða svo
að sníða sinn hugbúnað að þessari
innstungu. Radíómiðun kom fyrst að
máli við okkur og þá var farið í það
að sækja um styrk til verkefnisins af
Fiskistofu, Sjávarútvegsstofnun Há-
skólans og Radíómiðun til Rann-
sóknaráðs ríkisins. Sá styrkur fékkst
reyndar ekki, en við umsóknina var
skýrt tekið fram að vinna Fiskistofu
væri ekki einskorðuð við þarfir
Radíómiðunar, öllum sem vildu
tengjast Fiskistofu á þennan hátt
væri það heimilt.
Því höfum við unnið með báðum
þessum fyrirtækjum en auk þess
lagt í töluverðan kostnað við að setja
upp móttökubúnaðinn hjá okkur,“
segir Þórður Ásgeirsson.
Rafrænar
afladagbækur
„Merkilegt
framtak“
NORÐURLJÓS skulda lífeyrissjóð-
unum í landinu um 2 milljarða króna
í óveðtryggðum skuldabréfum, því
ekkert þeirra bréfa sem mynda
þessa skuld er með veði í eignum fé-
lagsins.
Eitt bréfa Norðurljósa sem er 350
milljónir króna að nafnverði og
skiptist niður í einingar sem hver er
5 milljónir króna, er skráð í Kauphöll
Ísland en önnur bréf félagsins eru
óskráð, alls að nafnverði um 1.650
milljónir króna.
Bréfið sem skráð er í Kauphöllinni
var gefið út 7. ágúst 1997 með gjald-
daga 30. maí 2005.
Eins og fram kom í samtali við
Sigurð G. Guðjónsson, forstjóra
Norðurljósa, í Morgunblaðinu í gær
greiðir fyrirtækið einungis vexti af
skuldabréfunum en greiðir svo höf-
uðstólinn upp á gjalddaga ásamt
verðbótum.
Hár bjartsýnisstuðull
Sigurður G. Guðjónsson segir að-
spurður að lífeyrissjóðir og aðrar
fjármálastofnanir séu alltaf af og til
að kaupa óveðtryggð skuldabréf af
fyrirtækjum, enda sé ekkert sem
banni það, einungis sé horft á hvort
viðkomandi fyrirtæki geti staðið skil
á skuldinni.
„Í tilfelli Norðurljósa verða menn
líka að horfa á hvenær bréfin voru
gefin út, þ.e. á árunum 1995–1999.
Þá var staða Norðurljósa allt önnur
og bjartsýnisstuðull heimsins miklu
hærri.“
Sigurður segir að Norðurljós séu
ekki fædd í gær og þetta sé ekki í
fyrsta skipti sem það hefur selt fjár-
málastofnunum skuldabréf. „Það
hefur enginn tapað krónu á okkur
ennþá,“ sagði Sigurður.
Samkvæmt upplýsingum frá
tveimur lífeyrissjóðum, Sameinaða
lífeyrissjóðnum og Lífeyrissjóði sjó-
manna, er hvorugur þeirra sjóða
með heimild fyrir því að kaupa
óskráð skuldabréf fyrirtækja án
veðs.
Í fjárfestingarstefnu Sameinaða
lífeyrissjóðsins segir að einungis séu
keypt skuldabréf fyrirtækja gegn
veði í fasteign eða skuldabréf sem
skráð eru í kauphöll.
Í fjárfestingastefnu Lífeyrissjóðs
sjómanna er kveðið á um að skulda-
bréf fyrirtækja sem fjárfest er í skuli
vera skráð á markaði eða stefnt sé að
skráningu þeirra og miðað er við að
kaupa ekki bréf til lengri tíma en tíu
ára.
Árni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri lífeyrissjóðs sjó-
manna, segir að við kaup skulda-
bréfa fyrirtækja sé kallað eftir
upplýsingum um fjárhagsstöðu
þeirra og farið yfir helstu kennitölur
úr rekstrinum. Hann segir að Líf-
eyrissjóður sjómanna hafi keypt
fjögur fimm milljóna króna skráð
skuldabréf af Norðurljósum á sínum
tíma.
Árni segir engin vandkvæði hafa
verið með greiðslu vaxta af þeim lán-
um. „Ég hef enga ástæðu til að ætla
annað en það verði greitt af þessum
bréfum áfram.“
Lífeyrissjóðir kaupa einnig
óveðtryggð skuldabréf
Morgunblaðið/Sverrir